Morgunblaðið - 29.01.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
15
>
I
>
I
>
£
I
I
Eins og við hin ...
eftirFrank Úlfar
Michelsen
Um margt er spjallað þessa dag-
ana manna á meðal og ekki hvað
síst um prófkjör sjálfstæðismanna
víða um landið. Hér í Reykjavík er
um marga góða frambjóðendur að
ræða og er mismunandi hve mikið
ber á þeim í auglýsingum í ijölmiðl-
um. Einn er sá sem lítið ber á en
að mínu mati á fullt erindi í mál-
efni Reykjavíkurborgar. Sá er Axel
Eiríksson, formaður Úrsmiðafélags
íslands.
Fulltrúi atvinnulífsins
og öruggari gatnamótum þar sem
notaðar eru slaufur og á umferðar-
þungi að segja til um hvar þörfin
er brýnust. Einnig leggur Axel
áherslu á að taka aðalæðar umferð-
arinnar út úr íbúðarhverfum. Axel
vill að lögreglustöðvar verði settar
upp í úthverfum og/eða þar sem
þörf er á í ljósi mjög góðrar reynslu
lögreglustöðvar í Efra-Breiðholti
þar sem fyrirmyndarsamvinna var
á milli íbúanna, jafnt ungra sem
eldri, og starfandi lögreglumanna.
Axel sér fyrir sér að öll hverfí borg-
arinnar hafi sinn „heimakrók" þar
sem verslun og þjónusta verði á
einum stað og gott aðgengi fyrir
gangandi fólk ekki síður en fyrir
„ Axel hefur verið vak-
andi yfir málefnum
smáiðnaðar og hand-
verks og verið ötull
talsmaður um fram-
gang og vöxt smáiðnað-
arfyrirtækja.“
akandi. Hugmyndin er að lítil torg
með gróðri, bekkjum og rennandi
vatni verði búin til í skjóli bygginga
sem húsa t.d. verslanir, smáíðnað,
þjónustu, veitingar, lögreglustöð,
skóla, bíó og hvað sem þarf til að
Axel Eiríksson
draga að mannlíf, hvort sem er að
degi til eða kvöldi. í eldri hverfum
verði athugað hvað hægt er að
gera fyrir þessa 'hugmynd, „heima-
krókinn". Samtvinnaður þessu er
hin mikli áhugi Axels á fjölskyld-
unni, öryggi hennar og velferð.
Ég hef hér stiklað á stóru og hef
í raun frá miklu meira að segja.
Við Axel höfum ferðast saman er-
lendis, unnið saman hér heima í
stjórn Úrsmiðafélags íslands og átt
mikil samskipti. Ég tel mig þekkja
Axel mjög vel og mun kjósa Axel
í prófkjörinu. Tryggum að Axel
Eiríksson úrsmiður hljóti 6.-9.
sæti.
Höfundur er úrsmiður og rekur
isamt föður sínum úra- og
skartgripaverslunina „Sviss —
Franch Michelsen úrsmíða-
meistari“ og er einnig ritari í
stjórn Ursmiðafélags Islands.
Axel er iðnaðarmaður og hefur
unnið við fag sitt, úrsmíði, frá því
hann lauk námi. Axel Eiríksson
þekkir það að vinna fyrir sér og
fjölskyldu sinni með höndunum.
Axel hefur rekið sitt eigið frirtæki,
bæði verkstæði og verslun, sl. 20
ár. Axel hefur verið vakandi yfír
málefnum smáiðnaðar og hand-
verks og verið ötull talsmaður um
framgang og vöxt smáiðnaðarfyrir-
tækja. Axel hefur starfað í sam-
vinnu við Landssamband iðnaðar-
manna um árabil og þekkir því vel
til þeirra erfiðleika sem iðnaðurinn
berst við og vill taka á svo að iðnað-
urinn verði í stakk búinn að taka
við því vinnuafli sem fram kemur
á næstu árum. Víst er að hugmynd-
ir Axels kæmu þar að góðum not-
um.
Bætt umferðarmenning og
öryggi
Hverfaskipulag og umferðarör:
yggi hefur verið Axel hugleikið. í
umferðinni vill hann auka öryggi
allra sem í Reykjavík búa með betri
Traustur fulltrúi eldri kynslóðar
eftir VíkingH.
Arnórsson
Páll Gíslason læknir tekur þátt í
próflqöri Sjáflstæðisflokksins sem
fram fer um næstu helgi og sækist
eftir 2. sæti á lista þeim sem flokkur-
inn býður fram til borgarstjómar-
kosninga á vori komanda.
Páll hefur setið lengi í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Hann hefur
kynnst ótal verkefnum sem þar hefur
verið við að fást og tekist á við lausn
þeirra ásamt sínu samstarfsfólki.
Ahugi Páls á þjóðfélagsmálum
vaknaði snemma og strax á Akranes-
árunum fyrir margt löngu gaf hann
sig að bæjarmálefnum, sat þar í
bæjarstjóm um árabil. Reynsla Páls
á sviði sveitarstjómarmála er því
orðin löng og margbreytileg. Hin síð-
ari árin hefur hann látið sig sérstak-
lega skipta málefni aldraðra og beitt
sér fýrir byggingaframkvæmdum í
þeirra þágu á vegum borgarinnar.
Nýting náttúruauðlinda hefur ver-
ið Páli hugleikið viðfangsefni hvort
sem um hita úr iðrum jarðar hefur
verið að ræða eða beislun vatns til
orkugjafar og neyslu. Honum hefur
veirð falin forganga í þessum málum
og setið lengi í stjórn veitustofnana
Reykjavíkurborgar.
Páll hefur gefíð sig mikið að heil-
brigðismálum, skipAlagi þeirra og
framkvæmd og í þeim efnum gegnt
ábyrgðarstörfum fyrir Reykjavíkur-
borg.
Páll hefur starfað mikið í skáta-
hreyfíngunni og gegndi stöðu Skáta-
höfðingja íslands um árabil.
Mikilvægt er að sú vlðtæka
reynsla og kunnugleiki sem Páll hef-
ur öðlast á mönnum og málefnum
nýtist sem best með áframhaldandi
„Tryggjum Páli 2. sæti
á lista sjálfstæðis-
manna.“
setu hans í borgarstjórn. Hann er
við góða heilsu, áhuginn vakandi og
þar sem á þessu ári mun um hægj-
ast á hans aðalstarfsvettvangi,
þ.e.a.s. í lækningastarfseminni, gefst
honum enn betra ráðrúm til að sinna
borgarmálum.
Loks skal minnt á að mikilsvert
er að elda fólkið eigi verðugan full-
trúa í borgarstjóm Reykjavíkur.
Tryggjum Páli 2. sæti á lista sjálf-
stæðismanna.
Höfundur er prófessor og
forstöðumaður á Barnaspítala
Hringsins (Landspítala).
Páll Gíslason
I
I
I
»
I
I
i
I
1-
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi - í borgarráði frá 1986
og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1990.
Bréftil sjálfstœðismanna íReykjavík.
Veljum sterkan framboðslista
Kæri samherji.
Sjálfstæðisfólk í Reykjavík hefur sýnt mér þann trúnað að velja mig í forystusveit Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn undanfarin kjörtímabil. Ég var fyrst kjörinn borgarfulltrúi 1982 og tók þá við formennsku í
skipulagsneöid. Ég hef átt sæti í borgarráði frá 1986 og verið varaformaður þess síðustu tvö ár.
í störfum mínum sem borgarráðsmaður og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hef ég lagt
áherslu á að efla og styrkja sveitarfélögin og færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga.
Þau atriði sem ég tel skipta meginmáli við störf borgarstjórnar á næstunni eru traust
íjármálastjórn og markvissar aðgerðir til að efla atvinnulífið í borginni. Það er
undirstaða þess að unnt verði að leysa margvísleg velferðarmál borgarbúa
á viðunandi hátt.
Ég hvet þig eindregið til að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Það er á valdi
kjósenda í prófkjöri, að ákveða röð á listanum. Þar færð þú tækifæri til að velja
þann hóp sem þú treystir best til að leiða Sjálfstæðisflolddnn til sigurs í næstu
borgarstjórnarkosningum.
Ég leita eftir stuðningi þínurn og góðri kosningu í eitt efsta sœtið á
framboðslistanum. Þannigfengi ég best tœkifœri til að sinna margvíslegum
málefnum í þágu Reykjavíkur á nœsta kjörtímabili.