Morgunblaðið - 12.02.1994, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
fólk f
fréttum
AFMÆLI
VIS fagnar 5 ára afmæli
Fimm ár eru liðin síðan
V átryjggingafélag
íslands (VIS) var stofnað
með samruna Samvinnu-
trygginga og Brunabóta-
félags íslands. Héldu
starfsmenn og viðskipta-
vinir upp á afmælið 4.
febrúar sl. í húsakynnum
VÍS við Ármúla. Er talið
að hátt á fjórða hundrað
manna hafi verið í boðinu
meðan flest var. Barst
fyrirtækinu fjöldi blóma-
skreytinga og kveðja.
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Kristín Briem lögfræðingnr ræð-
ir hér við Stefán Pálsson banka-
stjóra og Hjördísi Harðardóttur
lögfræðing VÍS.
Haraldur Thorlacius (t.h.)
hjá tjónaskoðun VÍS í Kópa-
vogi hlustar á Óla Þ. Þórðar-
son hjá Umferðarráði segja
frá einhveiju mjög svo
merkilegu.
Siljandi til hægri er Halldór Guðjónsson 98 ára. Fyrir aftan
hann er Sigurður Halldórsson rafmagnsverkfræðingur. Stand-
andi vinstra megin er Magnús Sigurðsson hagfræðingur, en
dóttir hans, Áslaug lögfræðingur, heldur á syni sínum, Gunnari
Ágústi Thoroddsen.
FJÖLSKYLDA
STJÖRNUR
Vill skilnað
Emilio Estevez hefur óskað eftir
skilnaði frá eiginkonu sinni
Paulu Abdul. Hann segir að Paula
sé óeðlilega afbrýðisöm og skapið
sveiflist eins og pendúll. Vinir hans
segja að nú sé Emilio nóg boðið og
að Paula ásaki Emilio stanslaust
um að halda framhjá sér. Þrátt fyr-
ir allar hans tilraunir til að neita
því taki hún hann ekki trúanlegan.
Emilio Estevez og Paula Abdul.
SNYRTING
Fagleg
* >c ••• p
raðgjof
Fimm ættliðir
Ekki er mjög algengt að fímm ættliðir séu á róli í einu og síst
þannig að karlmaður sé elsti aðilinn. Svo er þó í þessu tilviki
eins og myndin sýnir. Elstur er Halldór Guðjónsson sem lengi var
skólastjóri í Vestmannaeyjum. Hann er nú 98 ára að aldri. Sjónin
er farin að gefa sig, en hann spilar enn brids þrisvar í viku. Yngstur
er Gunnar Ágúst Thoroddsen aðeins örfárra mánaða.
Ljósmyndari Morgunblaðsins var -
á ferðinni í Kringlunni fyrir
helgi þegar hann sá fjölda kvenna
standa í hnapp í versluninni Hygeu.
Greinilegt var að eitthvað spenn-
andi var um að vera, sem þeim
þótti vert að fylgjast með. Þegar
nánar var að gætt voru ungu kon-
urnar að fylgjast með Heiðari Jóns-
syni snyrti kynna snyrtivörur og
ráðleggja um förðun.
Morgunblaðið/Júlíus
Sigtryggur Sigtryggsson sem nú er orðinn handritshöfundur og
húsfaðir búsettur í Bandaríkjunum heldur hér á mynd af félaga
sínum Bogomil Font.
tonlS?
Bogomil fer í
tónleikafer ðalag
með Adrian Belew
eir íslendingar sem trúðu því
að Bogomil Font væri flutt-
ur úr landi tímabundið hafa orð-
ið varir við kappann undanfarna
daga sér til mikillar undrunar.
Morgunblaðið náði að spjalla
stuttlega við Bogomil á milli
þess sem hann skemmti á hinum
ýmsu stöðum eins og hjá stang-
veiðimönnum, sem kölluðu hann
sérstaklega til landsins til að
halda uppi fjöri á balli þeirra
fyrir viku.
Bogomil býr ásamt konu sinni
Sigrúnu Hrafnsdóttur í Madison
í Bandaríkjunum, þar sem Sig-
rún verður næstu fimm árin að
lesa til doktorsprófs í lífefna-
fræði. En hvað skyldi Sigtryggur
Sigtryggsson, eins og maðurinn
heitir fullu nafni, vera að fást
við?
„Eftir hádegið er ég að passa
fjögurra ára dóttur okkar, Unu,
.en á morgnana er hún í leikskól-
anum. Ég er í sjálfsnámi að lesa
músík og bókmenntir, auk þess
sem ég er að fikra mig áfram í
matreiðslu," segir Sigtryggur
um leið og hann flettir erlendum
slúðurblöðum sem liggja á borði
blaðamanns. Hann lætur vel af
bandarískri matargerð, en segist
hafa fitnað frá því hann fór frá
Islandi. „Það er nú aðallega
vegna þess að bjórinn er svo
ódýr að maður er að sötra hann
á kvöldin. Annars er vatnið öðru-
vísi,“ segir hann eins og hann
hafi fengið uppljómun. „Eg held
að það fiti mann. Það er svo
mikið af steinefnum í því sem
gerir mann svo þungan!“
Síðan fer hann að segja frá
handritum sem hann er að vinna
að. Annað er kvikmyndahandrit,
sem hann er að skrifa ásamt
Marteini Steinari Þórssyni sem
starfar við Ríkissjónvarpið.
„Myndin fjallar um tvo homma
sem kaupa bakarí við Fálka-
götu,“ segir Sigtryggur og glott-
ir. „Það var nú eiginlega vegna
þess sem ég sendi Bogomil
heim,“ heldur hann áfram. „Ég
var orðinn blankur og það kostar
mikið að búa til mynd. Það virð-
ast allir vera tilbúnir að borga
Bogomil, svo ég sendi hann út
af örkinni. Það er gott að eiga
hann í bakhöndinni."
Sigtryggur hefur einnig notað
tímann í Bandaríkjunum til að
skrifa handrit að stuttmynd. Hún
fjallar um gamlan girðingamann
sem setur upp silfraða girðingu
á svörtum Sprengisandi og lítur
á sig sem mikinn listamann.
„I mars fer ég að spila með
gítarleikaranum Adrian Belew,
sem spilaði m.a. með Frank
Zappa, Talking Heads og David
Bowie á sínum tíma. Hann er
að gera seríu af gítarplötum og
ég aðstoða hann með plötu núm-
er tvö, sem á að heita Guitarian
Rythm. Síðan fer ég að vinna
með honum við poppplötu í apríl
og í maí ferðumst við um öll
Bandaríkin til að kynna hana,
líkt og Sykurmolarnir gerðu.“
Bogomil hefur hugsað sér að
nota vel tímann meðan hann er
staddur á landinu og spilar víða.
í gærkvöld spilaði hann ásamt
hljómsveitinni Öreigunum í Hlé-
garði í Mosfellsbæ, en í kvöld
ætla Borgardætur að ganga í lið
með Bogomil og Öreigunum og
spila á almennum dansleik í Perl-
unni. „Mig hefur lengi langað til
að syngja, með Borgardætrum.
Þá fæ ég að leika Bing Crosby
en þær Andrewssystur," segir
Bogomil um leið og hann fer,
því í nógu er að snúast þann tíma
sem hann er staddur á landinu.
Heiðar Jónsson snyrtir Elvu Ósk Wium.
Morgunblaðið/Sverrir