Morgunblaðið - 12.02.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
9
Vorum að taka heim ný stórglæsileg fyrsta flokks
sófasett alklædd leðri.
Sófasett 3+1+1 aðeins stgr. kr. 149.000,-
Sérstakt kynningarverð með McMiIililflB afslætti.
Litir: Svart, brúnt, grænt, rautt, vínrautt, bleikt og Ijósbrúnt.
Ath. Takmarkað magn.
Greiðslukjör við allrahæfi.
E )M u n a I á n
Valhnsgðp
ÁfíMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375
FORD ESCOKT
Verðið og staðalbúnaðurinn!
Þetta stenst ekki!
Jú!
Nýr FORD ESCORT 1600 16V er búinn
staðalbúnaði sem á engan sinn líka,
á verði sem er aðeins:
1.348.000 kr.
(með ryðvörn og skráningu)
Berðu saman verð og staðalbúnað og þú
sérð að FORD ESCORT er rétti bíllinn.
► Upphituð framrúða (öll rúðan)
► Rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
► Rafmagn í rúðum
► Samlæsingar í hurðum
► Útvarp og kassettutæki
► (Fáanlegur með loftpúða fyrir
ökumann og farþcga)
Komdu og skoðaðu
FORD ESCORT.
FÚRD ESCÖRT
- bíll sem markar tímamót.
Globust?
—heimur gæða!
Lágmúla 5, sími 91-68 15 55
Jöfnunar-
aðstoð
Ingi Bogi Bogason seg-
ir í Fréttablaði Samtaka
iðnaðarins:
„Ríkisstjómin hefur
boðað aðgerðir í fram-
haldi af niðurstöðu
skýrsiu um verkefna-
stöðu i skipaiðnaði.
Helztu atriði samþykkt-
arinnar eru þessi:
Ríkisstjómin samþykk-
ir að beita sér fyrir því
að á árinu 1994 verði lagt
fram úr ríkissjóði allt að
40 miRjónir króna til jöfn-
unaraðstoðar vegna
stærri endurbóta- og við-
haldsverkefna í skipa-
smíðaiðnaði, samkvæmt
nánari reglum og skilyrð-
um sem iðnaðar- og við-
skiptaráðherra setur að
höfðu samráði við fjár-
málaráðuneytið...“
Endurskipu-
lagning
„Að mati ríkissljómar-
innar er nauðsynlegt til
þess að áðurnefndar jöfn-
unaraðgerðir skili ár-
angri að samhliða verði
gripið til endurskipulagn-
ingar og hagræðingar
innan fyriilækjamia
sjálfra.
Til þess að greiða fyrir
endurskipulagningunni
er iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra falið að beita
sér fyrir þvi að:
* Opinberh- aðilar
greiði kostnað vegna sér-
stakrar ráðgjafarvinnu
sem nýtist fyrirtækjunum
almennt.
* Opinberir aðilar
greiði 80% af kostnaði
vegna ráðgjafarvinnu
sem unnin yrði í einstaka
Viðbrögð stjórnvalda
Hver verða viðbrögð stjórnvalda við
vanda íslenzks skipasmíðaiðnaðar? Hafa
smáþjóðir hagnað af GATT-samningum?
Staksteinar staldra við greinar í Frétta-
blaði Samtaka iðnaðarins og Fréttablaði
Vinnuveitendasambandsins sem fjalla
um þessi efni.
fyrirtækjum, þó að há-
marki 100 tímar á hvert
fyrirtæki.
* Opinberir aðilar
styrki vömþróunar- og
markaðsaðgerðir fyrir-
tækja.
Til. þess að greiða
kostnað við ofangreindar
hagræðingar- og þróun-
araðgerðir samþykkir
ríkisstjórnin að leggja
fram allt að 10 milljónir
króna á árinu 1994 en 5
miiyónir króna munu
koma af Qárveitingum
iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneyta.“
Utboð
á nýsmíða-
verkefnum
„Ríkisstjómin felur
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra og sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyr-
ir því í samráði við Lands-
samband íslenzkra út-
vegsmanna að fram geti
farið innanlands útboð á
öllum nýsmiðaverkefnum
og meiri háttar endur-
bótaverkefnum. Lögð
verði í því sambandi
áherzla á að við útboð á
stærri verkefnum verði
reynt að haga þeim þann-
ig að islenzkar skipa-
smíðastöðvar geti boðið í
þá þætti verksins sem
unnt er að vinna á Is-
landi...“
GATT — vöm
smáþjóða
Hannes G. Sigursson
segir m.a. í grein í Frétta-
blaði Vinnuveitendasam-
bandsins:
„Meginmarkið GATT
er að aðildarríkin opni
markaði sína hvert fyrir
öðm ... Þannig hafa lítil
lönd eins og Island búið
við mun greiðari aðgang
að mörkuðum stórþjóða
en þau hefðu getað náð í
tvihliða samningum.
Fríverzlun hefur verið
drifkraftur aukinnar vel-
megunar og velferðar í
heiminum undanfarna
áratugi og heimsverzlun-
in hefur tólffaldast á gild-
istíma samkomulagsins.
Undanfarna tvo áratugi
hefur árlegur hagvöxtur
í heiminum verið 3% en
heimsverzlunin aukizt um
4% árlega. Gmndvöllur
þessarar þróunar var
GATT-samkomulagið en
með því hefur náðst sá
árangur að lækka tolla á
vömm í heiminum úr 40%
þegar GATT var stofnað
fyrir tæpri hálfri öld
(1948) í um það bil 5%
eins og þeir em nú að
meðaltali...
Nú er þessi ótti að baki
[að GATT-samningar
strönduðu] og nú er búist
við að heimsverzlunin
aukizt um 5% árlega, en
hagfræðingar GATT
hafa metið áhrif nýja
samningsins til 200 millj-
arða dollara tekjuaukn-
ingar jarðarbúa innan 10
ára. ToUur lækkar úr 5%
að meðaltali í 3%, við-
skipti með landbúnaðar-
og vefnaðarvömr verða
ftjálsari, leikreglur
fijálsrar samkeppni ná
nú yfir aUt viðskiptasviðið
og greiðfær leið er fyrir
ríki sem telja sig beitta
óréttmætum viðskipta-
þvingunum að leita réttar
síns þjá GATT-dómstóln-
um.“
, f Morgunblaðið/Sverrir
Styrkurinn afhentur a Torfastöðum
Olafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir (t.v.), forstöðumenn Torfastaða, taka við styrknuin sem Carit-
as á Islandi færði þeim. Fyrir hönd Caritas voru viðstaddar afhendinguna f.h.: Guðrún Marteinsson,
fyrrverandi formaður Caritas á íslandi, Úrsula Sigurgeirsson, meðstjórnandi, og Sigríður Ingvarsdótt-
ir, formaður Caritas á íslandi.
Caritas styrkir Torfastaðaheimilið
CARITAS, hjálparstofnun kaþólsku kirkjunnar, hefur afhent nteð-
ferðarheimilinu á Torfastöðum í Biskupstungum 550 þúsund krónur
og er þeirri fjárhæð ætlað að vera vísir að því að bygging skólahúss
á Torfastöðum verði að veririeika.
Meðferðarheimilið á Torfastöð-
um hefur verið starfrækt í 15 ár.
Þar eru vistuð í eitt til tvö ár bönv
sem lent hafa utangarðs í þjóðféíag?
inu. Þair fá þar innsýn iun f heil-
brigt líf, undirbúning að bóktegu
námi, verklega þekkingu í heimiiis-
fræðum auk þess sem þeim er ætl-
að að læra ákveðnar umgengnis-
reglur. Að sögn aðstandenda heim-
ilisins, Drífu Kristjánsdóttur og
Ólafs Einarssonar, fjölgar vistana-
beiðnum stöðugt og segjast þau
mjög uggandi um hag margra
barna sem livergi fá það atlæti sem
verið sé að sa'kjast eftir fyrir þau.
Þaú segja að núverandi húsnæði á
Torfastöðum bjóði ekki upp á að
efla starfið svo sem hugur þeirra
stendur til. Kenrrsluiýmið er aðeins
14 fe»neti'ar fyrir 6 nemendur og
keimara þeirra og mjög brýnt að
bæta þar úr.
Caritas á Islandi gengst fyrir
tveimur söfnunum á ári, um jói til
styrktar þeiin sem eiga um sárt að
binda innanlands og um páska til
styrktar bágstöddum í þróunarlönd-
um. Afrakstur tveggja síðustu að-
ventusafnana, samtals 550 þúsund
krónur, hefur farið til styrktar með-
ferðarheimilinu á Torfastöðum, þar
af 375 þúsund krónur í síðustu
aðventusöfnun.
Skólahús reist
Stefnt er að því að reisa 60-80
fermetra skólahús á Torfastöðum.
Þar væri jafnframt hægt að koma
upp aðstöðu fyrir foreldra þegar
þeir koma í heimsókn.
Styrkurinn var afhentur Torfa-
staðahéiniilinu 28. janúar sl.Drifa
og Kristján sögðii við það tækifípri
að þetta væri fyrsti styrkur frá
éinkasámtökum sem heimilinu væri
færður- og væri nú et' til vill að
hefjast nýtt skeið á starfsferli þess.
Þá sögðust þau þess fullviss að
styi'kurinn gæti orðið hvatning til
félagsmálaráðuneytisins, sem er
samningsaðili þeirra um rekstur
heimilisins, til að velta fyrir sér
nýjum leiðum til að auka það starf
sern þegar van'i sinnt á Torfastöð-
úm.