Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 45 Er lútherskur rétttrúnaður það eina rétta? Frá Kristjáni Baldurssyni: í RITI Guðfræðistofnunar Háskóla íslands Trúarlíf íslendinga 1990 koma fram áhugaverðar upplýs- ingar um trú og viðhorf íslendinga til trúar og kirkju. Þessar upplýs- ingar eru byggðar á víðtækum skoðanakönnunum sem fram fóru á árunum 1986 og 1987. Eitt af því sem vekur sérstaka athygli er það að stór hluti þjóðarinnar telur sig trúaðan á sinn eigin persónulega hátt. Einnig vekur það athygli að einungis 10% þjóðarinnar fara einu sinni eða oftar í mánuði til kirkju. Hvað segja þessar upplýsingar, ein- faldlega það að stór hluti þjóðarinn- ar sem telur sig trúaðan og er það án efa telur sig ekki eiga samleið með kirkjunni. Hér eru greinilegar niðurstöður sem ekki er hægt að túlka öðruvísi en sem svo að fólk sé ósammála þeim áherslum sem kirkjan og þjónar hennar fara eftir •í dag. Enda hafa áherslurnar breyst mikið á síðustu áratugum. Á einum stað í tilvitnuðu riti segir (bls. 144) „að margir prestar á íslandi hafa ekki lagt mikla áherslu á altaris- sakramentið í guðsþjónustu og til voru þeir prestar sem voru ekkert að halda þessu aðfólki“. En höfund- ur ritsins lítur þannig á að „altaris- sakramentin séu sjálfur kjaminn í kristinni trú fyrir þá sem trúa á Jesú og fórnardauða hans fýrir syndir mannanna. Svo þeir megi hólpnir verða“ (bls. 142). Það er Ijóst að mun meiri áhersla er lögð á þennan þátt guðsþjónustunnar nú í dag en fyrr á árum. Fjölhyggja Fjölmargir íslendingar eru trúað- ir á sinn eigin persónulega hátt, þeir eru með öðrum orðum leitandi eins og sagt er (sbr. leitið og þér munuð finna), þrá að byggja sig upp andlega og þroska sig og leita sannleikans. Þó velflestir í þjóð- kirkjunni séu skírðir, fermdir og noti þjónustu kirkjunnar við hjóna- vígslur og hinstu kveðju frá þessu jarðlífi er ekki þar með sagt að þeir séu sáttir við þær bókstafs- kenningar og ofurkapp sem lagt hefur verið á játningar og altaris- sakramenti eins og raun ber vitni nú í seinni tíð. Til að mynda er mikill fjöldi trú- aðs fólks í sálarrannsóknarfélögum og guðspekifélögum. í guðspekifé- lögum er hugsjónin alheimsbræðra- lag og að engin trúarbrögð séu sannleikanum æðri. Ekki ósamrým- ist það kristilegri hugsun. Frum- kvöðlar svokallaðra sálarrannsókna töldu að það væri stórkostlegur ávinningur fyrir kristna trú að geta sannað lífið eftir dauðann á vísinda- . legán hátt.’ Nokkuð er það að gríð- arlegur fjöldi fólks hefur fengið mikla huggun við ástvinamissi að geta leitað' frétta af framliðnum gegnum miðla. I þessu er fólgin mikil persónuleg reynsla. Þegar fólk hefur sannreynt og fengið fyrir því persónulega sönnun að lífið haldi áfram eftir dauðann er það miklu meira virði og reynsla sem enginn getur frá manni tekið. Fyrr á árum voru auk heldur marg- ir prestar sem höfðu ekkert á móti þessu. Ber þá einna hæst hinn há- menntaða guðfræðiprófessor og frí- kirkjuprest Harald Níelsson, en hann taldi það hlyti að vera mikill styrkur fyrir kristna trú ef unnt yrði að sanna framhaldslífið. Marg- ir hneigjast einnig til þess að trúa á fortilveru mannsins og svokallaða endurholdgun (reincarnation). Þetta er eitt af því sem kirkjan vill ekki samþykkja en var í frum- kristni viðurkennt. Auk þess sem margt bendir til þess á ýmsum stöð- um í Biblíunni að höfundar hennar hafi talið fortilveruna staðreynd (sbr. Jóhannesarguðspjall þar sem spurt er hvort Jóhannes skírari sé Elía endurborinn). Það þarf ekki að koma neinum á óvart að íslendingar eru trúaðir á sinn persónulega hátt og það hlýt- ur að verða að teljast styrkur hvers og eins að hann vilji leita, að hann vilji knýja á og nota sína dómgreind til að gera sér grein fýrir trú sinni. Hlutverk kirkjunnar Kirkjan öllum opin var eitt sinn sagt í hirðisbréfi. „Trúin er traust manna á guði en guðfræðin manna verk,“ sagði Jón biskup Helgason VELVAKANDI ÞAKKIRTIL ILLUGA JÖKULSSONAR ELSA Guðsteinsdóttir hringdi og vildi þakka Illuga Jökulssyni fyrir orð í tíma töluð í morgunút- varpi Rásar 2 sl. fímmtudag. HEKLUELDAR KONAN sem kom til Sögufé- lagsins fyrir nokkru í leit að bókinni Heklueldar getur haft samband við afgreiðsluna í síma 14620. TAPAÐ/FUNDIÐ „Fljúgandi sæng“ MAÐUR nokkur hringdi og sagði frá því að fyrir u.þ.b. viku hefðr hann fengið „fljúgandi sæng“ í höfuðið þar sem hann var á gangi í Hraunbrún í Hafn- arfirði í suðvestan strekkingi. Eftir að hafa sannreynt að þetta var ekki austurlenskt töfrateppi fór hann með sængina á lög- reglustöðina í Hafnarfirði og þar getur eigandi vitjað hennar. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í kringlóttri svartri umgjörð töpuðust laugardags- kvöldið 15. janúar, að öllum lík- indum á leiðinni frá Skúlagötu upp á Týsgötu. Hafi einhver fundið gleraugun er viðkomandi beðinn að hringja í síma 667336 eftir kl. 20. Bíllykill fannst BÍLLYKILL og vasahnífur fund- ust rétt hjá Borgarspítalanum. Nánari upplýsingar í síma 73989. GÆLUDÝR Kettlingar TVEIR bráðfallegir kettlingar, fæddir 4. desember, fress og læða, fást gefins á góð heimili. Upplýsingar í síma 627627. Kettlingar ÞRÍR níu vikna kassavanir kettlingar fást gefíns. Upplýs- ingar í síma 675420. Týndur köttur FRIÐA, sem er ómerkt lítil svört og hvít læða, fór að heiman frá sér, Laufengi 70, sl. þriðjudag og síðan hefur ekkert til hennar spurst. Hafi einhver orðið ferða hennar var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 676827. eitt sinn. (Nýtt kirkjublað 1908.) Það virðist stundum gleymast að guðfræðin er fræðigrein búin til af mönnum á löngu tímabili. Sumir halda að í trúarefnum hafi sannleik- urinn verið gefinn í eitt skipti fyrir öll, gagnstætt því sem gerist og gengur um öll önnur fyrirbrigði. Þarna er komið að svo kölluðu rétt- trúnaðarsjónarmiði. Þar sem vitnað er í óskeikula bók og óskeikula guðfræði. Það má heldur ekki gleymast að heilög ritning er rit- safn flölda bóka sem skrifaðar eru af mönnum á löngu tímabili og húii getur því heldur ekki verið alfull- komin frekar en önnur mannanna verk. „Sannleikurinn mun gera yður fijálsa," sagði meistarinn, hlýtur hann ekki þarna að meina sjálfan sannleikann um guð. Þann sann- leika er ekki hægt að fjötra og njörva í dauðan bókstaf. Því ættu prestar þjóðkirkjunnar að hafa fijálsari kenningagrundvöll í boðun sinni svo kirkjan geti staðið undir nafni og verið öllum opin. Bókstaf- urinn er líka alveg þýðingarlaus þar til hann kemst inn í lifandi hugsun mannsins og fær þar þá merkingu sem skynsemi hvers og eins leggur í hann. Sannleikur verður að upplifast persónulega, sannleika er ekki hægt að færa neinum. Sannleikann verða menn að finna sjálfir og sannfær- ast. Sannleikur kristindómsins er svo háleitur að hann þolir frelsi hugsandi fólks. Kirkjan ætti því frekar að hvetja menn til þess að hugsa sjálfstætt og kryfja til mergj- ar allan þann háleita boðskap sem felst í kristindómi, gera trúna lif- andi svo hún verði til sáluhjálpar og bæti menn og þroski. Heldur en að krefjast skilyrðislausra játninga á gamlar kennisetningar og guð- fræði sem eru manna verk. KRISTJÁN BALDURSSON, tæknifræðingur á Akureyri. LEIÐRETTIN G AR Guðríður ekki Guðrún í umsögn Morgunblaðsins í gær um tónleika . Hrafnhildar Guð- mundsdóttur, mezzósópransöng- konu, og Guðríðar St. Sigurðardótt- ir, píanóleikara, sem Jón Ásgeirsson skrifaði, er nafn Guðríðac misritað á tveimur stöðum og er hún beðin velvirðingar á því. ATHUGASEMD VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í gær um tafarbúnað, sem skylda á útvarpsstöðvar til að taka í notkun ef frumvarp um breytingu á út- varpslögum verður samþykkt á Al- þingi, vill Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2 Ríkisút- varpsins, taka eftirfarandi fram: „Ég er ekki þeirrar skoðunar að búnaðurtil að tefja útsendingu kosti aukamannskap eða valdi því í sjálfu sér að útvarpsstöðvar þurfi að hætta með beina símaþætti. Það eru á hinn bóginn önnur atriði í frumvarpi þingmannanna sem munu gera það að verkum að það verður erfitt, ef ekki óframkvæm- anlegt, fyrir flesta að hafa svona þætti á dagskrá.“ Tölur yfir lóöa- úthlutanir víxl- uðust í forsíðukorti í fasteignablaði í gær urðu þau mistök að tölur yfir lóðaúthlutanir í Reykjavík víxluð- ust. Kom fram að 346 lóðum hefði verið úthlutað. Hið rétta er að 511 lóðum var úthlutað á sl. ári en þar af var 165 lóðum skilað. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. KJÓSUM KATRÍNU GUNNARSDOTTUR ÁGÆTU SJÁLFSTÆÐISMENN! Kjósum Katrínu Gunnársdóttur í 6. sætið í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þann 30. og 31. janúar. Kosningaskrifstofa Katrínar er í Skipholti 35 ® 81 33 50 og 81 33 69 Aðhald ráðdeild írekstrí grundvöllur betri pjónustu við borgarbúa Kjósum ÞORBERG AÐALSTEINSSON M 1 n Kjósum kraftmikla konu, HELGU w ----I----- 7. sætið • • • tryggjijm málefnum fatlaðra og aldraðra brautargengi. STUÐNINGSMENN HELGU JÓHANNSDÓTTUR Kosningaskrifstofa Júlíusar Hafstein borgarfulltrúa er opin frá kl. 10.00 og fram eftir kvöldi í dag og á morgun vegna prófkjörs sjálfstæðismanna. Skrifstofan er á Suðurlandsbraut 50 (bláu húsi við Faxafen). Sími 681056. Styðjum Júlíus í 2. sætið Stuðningsmenn. Upphækkanir fyrir flestar geröir bifreiöa Útsölustaðir: Bílanaust hf. Flest bifreiðaumboð. Mólmsteypan HELLAhf. Ill KAPLAHRAUNI 5 220 HAFNARFJOROUR SIMI 65 1022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.