Morgunblaðið - 12.02.1994, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Greiðslur til KA 1990-94
Áætlað Samtals
1990 1991 1992 1993 1994 ’90-’94
til Þórs 1990-94
Áætlað
1990 1991 1992 1993 1994
Samtals
’90-’94
Byggingastyrkur 0 27.100 27.722 23.477 23.932 102.231 6.250 6.500 12.402 12.588 9.071 46.811
Rekstrarstyrkur 644 1.050 1.150 1.300 1.600 5.744 644 1.050 1.150 1.300 1.600 5.744
Tímaleiga (ÍBA) 2.439 2.953 3.720 3.950 ? 13.062 2.566 2.964 3.720 3.950 ? 13.200
Baðvarsla 692 - - - - 692 - - - - - .
Sérstyrkir 1.000 - 520 1.770 1.040 4.330 - . . . . .
Afrekssjóður 200 100 200 - . - 500 - . 200 . . 200
Sumarnámskeið 130 150 150 150 ? 580 130 150 150 150 ? 580
Húsaleiga 0 814 2.936 2.811 2.736 9.297 - 1.243 973 988 491 3.695
Samtals 5.105 32.167 36.398 33,458 29.308 136.436 9.590 11.907 18.595 18.976 11.162 70.230
' Sérstyrkir til KA vegna þátttöku í Evrópumótum.
Greiðslur til íþróttafélaganna liðlega 206 milljónir á 5 árum
136 milljónir til KA og
70 milljónir til Þórs
Hæstu greiðslurnar vegna samninga um byggingarstyrki
Iþróttamaður
Þórs kjörinn
HLYNUR Birgisson var kjörinn
íþróttamaður Þórs fyrir skömmu
og er þetta annað árið í röð sem
Þórsarar kjósa hann íþrótta-
mann félagsins.
í öðru sæti varð Hafsteinn Lúð-
víksson körfuknattleiksmaður og í
þriðja sæti Geir Aðalsteinsson
handknattleiksmaður. Þá var Rögn-
valdur Ingþórsson kjörinn skíða-
maður ársins hjá félaginu. Þrír
efstu menn í kjörinu léku allir með
landsliði í sinni grein á síðasta ári.
GREIÐSLUR bæjarsjóðs Akureyrar til íþróttafélaganna, KA og Þórs,
vegna framkvæmda, rekstrar eða kaupa á þjónustu á síðustu 5 árum
nema liðlega 206 milljónum króna, þar af hafa 136,4 milljónir króna
farið til KA og 70,2 miiyónir til Þórs. Hæstu greiðslurnar eru vegna
samninga um byggingastyrki, en einnig hafa þau verið styrkt með
ýmsum öðrum hætti.
Byggingastyrkir ráðast af þeim
framkvæmdum sem í gangi eru
hveiju sinni. Tveir samningar hafa
verið gerðir við Þór vegna fram-
kvæmda við félagsheimilið Hamar
sem er 1.156 fermetrar að stærð,
annar upp á 17,8 milljónir og heild-
arijárhæð var 106,5 milljónir og var
hlutur bæjarins 66,7 milljónir
króna. Frá upphæðinni eru dregnir
styrkir sem Þór hafði áður fengið
úr bæjarsjóði, samtals tæpar 32
milljónir, þannig að eftir standa
34,7 milljónir til greiðslu á árinum
1991 til ’95.
Samningur var gerður við KA
SVÆÐISSKRIFSTOFA MALEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra
Svæðisskrifstofan óskar að ráða fólk með fagréttindi til að
starfa að málefnum fatlaðra. Boðin er góð starfsaðstaða og
áhugaverð viðfangsefni í fjölbreyttu umhverfi. Við leitum að
fólki, sem vill takast á við ný verkefni og stuðla að þróun
innan málaflokksins. Um eftirfarandi störf er að ræða:
Forstöðumaður fyrir sambýli
í lok þessa árs er gert ráð fyrir, að nýtt sambýli fyrir fjölfatl-
aða taki til starfa á Akureyri. íbúarnir eða a.m.k. hluti þeirra
mun tilheyra hópi ofurfatlaðra. Forstöðumaðurinn þarf að
geta hafið störf sem fyrst og verður hlutverk hans til að
byrja með það, að undirbúa starfsemi sambýlisins í sam-
starfi við Svæðisskrifstofu og væntanlega íbúa og aðstand-
endur þeirra. Til forstöðumanns eru gerðar þessar kröfur:
Hann þarf að hafa menntun sem nýtist í starfi með
ofurfötluðum.
Það er æskilegt að hann hafi stjórnunarreynslu og hann
þarf að eiga auðvelt með að starfa með öðrum.
Hann þarf að vera undir það búinn að sækja námskeið
eða aðra fræðslu til undirbúnings starfinu heima eða
erlendis.
Hann þarf að geta leiðbeint öðrum starfsmönnum um
meðferð, þjálfun og umönnun ofurfatlaðra.
Þroskaþjálfar og/eða annað sérmenntað fólk á
meðferðarsviði
Þroskaþjálfa og/eða annað sérmenntað fólk óskast til starfa
á fyrrgreint sambýli, á sambýli sem áætlað er að taki til
starfa á Húsavík seinni hluta ársins svo og til starfa á dag-
deild fyrir þroskahefta á vistheimilinu Sólborg. Æskilegt
er að umsækjendur hafi reynslu af starfi með mikið fjölfötl-
uðu fólki, geti tamið sér skipulögð vinnubrögð og hafi vilja
og hæfileika til að nýta sér leiðsögn annarra sérfræðinga.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast til starfa á vistheimilinu Sólborg í forföll-
um yfirsjúkraþjálfara. Ráðið verður í starfið til 6 mánaða. Að
þeim tíma loknum er hugsanlegt að um áframhaldandi starf
geti orðið að ræða. Til greina kemur að sjúkraþjálfarar
fengju afnot af þeirri aðstöðu sem fyrir er, s.s. sundlaug
og fleira, fyrir eigin rekstur.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Stórholti 1,
603 Akureyri, fyrir 25. febrúar nk. Þar eru einnig veittar nán-
ari upplýsingar og í síma skrifstofunnar sem er 96-26960.
Svæðisskrifstofa máiefna fatlaðra á Norðurlandi eystra.
vegna byggingar íþróttahúss sem
er 2.529 fermetrar að stærð, en 75%
hlutur Akureyrarbæjar var 109,8
milljónum króna á árunum
1991-’95. Þá greiddi bærinn 8,6
milljónir vegna búnaðar til leikfimi-
kennslu og vegna áhorfendabekkja
í húsinu.
Félögin hafa fengið sömu upp-
hæð í rekstrarstyrk, til sumar-
námskeiða og vegna tímaleigu í
íþróttahúsum. Styrkir úr afreks-
sjóði eru úthlutaðir til einstaklinga
og hópa sem skara fram úr í íþrótta-
grein sinni. Hvað húsaleigustyrk
varðar var gerður samningur við
Þór um afnot af hluta Hamars fyr-
ir skóladagheimili og við KA vegna
afnota Lundarskóla af íþróttahús-
inu til leikfimikennslu.
Sérstyrkir til KA nema 4,3 millj-
ónum króna og er um þrenns konar
styrki að ræða; vegna þátttöku í
Evrópumóti félagsliða í knatt-
spyrnu, styrkur vegna fjármagns-
kostnaðar vegna byggingar íþrótta-
húss, 130 þúsund krónur á mánuði
í 24 mánuði, og loks fékk félagið
styrk frá atvinnumálanefnd, 200
þúsund krónur vegna kaupa á sýn-
ingarkerfi.
Messur
AKUREYRARPRESTAKALL:
Helgistund á Fjórðungssjúkra-
húsinu kl. 10 f.h. á morgun. Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Akur-
eyrarkirkju kl. 11. f.h. Sunnu-
dagaskólinn verður með í at-
höfninni í fyrstu en færir sig síð-
an í Safnaðarheimilið. Séra Sig-
urður Pálsson, framkvæmda-
stjóri Hins íslenska Biblíufélags,
predikar. Barnakór Akureyrar
syngur undir stjórn Hólmfríðar
Benediktsdóttur. Fundur í
Æskulýðsfélaginu kl. ' 17.
Fræðsluerindi í Safnaðarheimili
á mánudagskvöld.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og
bænastund kl. 13. í dag, laugar-
dag. Barnasamkoma á morgun
kl. 11, léttir söngvar, fræðsla,
bænir og sagt frá kirkjuhátíð
barnanna. Messa kl. 14. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 17.30.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kvöld-
vaka með söng, hugvekju,
píanóleik, happdrætti og veit-
ingum í kvöld, laugardagr kl.
20.30. Bæn kl. 13.30 á morgun,
almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 14. Heimilasam-
band kl. 16, hjálparflokkur kl.
20.30. Major Liv Gundersen frá
Noregi talar á öllum samveru-
stundunum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma fyrir ungt fólk í kvöld kl.
20.30. Barnakirkjan kl. 11 á
morgun, vakningasamkoma kl.
15.30, ræðumaður Vörður
Traustason, beðið fyrir sjúkum.
Æskulýðsfundur fyrir 9-12 ára
miðvikudag kl. 17.30, grunn-
fræðsla fyrir nýja kl. 20.30, sam-
koma á Ólafsfirði kl. 20.30 sama
dag, biblíulestur og lofgjörðar-
stund kl. 20.30 á föstudag.
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Grenivíkurkirkju kl. 10.30
í dag og í Svalbarðskirkju á
morgun kl. 16.30. Guðsþjónusta
í Grenivíkurkirkju kl. 14 á morg-
un. Æskulýðsfundur í skólanum
sunnudag kl. 15. Kyrrðar- og
fyrirbænastund í Svalbarðs-
kirkju þriðjudagskvöld kl. 21.
■ ÁRLEGIR bolludagstónleikar
blásaradeildar Tónlistarskólans á
Akureyri verða haldnir á Hótel
KEA á morgun, sunnudag kl. 15. Á
tónleikunum leika blásarasveitir
skólans, málmblásarakvintett, blokk-
flautusveit og þverflautusveit og
einnig koma fram einleikarar á blást-
urshljóðfæri. Á tónleikunum verða
seldar bollur og kaffí til ágóða fyrir
blásaradeildina.
H SÉRA Sigurður Pálsson fram-
kvæmdastjóri Hins íslenska Bibl-
íufélags verður með fyrirlestur í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
nk. mánudagskvöld og kynnir þar
störf félagsins og ýmis ný verkefni.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30. Sýnt
verður fræðslumyndbandið Biblían í
brennidepli, sem nýlega var gert í
samvinnu við Námsgagnastofnun.
Verða Biblíufélaginu, sem er elsta
starfandi félag hérlendis, gerð skil í
fyrirlestrinum, nú stendur m.a. yfír
á þess vegum þýðing á Gamla testa-
mentinu. Þá hefíir Biblíufélagið gefíð
út Apokrýfar bækur Gamla testa-
mentisins, sem ekki hafa verið fáan-
legar í áratugi, og ennfremur hefur
það stutt biblíustarf í Eþíópíu.
Sýningin Látum sönginn
hljóma frumsýnd í Sjallanum
„LÁTUM sönginn hljóma”,
söngdagskrá þar sem lög hins
skagfirska sveiflukóngs Geir-
mundar Valtýssonar eru i önd-
vegi verður frumsýnd í Sjallan-
um á Akureyri í kvöld, Iaugar-
dagskvöld, en um er að ræða
nánast sömu dagskrá og gekk
í fjóra mánuði á Hótel Islandi
í fyrravetur, en að hluta með
öðrum þátttakendum.
„Þessi sýning gekk afar vel
syðra í fyrra og ég verð illa svik-
inn ef Eyfirðingar, Þingeyingar,
Skagfirðingar og Húnvetningar
hafa ekki gaman af þessu. Það
hefur ævinlega verið mikið stuð
á dansleikjum okkar á þessum
svæðum þannig að ég á ekki von
á öðru en viðtökur verði góðar,“
sagði Geirmundur Valtýsson.
Auk Geirmundar og hijómsveit-
ar hans taka söngvaramir Helga
Möller, Erna Gunnarsdóttir og
Ingvar Grétarsson þátt í sýning-
unni og þá koma til liðs við hljóm-
sveitina Magnús Kjartansson, Vil-
hjálmur Guðjónsson og Þorsteinn
Kjartansson. Kynnir verður Bjarni
Hafþór Helgason fréttamaður.
18 vinsæl lög
Alls eru flutt 18 lög á sýning-
unni og hafa þau öll notið mikilla
vinsælda, „fólk veit að hveiju það
gengur, það þekkir lögin og ég
minnist þess að á sýningunum
fyrir sunnan kom fyrir að fólk
dansaði uppi á borðum. í Sjallan-
um verðum við nær fólkinu þann-
ig að við væntum þess að það
verði mikið stuð í húsinu,“ sagði
Geirmundur.
Sjallinn býður upp á þríréttaða
máltíð áður en sýningin hefst,
hvítvínsbætta sjávarréttasúpu,
sinnepsgljáðan lambahrygg og
súkkulaðifrauð með Grand Marni-
er-sósu. Sýningin hefst kl. 22.30
og stendur í einn og hálfan tíma,
en að henni lokinni leikur hljóm-
sveit Geirmundar fyrir dansi.