Morgunblaðið - 12.02.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
23
Fjölmiðlar
*
Irskur blaðakóngur
ístórræðum
London (Reuter).
ÍRSKI fjölmiðlakóngurinn Tony O’Reilly, sem hefur samið um
kaup á verulegum hlut í suður-afrískum og brezkum blaðaútgáf-
um á einni viku, hélt uppteknum hætti á föstudag og tryggði
sér meirihluta í blaðasamsteypu í London.
Fyrirtæki O’Reillys á írlandi,
Independent Newspapers, til-
kynnti að það mundi kaupa tæp-
lega 67% hlutabréfa í fyrirtækinu
Capital Newspapers af brezka út-
gáfufyrirtækinu EMAP Plc and
Stantonmill Ltd. fyrir 4,8 milljónir
punda.
Capital á níu vikublöð og á fimm
auglýsingablöð og Independent-
fyrirtækið hyggst sameina þau
samsteypunni Greater London and
Essex Newspapers (GLEN), sem
það á. GLEN á tvö vikublöð og
sex auglýsingablöð.
GLEN og Capital munu samein-
ast undir nafninu Independent
Newspapers (UK) Limited, sem
mun vera stærsta samsteypa
svæðisbundinna vikublaða í Bret-
landi. Fjöldi seldra eintaka er tæp-
lega 100.000 pg 400.000 blöðum
er dreift ókeypis.
Umsvif O’Reillys benda til þess
að hann ætli sér stóran hlut í
fjölmiðlaheiminum. Fyrirtæki
hans á írlandi berst við fyrirtækja-
samtök undir forystu Mirror Group
Newspapers um yfirráð yfir
brezka fyrirtækinu Newspaper
Publishing, sem á blöðin Independ-
ent og Independent on Sunday,
en þau eiga undir högg að sækja.
O’Reilly varði 18,4 milljónum
punda til þess að tryggja sér
24.99% hlut í fyrirtækinu fyrir
viku.
Fmm dögum síðar keypti hann
31% hlut í stærstu blaðaútgáfu
Suður-Afríku, Argus Newspapers,
fyrir 20 milljónir punda. Umsvif
hans ná einnig til Frakklands og
Astralíu.
Símafélag
Um 15.000 manns
sagt upp hjá AT&T
New York. Reuter.
BANDARÍSKA símafélagið AT&T (American Telephone & Tele-
phone Co.) - hið stærsta í heiminum - hefur ákveðið að segja
upp 14-15.000 starfsmönnum á næstu tveimur árum til þess að
draga úr kostnaði í langlínumiðstöðvum sínum og bæta sam-
keppnisaðstöðu sína gagnvart keppinautum, sem bjóða Iægra
verð.
Uppsagnirnar munu bitna jafnt
á starfsmönnum og stjórnendum
hjá fyrirtækinu. Þær eru möguleg-
ar vegna nýrrar tækni og munu
spara fyrirtækinu 900 milljónir
dollara á ári. Alls verður 16%
starfsmanna langlínumiðstöðva
AT&T sagt upp.
Fleiri fyrirtæki í fjarskiptaiðn-
aði hafa sagt upp fólki að undan-
förnu. GTE sagði upp 17.000
starfsmönnum í síðasta mánuði,
Nynex 16.800 og Pacific Telesis
10.000 starfsmönnum.
Uppsagnir AT&T verða í deild-
inni Communications Services
Group, sem hefur 96.500 starfs-
menn og sér um langlínusamtöl
um allan heim fyrir fyrirtæki og
neytendur. Rekstrarkostnaður
AT&T hefur verið meiri en tveggja
helztu keppinautanna í langlínu-
geiranum, MCI Communications
og Sprint Corp., og hamlað til-
raunum til þess að bjóða lægra
verð.
Starfsmönnum sem sagt verður
upp bjóðast ýmsar greiðslur.
Óbreyttir starfsmenn fá greidd
laun í 104 vikur og yfirmenn í
allt að 42 vikur.
Vegna uppsagnanna verður
þjónustu hætt í Providence, Rhode
Island; Charleston, Vestur-Virgin-
íu; Bloomington, Minnesota; Chey-
enne, Wyoming; Itasca, Illinois;
Pleasanton, Kaliforníu; og Silver
Spring, Maryland.
Þorvaldur Skúlason
Höfum opnað sölusýningu
á verkum eftir Þorvald Skúlason.
Opið um helgina frá kl. 14-18,
virka daga frá kl. 12-18.
Sýningunni lýkur 20. febrúar.
v/Austurvöll. Sími 24211
STORA BOKAVEISLA FJOLVA í fuiium gangi á Grensásvegi 8
0 Komid öU f jölskyldan. Reynið heppnina i ævintýralega hagstæðum kaupum
Ótrúleet úrval bóka á væeu
verði um listir, náttúruSræði,
veraldarsögu, tónlist, byggingar-
list, heimsstyrjaldarsögu, málara
list, byggingariist, sKáldsögur,
ljóð, þjóðlegur fróðleikur,
ævisögur og samtíðarbækur.
UNPRAHEIMUR FYRIR BÖRN.
Þau mega skoða hundruð ævin-
týrabóka, allar teiknisögumar
um Tinna, Prins Valiant, Astrík,
Lukku-Láka og Hringadróttin.
SKemmtiIeg helgi jyrir frffrnin.
Hagstæðustu bókakaup sem hægt er að gera!!
Opið virka daga kl. 12-6, laugardaga kl. 10*5, sunnudaga kl. 1-5