Morgunblaðið - 12.02.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
Ráðgjafi
fjármála-
ráðherra
FRIÐRIK Sophusson fjár-
málaráðherra hefur ráðið Þór
Sigfússon hagfræðing sem
sérstakan ráðgjafa sinn í fjár-
málaráðuneytinu frá 1. febr-
úar í óákveðinn tíma.
Ráðherra
sagði að hann
hefði ákveðið
að ráða Þór
m.a. vegna
þess að verk-
efni ráðuneyt-
isins myndu
aukast á næst-
unni vegna Sigfússon
formennsku Islands í Norrænu
ráðherranefndinni. Þór myndi
sinna sérstökum verkefnum sem
heyrðu undir ráðherra og meðal
þess sem félli undir starfssvið
hans snéri að sambandi við fjöl-
miðla. Steingrímur Ari Arason
hagfræðingur verður áfram að-
stoðarmaður ráðherra.
VEÐUR
Erindi íslandsflugs til umboðsmanns Alþingis
Kvartað undan
skipan flugráðs
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur óskað svara samgönguráðuneytisins
um viðhorf þess til kvartana íslandsflugs um setu fjögurra manna í
flugráði. íslandsflug telur mennina fjóra vanhæfa til setu í ráðinu
vegna tengsla þeirra við Flugleiðir.
í bréfi, sem ísiandsflug sendi
umboðsmanni Alþingis 27. janúar
sl., kemur fram að undanfarin ár
hafi skipan fulltrúa í flugráð oft ver-
ið gagnrýnd vegna tengsla nokkurra
ráðsmanna við stærsta flugrekanda
landsins. Um síðustu áramót hafi
tekið gildi stjómsýslulög, sem taki
af allan vafa um ranglæti slíkra
hagsmunatengsla. Þá er í bréfinu
rakið, að flugráð taki fyrir ýmis mál
sem varði flugmál og fjalli um mál-
efni einstakra flugrekenda, bæði
beint og óbeint. íslandsflug fer fram
á að umboðsmaðurinn meti hvort
ijórir einstaklingar séu hæfic-til setu
í ráðinu, en það eru Leifur Magnús-
son, formaður ráðsins og fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, Hilm-
ar B. Baldursson, varaformaður
ráðsins og flugmaður hjá Flugleið-
um, Kistján Egilsson, flugstjóri hjá
Flugleiðum, og Viktor Aðalsteinsson,
fyrrverandi flugstjóri hjá Flugleiðum.
Upplýsingar um tengslin
Umboðsmaður Alþingis ritaði
samgönguráðuneytinu bréf 8. febr-
úar og fór þess á leit að ráðuneytið
skýrði viðhorf sitt til málsins. Hann
fer fram á að honum verði veittar
upplýsingar um tengsl fyrmefndra
manna við Flugleiðir, þar á meðal
hvort þeir eigi hlut í Flugleiðum eða
öðru flugfélagi hér á landi. Þá óskar
hann eftir ljósritum af öllum fundar-
gerðum flugráðs árin 1992 og 1993.
Jón Birgir Jónsson, ráðuneytis-
stjóri, segir að ráðuneytinu hafi bor-
ist bréf umboðsmannsins fyrir
skömmu, en ráðist verði í að svara
því fljótlega.
/ DAG kl. 12.00
Beimild: Vedurstola Islands
(Byggt á veðurspá k) 16.30 f gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 12. FEBRUAR
YFIRLIT: Við strönd Grænlands vestur af Vestfjörðum er víðáttumikil
955 mb djúp lægð sem er farin að grynnast. Langt suður í hafi er vax-
andi lægð sem hreyfist allhratt norður á bóginn, i stefnu á landið.
STORMVIÐVORUN: Gert er ráð fyrir stormi á öllum miðum og djúpum
SPÁ: Sunnan- og suðvestan kaldi eða stinningskaldi framan af deginum.
Éljagangur um landið sunnan- og vestarrvert, úrkomulaust norðaustan til.
Snýst f þvassa suðaustanátt með rigningu undir kvöldið sunnanlands og
vestan. í nótt frystir vfða á landinu, hlýnar aftur síðdegis á morgun.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu,
víöa nokkuð hvasst. Skúrir eða él um vestanvert landiö, en rigning með
köflum austanlands. Hiti um og undir frostmarki vestantil, en 2 til 5
stig austantil.
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Lítur út fyrir áframhaldandi
suðlægar áttir, sums staöar nokkuð hvasst, einkum austantil. Rigning
eða siydda um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítið norðaustan-
lands. Hiti 0 til 7 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu l'slands — Veðurfregnir: 990600.
o Ká m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
r r r * r * * * * r7 10° Hitastig
r r r r r * / . r * r * * * * * V v V V Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ^
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
All flestir vegir eru færir sem á annað borð eru færir á þessum árs-
tíma, mjög víða er umtalsverð hálka. Á Suður- og Suðvesturlandi er
fært um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði. Fært er um Snæfellsnes
í Dali og þaðan til Reykhóla. Brattabrekka er ófær. Á Vestfjörðum er
fært frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og til Bíldudals, er fært frá Þingeyri
til Flateyrar og um Botns- og Breiðadalsheiðar. Frá ísafirði er fært um
Djúpveg um Steingrímsfjarðarheiði til Hólmavikur og þaðan áfram suður.
Norðurleiðin er fær og fært er til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Akur-
eyrar. Frá Akureyri er fært um Þingeyjarsýslur með ströndinni til Vopna-
fjarðar. Ófært er um Vopnafjaröarheiði og Mývatns- og Möðrudalsör-
æfi vegna veðurs. Á Austfjörðum eru vegir víðast færir og fært er um
Suðurfirði og allar götur til Reykjavíkur.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hiti 6 3 veður alskýjað rigning
Bergen 2 léttskýjað
Heisinkl +1B léttskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Narssarssuaq +19 léttskýjað
Nuuk +11 hálfskýjað
Osló +3 sjókomaá
sið.kls.
Stokkhólmur +7 snjókoma
Þórshöfn 6 alskýjað
Algarve vantar
Amsterdam 4 þokumóða
Barcelona 14 skýjað
Berlín vantar
Chicago vantar
Feneyjar 10 heiðskírt
Frankfurt vantar
Glasgow 6 alskýjað
Hamborg vantar
London 6 rigning og súid
LosAngeles vantar
Lúxemborg 2 skýjað
Madríd vantar
Malaga 17 heiðskírt
Mallorca 14 skýjað
Montreal +23 léttskýjað
NewVork +8 snjókoma
Orlando vantar
París 4 skýjað
Madeira 17 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Vin 3 skúr
Washington vantar
Winnipeg vantar
Ef mál er fréttnæmt fær það umfjöllun
FYRSTU viðskiptavinimir vom tengdir gagnasafni Morgunblaðs-
ins í gær. Að sögn forsvarsmanna Strengs hf. hefur fjöldi fyrir-
spurna borist og aðeins tímaspursmál hvenær fleiri sláist í hóp-
inn. Frá vinstri: Snorri Bergmann, deildarstjóri gagnasafnsdeild-
ar Strengs, Haukur Geirsson, stjórnarformaður fyrirtækisins,
Tryggvi Pálsson framkvæmdasfjóri íslandsbanka og Sigurveig
Jónsdóttir upplýsingafulltrúi bankans.
Fyrstu viðskiptavin-
imir tengjast gagna-
safni Morgunblaðsins
Oendanlegir möguleikar, segir Sig-
urveig Jónsdóttir hjá Islandsbanka
FYRSTU tveir viðskiptavinirair vom tengdir við gagnasafn Morg-
unblaðsins í gær en um er að ræða Islandsbanka og Alþingi. Gagna-
safnið er hluti af gagnabanka sem hugbúnaðarfyrirtækið Streng-
ur hf. rekur og í því er að finna allar fréttir Morgunblaðsins frá
miðju ári 1986, auk annars efnis. Sigurveig Jónsdóttir upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka segir að sú staðreynd að hægt sé að skoða
fréttir aftur í tímann um tiltekin mál bjóði upp á óendanlega
möguleika og hægt sé að treysta Morgunblaðinu sem heimild.
Haukur Arnþórsson deildarstjóri tölvudeildar Alþingis segir að
með þessu móti fáist aðgangur að sögu samtímans án mikillar
fyrirhafnar.
Sigurveig segir að í starfí sínu
sé henni meðal annars falið að
skrifa greinar um tiltekið efni og
svara fjölmiðlum og mikiil tími
geti farið í að afla upplýsinga. Hún
segist þegar hafa rekið sig á dæmi
sem sanni þægindi þess að hafa
aðgang að safninu. „Við höfum
tengt eina tölvu við greinasafnið
og fyrst um sinn verður það á
minni könnu að vinna úr verkefn-
um með aðstoð þess. Hins vegar
á eftir að koma í ljós hvernig þetta
nýtist fyrirtækinu og hugsanlegt
er að fleiri vélar verði tengdar nái
ég ekki að anna öllum fyrirspurn-
um. Það hefur sýnt sig að Morgun-
blaðið er góð heimild og ef mál
er fréttnæmt á annað borð fær það
örugglega umfjöllun í blað-
inu.“ Sigurveig segir að fyrst og
fremst muni gagnasafnið nýtast
til þess að skoða fréttir og umfjöll-
un um tiltekin mál sem tengjast
banka- og peningamálum en einn-
ig geti bankinn nýtt sér það í
tengslum við útlánastarfsemi, til
dæmis til að kynna sér tiltekin
fyrirtæki. „Með þessu móti er
hægt að lesa umfjöllun um vexti
og vaxtastefnu aftur í tímann og
skoða ummæli manna.
Einnig gerir greinasafnið kleift
að skoða sögu fyrirtækja, til dæm-
is í tengslum við útlánastarfsemi
bankans, og gera sér raunhæfa
mynd af möguleikum þeirra, til
dæmis hvort fyrirtæki hefur beitt
sér fyrir einhvers konar nýjungum.
Eða ef eitthvað orkar tvímælis að
leita nánari upplýsinga eða skýr-
inga hjá umsækjanda."
Minni manna stutt
Sigurveig segir einnig að hún
geti nýtt sér gagnasafnið til þess
að skoða hvemig tilteknar nýjung-
ar í bankastarfsemi hafi mælst
fyrir hjá almenningi og öðrum við-
skiptavinum bankans og tekur
umræðuna um debetkortin sem
dæmi. „Mig vantar kannski upp-
lýsingar um tiltekið mál og rétt
rámar í frétt sem var í blaðinu,
man kannski á hvaða blaðsíðu hún
var eða hvar á síðunni, en ekkert
nánar. Það gefur augaleið að í því
felst mikill tí.maspamaður að geta
leitað að öllum fréttum þar sem
orðið debetkort kemur fyrir svo
ég nefni sem dæmi,“ segir hún.
Samtímasaga á svipstundu
segir deildarstjóri tölvu-
deildar Alþingis
Haukur Amþórsson deildar-
stjóri tölvudeildar Alþingis segir
að 40 skjáir hafi verið tengdir til
reynslu hjá þeim. Til þessa hafí
bókasafnið sinnt upplýsingaöflun,
meðal annars frá Morgunblaðinu,
með því að afla ljósrita og í fram-
tíðinni sjái hann fyrir sér að starfs-
menn skrifstofu, þingflokka og
þingmenn nýti sér þjónustuna.
„Kostimir eiga eftir að koma betur
í ljós en það að geta fengið yfirlit
yfir ákveðið málefni með einni fyr-
irspum eða uppflettiorði veitir að-
gang að samtímasögunni fyrir-
hafnarlaust," segir hann að lokum.
Verð svínakjöts lækkað
til að forðast birgðir
FORMAÐUR Svínaræktarfélags íslands telur að framleiðendur hafi
lækkað verð á nýju svínakjöti um 10% að jafnaði undanfarnar vikur.
Ástæðan er að eftirspurn hefur minnkað í upphafi árs. Svínakjötið
lækkaði um rúm 20% á síðasta ári og er því liðlega 30% ódýrara en á
sama tíma í fyrra.
Sláturfélag Suðurlands tilkynnti
10% lækkun svínakjöts í vikunni og
í frétt hér í blaðinu í gær kom fram
að verslunin Nóatún lækkaði verðið
um 20%. Kristinn Gylfi Jónsson, for-
maður Svínaræktarfélags íslands,
segir að framleiðsla svínakjöts hafi
aukist á síðasta ári og birgðir safn-
ast en þær gengið út að mestu með
góðri sölu síðustu mánuði ársins.
Framleiðsluaukningin haldi áfram á
þessu ári en eftirspumin væri minni
í upphafi ársins. Nefnir hann í því
sambandi mikla sölu fyrir jólin, pen-
ingaleysi fólks, Visa-reikninga,
þorramatinn og mikið framboð af
nautakjöti og öllu öðm kjöti.