Morgunblaðið - 03.02.1994, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
Með
morgunkaffínu
Þessi staður fer örugglega
fljótlega á hausinn, fyrst eig-
andinn lætur tvær gangilbein-
ur sjá um að afgreiða hvert
glas af sítrónuvatni.
Burtséð frá því hvort þetta
er þjófur eða ekki, viltu taka
nokkrar kexkökur og mjólk-
urglas með þér upp.
HÖGNI HREKKVÍSI
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Hlustendur tvískattaðir
Frá Bjarna Sigtryggssyni:
Þær fréttir berast að Samtök
tónskálda og eigenda flutningsrétt-
ar ætli sér ekki aðeins að leggja
hlustunarskatt á þá tónlist sem
notendur Ríkisútvarpsins og þar
með öll þjóðin greiðir í formi af-
notagjalds og RUV innheimtir,
STEF að kostnaðarlausu, heldur
eigi nú að skattleggja sömu hlust-
endur öðru sinni.
Það verður gert með því að láta
þjóðina greiða hærra verð fyrir
vöru í verslunum, klippingu á hár-
greiðslustofum og aðra þjónustu
sem menn kaupa.
Það ætti ekki að fara neitt á
milli mála að öll þjóðin er búin að
greiða STEF afnotagjald af þeirri
tónlist sem útvarpað er. Mörg við-
tæki eru yfirleitt inni á hveiju heim-
ili, menn hlusta á tónlistina í bílnum
á leið í vinnuna og margir heyra í
tækjum á vinnustað. En tvöföld
notkun einstaklings á tónlist er
tæknilega útilokuð.
Þurfa greiðendur afnotagjalda
að bregða sér í klippingu og hlýði
þar á tónlistarbrot úr hinni ágætu
dagskrá Ríkisútvarpsins, þá er
hann búinn að greiða íyrir það með
afnotagjaldi sínu. Rakarinn sömu-
leiðis. Það er engin réttlæting fyrir
því að STEF skattleggi atvinnu-
reksturinn í landinu. Engin lög
leyfa slíkt.
Ég hef sjálfur átt sæti í vinnu-
nefnd um höfundarréttarmál og er
félagi í einu hagsmunafélagi rétt-
hafa. Þar er unnið mjög málefna-
lega að því að tryggja höfundum
réttláta umbun fyrir aðra notkun
verka þeirra en upphaflega var tii
stofnað.
Tvísköttun er fjarri anda allra
laga, sem taka til verndar höf-
undarréttar og ekki verður annað
séð en að STEF seilist langt út
fyrir réttlætismörk í þessu máli.
Þar ber að fara með hægð. STEF
hefur lengi verið eins konar sjálf-
tökufélag sem hefur getað ákvarð-
að þóknun einhliða. Hæpið er að
þau vinnubrögð standist sam-
keppnislög og rétt að samtök í at-
vinnurekstri séu á varðbergi gegn
■ tvísköttun þar sem annars staðar.
BJARNI SIGTRYGGSSON,
Stóragerði 28,
Reykjavík.
Þegar Kristur kallar
Frá Konráði Friðfinnssyni:
Þegar Kristur kallar á þig og
segir: Komdu til mín. Ég vil leiða
þig frá vöggu til grafar og forða
þér frá háska þessa heims - þá
er hann ekki einvörðungu að bjóða
fram fylgd sína og vernd eina held-
ur líka sanna vináttu sem þú getur
byggt á og treyst fullkomlega sér-
hvern dag lífs þíns. Kristur er
nefnilega hinn ósigrandi klettur og
ert þú þar af leiðandi aðili að sigri
hans, sem hann vann fyrir þig með
dauða sínum á krossinúm. Það er
að segja, teljir þú það á annað
borð vera þess virði að þiggja og
halda í þennan vinskap yfirleitt.
En hafir þú móttekið Krist inn í líf
þitt mun vinsemd ykkar ná út yfir
gröf og dauða, því þá munt þú líka
fá að lifa með Kristi um aldir alda.
Þegar Guð hefur dæmt heiminn og
gert alla hluti nýja. Á ríki Krists
mun síðar enginn endir verða.
Einu máttu samt aldrei gleyma
þarna. Og það er að Drottinn vor
Jesú Kristur er sá sem setur þér
öll skilyrði fyrir þessu sambandi
ykkar, sem verður afar náið, takist
vel til. Honum ber að ráða ferðinni
eins og hann segir: „Hver sem legg-
ur hönd á plóginn og lítur til baka,
er mín ekki verður.“ Og þessi skila-
boð eru mjög skýr. Á þann hátt
má einnig sjá að allir er vilja ganga
Kristi á hönd verða að afneita sjálf-
um sér og fylgja og treysta honum
einum. Að tarna er og nauðsynlegt
til að Kristur geti unnið það verk
í þér sem þarf, svo að þú gerir og
getir gert hans vilja með gleði og
hann mun beita þeim aðferðum er
duga best. Kristur tyftar sum sé
og agar hvern þann er hann elsk-
ar. Og öll ögun er yfirleitt sárs-
aukafull meðan á henni stendur.
En eftir á gefur hún þó friðsemd.
Friðsemd er Kristur boðar í sér og
hann einn getur veitt.
í Lúkasarguðspjalli, fjórtánda
kapítula, kveður Drottinn raunar
enn fastar að orði er hann segir:
„Þannig getur enginn verið læri-
sveinn minn, nema hann segi skilið
við allt sem hann á.“
Sem sagt: Þú mátt ekki láta
neitt ráða yfir þér sem heimurinn
býður upp á, heldur átt þú að
drottna yfir þeim. Hins vegar veit
ég að slíkt er stundum erfítt. En
þessu kemur Kristur sjálfur til leið-
ar hjá trúuðum manni.
Það er aðeins einn aðili er megn-
ar í raun að fjarlægja þig Kristi
og það ert þú sjálfur. Fyrir þær
sakir er andlega fæðan, þ.e. bænin
og daglegur lestur í heilagri ritn-
ingu, hverjum kristnum manni jafn
nauðsynleg og maturinn er líkam-
anum. Við vitum öll að ef við borð-
um ekki um langa hríð, kemur
dauðinn í öllu síni veldi til okkar
að lokum. Nákvæmlega sama gild-
ir um andlega fæðuþörf mannsins.
Annað fær hreint út sagt ekki stað-
ist.
Jesús Kristur er hið eina sem
tekur að seilast eftir. Það sjá menn
æ betur eftir því sem árunum í
trúnni fjölgar. Að breyta öðruvísi
er einfaldlega hégómi.
KONRÁÐ FRIÐFINNSSON,
Þórhólsgötu la,
Neskaupstað.
Víkverji skrifar
Víkveiji er yfirleitt ákaflega lög-
hlýðinn. En stundum verður
honum á í messunni eins og fleirum.
Fyrir nokkru þyngdist bensínfótur
hans töluvert og fór það ekki fram-
hjá árvökulum augum varða lag-
anna. Víkveiji var umsvifalaust
stöðvaður af tveimur ungum lög-
reglumönnum, honum bent á það
að hann hefði ekið á ólöglegum
hraða og áminntur í föðurlegum
tón.
Víkveiji viðurkenndi brot sitt
fúslega - því ekki þýddi að rök-
ræða við radarmælinn - gaf upp
viðeigandi upplýsingar og í sömu
viku fékk hann sent bréf sem hon-
um var gert að greiða einhver þús-
und fyrir brotið. Víkveiji er ekki
lögfróður og fannst því brot sitt líta
ógnvekjandi út á prenti.
xxx
að var þó annað sem á seðlinum
stóð sem vakti athygli og
undrun Víkveija. Þar stóð eitthvað
á þá leið að ef umrædd skuld yrði
greidd á umsömdum tíma yrði brot-
ið ekki sett á sakaskrá og kæmi
hvergi fram.
Og nú fóru sellurnar í gang.
Hvað þýddi þetta á mannamáli?
Eftir töluverðar vangaveltur
komst Víkveiji að þeirri niðurstöðu
að hér væru yfirvöld að reyna að
múta þeim sem bijóta lögin með
því að bjóða þeim að borga svo og
svo mikið og þá myndu þeir gleyma
brotinu. Ef Víkveiji borgar hins
vegar ekki tiltekna upphæð fer
málið fyrir dóm og þá er brot hans
ekki lengur að hafa ekið of hratt,
heldur það að borga ekki skuld.
Víkveiji bar þessa niðurstöðu
undir starfsmann sýslumanns, sem
var honum öldungis ósammála.
Siðferðiskennd Víkveija var mis-
boðið við þessa niðurstöðu.
xxx
Kunningi Víkverja segir það
ótrúlega algengt að ung dótt-
ir hans þurfi skyndilega að pissa á
óliklegustu stöðum og stundum, og
oft hafi hann lent í vandræðum
meðan á búðarápi stendur þegar
þeirri stuttu hafi orðið mál. Nýlega
var hann hins vegar staddur í versl-
uninni Vedes leikföng í Faxafeni
og segir salernisaðstöðu, sem eig-
endur verslunarinnar hafa sérstak-
lega komið upp fyrir viðskiptavini,
til mikillar fyrirmyndar; auk hefð-
bundinna tækja á salernum sé þar
t.d. að finna svokallað skiptiborð,
þar sem hægt er að skipta á ung-
börnum og bleyjur séu m.a.s. til
staðar.
Nokkuð oft hefur það komið fyr-
ir, að sögn kunningjans, að honum
hefur verið neitað um að nota sal-
erni í verslunum og stundum er
aðstaðan, sem boðið er uppá, varla
boðleg. Telur hann marga verslun-
areigendur geta tekið sér umrædda
starfsbræður í Faxafeni til fyrir-
myndar og má það til sanns vegar
færa.
XXX
Fimm ára dóttir kunningja Vík-
veija brá sér í næsta hús á
dögunum. Jafnaldran sem þar býr
hafði nýverið eignast forláta liti,
og var vinkonan vel skreytt í fram-
an er hún snéri heim á leið. Þegar
spurt var um ástæðu þess, var svar-
ið að vinkonan væri nýbúin að eign-
ast „æðislega flotta and-liti“ þannig
að ekki hefði verið hægt annað en
að prófa þá ...