Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
• • ^
Ollum starfsmönnum Slippstöðvarinnar-Odda sagt upp störfum
Reynt að afstýra gjaldþroti með
uppsögnum og nauðasamningi
Lánardrottnar segja heimamenn verða að leggja sitt af mörkum svo árangur náist
STARFSFÓLKI Slippstöðvarinnar-Odda var sagt upp störfum í
gær. Greiðsiustöðvun fyrirtækisins rennur út í næsta mánuði, en
þess er vænst að í næstu viku verði hægt að leggja fram frumvarp
að nauðasamningum og afstýra gjaldþroti fyrirtækisins. Stærstu
lánardrottnar félagsins eru sammála um aðgerðir með þeim fyrir-
vara að nauðasamningar takist við aðra kröfuhafa og hlutafé verði
fært niður. Þá telja stærstu lánardrottnar að árangur náist ekki
nema í samráði við heimaaðila, bæjaryfirvöld og stéttarfélög.
Messur
■AKUREYRARPRESTA-
KALL: Helgistund verður á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
morgun kl. 10. Sunnudaga-
skólinn verður kl. 11 í kirkj-
unni, munið kirkjubílana.
Guðsþjónusta verður í Akur-
eyrarkirkju á morgun kl. 14.
Guðsþjónusta verður í Dvalar-
heimilinu Hlíð á morgun kl. 16.
Æskulýðsfélagið verður með
fund í kapellunni kl. 17 á morg-
un. Biblíulestur verður í Safn-
arðarheimilinu mánudags-
kvöldið 31. janúar kl. 20.30.
■GLERÁRKIRKJA: Biblíulest-
ur og baenastund kl. 13 í dag,
laugardag. Barnasamkoma kl.
11 á morgun, léttir söngvar,
fræðsla og bænir. Messa kl.
14. Kirkjukór Hvammstanga
og organisti Helgi Ólafsson
ásamt sóknarpresti sr. Krist-
jáni Björnssyni koma í heim-
sókn og leiða messuna ásamt
staðarpresti. Fjölmennum í
kirkju og tökum vel á móti
góðum gestum. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17.30.
■ HVÍTASUNIMUKIRKJAN:
Námskeið vegna sunnudaga-
skólastarfsins, kennari Sheila
Fitzgerald í dag laugardag frá
10 til 16. Samkoma fyrir ungt
fólk í kvöld kl. 20. Barnakirkjan
á morgun kl. 11. Vakninga-
samkoma kl. 15.30. Ræðu-
maður Mike Fitzgerald. Æsku-
lýðsfundur fyrir 9 til 12 ára kl.
17.30 á miðvikudag, grunn-
fræðsla fyrir nýja kl. 20.30.
Bænaganga og lofgjörð föstu-
dagskvöld kl. 20.
Knútur Karlsson formaður
stjórnar Slippstöðvarinnar-Odda
§agði ástandið afar dapurt, en í
raun mætti segja að það endurspe-
glaði viðvarandi erfíðleika í sjávar-
útvegi. Verkefni væru af skomum
skammti, að jafnaði væri þessi tími
sá daufasti á árinu hvað verkefni
varðaði en aldrei hefði verið jafn
PASÍUKÓRINN á Akureyri held-
ur tónleikar í Akureyrarkirkju á
morgun, sunnudag, kl. 20.30.
A efnisskránni eru tvö verk, A
Ceremony og Carols eftir Benjamin
Britten og La Flesta de la Posada
eftir bandaríska jasspíanistann
Dave Brubeck.
lítið að gera og meginþorri starfs-
fólks hefði verið heima á atvinnu-
leysisbótum í janúar.
Stjóm Slippstöðvarinnar-Odda
ákvað í samráði við stærstu lánar-
drottna félagsins, Landsbanka ís-
lands, Iðnlánasjóð og Iðnþróunar-
sjóð, að segja öllum starfsmönnum
fyrirtækisins upp störfum og mið-
Flytjendur á tónleikunum auk
Passíukórsins em Signý Sæmunds-
dóttir, sópran, Þuríður Baldursdótt-
ir, mezzosópran, Þorgeir Andrés-
son, tenór, Michael Jón Clarke,
bariton, Steinþór Þráinsson, bassi
og Richard Simm, píanó. Níu manna
hljómsveit leikur, en stjómandi er
Roar Kvam.
ast uppsögnin við næstu mánaða-
mót, en uppsagnir taka gildi hjá
flestum þeirra að liðnum þremur
mánuðum. Alls fengu 132 starfs-
menn uppsagnarbréf afhent í gær,
en áður var búið að segja upp 29
starfsmönnum eða þeir höfðu sjálfír
sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.
Frumvarp að
nauðasamningum
Verulegir íjárhagserfiðleikar fé-
lagsins urðu til þess að það fékk
greiðslustöðvun 3. ágúst síðastlið-
inn og hefur nú tvívegis síðan verið
framlengd, en hún rennur út 22
febrúar næstkomandi. Viðræður við
stærstu lánardrottna eru nú á loka-
stigi og þess vænst að jafnvel í
næstu viku verði hægt að leggja
fram frumvarp að nauðasamning-
um. Forráðamenn fyrirtækisins
vonast til að með þessum aðgerðum
verði hægt að afstýra gjaldþroti
félagsins og gangi það eftir verður
hluti starfsmanna endurráðinn inn-
an 3ja vikna. Ljóst er þó að um
verulega fækkun starfsmanna verð-
ur að ræða miðað við verkefnastöð-
una og óvissu um verkefni á næstu
mánuðum, en með uppsögnunum
er fyrst og fremst verið að opna
möguleika til róttækrar endur-
skipulagningar fyrirtækisins.
Sammála um aðgerðir
í fréttatilkynningu frá Lands-
banka Islands, Iðnlánasjóði og Iðn-
þróunarsjóði kemur fram að fulltrú-
ar þessara aðila hafi unnið að at-
hugunum á fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins og möguleikum þess að endur-
skipuleggja og treysta rekstrar-
grundvöllinn. „Þessir lánardrottnar
hafa fyrir sitt leyti orðið sammála
um aðgerðir til að endurskipuieggja
fjárhagsstöðu fyrirtæksins með
þeim fyrirvara að nauðasamningar
takist við aðra kröfuhafa og núver-
andi hiutafé verði fært niður,“ segir
í tilkynningunni. Samhliða uppsögn-
um starfsmanna verði hafist handa
við að endurskipuleggja rekstur fé-
lagsins í ljósi þeirrar stöðu sem at-
vinnugreinin sé nú I og muni fulltrú-
ar bankans og sjóðanna vinna með
stjórnendum félagsins að því verki.
„Ljóst er þó að árangur næst ekki
í að treysta starfsgrundvöll félags-
ins nema heimaaðilar, þar með talið
bæjaryfírvöld og stéttarfélög, taki
tillit til þessarar breyttu stöðu og
leggi sitt af mörkum til að endur-
skipulagningin megi takast.“
Tónleikar Passíukórs
Borgarstjóri segir leitt hvað
Omólfi var svarað seint
Formaður Rithöfundasambandsins segir svar borgarstjóra ófullnægjandi
BORGARSTJÓRI, Markús Örn Antonsson, hefur sent Rithöfunda-
sambandi íslands svar við bréfi sambandsins þar sem óskað var
skýringa á því hvers vegna og með hverjum hætti það gerðist að
borgaryfirvöld tóku þá ákvörðun að hafna verki Örnólfs Árnason-
ar sem hann samdi til flutnings við opnun ljósmyndasýningar í
Ráðhúsi Reykjavíkur og greint var frá i Morgunblaðinu s.l. fimmtu-
dag. Svar borgarstjóra felst í minnisblaði frá Júlíusi Hafstein,
formanni lýðveldishátíðarnefndar Reykjavíkur, sem er að mestu
samhljóða því sem haft var eftir Júlíusi vegna málsins í Morgun-
blaðinu. Þráinn Bertelsson, formaður Rithöfundasambands ís-
lands, segir svarið ófullnægjandi og vekja fleiri spurningar en það
svarar.
Á minnisblaðinu segist Júlíus
bera ábyrgð á því að fela Indriða
G. Þorsteinssyni verkið í stað þess
manns sem Benedikt Árnason leik-
stjóri, sem hefur umsjón með dag-
skránni sem flutt verður við opnun
sýningarinnar, hafði til þess fengið
og að þetta hafí verið ákvörðun
um einn rithöfund frekar en annan.
Miður hvað þetta gerðist seint
Aðspurður um hvort honum þyki
þessi vinnubrögð formanns iýð-
veldishátíðamefndar eðlileg, sagði
borgarstjóri þetta: „Undirbúnings-
nefnd lýðveldisafmælishátíðar hef-
ur haft allt umboð til þess að ráða
höfunda, skemmtikrafta og aðra
þá sem eiga að koma fram í dag-
skrá á hennar vegum án þess að
ég eða borgarráð væru að hafa
afskipti af því. Svo hefur verið um
þetta mál og ég hef ekki fylgst
neitt með því. Það var ekki fyrr
en það kom upp með þessum hætti
sem mér varð kunnugt um það.
Formaðurinn tekur ákvarðanir um
það hver höfundur er sem ráðinn
er til að sinna þeim verkum sem
þama þurfa að koma til vegna
dagskrárinnar. Þama fær hann
augastað á Indriða G. Þorsteins-
syni og á sama tíma er Ömólfur
Ámason búinn að vera að vinna í
þessu verki eftir tilmælum Bene-
dikts Árnasonar sem Júlíusi var
kunnugt um. Auðvitað er það mjög
miður að þetta gerist svo seint,
eins og Júlíus hefur tekið fram
sjálfur. Hins vegar var búið að
gera þetta upp við Örnólf og mað-
ur hefði getað ályktað að þá væri
málið útkljáð úr því hann var búinn
að þiggja sína greiðslu en svo virð-
ist ekki vera og meira get ég ekki
sagt um það.“
- En verður borgin ekki fyrir
tvöföldum kostnaði vegna þessa?
„Nefndin, þetta er á ábyrgð
hennar. Hún hlýtur þá að haga
gerðum sínum að öðra leyti í sam-
ræmi við það. Ef hún greiðir tvö-
faldan kostnað fyrir þetta handrit
þá hlýtur það að bitna á einhveiju
öðru hjá henni,“ sagði borgarstjóri.
Skipt um hesta í miðri á
Þráinn Bertelsson telur minnis-
blað Júlíusar Hafstein ófullnægj-
andi sem svar við fyrirspurn Rit-
höfundasambandsins til borgar-
stjóra. „Júlíus segir að þetta sé
ákvörðun um einn rithöfund frekar
en annan og það getur vel verið.
En hann var búinn að ráða sér
rithöfund og mér finnst það af-
skaplega undarleg ákvörðun og
hegðun af borgarfulltrúa gagnvart
listamanni að treysta sér ekki til
að bíða í nokkra klukkutíma til
að geta dæmt um verk þess manns
sem hann hafði ráðið. Þess í stað
ákveður Júlíus, fáeinum klukku-
tímum áður en Ömólfur skilar
verki sínu, að skipta um hesta úti
í miðri á. Og um allar aldir hafa
íslendingar haft tiltölulega lítið
álit á greind þeirra manna sem
stunda hestaskipti úti í miðri á,“
sagði Þráinn Bertelsson.
Indriði ekki í
Rithöfundasambandinu
„Svo lætur þessi ágæti Júlíus
að því liggja að Rithöfundasam-
band íslands sé að skipta sér af
málinu af því að það hafi áhuga á
því að gera upp á milli félags-
manna. Þetta er náttúralega þvflíkt
ragl að það er varla svaravert. Frá
okkur hefur ekki komið hnjóðsyrði
um Indriða G. Þorsteinsson, þann
mæta' rithöfund, sem Júlíus hefur
núna falið að vinna þetta verk.
Ég vona bara að hann reki hann
ekki líka áður en Indriði nær að
skila verkinu. Svo má geta þess
að Indriði G. Þorsteinsson er ekki
félagsmaður í Rithöfundasam-
bandinu, því miður, og það er
kannski bara enn ein tilviljunin, í
því er virðist stjórnlausa og tilvilj-
anakennda framferði Júlíusar
Hafstein, að reka meðlim úr Rit-
höfundasambandinu en fá í hans
stað mann sem er ekki innan okk-
ar vébanda."
Hver borgar?
„Þetta svar er ekki fullnægjandi
fyrir Rithöfundasamband Islands
því við spyijum enn hvemig standi
á því að höfundinum var hafnað
án þess að listrænar forsendur
gætu til þess legið og ég spyr sem
almennur borgari hér í Reykjavík,
er það Júlíus Hafstein sem borgar
svona vitleysu úr eigin vasa eða
era það ég og þú? Og ég vil fá
að vita hvort þessi borgarfulltrúi
nýtur samþykkis og vemdar fé-
laga sinna og yfírmanna hjá borg-
inni, hvort félögum hans í borgar-
stjóm þyki þetta allt í lagi eða
hvort hann er einn á sveimi með
svona framferði. Mér þætti mjög
þægilegt til þess að vita, bæði
persónulega og fyrir meðlimi Rit-
höfundasambandsins og aðra
listamenn í þessu landi sem gætu
þurft að hafa samskipti við
Reykjavíkurborg. Sú spuming sem
mér er efst í huga núna er hvort
nokkram heilbrigðum manni detti
í hug hvort Júlíus sleppi á þennan
máta frá þessu. Ég get ekki
ímyndað mér annað en að allir
sjái hversu aumlegt yfirklór þetta
er, málstaðurinn vondur og sam-
viskan óhrein,“ sagði Þráinn Bert-
elsson.
Neskirkja
Sunnudags-
erindií
Neskirkju
ÞAÐ hefur tíðkast undanfarna
vetur í Neskirkju að flutt hafa
verið erindi í safnaðarheimili
kirkjunnar á sunnudögum um
ýmis efni varðandi kristni og
þjóðlíf. Þessu verður nú fram
haldið á sunnudaginn kemur og
hefst fyrsta erindið um fimmtán
mínútur yfir þijú þegar fólk hef-
ur fengið sér kaffísopa eftir
guðsþjónustu.
Dagskrá næstu sunnudaga er
eftirfarandi: 30. janúar: Sr. Jónas
Gíslason, vígslubiskup, flytur erindi
er hann nefnir Þegar eldhúsið varð
að helgidómi. 6. febrúar: Sr. Ragn-
ar Fjalar talar um Biblíuútgáfur og
hefur sýningu á nokkram þeirra.
13. febrúar: Sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson, rektor Skálholtsskóla, fjall-
ar um kristið helgihald. 20. febr-
úar: Sr. Þorvaldur Karl Helgason,
forstöðumaður Fjölskyldujtjónustu
kirkjunnar, ræðir um fjölskylduna,
en árið 1944 er svo sem kunnugt
er helgað henni.