Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
13
SKYR SKILABOÐ
eftir Gunnar Jóhann
Birgisson
í borgarstjóm Reykjavíkur er
ijallað um hagsmunamál allra
Reykvíkinga, málefni hins daglega
lífs. Fyrir okkur öll skiptir því
miklu máli að vel sé á málum hald-
ið. Gegnum tíðina hefur sá stöðug-
leiki og sú stefnufesta sem ein-
kennt hefur meirihlutastjóm Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjóm
sannað fyrir Reykvíkingum rétt-
mæti þess að flokknum er best
treystandi til að gæta hagsmuna
sinna. Fyrir kosningarnar í vor
þarf Sjálfstæðisflokkurinn að sýna
kjósendum með sannfærandi hætti
fram á að svo sé enn.
Umfram allt þarf Sjálfstæðis-
flokkurinn að sannfæra kjósendur
um að undir þeirra stjórn muni
borgin ekki vera stikkfrí gagnvart
eflingu atvinnulífs í borginni held-
ur leita allra leiða til að búa betur
að atvinnulífinu, vinna gegn at-
vinnuleysi og stuðla að því að
starfskraftar þess fjölda sem ár-
lega kemur út á vinnumarkaðinn
séu ekki ónýttir. Reynslan af
skattpíningarstefnu vinstri flokk-
anna sem stjórnuðu borginni
1978-1982, sem varð til þess að
hrekja atvinnufyrirtæki frá
Reykjavík, þarf að verða kjósend-
um víti til varnaðar. Á næsta kjör-
tímabili þarf í áföngum að fella
niður sérstakan skatt af skrifstofu-
og verslunarhúsnæði. Við megum
aldrei gleyma því að þau verðmæti
sem sköpuð eru í atvinnulífinu eru
forsenda þess að gott mannlíf fái
þrifist í borginni.
Jafnframt þarf flokkurinn að
senda kjósendum skýr skilaboð um
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
Veljum frískan
framboðslista!
það að hann sé flokkur aðhalds-
semi í fjármálastjórn borgarinnar
og setji í þeim efnum ráðdeild og
útsjónarsemi á oddinn. í því sam-
bandi á flokkurinn með skýrum
hætti að greina kjósendum frá því
að hætt vérði við endurbyggingu
Korpúifsstaða þar sem efnahags-
legar aðstæður okkar nú leyfa
ekki slíkar framkvæmdir. Einnig
eiga sjálfstæðismenn með skýrum
hætti að beita sér gegn þeirri
stefnu sem hefur verið mörkuð í
skattamálum að sett sé ákveðið
lágmark á hlutfall útsvars. Sjálf-
stæðisflokkurinn á að mæla'fyrir
því að sett verði ákveðið hámark
á leyfilega skattheimtu en ekki
ákveðið lágmark.
Sjálfstæðismenn þurfa að halda
fjölskyldustefnu flokksins á lofti
og leggja á hana sérstaka áherslu.
Fjölskyldan er hornsteinn þjóðfé-
lagsins og velferð hennar er sú
undirstaða sem stöðugleiki og
framfarir í þjóðfélaginu hvíla á.
Við þurfum að ná fram breiðri
samstöðu um að taka á þeim erfið-
leikum sem við er að eiga í dagvist-
armálum. Þar þarf að finna heild-
arlausn til frambúðar í kerfi sem
Gunnar Jóhann Birgisson
„Sjálfstæðismenn þurfa
að halda fjölskyldu-
stefnu flokksins á lofti
og leggja á hana sér-
staka áherslu.“
sinnir betur börnum þeirra foreldra
sem ekki teljast til sérstakra for-
gangshópa. Reykjavíkurborg þarf
að stuðla að slíkri heildarlausn í
samvinnu við einstaklinga og at-
vinnulífið sem á mikilla hagsmuna
að gæta í þessum efnum. Fréttir
af vaxandi ofbeldi og rótleysi í
þjóðfélaginu minna' okkur á mikil-
vægi uppeldisstarfs. í þessum efn-
um felst lausnin ekki í nýbygging-
um og fleiri borgarstarfsmönnum
heldur í því að líta á málaflokkinn
frá nýju sjónarhomi.
Ég býð mig fram í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
vegna þess að ég treysti mér til
að standa vörð um hugsjónir okkar
sjálfstæðismanna og taka þátt í
því að koma hreyfingu á málin.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í
prófkjörinu og hef sett markið á
4. sæti framboðslistans. í próf-
kjörsbaráttunni undanfarna daga
hef ég fundið að sjónarmið mín
eiga mikinn hljómgrunn meðal
sjálfstæðisfólks í Reykjavík og ég
vil nota þetta tækifæri til þess að
þakka þann stuðning og heita því
að bregðast ekki því trausti sem
mér verður sýnt.
Ég hvet alla stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins til þess að
taka þátt í prófkjörinu og taka
þátt í að búa til sigurstranglegan
framboðslista flokksins í borgar-
stjórnarkosningunum í vor.
Höfundur er Iögmaður í Reykjavik
og þátttakandi í prófkjöri
sjálfstæðismanna í borginni.
Prófkjör Sjálfstœðisflokksins
Rétt kona
á réttum stað
■ Skritstota stuðningsmanna • Vesturgötu 2. (Álalosshúsinu) •
■ Simar 16560 og 16561 • Opiö 10-22 •
VZterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
eftirÞórhall
Jósepsson
Tveir málaflokkar verða öðrum
fremur ofarlega í h'uga kjósenda í
borgarstjómarkosningunum í vor:
Atvinnumál og fjölskyldumál.
Eins og glöggt hefur komið í
ljós undanfama daga býr vaxandi
flöldi fólks við sára neyð vegna
atvinnumissis og stöðugt kreppir
að erin stærri hópi, sem þó heldur
vinnu sinni. Kosningar til næsta
kjörtímabils snúast um það að
hefja nýja og kröftuga sókn til
eflingar og nýsköpunar í atvinnu-
lífi borgarbúa, finna ný tækifæri
og gefa einstaklingum og fyrir-
tækjum kost á að nýta þau.
Fjölskyldur, jafnt einstæðra for-
eldra sem hjóna og sambýlisfólks,
eiga kröfu á öllu því öryggi sem
borgin getur veitt þeim. Þar ber
hæst að bömin séu öragg á meðan
foreldramir sækja vinnu sína og
að unglingunum stafi ekki ógn af
samviskulausum sölumönnum eit-
urefna eða öðra misyndi sem getur
átt greiðan aðgang að ómótuðum
sálum. Kosningar til næsta kjör-
tímabils snúast um það að búa öll-
um börnum öruggt umhverfi.
Eðlilega eru þessi mál efst í
huga manna. Ógn atvinnuleysis er
meiri nú en um áratugaskeið og
kvíði læðist að þeim sem enn hafa
vinnu. Fjölskyldan og velferð henn-
ar stendur hveijum manni næst.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
hafa sýnt það í meirihlutastjóm
borgarinnar að þeir ráðast í aðkall-
andi viðfangsefni af krafti og
áræðni. í kosningabaráttu vegna
prófkjörsins nú um helgina hefur
skýrt komið fram að þessi mál sem
hér era rædd verða höfuðviðfangs-
efni næsta kjörtímabils, en til þess
að það gerist verðum við að halda
meirihluta í borgarstjóm.
Málefnalega stöndum við vel að
vígi og bræðingur vinstrimanna
getur ekki boðið Iqosendum betri
kosti. Þess vegna mun kosninga-
baráttan í vor ekki síður snúast
um þá menn sem skipa framboðs-
listana. Afar mikilvægt er að listi
sjálfstæðismanna'fieri það með sér
að þar fari saman reynsla og þekk-
ing annars vegar, nýjar hugmynd-
ir og nýjar lausnir hins vegar.
Þess vegna heiti ég á sjálfstæðis-
menn í Reykjavík að taka þátt í
prófkjörinu um helgina, velja til
forystu þekkt og reynt fólk og ég
inga Jóna í
sællð
Stuðningsmenn
Þórhallur Jósepsson
„Kosningar til næsta
kjörtímabils snúast um
það að hefja nýja og
kröftuga sókn til efling-
ar og nýsköpunar í at-
vinnulífi borgarbúa.“
heiti á ykkur að velja einnig nýtt
fólk til setu í borgarstjóm, fólk
nýrra hugmynda, nýrra lausna,
fólk nýrra tíma.
Sjálfstæðismenn i Reykjavík!
Nú er hart sótt að okkur frá vinstri.
Með trausta málefnastöðu og frísk-
an framboðslista stöndumst við
það áhlaup og höldum meirihlutan-
um í vor.
Höfundur tekur þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
og sækist eftir 4.-6. sæti listans.