Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 47 faám FOLK ■ PETE Shmpras frá Bandaríkj- unum og landi hans Todd Martin leika til úrslita á Opna ástralska meist- aramótinu í tennis. Sampras vann Jim Courier og Martin hafði betur gegn Svíanum Stefan Edberg. ■ GORAN Ivanisevic frá Króatíu var sektaður um 6.000 dollara á mót- inu fyrir að blóta í keppni. Þetta gerði hann þegar hann mætti Courier í átta manna úrslitum. ■ KAZUYOSHI Miura, knatt- spyrnumaður ársins í Japan, hefur gert árs samning og fær tvær millj. dollara fyrir (um 145 millj. kr.). Með þessum samningi verður hann launa- hæsti leikmaður Japana. ■ MARSEILLE vann Monacó í frönsku deildarkeppninni í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn einu. HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN 1995 IHF verst allra freqna ALÞJÓÐA handknattleikssambandið, IHF, lætur ekkert frá sér fara um heimsmeistarakeppnina t handknattleik 1995 fyrr en eftirfund með Ólafi B. Schram, formanni Handknattleikssam- bands íslands, á mánudag. Þá fær IHF umbeðin gögn varð- andi keppnina hér á landi, en framkvæmdanefnd IHF á síð- asta orðið uppúr miðjum febrúar. Frank Birkenfeld, skrifstofu- stjóri IHF, sagði við Morgun- blaðið í gær að lög og reglugerðir IHF um mótshald ættu að vera skýr, en komið hefði í ljós að túlk- un manna á þeim væri misjöfn. Hins vegar hefðu Erwin Lanc, for- seti IHF, og Raymond Hahn, fram- kvæmdastjóri, ákveðið að segja ekkert um málið fyrr en eftir helgi. Þeir svöruðu ekki síma og Birken- feld sagði, aðspurður um hring- landaháttinn í sjónvarpsmálinu, að menn gætu hafa sagt eitt og ann- að, en opinberlega yrði ekkert gef- ið út.fyrr en að loknum fundi með formanni HSÍ. Skipuleggjendur keppninnar á íslandi hafa ekki fengið nákvæmar upplýsingar um skyldur vegna sjónvarpsmála, þó eftir því hafi verið gengið. Þeir skilja lögin þann- ig að þeim beri aðeins að tryggja að hægt sé að senda leikina beint héðan, en vegna óvissunnar hafa þeir unnið að því að baktryggja sig, komi til þess að þeir þurfi að greiða fyrir upptökur og sending- ar, og hefur m.a. verið rætt við ráðherra um stuðning ríkisvaldsins, ef á þarf að halda. Að sögn Ólafs B. Schram fær IHF umbeðin gögn í tíma, þ.e. stað- festingu á því að leikirnir verði teknir upp og þeir sendir út um gervihnött og staðfestingu borgar- stjóra þess efnis að Laugardalshöll komi til með að uppfylla þau skil- yrði, sem IHF hefur sett. Spænskir fjölmiðlar hafa að und- anförnu rætt um að Raymond Hahn hafi gefið til kynna að Islend- ingar gætu ekki haldið keppnina á næsta ári og því yrði hún á Spáni. Birkenfeld vísaði þessum fregnum á bug og sagði að enginn samning- ur hefði verið gerður við Spán- veija. Hahn hefði verið á Spáni undanfama daga, en heimsóknin væri í engum tengslum við HM heldur hluti af starfmu — hann færi reglulega til aðildarlanda IHF og þessi ferð hefði verið ákveðin fyrir löngu. Birkenfeld sagði að Islendingar yrðu að skila umbeðnum gögnum ekki síðar en á mánudag, en fram- kvæmdanefnd IHF tæki málið fyrir á fundi i Vín 18. eða 19. febrúar. KORFUKNATTLEIKUR Lárus Árnason skoraði mikið í gær, en reyndar ekki sitjandi. Yfirburðir KR SKIÐI Beiðni um að fleiri fari til Lillehammer Kingar höfðu algjöra yfirburði þegar þeir mættu Tindastóli í úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Lokatöl- _■■■■ ur urðu 106:70 en Skúli Unnar mestur varð munur- Sveinsson inn 43 stig eftir gríð- skrifar arlega öflugan kafla KR-inga í upphafi síðari hálfleiks. Þá breyttu þeir stöð- unni úr 48:32 í 78:35; gerðu 30 stig gegn þremur. Eftir það þurfti ekki að spyija að leikslokum. Það eina sem gladdi augað í leik Sauðkrækinga var leikur Páls Kol- beinssonar, bakvarðar og fyrrum KR-ings. Hann smaug oft skemmti- lega á milli fyrrum félaga sinna og lagði knöttinn ofan í körfuna. Hinum megin var annar bakvörður einnig í órsarar unnu sinn annan sigur í deildinni í vetur þegar þeir lögðu KR-inga að velli 23:21 á Akureyri f gær- kvöldi og var sigur Bríksson Þ®jrpa sanngjarn. skrifar KR-ingar máttu hins vegar illa við því að tapa stigum því baráttan á botninum er hörð. Þórsarar voru ákveðnir strax í upphafi leiks og náðu góðri forystu sem þeir juku allan hálfleikinn. Er miklu stuði, Lárus Árnason, sem gerði 25 stig, átta þriggja stiga körf- ur og eitt stig úr vítakasti að auki. Reyndar verður að segja eins og er að nýting þeirra félaga var alls ekki til að hrópa húrra fyrir. Allir KR-ingar gerðu stig í gær og ungur leikmaður, Atli Freyr Ein- arsson, lék sinn fyrsta leik og stóð sig vel. Grissom var sterkur og Nic- olic einnig. KR-ingar léku góða vöm þegar þeir mundu eftir því en stund- um gleymdu þeir sér, en það kom ekki að sök. Tindastóll er ekki með sterkt lið. Robert Buntic átti þó ágætan leik í síðari hálfleik en var ekki sannfær- andi í þeim fyrri. gengið var til leikhlés höfðu þeir gert 13 mörk gegn 7 mörkum gest- anna. Það var greinilegt að Ólafur Lár- usson, þjálfari KR-inga, hafði lesið sínum mönnum pistilinn í hálfleik því leikur þeirra eftir hlé var mun beittari og munaði þar mestu um stórleik Hilmars Þórlindssonar sem gerði 9 mörk í síðari hálfleik. Þórsarar hélu þó alltaf forystunni og þrátt fyrir mikla spennu í lokin héldu þeir haus og fóru með sigur Stjórn Skíðasambands íslands samþykkti á stjórnarfundi í gær að fela formanni sambandsins, Sigurður Einarssyni, að leggja fyrir framkvæmdastjómarfund Olympíu- nefndar íslands, beiðni frá SKÍ um að sendir verði átta keppendur frá íslandi á Ólympíuleikana í Lilleham- mer, en ekki fimm eins og Ólympíu- nefnd samþykkti á fundi sínum á miðvikudaginn. Stjóm SKÍ gerði í rauninni sam- þykkt um þetta á fundi sínum 17. janúar en formaðurinn kom þeirri að var heilmikið um að vera í þjálfaramálum í ensku knatt- spyrnunni í gær og föstudagsins 29. janúar verður minnst í knatt- spyrnusögunni fyrir að þá vora vandamál vegna þriggja af eftir- sóttustu stöðum í ensku knatt- spyrnunni leyst. Gream Souness þjálfari Liverpool hætti, John Tos- hack tók við landsliði Wales og Terry Venables við enska landslið- inu. Souness játaði sig sigraðan í gær og sagði upp. Hann tók við Liver- pool fyrir tveimur og hálfu ári og ætlaði að viðhalda fornri frægð síð- ustu þriggja áratuga, en ætlunár- verkið mistókst og í gær viður- kenndi hinn fertugi þjálfari það. Tapið fyrir Bristol City á þriðjudag- af hólmi. Þegar þrjár mínútur vora eftir hafði Þór yfir 22:20, KR minnkaði muninn í 22:21 en það var svo Jóhann Samúelsson sem innsiglaði sigurinn. Hjá Þór átti Hermann góðan leik í markinu og einnig lék Alexandrov vel, en hann lék sinn síðasta leik með liðinu. Hjá KR stóð Hilmar uppúr; gerði hvorki meira né minna en 13 mörk og réðu Þórsarar ekkert við hann. beiðni sambandsins ekki eftir form- legum leiðum inná Ólympíunefndar- fundinn. Mikillar óánægju hefur gætt meðal ýmissa skíðamanna sem telja að formaðurinn hefði átt að tala máli þeirra sem ekki náðu lág- mörkunum sem Ólympíunefndin setti. Stjómin samþykkti því í gær að fela formanninum að koma beiðninni rétta boðleið, en næsti fundur framkvæmdanefndar Ólympíunefndarinnar verður vænt- anlega á mánudaginn. inn var dropinn sem fyílti mælinn. „Þetta er sorgardagur fyrir mig en eftir að hafa hugsað málið mik- ið ákvað ég að best væri fyrir félag- ið að ég hætti. Ég tók við starfinu á sínum tíma fullur bjartsýni á að ég gæti gert félagið að stórveldi á nýjan leik en það reyndist erfiðara en ég bjóst við,“ sagði Souness. John Toshack ætlar að taka að sér landslið Wales í hlutastarfi því hann mun halda áfram sem þjálfari Real Sociedad á Spáni. Terry Venables var í gær form- lega ráðinn landsliðsþjálfari Eng- lands. Hann gerði samning til júlí- loka 1996 og er talið að árslaun hans verði um 140.000 pund, eða tæplega 15,4 milljónir króna. FELAGSLIF Selfyssingar stofna stuðningsmannaklúbb Stuðningsmenn Selfossliðsins ( hand- knattleik sem búsettir eru á höfuðborgar- svæðinu hafa ákveðið að stofna formlega stuðningsmannafélag, og verður stofnfund- urinn haldinn í veitingahúsinu Gaflinum í Hafnarfirði í dag klukkan 14. f fréttatil- kynningu eru allir velunnarar Selfossliðsins hvattir til að koma á stofnfundinn, hitta gamla félaga, ræða málin og hita upp fyrir Evrópuleikinn Selfyssinga og Pick Szeged, sem hefst í Kaplakrika að fundinum loknum. Stuðníngsmannaklúbbur FH stofnaður Knattspymudeild FH stofnar einnig stuðningsmannaklúbb í dag. Fundurinn hefst kl. 11 í Kaplakrika. KR-UMFT 106:70 íþróttahúsið Seltjamamesi, úrvalsdeildin í körfuknattleik, föstudaginn 29. janúar 1994. Gangur leiksins: 2:0, 2:4, 4:8, 17:8, 24:17, 40:21, 40:27, 48:32, 61:32, 67:35, 78:35, 83:46, 89:48, 94:64, 106:70. Stig KR: Láms Ámason 25, Mirko Nicolic 21, Davið Grissom 20, Guðni Guðnason 12, Ólafur Jón Ormsson 7, Atli Freyr Einarsson 6, Hrafn Kristjánsson 5, Hermann Hauks- son 4, Ósvaldur Knudsen 4, Tómas Her- mannsson 2. Stig UMFT: Robert Buntic 25, Páll Kol- beinsson 21, Hinrik Gunnarsson 8, Láms Dagur Pálsson 5, Sigurvin Pálsson 4, Ingv- ar Ormarsson 3, Ómar Öm Sigmarsson 2, Ingi Þór Rúnarsson 2. Dómarar: Kristján Möller og Kristinn Ósk- arsson. Auðdæmdur leikur. Áhorfendur: Um 150. 1. deild karla: Reynir-ÍS.......................79:70 Leiknir - Léttir................78:67 Þór-KR 23:21 fþróttahöllin Akureyri, 1. deild karla f hand- knattleik, 14. umferð. Gangur leiksins: 2:p, 6:3, 8:4, 9:6, 13?7f 15:8, 18:12, 19:16, 20:18, 22:20, 23:21. Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 6, Evgeni Alexandrov 5/1, Geir Kristinn Aðalsteins- son 4, Atli Rúnarsson 3, Sævar Ámason 3, Samúel Árnason 2. Varin skot: Hermann Karlsson 16 (þaraf 5 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 13/2, Davíð Hallgrímsson 3, Einar B. Ámason 3, Páll Beck 2. Varin skot: Alexander Revine lO/1 (þaraf 4 til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur Kjartansson. Áhorfendur: Fékst ekki uppgefið. 2. deild karla: ÍBK-ÍH...........................8:36 Um helgina Körfuknattleikur Laugardrigur Bikarúrslit kvenna: Laugardalshöll: f BK - UMFG....13.30 Bikarúrslit karla: Laugardalshöll: ÍBK-UMFN..........16 Sunnudagur 1. deild karla: Digranes: UBK - Léttir............16 Handknattleikur Laugardagur Evrópukeppni bikarhafa: Seinni leikur í átta liða úrslitum Kaplakriki: Selfoss - Pick Szeged.16.30 2. deild karla: Digranes: UBK - Fjölnir............17 Sunnudagur 1. deild karla: Seljaskóli: ÍR - fBV...............20 Strandgata: Haukar - V alur........20 Varmá: UMFA-Stjaman................20 Vfkin: Víkingur-FH.................20 Blak Laugardagur Ásgarður: Stjaman - KA (ka.)....15.30 Víkin: Víkingur- KA (kv.)..........17 Júdó íslandsmeistaramót í sveitakeppni f júdó verður í íþróttahúsi FB við Austurberga dag. Kl. 14 hefst keppni U-21 karla, en kl. 15 keppni karta. Á morgun verður af- mælismót Júdósambandsins. Kl. 10 hefst keppni karla U-21, kl. 12 keppni karla og kvenna og um kl. 15 verða undanúrslit og úrslit. Keila Keilumót Eimskips verður f Keiluhöllifllf* Öskjuhlíð kl. 12 í dag, en kl. 20 hefst mót Nýliða og Keiluhallarinnar. Hjólreiðar Snjóhjólreiðakeppni framhaldsskólanna verður í Öskjuhlfð f dag. Keppendur verða ræstir við Perluna kl. 14, en skráning hefst kl. 13.30 og er mótið opið öllum framhalds- skólanemendum á Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Ekkert þátttökugjald, en verðlaun fyrir þijú efstu sætin. HANDKNATTLEIKUR Annar sigur Þórsara KNATTSPYRNA Souness hætftur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.