Morgunblaðið - 12.02.1994, Side 1
72 SIÐUR LESBOK /C
STOFNAÐ 1913
35. tbl. 82. árg.
LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Finnland og Evrópusambandið
Aho er svart-
sýnn á aðild
Helsinki. Reuter.
FINNAR geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu nema það sam-
þykki sérstöðu landbúnaðarins i nyrstu héruðum Finr.iands. Kom þetta
fram í blaðaviðtali við Esko Aho, forsætisráðherra landsins, i gær.
Á fornum slóðum
Reuter
NELSON Mandela heimsótti í gær fangelsi á Robben-
eyju fyrir utan Höfðaborg en fjögur ár voru þá liðin
frá því hann fékk frelsi á ný. Var myndin tekin er
Mandela horfði út um rimlaglugga á klefanum sem
hann varð að dúsa í nær öll þau 27 ár sem hann var
í haldi.
„Ef þessi meginkrafa okkar verð-
ur samþykkt getum við orðið aðilar
að Evrópusambandinu," sagði Aho
í viðtali við blaðið Suomenmaa. „Ef
hún verður ekki samþykkt, munum
við láta okkur nægja evrópska efna-
hagssvæðið, EES.“
Samningamenn Evrópusam-
bandsins krefjast þess, að landbún-
aðarverð í Finnlandi verði lækkað
strax við inngönguna 1 sambandið
og þeir vilja engu lofa um stuðning
við búsetu í nyrstu héruðunum.
Landbúnaðurinn er mikið tilfinn-
ingamál í Finnlandi þótt bændur séu
aðeins 160.000 af fimm milljónum
íbúa. Er hann mjög mikið niður-
greiddur og offramleiðsla mikil.
í viðtalinu dró Aho enga dul á,
að hann væri svartsýnn á niðurstöðu
aðildarviðræðnanna og Pertti Salola-
Fáekki
að veiða
selkópa
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, frétta-
ritara Morgunblaðsins
JAN Henry T. Olsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, neitaði
í gær að leyfa á ný veiðar á
kópum. Hagsmunasamtök í
norskum sjávarútvegi og sel-
veiðimenn eru afar ósáttir við
niðurstöðu ráðherrans.
Helsta ástæða þessarar niður-
stöðu ráðherrans eru taldar að-
ildarviðræður Norðmanna að
Evrópusambandinu. Þá hefur sú
athygli, sem beinst hefur að
Norðmönnum vegna hvalveiða
þeirra, haft áhrif. Það er ekki
talið Noregi til góðs að athyglin
beinist að drápi á kópum, sem
enn séu á spená; slíkt sé mörgum
dýraverndunarsinnum mikið til-
fmningamál. Selveiðimenn verða
því að láta sér nægja að veiða
fullorðin dýr, en skinnið af þeim
er verðminna en af kópunum.
Veiðar niðurgreiddar
Kópaveiðar hafa verið bann-
aðar í Noregi frá 1989 þrátt
fyrir kröftug mótmæli selveiði-
manna. Hafa selveiðarnar verið
niðurgreiddar síðustu fjögur árin
um jafnvirði 100-120 milljónir
íslenskra króna á ári.
Norskir selveiðimenn mega
veiða 10.600 vöðuseli og 1.700
blöðruseli í Vesturísnum, vöðusel
á tímabilinu 10. apríl til 5. maí
og blöðrusel frá 26. mars til 5.
maí. Þá eru leyfðar veiðar á
9.500 vöðuselum í rússneskri
lögsögu í Austurísnum frá 23.
mars til 20. apríl.
Serbar byrja að aflétta umsátrinu um Sarajevo
Sveitir SÞ taka
við þimgavopnum
inen, utanríkisviðskiptaráðherra
Finnlands, hefur lýst yfir, að ekki
verði um neina málamiðlun að ræða
um landbúnaðinn og jaðarhéruðin.
Forsætisráðherrar Finnlands, Nor-
egs og Svíþjóðar koma saman til
fundar 25. þ.m. til að samræma af-
stöðu sína en viðræðunum við Evr-
ópusambandið verður að vera lokið
1. mars eigi að geta orðið af aðild
ríkjanna um næstu áramót.
-----»• »■ ---
Samningar
tókust ekki
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
og Morihiro Hosokawa lögðu á
það áherslu eftir viðræður
þeirra í gær að samskipti Banda-
ríkjamanna og Japana stæðu
traustum fótum þrátt fyrir að
ekki hefði tekist að ljúka samn-
ingum þeirra um viðskiptamál.
Ákafar tilraunir samninga-
manna þjóðanna síðustu daga til
þess að komast að málamiðlun
fyrir fund Clintons og Hosokawa
runnu út í sandinn í gærmorgun.
Clinton játti að það væri áfall en
sagði að heldur skárra væri að
reyna áfram en gera innantóma
samninga.
New York, Zagreb, Sarajevo, Genf, Brussel. Reuter. Daily Tclcgraph.
STÓRSKOTALIÐSSVEITIR Bosníu-Serba og múslima tóku
í gær að afhenda gæslusveitum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í
Sarajevo þungavopn í samræmi við munnlegt vopnahléssam-
komulag í og við höfuðstað Bosníu. Þá sagði Douglas Hurd
utanríkisráðherra Breta að Serbar hefðu sömuleiðis byrjað
að flytja þungavopn burt úr fjöllunum umhverfis Sarajevo.
Sérlegur fulltrúi Boutros Boutros-Ghali framkvæmdasljóra
'SÞ, Yashushi Akashi, fékk í gær heimild til þess að fyrir-
skipa loftárásir á byssuhreiður Serba og aðrar hernaðarað-
gerðir sem nauðsynlegar væru taldar til að verja sveitir SÞ
í Bosníu.
Þrátt fyrir umboðið sem Akashi
hefur fengið sagði háttsettur full-
trúi í höfuðstöðvum NATO í gær
að Boutros-Ghali yrði sjálfur að
gefa leyfi fyrir fyrstu árásinni.
Ákvarðanir um framhaldsaðgerðir
yrðu síðan í höndum NATO og
yfirmanna gæslusveita SÞ í Bosn-
íu.
Sveitir SÞ tóku sér stöðu á
svæðum sem sveitir Serba og
múslima hafa ráðið. Bosníski
stjómarherinn afhenti fimm
sprengjuvörpur í Tító-herbúðunum
í Sarajevp í gær þar sem gæslulið-
ar frá Úkraínu tóku við þeim.
Serbar afhentu sjö þungavopn, þar
á meðal eldflaugapalla sem skotið
geta mörgum flaugum samtímis,
og sprengjuvörpur, í fyrstu at-
rennu og búist var við að þeir af-
hentu fleiri samdægurs. Haldi
vopnahléð og afhendi Serbar sveit-
um SÞ umsátursbyssur sínar gæti
það orðið til þess að NATO láti
ekki verða af loftárásum á stöðvar
•þeirra. Á miðvikudag gaf NÁTO
Serbum frest til 20. febrúar að
aflétta umsátri um Sarajevo og
hverfa með vopn sín a.m.k. 20 km
frá borginni.
Yashushi Akashi fól í gær fimm
mönnum að reyna að finna út
hverjir stóðu fyrir sprengju-
árásinni á markaðstorg í Sarajevo
sl. laugardag, er varð 68 manns
að bana. Bráðabirgðarannsókn
sveita SÞ hefur ekki leitt í ljós
hveijir voru að verki, Serbar eða
múslimar, en þegar samskonar
árásir hafa verið gerðar á borgina
hafa fulltrúar SÞ jafnan skellt
skuldinni á Serba. Boðuðum fundi
í öryggisráði SÞ um Bosníu-deil-
una var í gær frestað til mánu-
dags vegna óveðurs í New York.
*
Olympíu-
leikar settir
SAUTJÁNDU Vetrar-
ólympíuleikarnir verða
settir í Lillehammer í Nor-
egi í dag en Ólympíulog-
inn sem kveiktur var í síð-
asta mánuði í Grikklandi
kom í gær til Óslóar frá
Stokkhólmi með þotu
SAS, Vegard Viking, sem
skírð var í höfuðið á
norska skíðagarpnum
Vegard Ulvang sem vann
þrenn gullverðlaun á síð-
ustu leikum. Áður en Há-
kon prins tekur við kyndl-
inum og kveikir Ólympíu-
eldinn í Lillehammer við
setningarathöfnina stekk-
ur skíðastökkvari með
kyndilinn en uppátæki af
því tagi hefur ekki verið
reynt áður á Vetrarólymp-
íuleikum. Sá sem upphaf-
lega átti að gera það slas-
aðist á lokaæfingunni og
varamaður hans, Stein
Gruben, hleypur í skarðið.
Var myndin tekin af Gru-
ben í gær eftir velheppn-
aða æfingu.
Reutei'