Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Vísbendingar um horfnu piltana ekki á rökum reistar Á fjórða hundrað manns leitaði í gær Á FJÓRÐA hundruð manns úr röðum björgunarsveita og lögreglu leitaði áfram í gær piltanna tveggja úr Keflavík sem saknað hefur verið síðan á miðvikudag. Sjónarvottar staðhæfðu í gær að hafa séð til piitanna, annars vegar um kl. 17.20 við að taka úr fé í hrað- banka Islandsbanka í miðbæ Reykjavíkur, en annar piltanna er handhafi hraðbankakorts, og hins vegar um kl. 13 á veginum á leið til Eyrarbakka. Athugun leiddi í ljós að ekki hafði verið hreyft við innstæðum piltsins í bankanum og lögreglan á Eyrarbakka sá ekk- ert til piltanna þar. í gær leituðu um 25 kafarar í Keflavíkurhöfn og nágrenni. Sérþjálfaður sporhundur rakti slóð eftir piltanna, auk þess sem tveimur leitarhundum öðrum var beitt. Þeir röktu m.a. slóð að Vatnsnesi við Keflavíkurhöfn, en ekki er útilokað að um eldri slóð sé að ræða þar sem talið er að piltamir hafi leikið sér í klettum á því svæði dagana áður en þeir hurfu. Aðstæður til leitar í sjó voru ið auka á svartsýni okkar, þar sem afar erfiðar á fimmtudag en bötn- uðu til muna í gær og var lögð áhersla á að grannskoða hafnar- svæðið meðan birta og veður leyfði. Ólafur Bjamason, formaður svæð- isstjómar björgunarsveita á Suður- nesjum, sagði í gær að íjöldi vís- bendinga af ýmsum toga hafi bor- ist, m.a. frá skyggnu fólki og miðl- um, en engin þeirra hafi reynst á rökum reistar við nánari athugun. „Hafi þeir ekki fundist fyrir laugar- dagsmorgun held ég að ekki sé til- efni til bjartsýni," sagði Ólafur. Þórir Maronsson, yfirlögreglu- þjónn, tók í sama streng. „í nótt var 12 stiga frost héma og þó að piltarnir séu í góðum göllum er annar þeirra aðeins í strigaskóm og hinn húfulaus. Kuidinn og veðr- það dregur úr líkunum á að þeir geti leynst utandyra," sagði Þórir. Víðtæk leit Um hádegi í gær var leitarsvæð- ið stækkað og bættust um 80 björg- unarsveitarmenn frá höfuðborgar- svæðinu og víðar í hóp leitar- manna. Stefnt var að því að fín- kemba stærstan hluta Reykjaness, allt frá Garði til Vatnsleysustrand- ar og frá Grindavík til Þorlákshafn- ar. Einnig kannaði lögreglan á Selfossi sumarbústaðabyggðir í Grímsnesi til að reyna sannleiks- gildi ábendingar sem barst þaðan, ásamt björgunarsveitannönnum þar og á Stokkseyri og Eyrarbakka. Leitarmenn vom hvarvetna á ferð í Keflavík og nærliggjandi bæjum í gær. Leitað var í auðum húsum og gengið með myndir af piltunum milli verslana í Keflavík og nágrenni. Fýrir hádegi leitaði þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GRÓ, úr lofti og TF-SIF bættist í leitina um miðjan dag og sex slöngubátar tóku þátt í leit á sjó. Að sögn Ólafs hefur annar piltanna oft á tíðum ferðast á puttanum til Reykjavíkur og var sá möguleiki að piltamir hefðu þegið far frá Keflavík ekki útilokaður. Var það m.a. ástæða þess að svæðið var stækkað og björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu kallaðir út. Efast um vitnisburð sinn Leit að piltunum tveimur, Óskari Halldórssyni og Júlíusi Karlssyni, hófst um kl. 15 á fimmtudag en þá var um sólarhringur liðinn frá því að þeir fóru að heiman frá sér. Piltamir em báðir fæddir árið 1980 og stunda skóla í Sandgerði og ók kennari þeirra þeim heim að lokn- um skóladegi. Um kl. 15.30 fór Óskar frá heimili sínu og kvaðst ætla að heimsækja Júlíus. Starfs- maður í versluninni Jám og skip í Keflavík taldi sig hafa séð þá í versluninni um kl. 16 á miðvikudag en hefur síðan lýst yfir efasemdum um að svo hafi verið. Síðan hefur ekkert til þeirra spurst. Leitar- menn LEITARMENN gengu fjörur og þræddu Kefla- víkurbæ og ná- grenni í gær, en leitarsvæðið nær nú yfir allt Reykjanes. Á neðri myndinni sjást kafarar frá björgunar- sveitunum stökkva til köf- unar í Keflavík- urhöfn, en á þriðja tug kaf- ara kannaði sjóinn á þessu svæði í gær. Morgunblaðið/Júlíus Steingrímur Njálsson í gæsluvarð- hald grunaður um grófa hkamsárás Hann hefur verið dæmdur 24 sinnum í samtals tíu ára fangelsi STEINGRÍMUR Njálsson, sem margsinnis hefur gerst sekur um / kynferðisafbrot, er grunaður um að hafa ráðist að manni og veitt honum áverka með því að rífa í pung honum þannig að annað eistað lafði út. Atburðurinn átti sér stað í fyrrinótt í húsi við Skipholt þar sem nokkrir þekktir óreglumenn voru saman komnir. Maðurinn sem áverkann hlaut var fluttur á sjúkrahús til aðgerðar og voru taldar líkur á hann mundi ekki bíða varan- legt heilsutjón af. Steingrímur Njálsson var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 21. febrúar vegna rannsóknar málsins. Hann hefur hlotið 24 refsidóma og verið ^ dæmdur í samtals um 10 ára fangelsi fyrir margskonar afbrot, þar á meðal fjölmorg kynferðisafbrot gegn börnum. Tildrög málsins voru þau að hringt var í slökkviliðið og óskað eftir sjúkrabíl að húsi við Skipholt klukkan tæplega hálffimm í fyrri- nótt. Að sögn lögreglu er húsið þekkt sem dvalarstaður óreglu- fólks. Að sögn lögreglu var Stein- grímur Njálsson á staðnum og reyndi að hindra að lögreglumenn fengju að fara inn í húsið með sjúkraflutningamönnum og var þá handtekinn. Inni í íbúðinni lá maður nakinn á dýnu og reyndist hann vera með þá áverka sem lýst er að framan. Að auki voru í íbúðinni húseigand- inn og sonur hans. Húsráðandinn tjáði lögreglu að sögn að hann hefði vaknað skömmu áður við öskur og þegar hann hafi kannað málið hafi hann séð Stein- grím standa yfir dýnunni þar sem hinn maðurinn lá og engdist af kvölum. Að sögn lögreglu var dreg- ið af manninum sem orðið hafði fyrir áverkanum þegar lögreglan kom á staðinn. Hann var fluttur á slysadeild og gekkst þar undir að- gerð. Rannsóknarlögregla ríkisins hafði síðdegis í gær fengið upplýs- ingar um að líklega mundi takast að græða sár hans. Aður en upplýstist hvemig í málinu lá hafði lögregla tvívegis áður verið kvödd á staðinn. Fyrst um klukkan 3 vegna kvörtunar um ölvunarlæti og aftur um klukkan 4 þegar slökkvilið bað lögreglu að kanna tilefni þess að beðið hafði verið um sjúkrabíl á staðinn en þaðan hafa sjúkraliði áður borist tilefnislaus útköll. Þá neitaði Stein- grímur lögreglunni um inngöngu, sem taldi að um gabb væri að ræða, en eftir u.þ.b. 20 mínútum barst önnur beiðni og þá kom í Ijós hvers eðlis málið var. Eftir handtökuna var Steingrím- ur færður í fangageymslur. Ekki lá fyrir játning af hans hálfu í málinu í gær en eftir að RLR gerði kröfu um gæsluvarðhald yfir hon- um til 14. mars var kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi um varð- hald til 21. febrúar. Ekki var af lögreglu gerð krafa um geðrannsókn yfir manninum en hann hefur 24 sinnum hlotið refsidóma með samtals 10 ára fangelsisvist fyrir margvísleg brot, þar á meðal kynferðisafbrot gegn Qölda unga drengja. Vegna þeirra mála hefur hann verið látinn gang- ast undir geðrannsóknir en niður- staða þeirra rannsókna hefur jafn- an verið á þann veg að hann væri sakhæfur á af þeim sökum hefur hann verið dæmdur til fangelsis- vistar en ekki öryggisgæslu. Talinn sakhæfur Með dómi Hæstaréttar frá 1988 vegna kynferðisbrota var hann dæmdur til 9 mánaða fangelsisvist- ar og að henni lokinni til 15 mán- aða meðferðar á viðeigandi stofn- un. Sú meðferð fór fram á stofnun í Svíþjóð. Eftir meðferðina var Steingrímur handtekinn í Norður- mýrinni í Reykjavik þar sem hann hafði fært ungan dreng úr buxum og vegna þess var hann dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar í Hæstarétti. í lok ársins 1991 lauk hann afplánun þess dóms en þá gerði ákæruvaidið kröfu um að hann yrði dæmdur til sérstakrar gæslu þar sem hann væri hættuleg- ur vanaafbrotamaður sem líklegt mætti telja að bryti af sér að nýju og hefði auk þess haft í hótunum við lækna og aðra sem komið hefðu að málum hans. Kröfu um sérstaka gæslu hafnað Þeirri kröfu var hafnað í Hæsta- rétti í febrúar 1992. í dómi Hæsta- réttar segir: „Fram er komið, að dóms- og kirkjumálaráðuneytið getur einungis komið ákærða í gæslu í fangelsi og að aðrir aðilar geta ekki boðið aðra kosti. Dóm- stólar eiga úrskurð um það, hvort sú gæsla sem tök eru á að beita, uppfylli lagaskilyrði. Telja verður, að svo sé ekki nú að því er ákærða varðar, þar sem aðbúð hans yrði óviðunandi eftir aðstæðum." Síðan þá hefur Steingrímur ekki verið dæmdur til fangelsisvistar en bíður nú dóms vegna ákæru fyrir ölv- unarakstur og innbrot. Þegar dómur Hæstaréttar var kveðinn upp hafði vistheimili fyrir ósakhæfa afbrotamenn á Sogni í Ölfusi ekki tekið til starfa en eins og fýrr sagði hefur Steingrímur jafnan verið talinn sakhæfur. Að mati viðmælenda Morgunblaðsins í gær virðist sem óbreyttri skil- greiningu á starfseminni á Sogni komi tæpast til greina að hann verði vistaður þar nema fyrir liggi önnur niðurstaða um sakhæfi hans. Frá því að afplánun fangelsisdóms- ins lauk hefur maðurinn dvalið víðs vegar um landið, oftast í skamman tíma á hverjum stað og einnig er- lendis um tíma. Dvöl hans hefur jafnan vakið tortryggni fólks og hefur hann sums staðar orðið fyrir aðkasti. Sérstakt eftirlit lögreglu hefur víða verið haft með ferðum hans. Undanfarið hefur hann hald- ið til í Reykjavík og hafst við í báti sem stendur uppi í grennd við höfnina. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar hafði hann fengið leyfi til að dveljast i húsinu við Skipholt vegna kuldanna undan- fama daga. Ari Edwald, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að í ljósi þess sem að framan er rakið virtist sér að þau úrræði sem aðstæður þessa manns kalli á séu utan við verksvið lögreglu- og fangelsis- kerfisins. „Eg held að það sé aug- ljóst að þau úrræði sem [vikið er að í Hæstaréttardóminum frá 1992] og þarna virðist vera ]fcrf á eru fremur á sviði heilbrigðisúr- ræða,“ sagði hann aðspurður um hvort hann teldi í Ijósi sögu manns- ins að nauðsynlegt væri að grípa til sérstakra ráðstafana eftir at- burðina í fyrrinótt. Engin þvingnnarúrræði gagnvart sjálfráðum „Það er ljóst að þetta getur ekki verið eðlilegt ástand en vandinn er sá að dómstólar hafa úrskurðað um sakhæfi mannsins. Heilbrigðis- kerfíð býður sína þjónustu en sjálf- ráða aðilar hafa á sínu valdi hvort þeir nýti sér hana. Vandinn er þessi: hvaða þvingunarúrræðum getur framkvæmdavaldið beitt í málum af þessum toga? Ég ætla eins fljótt og unnt er að kalla sam- an aðila sem til málsins þekkja í tilefni þessara nýju tíðinda og fara yfir málið á nýjan leik,“ sagði Guð- mundur Árni Stefánsson heilbrigð- isráðherra þegar Morgunblaðið leitaði til hans vegna málsins. Aldrei sviptur sjálfræði Morgunblaðið fékk í gær upplýst í dómsmálaráðuneytinu að sam- kvæmt skrám þess hefði Stein- grimur Njálsson aldrei verið sviptur sjálfræði en það er forsenda þess að unnt sé að vista mann á stofnun gegn vilja hans. í 5. grein sjálfræð- islaganna er ákvæði um það að dómsmálaráðuneyti geti gerst sóknaraðili að sjálfræðissviptingar- máli þegar það sé talið nauðsynlegt vegna gæslu almannahagsmuna, að ósk skyldmenna eða vegna vitn- eskju um hagi aðila sem fengin sé á annan hátt. Að sögn Margrétar Hauksdóttur hjá dómsmálaráðuneytinu eru þess afar fá dæmi að ráðuneytið gerist sóknaraðili að sjálfræðissviptingar- máli en í slík mál sé oft ráðist að frumkvæði félagsmálastofnana sem einnig geti gerst sóknaraðilar að slíkum málum samkvæmt lög- unum. PG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.