Morgunblaðið - 03.02.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.02.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 KRAFTLYFTINGAR Heirnsmeistaramótið á íslandi í haust? Syo getur farið að heimsmeist- aramótið í kraftlyftingum verði á íslandi í haust. Til stóð að keppnin færi fratíi í Lillehammer í Noregi, en Norðmenn hafa afsal- að sér keppninni. Suður-Afríka hafði sótt um að haldamótið 1996, en sagðist geta séð um fram- kvæmdina ári fyrr, þegar Norð- menn gáfu keppnina frá sér. Ekki ér samt víst að Suður-Afríkumenn VIÐURKENNINGAR Morgunblaðið/Þorkell Broddi Krístjánsson íþróttamaður Reykjavíkur Broddi Kristjánsson, Islandsmeistari í einliða- og tviliðaleik í badminton úr TBR, var í gær útnefndur Iþróttamaður Reykjavíkur 1993. Borgarstjóri Reykjavíkur Markús Örn Antonsson sæmdi Brodda nafnbótinni í hófí í Höfða, en þá var myndin hér fyrir ofan tekin. Broddi hefur hefur ellefu sinni orðið íslandsmeistari í einliðaleik, ellefu sinnu í tvíliðaleik og sex sinnum í tenndarleik. KORFUKNATTLEIKUR Dómarar í aðalhlutverki geti staðið við orðin og því hefur Olafur Sigurgeirsson tilkynnt Al- þjóða sambandinu _að mögulegt sé að þalda mótið á íslandi. Ólafur sagði við Morgunbiaðið að þetta væri óvenjuleg staða, því mótsstaður væri ákveðinn með löngum fyrirvara. Hins vegar hefðu Norðm'enn ekki treyst sér til að sjá um keppnina í haust því illa gengi að afla styrktaraðila vegna Vetrarólympíuleikanna og annarra stórmóta í Noregi á ár- inu. Óvissa Suður-Afríkumanna stafaði af ótta um pólitíska óróa í landi í kjölfar kosninganna í vor og því hefði hann boðist til að vera í viðbragðsstöðu. „Boltinn er hjá Suður-Afríku- mönnum, en ég sagði að hafa mætti samband við mig með sex mánaða fyrirvara," sagði Ólafur. URSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Leikir aðfararnótt miðvikudags: Indiana - Washington.........116:96 ■Reggie Miller og Rik Smits gerðu sín 25 stigin hvor fyrir Indiana, en Calbert Chean- ey gerði 22 stig og Tom Gugliotta 18 fyrir gestina. New Jersey - Seattle.........104:103 IP.J. Brown skoraði úr tveimur vítaskot- um, þegar 19.2 sek. voru til leiksioka og tryggði Nets sigurinn. Kenny Anderson skoraði 26 stig, Kewin Edwars 19 og Derrick Coleman 17, en hann tók 14 frá- köst og varði níu skot, sem er persónulegt met. Shawn Kemp skoraði 26 stig fyrir Sonics og Gary Payton 23 stig. New York - Boston............114:79 ■PatrickOEwing gerði 23 stig í þessum stærsta sigri New York á tímabilinu. „Þetta var besti leikur okkar í vetur,“ sagði Pat ‘Riley, þjálfari. Milwaukee - Miami............82:88 ■Glen Rice skoraði 23 stig fyrir Miami, en Steve Smith 19, þ.a. átta af síðustu 11 stigum liðsins. Hann átti níu stoðsendingar og tók átta fráköst. Blue Edwars skoraði 18 stig fyrir heimamenn og tók 10 fráköst, en Eric Murdock gerði 17 stig og átti 11 stoðsendingar. San Antonio - LA Lakers......112:97 ■ Dale Ellís setti persónulegt met á tímabil- inu með því að skora 32 stig fyrir Spurs, en auk þess tók hann 10 fráköst. David Robinson var með 30 stig og 11 fráköst. Nick Van Exel skoraði 24 stig fyrir Lakers og Vlade Divac 18 stig. Denver - Chicago.............98:118 ■Scottie Pippe, sem hefur gert 26 stig að meðaltali fyrir Chicago í síðustu sex leikj- um, skoraði 28 stig, en Horace Grant og B.J. Armstrong sín 19 stigin hvor. Rodney Rogers var stigahæstur hjá Nuggets með 18 stig. Phoenix - LA Clippers........108:106 ■Cedric Ceballos skoraði 37 stig fyrir Phoenix og Oliver Miller gerði fimm af átta stigum sínum á síðustu tveimur mínútunum. Ron Harper var með 28 stig fyrir Clippers, þar af 10 í röð í fjórða leikhluta og kom liði sínu yfir, 104:102, en Suns hafði betur í lokin. Danny Manning gerði 26 stig, átti níu stoðsendingar og tók 18 fráköst, sem er persónulegt met. Auk þess varði hann fimm skot Suns. Utah - Houston...............104:88 ■Kari Malone skoraði 29 stig fyrir Utah og tók 12 fráköst, en John Stockton var V með 24 stig og 13 stoðsendingar. Hakeem Olajuwon gerði 20 stig fyrir Houston. Sacromento - Portland........102:97 ■Wayman Tisdale skoraði 30 stig fyrir Sacromento og Mitch Richmond bætti 21 við í fyrsta sigri liðsins gegn Portland í þrjú ár. Clifford Robinson skoraði 30 stig og Terry Porter 19 fyrir gestina. Clyde Drexler lék ekki með Portland, var í leiks banni fyrir að slá ti) dómara. Íshokkí NHL-deildin Leikir aðfararnótt miðvikudags: NY Islanders - San Jose...........5:4 Pittsburgh - Florida..............2:1 Quebec -Hartford..................1:2 ST Louis - Toronto................4:4 ■Eftir framlengingu. Skíði Heimsbikarinn Sierra Névada: Brun kvenna Hilary Lindh (Bandar.).............2:04.21 , Melanie Suchet (Frakklandi)........2:04.22 Isolde Kostner (Italíu)............2:04.65 Katja Seizinger (Þýskalandi).......2:04.96 Svetlana Gladishiva (Rússlandi)....2:05.00 Nathalie Bouvier (Frakklandi)......2:05.06 Staðan Katja Seizinger (Þýskalandi)...........282 Kate Pace (Kanada).....................268 Melanie Suchet (Frakklandi)............222 Isolde Kostner (Italíu)................198 Hilary Lindh (Bandar.).................164 Veronika Stallmaier (Austurriki).......157 Staða kvenna í samanlögðu Pemilla Wiberg (Svíþjóð).............1.029 Vreni Schneider (Sviss)..............1.010 Anita Wachter (Austurriki).............898 Katja Seizinger (Þýskalandi)...........744 Ulrike Maier (Austurríki)..............711 Skíðaganga SR Skíðafélag Reykjavíkur stóð fyrir Toyota skíðagöngu á Laugardalsvelli 30. janúar og voru gengnir tveir km. 50-59 ára karlar Matthías Sveinsson, SR,..............12.16 Viggó Benediktsson, KR...............13.03 35-49 ára karlar Bragi Jónsson, Hrönn.................12.25 Trausti Sveinbjörnsson, Hrönn........13.01 Haraldur Haraldsson, SR,.............22.28 60 ára og eldri karlar Sveinn Kristinsson, SR...............15.11 20 ára og yngri konur Auður Ebenesardóttir, ÍS.............12.13 30 ára og eldri konur Inga Róbertsdóttir, SR,..............21.04 I kvöld Körfuknattleikur Akranes: ÍA - Skallagrímur.20.30 Handknattleikur 1. deild kvenna Austurberg: Fylkir-Valur...18.30 2. deild karla Fjölnisþús: Fjölnir-Fram.....20 Höll: Ármann - ÍH............20 KÖRFUKNATTLEIKUR er ein sú íþróttagrein sem einna sterkasti vaxtarbroddur er í hérlendis um þessar mundir. Mjög mörg íþróttafélög eru að koma upp með góð keppnislið svo sem fyrsta deildin sannar, og úrvalsdeildin hefur sjaldan eða aldrei verið sterkari en á þessu keppnistfmabili. etta byggist á mjög reyndum og þrautþjálfuðum leikmönn- um, og öll eiga liðin það sammerkt að hafa ieitað til annarra landa og fengið þaðan leik- menn sem bæði styrkja liðin veru- lega, en einnig hafa þessir menn oftar en ekki á hendi þjálfun t.d. í yngri flokkum, og stuðla þeir því þannig að upþbyggingu íþrótta- greinarinnar. Það er þess vegna hörmulegt, að jafnhliða því að liðin í úrvalsdeild- inni verða betri og leika betri körfu- bolta skuli dómgæsla á leikjum deildarinnar sífellt verða slakari og lélegri ár frá ári. Tilefni þessara skrifa er leikur Tindastóls og Grindavíkur, sem fram fór á Sauðárkróki síðastliðið þriðjudagskvöld, en þar léku stór- leik — ekki umrædd tvö lið, sem reyndu þó bæði að leika vel, og tókst stundum — heldur dómararn- ir, þeir Kristinn Albertsson og Árni Freyr Sigurlaugsson, og átti sá síð- arnefndi sérlega slakan dag. Þeim Kristni og Árna verður varla kennt um tap Tindastóis- manna í þessum leik en hins vegar eykur það hvorki ánægju áhorfenda né leikgleði þátttakenda að horfa upp á dómgæslu eins og þá sem fram fór í íþróttahúsinu á Sauðár- króki umrætt kvöld. í stuttu máli má segja að þeir Kristinn og Árni settu sig í aðalhlut- verkin, og það sem fram fór á vellin- um, virtist fyrst og síðast snúast um þá, og helst var að sjá svo, að þeir vildu hafa hönd í bagga með það hvernig liðin höguðu bæði sókn- ar- og varnarleik sínum. Og af sjálfu leiddi, að þar sem dómararnir tóku svo afgerandi þátt í leiknum, þá voru dómamir út og suður, ósamræmið algjört og brot og villur dæmdar sitt á hvað. Það hlýtur að vera niðurlægjandi fyrir leikmenn beggja liða að horfa upp á reyndan dómara eins og Kristin Albertsson, sem ætti að geta gert betur, reyna að lagfæra glappaskot með röngum dómi á hitt liðið. Það sem gerðist í leik Tindastóls og Grindavíkur síðastliðið þriðju- dagskvöld er því miður ekkert eins- dæmi, en er með því allra slakasta sem undirritaður hefur séð til dóm- ara í úrvalsdeildinni í vetur. Þeim mun verra er það líka, vegna þess að í upphafi vetrar virt- ist Árni Freyr vera heldur vaxandi sem körfuknattleiksdómari. Það virðist löngu kominn tími til þess, að stjóm KKÍ taki nú dómara- málin til mjög nákvæmrar skoðun- ar. Höfundur er fréttaritari Morgunblaðsins á Sauðárkróki. ÍÞR&mR FOLK ■ KÍNVERJAR eru staðráðnir í að knattspyrnumenn þeirra verði komnir á „alþjóðlegan mælikvarða" innan tíu ára. Til að ná því mark- miði var sett regla um helgina sem segir að öllum góðum leikmönnum sé bannað að hafa sítt hár, reykja og drekka. Leikmenn skulu einnig vera snyrtilega klæddir. ■ DAGBLAÐ í Peking segir að reglurnar eigi að hjálpa leikmönnum að ná upp baráttuþreki og hinum rétta anda sem þarf til að ná langt. Þó efast greinarhöfundur lítillega um sumar reglurnar og spyr: „Sítt hár Ruud Gullits kemur ekki í veg fyrir að hann er frábær knattspyrnumað- ur. ■ KÍNVERJAR segja að til að ná- settu marki verði félögin að fá er- lenda leikmenn og er lagt til að þau geri það í auknum mæli, en þegar leikar nokkrir Rússar í Kína. ■ TERRY Yorath hefur ákveðið að kæra Knattspyrnusamband Wal- es vegna þess að hann var ekki end- urráðinn sem landsliðsþjálfari. ■ JOHN Toshack, sem var ráðinn í hlutastarf, sagði afstöðu vinar síns skiljanlega, en þetta væri mál Knatt- spyrnusambandsins og' Yorath, sem mætti ekki bitna á landsliðinu. ■ SVISSNESKU landsliðsmönn- unum í knattspyrnu, sem tryggðu liðinu sæti í úrslitakeppni HM, fóru fram á aukagreiðslur og fengu tilboð í gær: 10.000 svissneska franka á mann fyrir að komast í úrslitakeppn- ina (um 500.000 kr.), 4.000 franka fyrir hvert stig í riðlakeppninni og 15.000 franka komist þeir í millirið- il. Auk þess eiga þeir möguleika á auglýsingatekjum. ■ SERGEJ Buhka, heimsmeistari í stangarstökki frá Ukraínu, hefur í hyggju að setjast að rétt norðan við Marseille í Frakklandi. Hann hefur búið í Beriín undanfarin miss- eri. M RUEL Fox gekk í gær til liðs við Newcastle, sem borgaði Norwich 2,25 millj. pund fyrir þenn- an snjalla innheija. „Ruel er besti leikmaður Englands í sinni stöðu," sagði Kevin Keegan, framkvæmda- stjóri Newcastle. KNATTSPYRNA U-18 ára landsliðinu boðiðtil Spánar Atta liða úrslitakeppni Evr- ópumóts U-18 ára lands- liða í knattspyrnu verður í Alm- endralejo á Spáni í lok júlí og hafa Spánverjar boðið íslenska liðinu þangað í æfíngaleik 11. maí, en íslensku piltamir mæta Portúgölum ytra í 16 liða úrslit- um EM 15. maí. Að sögn Eggerts Magnússon- ar, formanns KSÍ, verður boði Spánveijanna tekið enda bjóða þeir liðinu að vera á staðnum fram að leiknum gegn Portúgöl- um og gefst þvj góður tími til undirbúnings við ámóta aðstæð- ur og á leikstað. Hins vegar verða fyrstu æfíngaleikir pilt- anna á 16 liða móti á Italíu í lok mars. FELAGSLIF Aðalfundur Kraftlyft- ingasambands íslands Aðalfundur Kraftlyftingasambands ís- lands verður haldinn á veiting-ahúsinu Gauki á Stöng í kvöld, fimmtudag, og hefst kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þorrablót Breiðabliks Þorrablót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið í sal Sjálfstæðisfélaganna í Hamraborg 1, laugardaginn 5. febrúar. Húsið opnar kl. 19.30 og verður Jón Þor- valdsson veislustjóri. Björn Björnsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.