Morgunblaðið - 29.01.1994, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.01.1994, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐlfí, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Flugleiðir Aætlunar- flug til Mall- orca í sumar FLUGLEIÐIR munu fljúga áætl- unarflug til Mallorca einu sinni í viku á mánudögum frá 23. maí og fram til 3. október í haust. Að sögn Péturs J. Eiríkssonar, framkvæmdastjóra markaðssviðs, er þetta í fyrsta sinn sem flogið er í áætlunarflugi til Mallorca. Samið hefur verið við ferðaskrifstofuna Úrval-Útsýn um 130 sæti í hverri vél en 23 sæti verða til sölu á al- mennum markaði. Reiknað er með að þau sæti verði fyrst og fremst seld á Spáni. ----♦ ♦ ♦--- Siglufjörður 1.500 pönnu- kökur með sólarkaffinu SJÁLFSBJARGARKONUR á Siglufirði bökuðu pönnukökur Itanslaust frá því fyrir kl. 5 í gærmorgun og til hádegis í tilefni af því að þennan dag nær sólin að sýna sig á nýjan leik í Siglu- firði. Að sögn Völu Jónasdóttur formanns Sjálfsbjargar komu tæplega 30 konur nálægt bakstr- inum í gær og bökuðu þær rúm- lega 1.500 pönnukökur sem seldar voru í ýmis fyrirtæki í bænum þar sem slegið var upp veislu í tilefni dagsins og drukkið sólarkaffi. Vala sagði í samtali við Morgun- blaðið að sólin hefði rétt náð að sýna sig ofan á fjallatoppunum um ellefu- leytið í gærmorgun en hún hefði þó ekki náð að skína ofan í bæinn þar sem þykknað hefði upp. Veður var _ mjög stillt og gott þrátt fyrir mikið frost í Siglufirði í gær að sögn Völu, og sagði hún að verulega hefði lifn- að yfir öllum í bænum af þeim sök- um. Á fjórða hundrað manns leitaði piltanna tveggja úr Keflavík Morgunblaðið/Júlíus Spor rakin SPORHUNDURINN Trýna ásamt umsjónarmönnum rekur slóð eftir hömrunum á Vatnsnesi sem skagar út í sjó frá Keflavíkurbæ miðjum. Vísbendingar reyndust ekki vera á rökum reistar SJÓNARVOTTAR staðhæfðu í gær að hafa séð til piltanna tveggja úr Keflavík sem saknað hefur verið síðan á miðvikudag, en að sögn Ólafs Bjamasonar formanns svæðis- stjórnar björgunarsveita á Suðurnesjum hafa engar vísbendingar sem borist hafa reynst vera á rökum reistar. Á fjórða hundrað manns úr röðum björgunar- sveita og lögreglu leitaði piltanna áfram í gær, en leit var hætt fyrir miðnætti. Björgunarsveitarmenn ætla að koma saman , aftur snemma í dag, en Ólafur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ef piltarnir hefðu ekki fundist þá væri ekki tilefni til bjartsýni. Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn tók í sama streng. „Þó að piltamir séu í góðum göllum er annar þeirra aðeins í strigaskóm og hinn húfulaus. Kuldinn og veðrið auka á svartsýni okkar þar sem það dregur úr líkunum á að þeir geti leynst utandyra," sagði hann. Sjá frétt á bls. 18. Eigendur íslenska saltfélagsins í viðræðum um framtíð verksmiðjunnar Verulega fjármuni vant- ar nú til uppbyggingar EIGENDUR Íslenska saltfélagsins á Reykjanesi eiga nú í viðræðum um framtíð fyrirtækisins. Verksmiðjan hefur átt við ýmis tæknileg vandamál að etja og er áætlað að a.m.k. 100 milljónir króna vanti til að standa straum áf kostnaði við nauðsynlegar endurbætur. Varabor- hola fyrirtækisins hefur reynst ónothæf og endurnýja þarf ýmsan búnað til að ná viðunandi afköstum, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja og sljórnar- maður í fyrirtækinu, sagði að yfirlýst stefna allra sem komið hefðu að viðræðunum væri að halda fyrirtækinu gangandi. Hollenska fyrirtækið Akzo XChemicals keypti í ágúst á sl. ári meirihluta í danska fyrirtækinu Sagafood Ingredients og var þar með orðið aðaleigandi félagsins. Einnig gengu Hitaveita Suður- nesja, íslenskir aðalverktakar og Eignarhaldsfélag Suðurnesja inn í félagið. Miðað við núverandi hlut- deild eiga hollenskir aðilar 58% í móðurfélagi saltverksmiðjunnar, Íslendingar 34% en Danir 8%, eftir því sem næst verður komist. íslenska saltfélagið hefur aldrei náð þeim markmiðum um fram- leiðslu sem ákveðin voru í upp- hafi. Vonast var til að með tilkomu Akzo yrði auðveldlega hægt að ráða bót á vandamálum verksmiðj- unnar enda er hér um að ræða stærsta saltvinnslufyrirtæki heims með dótturfyrirtæki um víða ver- öld. Framleiðsluvörur eru tvær, heilsusalt sem markaðssett er af Akzo á heimsmarkaði og matar- salt til fiskiðnaðar á íslandi. Hrá- efni er jarðsjór úr borholu Hita- veitu Suðurnesja, sem eimaður er með gufu. Tæknileg vandamál Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafa ýmsir möguleikar verið ræddir milli eignaraðilanna. M.a. þykir koma til greina að hol- lenska fyrirtækið dragi sig út úr rekstrinum og saltfélagið verði al- farið í íslenskri eigu. Einnig hefur verið rætt um að hollensku aðilarn- ir yfirtaki reksturinn. Júlíus Jónsson, forstjóri Hita- veitu Suðumesja og stjórnarmaður í fyrirtækinu, sagðist telja að fyrst og fremst væri tæknilegum vanda- málum um að kenna hvernig kom- ið væri. Ekki hefði verið hægt að framleiða jafn mikið magn og áætlanir gerðu ráð fyrir. Hins veg- ar hefði verið hægt að selja alla framleiðsluna og rúmlega það. Hann staðfesti að óformlegar við- ræður milli hluthafa hefðu átt sér stað varðandi hvernig best væri að standa að hlutafjáraukningu. Hvaðan hún kæmi og hversu mik- il hún yrði væri ekki ákveðið. Júl- íus sagði yfirlýsta stefnu allra sem kæmu að viðræðunum að halda fyrirtækinu gangandi. 155 Akur- eyringar með upp- sagriarbréf 155 starfsmenn tveggja stórra atvinnufyrirtækja á Akureyri fengu uppsagnarbréf í gær. Slippstöðin-Oddi hf. sagði upp öllu sínu starfsfólki vegna end- urskipulagningar á rekstri og SS-Byggir hf. sagði upp 23 af 30 starfsmönnum sínum vegna fyrirsjáanlegs verkefnaskorts. Greiðslustöðvun Slippstöðvarinn- ar-Odda hf. rennur út í næsta mán- uði, en þess er vænst að í næstu viku verði hægt að leggja fram frumvarp að nauðasamningum og afstýra gjaldþroti fyrirtækisins. Helstu lánardrottnar fyrirtækis- ins, Landsbankinn Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður, hafa samþykkt aðgerðir til að endurskipuleggja og treysta rekstrargrundvöll félagsins. Setja þeir þá fyrirvara að nauða- samningar takist við aðra kröfuhafa og hlutafé verði fært niður. Sjá fréttir á bls. 4 og 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.