Morgunblaðið - 12.02.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
21
Ólík viðhorf innan HÍ um líffræðihús
Læknar vilja hús-
ið við Læknagarð
BOKUN var gerð á fundi Háskólaráðs í síðustu viku þar sem athug-
semdir voru gerðar við fyrirhugaða staðsetningu og starfsemi húss
yfir starfsemi líffræði og Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Samkvæmt
lista yfir forgangsröð framkvæmda á vegum Háskóla lslands er slíkt
hús næst til að rísa ef fjármagn fæst og á að byggja austan Norræna
hússins í Vatnsmýri á næsta ári og þarnæsta.
Að bókuninni stóðu forseti og
varaforseti læknadeildar, forseti
tannlæknadeildar og annar fulltrúi
Félags háskólakennara í Háskólar-
áði. Þeir sem stóðu að bókuninni
sátu hjá við afgreiðslu fram-
kvæmdaáætlunar fyrir árið 1994
sem samþykkt var á fundinum. Jafn-
framt var staðfest að hönnunarvinna
við húsið skyldi hefjast á þessu ári.
„Þessi niðurstaða er fyllilega ásætt-
anlegt af hálfu líffræðiskorar," segir
Logi Jónsson, formaður líffræðiskor-
ar.
Helgi Valdimarsson, forseti
læknadeildar, kveðst telja fyrirhug-
aða staðsetningu líffræðihúss mis-
ráðna og að um ranga ákvörðun sé
að ræða. „Við viljum ekki tefja bygg-
ingu húss fyrir líffræði, en teljum
eftir sem áður að þær byggingar sem
hýsa líffræðilegar rannsóknir eigi
að vera samtengdar, eins og tíðkast
í Bandaríkjunum og víðar. Lækna-
garður er bygging fyrir læknadeild
og líffræðirannsóknir sem henni
tengjast og því finnst okkur kjörið
að byggt verði hús í nágrenni Læk-
nagarðs. En það er vitaskuld ekki
hægt að neyða fólk í sambúð,“ seg-
ir Helgi.
Við Norræna húsið
Logi segir að núverandi aðstæður
líffræðikennslu innan Háskóla ís-
lands séu afar bágbornar. Sam-
kvæmt forgangsröð framkvæmda sé
bygging yfir líffræði næst á dag-
skrá. „Tímabært þykir að flytja
þessa starfsemi inn á svæði Háskól-
ans og sú tilhögun sem gert er ráð
fyrir í skipulagi, þ.e. að væntanlegt
líffræðihús rísi rétt hjá Norræna
húsinu, er mönnum mjög að skapi,“
segir Logi.
Sveinbjörn Björnsson, rektor Há-
skóla íslands segir að áformað sé
að byggja 3.000 fermetra hús fyrir
líffræði austan Norræna hússins.
„Við teljum að ef ætti að byggja
yfir líffræðina í nágrenni Lækna-
garðs þyrfti það nokkurra ára að-
draganda, vegna þess að endurskoða
þarf framhald bygginga þar og það
myndi þess vegna tefja að byggt
yrði yfir líffræði,“ segir Sveinbjörn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðunautar ræða breytta tíma
ÁRLEGUR ráðunautafundur Búnaðarfélags íslands og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er haldinn þessa
vikuna í Bændahöllinni. Auk fræðsluerinda og umræðna um ýmis fagleg mál, svo sem eins og áhrif háarsláttar
á uppskeru og gæði heyja, er sérstaklega rætt um ímynd landbúnaðarins og breytta tíma í atvinnugrein-
inni, meðal annars í ljósi niðurstöðu alþjóðasamninga og áhrif þeirra á íslenskan landbúnaðl
Sjálfstæðismenn á Akranesi
vilja kanna stofnun bæjarveitu
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins, sem eru í minnihluta í bæjar-
stjórn Akraness, hafa viljað láta gera úttekt á hagkvæmni stofnun-
ar bæjarveitu á Akranesi sem yfirtæki m.a. Rafveitu Akraness
og dreifikerfi Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Bæjarstjórn-
in samþykkti ályktun þessa efnis en fulltrúar meirihlutans í nefnd
sem falið var að vinna málið hafa ekki verið tilbúnir til að hefja
þessa úttekt fyrr en niðurstaða liggur fyrir í viðræðum eignarað-
ila Hitaveitunnar og ríkisins um sameiningu orkufyrirtækja hér-
aðsins alls í Orkubú Borgarfjarðar.
Jóhannes Finnur Halldórsson,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í end-
urskoðunarnefnd, sem fékk það
hlutverk að gera úttekt á hag-
kvæmni stofnunar bæjarveitu,
segir, að fulltrúar flokksins vilji
láta slíka könnun fara fram sam-
hliða viðræðum um stofnun orku-
bús. Telur hann að Rafveita Akra-
ness og dreifikerfi Hitaveitunnar
yrði stofninn í slíkum bæjarveitum
en síðan gætu fleiri stofnanir kom-
ið þar inn í eins og til dæmis Frá-
veita Akraness, Vatnsveita og
Vélamiðstöð. Með þessari leið ættu
Akurnesingar einir sitt dreifikerfi
og gætu stjórnað því sjálfir.
Fulltrúar meirihlutans í endur-
skoðunarnefndinni hafa hafnað
því að hefja úttekt á hagkvæmni
bæjarveitu, þeir hafa viljað bíða
eftir niðurstöðum í viðræðum
eignaraðila Hitaveitunnar og ríkis-
ins. Jóhannes Finnur segir að starf
nefndarinnar hafi þar með stöðv-
ast að mestu.
Viðræður RARIK og
Borgnesinga hafnar
Fulltrúar bæjarstjórnar Borgar-
ness hafa verið með svipaðar hug-
myndir um lausn á fjárhagsvanda
Hitaveitunnar. Jóhannes Finnur
segir, að Borgnesingar hafi tekið
upp tillögur sjálfstæðismanna á
Akranesi og útfært á eigin hátt.
Formlegar viðræður um sölu á
Rafveitu Borgarness til Raf-
magnsveitna ríkisins eru nú hafn-
ar. Fulltrúar bæjarráðs Borgar-
ness og RARIK áttu fyrsta fund
um málið í fyrradag. Kristján
Jónsson rafmagnsveitustjóri segir,
að málin verði rædd áfram.
Samkeppnisstofnun um Vegagerð ríkisins
Vinnuflokkar taki
ekki þátt í útboðum
*
Formaður Rithöfundasambands Islands
Tekjur rithöfunda
hafa rýmað mikið
TEKJUR íslenskra rithöfunda í heild hafa rýrnað mjög með til-
komu bókaskatts á seinasta ári, segir Þráinn Bertelsson, formað-
ur Rithöfundasambands Islands, í bréfi sem hann ritaði nýverið
til iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hann nefnir tvö dæmi um versn-
andi kjör höfunda og er gert ráð fyrir í þeim báðum að upplag
og seld eintök séu 2.000 talsins, sem þykir stórt upplag, og verð
bókar sé 3.000 kr. Vegna tilkomu skattsins lækka höfundarlaun
í þessum dæmum um tæp 17% annars vegar og rúm 12% hins
vegar milli ára.
í fyrra dæminu er hlutur höf-
undar árið 1992 16% eða kr. 490
af verði bókar, sem gerir 960.000
kr. af 2.000 seldum eintökum.
„Miðað við 12 mánaða vinnu þýð-
ir það að höfundur fær kr. 80.000
á mánuði — og inni í þeirri upp-
hæð eru launátengd gjöld, trygg-
ingar o.s.frv. þannig að toppmælt
er að tala um að nettólaun höf-
undar séu þá um kr. 60.000 á
mánuði fyrir að semja bók sem
selst í stóru upplagi," segir í bréfi
Þráins. „Verð bókar á árinu 1993
var óbreytt, kr. 3.000, en nú er
bókaskattur kominn inn í útsölu-
verð bókarinnar, þannig að höf-
undarlaun reiknast af lægri upp-
hæð en áður, það er kr. 2.631,60
og 16% hlutur höfundar af því
verði er kr. 421,05 (það er 14,03%
af útsöluverði með inniföldum
bókaskatti; þetta þýðir að hlutur
höfundar af bókarverði rýrnar um
12,28% vegna bókaskattsins).
Hlutur höfundar af 2.000 seldum
eintökum er 842.100 sem er um
kr. 70.175 á mánuði og enn er
um verktakagreiðslu að ræða
þannig að nettólaun nema um
50.000 kr,“ segir í bréfi Þráins.
Laun allt niður í
20-25 þús. kr
Annað dæmið sem hann tekur
miðar við lægri prósentuhlutfall,
eða að árið 1992 sé samið um að
forlag greiði höfundi fyrir 2.000
eintaka upplag af bók sem kosti
3.000 kr. og fengi höfundur þá
11,5% af útsöluverði alls upplags-
ins, þ.e. kr. 690.000. „Árið 1993
er gerður samskonar samningur
og er verð bókarinnar þá kr. 2.631
(og með bókaskatti kr. 3.000).
Hlutur höfundar, 11,5%, af um-
sömdum 2.000 eintökum er þá
kr. 605.260, sem er 10,08% af
útsöluverði með inniföldum bóka-
skatti. Þetta gerir kr. 50.438 í
verktakagreiðslu á mánuði, sem
í nettólaunum samsvarar þá tæp-
um 40.000 krónum í mánaðar-
laun. Seljist bók hins vegar minna
eða í 1.000 eintökum, eins og al-
gengara er lækka tekjur höfundar
að sama skapi, þannig að launin
verða á bilinu 20 til 25 þú'sund
krónur á mánuði,“ segir í bréfínu.
Lágar bókasafnsgreiðslur
Formaður Rithöfundasam-
bands íslands segir ennfremur í
bréfinu að heildargreiðsla ríkisins
til rithöfunda fyrir afnot af verk-
um þeirra á almenningsbókasöfn-
um hafi á síðasta ári verið kr.
10.800.000 sem sé „nokkurn veg-
inn nákvæmlega sama upphæð
og grænlenskir rithöfundar fá í
sinn hlut fyrir afnot á verkum
þeirra á bókasöfnum — og er þá
þess að gæta að grænlenskir rit-
höfundar eru færri en íslenskir
og grænlenskar bókmenntir minni
að vöxtum. Síðan lögin um al-
menningsbókasöfn voru sett hafa
tekið til starfa skólabókasöfn í
hundraðatali, en fyrir afnot af
verkum í þessum nýju söfnum
greiðir ríkið höfundum verkanna
ekki grænan eyri.“
SAMKEPPNISSTOFNUN telur óheppilegt að vinnuflokkar Vega-
gerðar ríkisins taki þátt í almennum verkútboðum Vegagerðarinn-
ar og segir það gefa sjálfstætt starfandi verktökum tilefni til tor-
tryggni. Stofnunin beinir þeim tilmælum til Vegagerðarinnar, á
grundvelli samkeppnislaga, að fjárhagslega verði skilið á milli
þeirra vinnuflokka sem ætlað er að bjóða í verklegar framkvæmd-
ir og annarra þátta í rekstri Vegagerðarinnar.
andi verktakar. Ástæðan væri sú,
að ekki væri skilið fjárhagslega á
milli vinnuflokkanna sem verktaka
annars vegar og launaðra starfs-
manna Vegagerðarinnar hins veg-
ar.
í fréttinni segir að ekki hafi
komið fram í athugun samkeppnis-
yfirvalda að óeðlilega hafi verið
staðið að útboðum eða tilboðum
Vegagerðarinnar.
I frétt frá Samkeppnisstofnun
segir, að henni hafi á síðasta ári
borist kvörtun frá Verktakasam-
bandi Islands þess efnis, að vinnu-
flokkar hjá Vegagerð ríkisins
gerðu tilboð í framkvæmdir sem
Vegagerðin sjálf býður út. Taldi
Verktakasambandið líkur á að
vinnuflokkar Vegagerðarinnar
hefðu betri aðstöðu til að bjóða í
verk en til dæmis sjálfstætt starf-
3ja sæta sófi + 2 stólar í leðri stgr. 198.834,
3ja sæta sófi stgr. 91.884,-
2ja sæta sófi stgr. 75.330,-
Stóll stgr. 53.475,-
Hár stóll stgr. 61.845,-
Opið
laugardag kl. 10-16.
Síðumúla 20, símar 688799.