Morgunblaðið - 12.02.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
3
Vörubílstjórar sýknaðir af ákæru um of mikla hlassþyngd
Vogimar stóðu í of mikl-
um halla við vigtunina
Nýtt óháð framboð
TÍU mál sem höfðuð voru gegn
vörubílstjórum fyrir Héraðsdómi
Austurlands fyrir að hafa ekið
með of þungt hlass á bifreiðum
sínum sumarið 1992 hafa verið
til lykta leidd og hafa sex dómar
fallið ákærðu í vil, en í fjórum
tilfellum voru hinir ákærðu sak-
felldir. Verjandi vörubílsljór-
anna var Gísli Auðbergsson og
segir hann að í þeim tilfellum
þar sem um sýknu var að ræða
hafi dómarinn komist að þeirri
niðurstöðu að ekki hafi verið
gætt nógu vel að því að bifreið-
arnar stæðu á jafnsléttu þegar
vigtun fór fram og því hafi ekki
verið hægt að treysta mælingun-
um.
Málavextir eru eitthvað mismun-
andi eftir því hver ákærða á í hlut
en allir voru þeir stöðvaðir á leið
með hlass á losunarstað. Voru bif-
reiðarnar vigtaðar með færanlegum
vogum við vegarkantinn og reynd-
ust samkvæmt mælingunum vera
of þungar. Leyfilegur heildarþungi
er 23.000 kíló. Einnig var í sumum
tilfellum um að ræða of háan öxul-
þunga. Bílstjórarnir voru ósáttir við
niðurstöður vigtunarinnar og voru
ákærðir þegar þeir borguðu ekki
sektir. Sektir við brotum af þessu
tagi geta numið allt að 26 þúsund
krónum að sögn Gísla.
Þrír ákærðu í vinnu fyrir
Vegagerðina
í dómsskjölum kemur fram að
þrír bílstjóranna voru að vinna fyr-
ir Vegagerð ríkisins og sáu starfs-
menn hennar um að moka á bifreið-
arnar. Vigtunarmennirnir vinna
Samkeppnisráð
Lögmenn
fá ekki að
gefa út
gjaldskrá
LÖGMENN fá ekki að gefa út
leiðbeinandi gjaldskrá fyrir hluta
af þjónustu sinni eins og þeir
höfðu óskað eftir við samkeppnis-
yfirvöld. Samkeppnisráð telur að
ekki séu forsendur til að veita
þeim undanþágu frá banni við
verðsamráði, m.a. þess að það
muni frekar draga úr samkeppni
en auka.
Eftir gildistöku samkeppnislaga á
síðasta ári gekk í gildi bann við
verðsamráði. Féll þá niður heimild
Lögmannafélags Islands og fleiri
samtaka til að gefa út leiðbeinandi
gjaldskrár. Lögmannafélagið óskaði
eftir takmarkaðri undanþágu, það
er að fá heimild til að gefa út leið-
beinandi gjaldskrá til notkunar fyrir
dómstóla við ákvörðun málsvarnar-
og málsóknarlauna og vegna inn-
heimtumála til verndar skuldurum.
Dregur úr samkeppni
Guðmundur Sigurðsson, yfirvið-
skiptafræðingur Samkeppnisstofn-
unar, segir að í samkeppnislögum
og greinargerð með frumvarpi þeirra
séu settar miklar skorður við veit-
ingu undanþága. Það sé m.a. skil-
yrði að samkeppni aukist og að þess
megi vænta að jákvæð áhrif verði
meiri en neikvæð. Stofnunin telji að
leiðbeinandi reglur á þessu sviði séu
til þess fallnar að hafa áhrif á aðrar
gjaldskrár lögmanna og dragi því
fremur úr samkepppni.
einnig fyrir Vegagerðina.
Löggildingarstofan löggildir ekki
vogirnar því þær eru notaðar við
mismunandi aðstæður. Stofan próf-
ar þær þó árlega og hefur viður-
kennt þær til þessara nota. I dóms-
skjölunum segir að jafnan sé lesið
af vogunum ökumönnunum í hag
og ef viðkomandi sættir sig ekki
við mælinguna er hægt að láta vigta
bílana á næstu löggiltu hafnarvog.
Slíkt hafi þó ekki verið gert í um-
ræddum tilfellum.
Sex málanna féllu þeim ákærðu
í vil og voru forsendur dómsins þær
að það þótti sýnt að ekki hefði þess
verið gætt nægilega að undirlagið
væri slétt og hallalítið, en niðurstöð-
ur vigtunarinnar þykja ekki ná-
kvæmar ef halli á mælingarstað er
meira en 3% eða þegar undirlagið
er mjög óslétt. í fjórum málum var
ákærðu gert að greiða sekt þar sem
sýnt þótti að bifreiðar þeirra hefðu
verið ofhlaðnar, og nema sektirnar
frá 9.000 kr. til 20.000 kr.
ÞRJÚ framboð bái-ust í kosningu til
Stúdentaráðs í Háskóla íslands, en
framboðsf restur rann út í gær. Nýtt
óháð framboð bættist í hóp þeirra
tveggja sem barist hafa um völd í
Stúdentaráði undanfarin
árFramboðslistar bárust frá Röskvu,
samtökum félagshyggjufólks í Há-
skóla íslands og Vöku félagi lýðræð-
issinnaðra stúdenta. Að auki barst
listi frá óháðu framboði sem ekki
hefur fengið nafn. Þá bárust framboð
frá Röskvu og Vöku til Háskólaráðs.
Alls eru 30 fulltrúar í Stúdenta-
ráði og er kosið um 15 fulltrúa ár-
lega. Röskva hefur nú meirihluta í
ráðinu, 16 fulltrúa á móti 14 fulltrú-
um Vöku. Þá hafa félögin sinn full-
trúann hvort í Háskólaráði. Kosið
verður í Háskólanum 22. febrúar.
Nei Nissan Sunny er búinn 1600cc,
16 ventla vél með fjölinnsprautun.
Nægur kraftur jafnvel þó fimm fullorðnir
með allan sinn farangur séu í bílnum.
Einn með öllu.
Frítt þjónustueftirlit að 20.000 km.
Frí ábyrgðartrygging í 6 mánuði.
Hafið samband við sölumenn
eða umboðsmenn um land allt.
Ingvar
Heigason hf.
Sævarhöföa 2
slml 91-674000