Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Urslit í prófkjöri geta ráðið niðurstöðu kosninga eftir Ingu Jónu Þórðardóttur Prófkjörsbaráttan sem nú er senn á enda er fyrsti þáttur í kosninga- undirbúningi Sj álfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar. Kosningabaráttan í vor verður sú erfiðasta í mörg ár og háð undir alveg nýjum formerkjum. Sjálfstæð- ismenn óttast ekki sameiginlegan lista vinstri manna heidur fagna slíkri áskorun og taka höndum sam- an um að vinna að því að stjórn borgarinnar verði áfram í þeirra höndum. Undir stjórn sjálfstæðismanna síðasta kjörtímabil hefur verið unnið að ýmsum framfaramálum og merki- leg spor stigin. Má þar nefna fyrstu skref í átt að einsetnum skóla með heilsdagsþjónustu og vonandi verður þess ekki langt að bíða að grunnskól- arnir verði alfarið í höndum sveitar- félaga. Átak hefur verið gert til að auka og bæta þjónustu í dagvistar- málum. Áfram þarf að þróa þjón- ustuna með fjölbreytta möguleika í huga í samræmi við ólíkar þarfir einstaklinga hvort sem um er að ræða leikskóla, þjónustu dagmæðra eða greiðslur til heimavinnandi for- eldra. Eitt erfíðasta vandamál fjöl- skyldna í dag er árekstrar á milli vinnutíma foreldra og skólatíma barna sem koma ekki aðeins fram í streitu og sífelldu kapphlaupi við tímann heldur líka kvíða vegna ör- yggis barnanna. Félagsleg þjónusta í einni eð'a annarri mynd er að verða æ fyrir- ferðarmeiri þáttur í rekstri borgar- innar. Sjálfstæðismenn hafa alltaf lagt áherslu á að virkja fijáls félaga- samtök og frumkvæði einstaklinga og það þarf að gera í þessum mála- Inga Jóna Þórðardóttir „Sjálfstæðismenn hafa alltaf lagt áherslu á að virkja frjáls félagasam- tök og frumkvæði ein- staklinga.“ flokki eins og öðrum eftir því sem tök eru á. Gildir það jafnt um starf- semi m.a. vegna eldri borgara, ungs fólks og barna. Þar eiga sömu lög- mál við. Baráttan fyrir betra mann- lífi og öruggri borg sem gott er að búa í afmarkast ekki við örfá mál. Þar vefast saman ótal þættir og er til dæmis uppbygging í íþrótta- og æskulýðsstarfi stór liður í slíkri stefnu. Reykjavík hefur stækkað ört á undanförnum árum. Til þessa hefur vel tekist að halda ýmsum neikvæð- um þáttum stórborgarlífs frá okkur en þó eru nú teikn á lofti sem bregð- ast verður við skjótt. Ekki er hægt að una við það að fólk geti ekki farið ferða sinna óáreitt um borgina. Sú stefna að yngri og eidri búi sam- an í hverfum og að íbúabyggð hald- ist í miðbænum er jákvæð. En hætt er við að erfitt reynist að viðhalda henni ef fólk getur ekki gengið ör- uggj; um sitt nágrenni. Þessi mál þarf að taka föstum tökum. Mörg brýn viðfangsefni bíða úr- lausnar en brýnast verður þó að tryggja að fólk hafi atvinnu. At- vinnuleysi er böi sem til allrar ham- ingju hefur tekist að bægja frá lengst af. Það atvinnuleysi sem nú er verðum við að líta á sem tíma- bundið og vinna af öllu afli gegn því að það nái að skjóta rótum. í því efni hafa borgaryfirvöld vissum skyldum að gegna. Styðja þarf og hlúa að ýmissi frumkvöðlastarfsemi, rannsóknum og nýsköpun. Miklar vonir eru bundnar við Aflvaka, nýtt fyrirtæki sem Reykjavíkurborg hef- ur stofnsett og stefnir að því að ná saman ýmsum aðilum til að vinna að skipúlegri uppbyggingu atvinnul- ífsins. í prófkjörinu nú um helgina er valið úr hópi samhetja það lið sem vinna verður kosningarnar í vor. Til þess að geta komið stefnumálum okkar í framkvæmd og séð hugsjón- ir okkar rætast verðum við sjálf- stæðismenn fyrst að vinna kosning- ar. Höfum hugfast að úrslit I próf- kjöri geta ráðið niðurstöðu kosninga. Höfundur er viðskiptafræðingur og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Keppnismann í borgarstjórn eftir Geir Sveinsson SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN þarf á öflugum lista að halda í borg- arstjórnarkosningunum í vor. Margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Miklu máli skiptir að reyndur keppnismaður verði þar framarlega í flokki. Því skora ég á sjálfstæðis- menn að veita Þorbergi Áðalsteins- syni landsliðsþjálfara brautargengi í prófkjörinu nú um helgina. Kynni mín af Þorbergi eru fyrst og fremst í gegnum handknattleik- inn. Ég kynntist honum fyrst sem leikmanni og síðan sem þjálfara. Það sem mér finnst hafa einkennt hann er metnaður, einbeitni, elja og áhugi í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Þorbergur náði frábærum árangri sem Ieikmaður og sem þjálfari hefur hann verið í fremstu röð íslenskra þjálfara. Það sýndi sig strax þegar hann þjálfaði yngri flokka Víkings að hann ætl- aði sér að ná toppárangri. Hann kom Vestmannaeyingum í 1. deild í fyrsta skipti. Sem þjálfari Saab í Svíþjóð sýndi hann ótvíræða skipu- lagshæfíleika og kom félaginu í fremstu röð. Best kynntist ég Þorbergi eftir að hann tók við þjálfun íslenska landsliðsins 1990. Það var ekki auðvelt verk að taka við af Bogdan Kowalczyk, en Þorbergur tók starf- ið strax föstum tökum og vann leik- mennina á sitt band með skipulegu starfi og skemmtilegri framkomu. Hjartans þakkir fyrir skeyti, blóm og aÖrar margvíslegar gjafir á afmcelisdaginn minn þann 20. janúar sl. Þórhildur Jóhannesdóttir. Bestu þakkir til œttingja, vina og annarra, sem glöddu mig á einn eða annan hátt á nírœÖisaf- mœli mínu 9. janúar sl. GuÖ blessi ykkur öll. Kristín Svanhildur Helgadóttir frá Odda. Geir Sveinsson „Það sem mér finnst hafa einkennt hann er metnaður, einbeitni, elja og áhugi...“ Það er erfítt fyrir mig sem fyrirliða að dæma um árangur landsliðsins undir stjórn Þorbergs en því verður ekki mótmælt að 4. sætið á Ólymp- íuleikunum í Barcelona 1992 er besti árangur sem íslenskt landsliðs hefur náð á stórmóti. Ég er þess fullviss að Þorbergur muni sýna sömu einbeitni og sama metnað fái hann stuðning sjálfstæð- ismanna til að starfa í borgarstjórn- arflokki Sjálfstæðisflokksins næsta kjörtímabil. í prófkjörinu um helg- ina þurfa sjálfstæðismenn að vanda valið. Það þarf að mynda sterkt og samheldið lið, sem hefur burði til að fara samhent í sóknipa, til sig- urs í kosningum í vor. í því liði á Þorbergur heima. Kjósum hann í 6. sætið. Höfundur er fyririiði íslenska landsliðsins í Ímndknattleik. Jóna Gróa Sigurðardóttir Guðrún Beck Veljum sjónar- mið Jónu Gróu í borgarstjórn eftir Guðrúnu Beck Við Islendingar erum svo lán- söm að búa við lýðræði. Með reglulegum fresti veljum við full- trúa okkar til að fara með stjórn landsins og sveitarfélaganna. I Reykjavík höfum verið ein- staklega heppin með þá stjórnend- ur sem meirihluti okkar hefur valið. Þar hefur ekki síst skipt máli að samsetning meirihluta borgarstjórnar er fjölbreytt. Borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins koma úr mörgum áttum, en vinna engu að síður svo samhent að eftir er tekið. Jóna Gróa Sigurðardóttir hefur verið virk í þorgarstjórn undanfar- in þijú kjörtímabil. Þar er á ferð- inni kona sem ég vil að við veljum til áframhaldandi starfa á þessum vettvangi. Jóna Gróa færir ijölmörg sjónarmið inn í borgarstjóm. Hún hefur sjálf reynslu af atvinnu- rekstri og hún hefur veitt fjöl- „Nú á tímum vaxandi atvinnuleysis kemur reynsla Jónu Gróu sem formanns atvinnumála- nefndar borgarinnar að miklum notum.“ mennum félagasamtökum for- stöðu. Nú á tímum vaxandi at- vinnuleysis kemur reynsla Jónu Gróu sem formanns atvinnumála- nefndar borgarinnar að miklum notum. Þá hefur hún lagt hönd á plóginn við fjölmörg önnur verk- efni, sem of langt mál yrði að telja upp. Borgin okkar er í farsælum höndum meirihluta sjálfstæðis- manna og þar vonast ég til að sjá Jónu Gróu á næsta kjörtímabili í þriðja sætinu. Höfundur er húsmóðir. Kjósum Katr- ínu í 6. sætið! eftír Guðmund Hallvarðsson og Ólaf Þór Ragnarsson Dagana 30. og 31. janúar nk. ganga sjálfstæðismenn í Reykja- vík til prófkjörs. Kosið verður á milli 25 ákaflega hæfra frambjóð- enda og verður það val vafalaust erfitt fyrir marga. Engu að síður er það nauðsynlegt fyrir Reykvík- inga að hér takist vel til. Undir traustri forystu Markúsar Arnar kemur nýr borgarstjórnarmeiri- hluti sjálfstæðismanna samstíga til nýrra verkefna, með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi. Við treystum Katrínu Gunnarsdóttur ákaflega vel til starfa í þeim hópi og skorum á sjálfstæðismenn að velja hana í 6. sætið. Með störfum sínum, sem vara- borgarfulltrúi síðan 1990 og setu í ýmsum ráðum og nefndum á vegum borgarinnar og íþróttasam- takanna, hefur Katrín sannað hæfni sína og starfað þar með sóma. Veitum Katrínu Gunnarsdóttur Katrín Gunnarsdóttir gott brautargengi í prófkjörinu og kjósum hana í 6. sætið. Guðmundur Hallvarðsson er þjngmaður Sjálfstæðisflokks, Ólafur Þór Ragnarsson er fulltrúi hjá Landhclgisgæslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.