Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 17 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Tuttugu og fimm frambjóðendur PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram sunnudaginn 30. janúar og mánudaginn 31. janúar næstkomandi. Sunnudaginn 30. janúar eru kjörstaðir opnir frá kl 9 til 22 á fimm kjörstöðum í sex kjörhverfum. Mánudaginn 31. janúar er opið frá ki. 13 til 21 í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í öllum kjörhverfunum. Tuttugu og fimm frambjóðendur eru í kjöri. Amal Rún Qase Anna Kristrún Árni Sigfússon Jónsdóttir Axel Eiríksson Björgóifur Guðmundsson Einar G. Guðrún Zoega Gunnar Jóhann Haraldur Heiga Guðjónsson Birgisson Blöndal Jóhannsdóttir Hilmar Guðlaugsson Inga Jóna Þórðardóttir Jóna Gróa Sigurðardóttir Júlíus Hafstein Katrín Gunnarsdóttir Markús Örn Ólafur Friðrik Páll Gíslason Antonsson Magnússon Sigríður Sigurjón Á. Sigurðardóttir Fjeldsted Sveinn Andri Vilhjálmur Þ. Þorbergur Þórhallur Þorleifur Hinrik Sveinsson Vilhjálmsson Aðalsteinsson Jósepsson Fjeldsted Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri 30. janúar næstkomandi. Enn- fremur þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokksins sem eiga munu kosningarétt í kjör- dæminu 28. maí 1994 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæm- inu fyrir lok kjörfundar. Kjósa skal fæst tíu frambjóðendur og flest tólf. Skal það gert með því að setja tölustafi fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlegan framboðslista. Frambjóðendur eru í stafrófsröð: Amal Rún Qase stjórnmálafræðinemi í Háskóla íslands. Fd. 25. desember 1963. Hún lærði ensku { Bretlandi og lagði þar stund á tölv- unám. Amal Rún á einn son. Anna Kristrún Jónsdóttir lyfjafræðing- ur. Fd. 29. janúar 1952. Stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1972 og lauk prófi í lyfjafræði frá Háskóla íslands árið 1980. Maki er Baldur Óskarsson viðskipta- fræðingur. Anna á fjögur böm. Árni Sigfússon framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands. Fd. 30. júlí 1956. Að loknu B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla íslands lauk hann meistaragráðu í stjórn- sýslufræðum frá Bandaríkjunum árið 1986. Arni er kvæntur Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðingi og eiga þau fjögur börn. Axel Eiríksson úrsmíðameistari rekur eigin úra- og skartgripaverslanir og verk- stæði. Fd. 21. september 1948. Lauk úr- smíðanámi og hefur meistararéttindi, hefur einnig lokið almennu verslunarprófi á skrif- stofu- og stjórnunarbraut. Kvæntur Stefaníu V. Siguijónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni á lífi. Björgólfur Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Víkings-Bruggs hf. Fd. 2. jan- úar 1941. Lauk stúdentsprófi frá Verslunar- skóla íslands árið 1962. Björgólfur er kvænt- ur Þóru Hallgrímsson og eiga þau fjögur börn á lífi. Einar G. Guðjónsson verslunarmaður rekur eigið fyrirtæki Krambúð og kaffihús í Hvítakoti, Reykjavík. Fd. 6. desember 1956. Lauk námi í rekstrarhagfræði við ACL College í London 1986. Kvæntur Kristínu Axelsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú börn. Guðrún Zoega verkfræðingur er fram- kvæmdastjóri Félags ráðgjafarverkfræð- inga. Fd. 4. september 1948. Verkfræðingur frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1974. Guðrún er gift Ernst Hemmings- en hagfræðingi og eiga þau þrjú börn. Gunnar Jóhann Birgisson lögmaður rekur eigin lögmannsstofu. Fd. 19. október 1960. Lauk stúdentsprófi frá MR árið 1980 og laganámi frá Háskóla íslands árið 1986. Gunnar Jóhann er kvæntur Ragnheiði Guð- mundsdóttur skrifstofumanni. Hann á tvö börn. Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður. Fd. 6. júlí 1946. Lauk stúdentsprófi frá MA 1966, prófi frá Háskóla íslands árið 1972 og varð - hæstaréttarlögmaður árið 1981. Sambýliskona hans er Guðrún Alfreðsdóttir leikkona. Haraldur á fjögur börn. Helga Jóhannsdóttir húsmóðir er deild- arstjóri í félagsstarfi aldraðra. Fd. 25. nóv- ember 1942. Helga er gift Ómari Þ. Ragn- arssyni fréttamanni og eiga þau sjö börn. Hilmar Guðlaugsson múrari er fram- kvæmdastjóri Verkalýðsráðs Sjálfstæðis- flokksins. Fd. 2. desember 1930. Lauk iðn- skólaprófi árið 1949. Hilmar er kvæntur Jónu Steinsdóttur starfsmanni hjá Pósti og síma og eiga þau þijú böm. Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræð- ingur og formaður kvenréttindafélags ís- lands. Fd. 24. september 1951. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1971 og viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1977. Inga Jóna er gift Geir H. Haarde al- þingismanni og eiga þau fimm börn. Jóna Gróa Sigurðardóttir húsmóðir. Fd. 18. mars 1935. Lauk verslunarskólaprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1953. Jóna Gróa er gift Guðmundi Jónssyni vélfræðingi og eiga þau fimm börn. Júlíus Hafstein framkvæmdastjóri Snor- ra hf. Fd. 6. mars 1947. Lauk verslunar- skólaprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1967 og prófi frá íþróttakennaraskóla ís- lands árið 1969. Júlíus er kvæntur Ernu Hauksdóttur framkvæmdastjóra og eiga þau tvö börn. Katrín Gunnarsdóttir húsmóðir. Fd. 21. september 1959. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1979. Katrín er gift Guðmundi J. Hallbergssyni sendibílstjóra og eiga þau fjögur börn. Markús Orn Antonsson borgarstjóri. Hann hefur fyrst og fremst starfað að fjölm- iðlun. Fd. 25. maí 1943. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1965. Markús Örn er kvæntur Steinunni Ármanns- dóttur skólastjóra og eiga þau tvö börn. Olafur Friðrik Magnússon læknir er sjálfstætt starfandi heimilislæknir í Reykja- vík. Fd. 3. ágúst 1952. Lauk stúdentsprófí frá MH 1972, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1978 og sérnámi í heimilislækningum í Svíþjóð 1984. Ólafur er kvæntur Guðrúnu Kjartansdóttur kennara og eiga þau fjögur börn. Páll Gíslason læknir er yfirlæknir á hand- lækningadeild Landspítalans og dósent í hlutastöðu við læknadeild HÍ. Fd. 3. október 1924. Lauk stúdentsprófí frá MR 1943 og læknaprófi við HÍ 1950 og framhaldsnámi í skurðlækningum í Danmörku og á ís- landi. Páll er kvæntur Soffíu Stefánsdóttur íþróttakennara og eiga þau fimm börn. Sigríður Sigurðardóttir fóstra. Fd. 8. júlí 1959. Lauk prófi frá Fósturskóla íslands árið 1984 og framhaldsdeild Fósturskólans á stjórnunarsviði 1992. Sigríður á tvo syni. Sigurjón Á. Fjeldsted skólastjóri í Hóla- brekkuskóla. Fd. 12. mars 1942. Lauk kenn- araprófi frá KÍ 1962 og námi í sálar- og uppeldisfræði í Danmörku 1966 og í dönsku og kennslufræði 1980 frá sama skóla. Sigur- jón er kvæntur Ragnheiði Óskarsdóttur kennara og eiga þau þijú börn. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður rekur eigin lögmannsstofu. Fd. 12. ágúst 1963. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, stundaði nám í Hollandi 1983-1984 og lauk laganámi frá Háskóla íslands árið 1990. Sveinn Andri er kvæntur Erlu Árnadóttur framhaldsskólakennara og eiga þau einn son. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðing- ur og formaður Sambands íslenskra sveitar- félaga. Fd. 26. apríl 1946. Stúdent frá Versl- unarskóla íslands og lauk laganámi frá Háskóla íslands árið 1974. Vilhjálmur er kvæntur Önnu J. Johnsen og eiga þau þijú börn. Þorbergur Aðalsteinsson þjálfari ís- lenska landsliðsins í handknattleik. Fd. 16. maí 1956. Lauk matreiðslumeistaranámi frá Hótel- og veitingaskóla íslands. Stundaði nám í stjórnsýslufræði í Svíþjóð 1987-1990. Landsliðsþjálfari frá árinu 1990. Kvæntur Ernu Valbergsdóttur húsmóður og ejga þau tvö börn. Þórhallur Jósepsson aðstoðarmaður samgönguráðherra. Fd. 6. mars 1953. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur- eyri árið 1974 og námi við_KÍ 1983. Þórhatl- ur er kvæntur Herdísi Ólafsdóttur skrif- stofumanni og eiga þau þijú börn. Þorleifur Hinrik Fjeldsted sölumaður. Fd. 9. nóvember 1964. Hann stundaði nám í Verslunarskóla íslands og síðar í sölu- tækni bæði á íslandi og erlendis. Sambýlis- kona Þorleifs er Sigurveig Jónsdóttir skrif- stofumaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.