Morgunblaðið - 03.02.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.02.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 Alþjóðleg sjónvarpshátíð í Monte Carlo Forseti íslands for- maður dómnefndar FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fer utan á morgun til Monte Carlo. Hún verður heiðursgestur alþjóðlegrar sjónvarpshátíð- ar, Festival de Television de Monte Carlo, sem nú er haldin í 34. skipti og jafnframt formaður dómnefndar í flokki heimildarmynda. A hátíð- inni eru einnig veitt verðlaun í flokki ieikinna mynda og framhalds- mynda, svokallaðra „míní-sería“. Heimildarmyndakeppnin, sem hef- ur verið haldin frá árinu 1981, er virt og mjög fjölsótt af viðurkenndu fag- fóiki. Aðstandendur hennar hafa alltaf fengið þekktan mann til formennsku í dómnefndinni og má m.a. nefna fiðluleikarann Yehudi Menuhin, gríska tónskáldið Mikis Theodorakis, frönsku leik- og söngkonuna Juliette Greco og Perez de Cueliar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. í forsæti hinna dómnefndanna tveggja verða í ár Ronald Neame frá Bret- landi fyrir leiknar myndir og Mel Ferr- er frá Bandaríkjunum fyrir framhalds- myndir. Um 200 myndir voru sendar til þátttöku í heimildarmyndakeppnina og voru síðan tólf myndir valdar í úrslitakeppni af Alþjóðlegu útvarps- og sjónvarpsstofnuninni í París (URTI). Dómnefndin, sem í situr meðal annarra Thor Vilhjálmsson skáld, skoðar myndirnar 12 á laug- ardag og sunnudag og tilkynnir for- seti Islands hvaða mynd hlýtur verð- launin Prix Arman á hádegi á mánu- dag. ísland í sviðsljósinu Sérstakt hátíðarkvöld til heiðurs forseta íslands verður á laugardags- kvöld. Því stjórnar þekktur sjón- varpsmaður frá Sviss, Jean-Philippe Rapp. Hann tekur viðtal við forset- ann á sviði, boðið verður upp á ljóða- lestur og ýmis skemmtiatriði ni_eð þekktum listamönnum og verður Is- land í sérstöku sviðsljósi þetta kvöld. Þessi dagskrá verður tekin upp og henni sjónvarpað. Formleg opnun hátíðarinnar verður svo á sunnu- dagskvöld. Að sögn Sigríðar Hrafnhildar Jónsdóttur, deildarsérfræðings á skrifstofu forseta íslands, hafa íjöl- miðlar sýnt forsetanum mikinn áhuga og þegar er búið að panta við hann mörg viðtöl hjá mörgum evrópskum sjónvarpsstöðvum og dagblöðum. Fyrir skömmu kom hingað blaðamaður frá franska dag- blaðinu Le Figaro og tók hann stórt viðtal við Vigdísi. Viðtalið og um- fjöllun um Island yerður birt um næstu helgi eða á sama tíma og forsetinn verður í Mónakó. VEÐUR IDAG kl. 12.00 Hsimíld: Veðurstola l'slands (Byggt á veðurspá kl. 16.301 gær) I/EÐURHORFUR I DAG, 3. FEBRUAR YFIRLIT: Um 600 km vestur af Reykjanesi er nærri kyrrstæð 964 mb lægð sem grynnist smám saman. Grunnt lægðardrag verður við Suðaust- urland á morgun. STORMVIÐVORUN: Búist er við stormi á Suðvesturdjúpi. SPÁ: Sunnan og suðaustan kaldi. Él um vestanvert landið, slydda eða rigning með Suðausturlandi og suðausturströndinni, en yfirleitt þurrt á norðanverðu landinu. Frost yfirleitt á bilinu 0-7 stig, en heldur hlýnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg suðlæg átt og él á Suður- og Suðvesturlandi, en úrkomulítið og nokkuð bjart í öðrum landshlutum. Víða verður 4-8 stiga frost. HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Nokkuð hvöss austanátt 09 ef til vill snjómugga með suður- og suðausturströndinni, en annars staðar verður vindur fremur hægur á landinu og allvíða bjartviðri. Vægt frost á Suðausturlandi, en allt að 10 stigum norðanlands. Nýir veðurfregnatimar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað f f f * / * f f * f f f f f * f Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30ígær) Vegir í nágrenni Reykjavíkur eru færir, svo sem til Suðurnesja og um Hellisheiði og Þrengsli, en Mosfellsheiði er þungfær. Þá er yfirleitt fært um Suðurland og sama er að segja um Borgarfjörð, Snæfellsnes og um Heydal vestur í Reykhólasveit. Brattabrekka er jeppafær. Á Vestfjörðum er fært á milli Brjánslækjar og Bíldudals en þungfært á milli Þingéyrar og Flateyrar ,og ófært á Breiðadals- og Botnsheiöum. Frá Bolungarvík er fært um Isafjarðardjúp en þungfært er um Steingrímsfjarðarheiði. Frá Hólmavík er fært suöur. Fært erum Norður- og Norðausturland. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru fær. Austanlands eru flestir vegir færir. Á suðvestanverðu landinu gengur á með snjóéljum. Mikil hálka er á vegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +3 léttskýjað Reykjavik -i4 snjóél Bergen 2 slydda Helslnki +15 hálfskýjað Kaupmannahöfn 4 skúr Narssarssuaq +19 léttskýjað Nuuk +18 alskýjað Osló +4 snjókoma Stokkhólmur +5 Isnjókoma Þórshöfn 3 haglé! Algarve 16 skýjað Amsterdam 6 léttskýjað Barcelona 13 þokuntóða Beriín 6 skýjað Chicago +8 snjókoma Feneyjar 5 þokumóða Frankfurt 7 skýjað Glasgow 5 skýjað Hamborg 6 skýjað London 6 skýjað Los Angeles 11 skýjað Lúxemborg 4 slydda Madríd 6 místur Malaga 14 mistur Mallorca 13 skýjað Montreal +15 léttskýjað NewYork +8 léttskýjað Oriando 9 alskýjað París 5 rigning Madeira 17 skýjað Róm 14 rigning Vín 4 alskýjað Washington +5 skýjað Winnipeg +21 léttskýjað Hugmynd um nýjan veg til Laugarvatns TVEIR þingmenn Suöurlands vilja láta athuga kostnað við ýmsar vega- framkvæmdir í uppsveitum Árnessýslu, þar á meðal að leggja nýjan veg með bundnu slitlagi milli Þingvalla og Laugarvatns og smíða brú yfir Hvítá við Bræðratungu. Þeir Eggert Haukdal þingmaður Sjálfstæðisflokks og Guðni Agústs- son þingmaður Framsóknarflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela samgönguráðherra að láta Vegagerðina gera athugun á kostnaði við að leggja uppbyggðan veg með slitlagi frá Laugarvatni að Gjábakka, frá Felli að Múla og yfir Torfastaðaheiði og byggja brú yfír Hvítá. Telja þingmennirnir að vega- framkvæmdjrnar myndu styrkja uppsveitir Árnessýslu sem eitt at- vinnusvæði, og efla samvinnu sveit- arfélaga og ferðaþjónustu á svæðinu. Ný hringleið í greinargerð með tillögunni kemur fram, að nýr heilsársvegur milli Þing- valla og Laugarvatns yrði mun sunnar en núverandi vegur um Laugardals- velli. Með þessu móti yrði leiðin frá Reykjavík að Laugarvatni 75 kílómetra löng, 20 kílómetrum styttri en núver- andi aðalleið gegnum Hveragerði og Grímsnes. Þá myndi opnast ný hring- leið fyrir fei-ðamenn um Ámessýslu. Þá segir í greinargerðinni, að í umræðu sé skipulegt átak í atvinnu- málum milli Hrunamannahrepps, Biskupstungnahrepps, Gnúpveija- hrepps, Skeiðahrepps, Laugardals- hrepps og Grímsneshrepps Jirú yfír Hvítá við Bræðratungu og vegabæt- ur í Biskupstungum myndu styrkja þetta atvinnusvæði verulega. 3.0001 karfakvóti Evrópusambandsins við ísland Bretar og Þjóð- veijar fá nær allt ÞRJÚ þúsund tonna karfakvóti Evrópusambandsins á íslandsmiðum mun skiptast þannig að Þjóðverjar fá 1.740 tonn, Bretar 1.160 tonn og Belgar 110 tonn, samkvæmt tillögum sem framkvæmdasljórn Evr- ópusambandsins (Evrópubandalagið eftir gildistöku Maastricht-samn- ingsins) hefur lagt fram. Frá þessu er greint í Evrópufrétt- um, fréttariti samtaka iðnaðarins og VSI um málefni Evrópu. Þar kemur einnig fram að tillagan verði Iögð fram og afgreidd á utan- ríkisráðherra fundi Evrópusam- bandsins 7. og 8. febrúar næstkom- andi en veiðar úr karfakvótanum samkvæmt samkomulagi íslands og Evrópusambandsins hefjast ekki fyrr en 1. júlí. Þá kemur fram að fram- kvæmdastjórnin hafi gert tillögur um skiptingu annarra kvóta sem samið var um við EFTA-ríkin í tengslum við EES. Samkvæmt þeim skipti Spánveijar og Portúgalir milli sín þorskkvóta við N-Noreg en Portúgai- ir, fái mest af karfakvóta í norskri lögsögu. Danir sitji hins vegar nán- ast einir að kvótum við Svíþjóð. inni vegna umsóknarinnar kemur fram að fyrirtækið hyggist fjárfesta fyrir um 30 milljónir króna í búnaði til að auka afköst við loðnufrystingu fyrirtækisins sem gera muni kleift STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur tek- ið ákvörðun um að lána nýjum eigendum SR-mjöls 550 milljónir til greiðslu láns í Landsbanka Is- lands. Þarf því ekki að taka ákvörðun um hvort ríkisábyrgð er á láninu eða ekki. Ekki hefur hins vegar verið ákveð- ið hvort nýr aðili verður fenginn til að taka við ábyrgð Landsbanka á 6 milljónir til Granda vegria loðnufrystingar BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykkti á þriðjudag að leggja fram 6 milljónir króna í átaksverkefni á vegum Granda hf. við loðnufryst- ingu. Gert er ráð fyrir að til verkefnisins verði ráðið í 100 störf af atvinnuleysisskrá og leitað styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem renni óskiptur í borgarsjóð upp í kostnaðinn. í gögnum sem Grandi sendi borg- að ráða a.m.k. 100 manns til viðbót- rúmra 200 milljóna króna láni fyrir- tækisins hjá norska fyrirtækinu Exp- ort Finance. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru heildarskuldir fyrir- tækisins í lok otkóber 1993 2,4 millj- arðar. Af því eru rúmir 1,3 milljarð- ar skammtímaskuldir, m.a. afurða- lán, og um 720 milljónir langtíma- skuldir. ■ e i i ar sem störfuðu við frystinguna á síðustu vertíð. Með því móti verði unnt að tvöfalda framleiðsluna sem var 550 tonn á síðustu vertíð, miðað við sambærilega vertíð nú. Fiskveiðasjóður lánar SR-mjöli 550 milljónir ■ 1 1 M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.