Morgunblaðið - 12.02.1994, Blaðsíða 52
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fiskur - já, takk
GRANDI hf. opnaði hús sín fyrir gestum í gær og voru skólanem-
endur sérstaklega boðnir velkomnir undir kjörorðunum „fiskur -
já, takk“. Fyrirtækið hefur tileinkað skólum á höfuðborgarsvæð-
inu einn dag á ári til að kynna þeim nútíma vinnslu á sjávarafurð-
um hérlendis. Þáðu 2.300 nemendur og kennarar, eða um 100
bekkir, boð Granda að þessu sinni, en samkvæmt upplýsingum
frá fyrirtækinu hafa um 8.000 manns heimsótt fyrirtækið af
sama tilefni seinustu fjögur ár. Meðal þess sem nemendum var
boðið að sjá voru ýmsir kynjafiskar ásamt hákarli, háf og vinnslu
ufsa í neytendapakkningar.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
StW 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRÍ: HAFNARSTRÆTl 83
LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Fjórðungnr starfs-
manna á atvinnuleys-
isbótum viku í senn
SKIPALYFTAN í Vestmannaeyjum hefur gripið til þess ráðs að
senda fjórðung starfsmanna sinna hveiju sinni heim í viku í senn og
á þeim tíma þiggja þeir atvinnuleysisbætur. Starfsmennirnir hafa
samþykkt fyrirkomulagið, en framkvæmdastjóri Skipalyftunnar seg-
ir þetta neyðarúrræði til að koma í veg fyrir uppsagnir.
„Við verðum að grípa til þessa
ráðs vegna verkefnaskorts," sagði
Ólafur Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Skipalyftunnar, í samtali við
Morgunblaðið. „Fyrirkomulagið hjá
skipasmíðastöðvunum hér í Eyjum
og víða annars staðar er, að starfs-
menn fá allt að 30 daga á ári á at-
vinnuleysisbótum. Við ákváðum hins
vegar að deila þessu niður, svo þetta
Reyklaust
varnarlið
REYKINGABANN tók gildi
meðal starfsfólks hjá varnarl-
iðinu á Keflavíkurflugvelli
fyrir nokkru og hafa reyking-
ar verið bannaðar í öllum
byggingum og farartækjum,
svo og innan tiltekinnar fjar-
lægðar frá gluggum. Reyk-
ingabann hefur tekið gildi í
öllum herstöðvum Bandaríkj-
anna.
Starfsmönnum , sem vilja
hætta að reykja hefur verið boð-
ið á námskeið og einnig fengið
hjálparmeðul. Hjá Varnarliðinu
starfa 900 íslendingar og 6-700
vinna á vegum íslenskra verk-
taka, auk um 3.000 varnarliðs-
manna.
Forystumenn verkalýðsfélaga
sögðu að varnarliðið hefði lýst
því yfir að til þess kunni að
koma að fólki sem gerist ítrekað
brotlegt .við bannið verði sagt
upp störfum og gæti það sam-
ræmst íslenskum tóbaksvarnar-
lögum. Ekki hefur komið til þess
að áminningum hafi verið beitt.
komi vægar niður á mönnum."
Hjá Skipalyftunni vinna um 50
starfsmenn og sitja því um 12 starfs-
menn heima eina viku í mánuði
hveijum. „Starfsmenn okkar sam-
þykktu þetta fyrirkomulag, því þeir
skildu að þetta var neyðarúrræði,“
sagði Ólafur. „Það rætist vonandi
úr verkefnastöðunni og við vinnum
stanslaust að því að leita verkefna,
en enn sem komið er sjáum við ekk-
ert framundan. Það eru þó jákvæð
teikn á lofti, því eftir að opinberir
aðilar lofuðu niðurgreiðslum hefur
hljóðið breyst í útgerðarmönnum og
þeir taka betur í að láta framkvæma
ýmislegt fyrir sig.“
I ODDSSKARÐI
Morgunblaðið/Sverrir
Kannað verður með aðrar
lóðir fyrir hús Hæstaréttar
Ekki hægt að færa húsið óbreytt milli lóða, segja arkitektar
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra óskaði eftir því í gær
að skipulagsyfirvöld Reykjavíkur könnuðu á nýjan leik hvort
hentugri staður en lóðin á horni Lindargötu og Ingólfsstrætis
fyndist fyrir væntanlegt hús Hæstaréttar í miðborginni. Margrét
Harðardóttir og Steve Christer, arkitektar hússins, segja ekki
mögulegt að flytja húsið óbreytt milli lóða, það sé hannað með
þessa staðsetningu í huga. Skúli Norðdahl, arkitekt, segist fagna
þessari ákvörðun ráðherrans, en hann er einn þeirra er stóð að
undirskriftasöfnun gegn staðsetningunni.
í ákvörðun ráðherrans felst að
framkvæmdir frestast en jafn-
framt ætlar hann að láta fara fram
kynningu fyrir almenning á fyrir-
huguðu húsi. Undirbúningur að
byggingu hússins er langt kominn
og segir Þorsteinn að mikil vinna
hafi þegar verið lögð í að velja
staðinn. „Eg er hins vegar þeirrar
skoðunar að menn geti ekki horft
fram hjá því að allur undirbúning-
ur að byggingu hússins hefur far-
ið fram með lögskipuðum hætti,“
segir Þorsteinn.
Mið tekið af aðstæðum
Steve segir að ekki sé hægt að
taka húsið og flytja það á aðra lóð
óbreytt. Við hönnun hússins hafí
verið tekið mið af nærliggjandi
húsum og aðstæðum í kring.
„Hvert hús er teiknað fyrir ákveð-
inn reit,“ segir hann. Margrét seg-
ir að ef ákveðið yrði að byggja
húsið annars staðar yrði að byija
svo til frá grunni aftur.
Skúli segist vænta þess að ráð-
herra skoði málið og taki tillit til
vilja þeirra sem ekki vilja að húsið
verði byggt við Lindargötuna.
Sjá fréttir á bls. 18 og 19.
Tæpur helmingur leyfilegs þorskkvóta óveiddur
Þorskafli íjanúar
sá minnsti í 25 ár
VERKFALL sjómanna og slæmt tíðarfar setti svip sinn á fiskveiðar
í janúar. Alls veiddust þó um 34.400 tonn, þar af 17.900 tonn af botn-
fiski. Verðmæti aflans upp úr sjó varð nú 1,5 miiljarðar króna, en 3
milljarðar fyrir ári og 3,5 í janúar 1992. Þorskafli nú varð aðeins
10.450 tonn og hefur þorskafli í janúar ekki orðið minni síðan á árun-
um 1967 til 1969. Loðnuafli nú varð aðeins 14.500 tonn á móti 37.200
í fyrra og 71.300 árið 1992. Það sem af er fiskveiðiárinu er þorskafli
orðinn 78.600 tonn. Það er tæpur helmingur af útgefnum aflaheimild-
um og áætluðum afla krókabáta, en sé tekið mið af færslu kvóta frá
síðasta ári yfir á þetta og að tekin verði í ár 5% af kvóta þess næsta,
gætu verið um 90.000 tonn óveidd af þorskkvóta ársins. Mánuðina
febrúar til og með maí í fyrra veiddust 96.000 tonn af þorski.
Heildarfiskafli á núverandi fisk-
veiðiári, sem hófst 1. september síð-
astliðinn, er alls um 480.000 tonn
og munar þar mestu um nærri
200.000 tonn af loðnu og 100.000
tonn af síld. Heildarflinn í fyrra var
á sama tíma um 543.000 tonn og
voru síld og loðna 330.000 tonn af
því. A sama tíma 1992 var heiidarafl-
inn 442.000 tonn og voru síld og
loðna þá 221.000 tonn.
Þorskafli þetta tímabil varð nú
78.600 tonn, sem er nokkru meira
en á sama tíma í fyrra. Þá var þorsk-
aflinn 76.000 tonn en 85.000 tonn í
hitteðfyrra. Heildarþorskkvóti þetta
fiskveiðiár er 165.000 tonn, svo enn
er rúmur helmingur hans eftir, þegar
fimm mánuðir eru liðnir af því. Ýsu-
afli er nú tæp 14.000 tonn og er þar
um samdrátt að ræða upp á 2.500
tonn að ræða milli ára. Af ufsa hafa
aðeins veiðst rúmlega 18.500 tonn,
sem er mikill samdráttur því í fyrra
var ufsaaflinn á sama tíma 27.000
og 34.000 tonn 1992. Einnig er um
samdrátt í karfaafla að ræða. Nú
veiddust 33.400 tonn, 47.000 í fyrra
og 44.500 í hitteðfyrra. Þá má loks
nefna rækjuaflann, sem nú nam
16.500 tonnum, 17.000 í fyrra og
13.000 í hitteðfyrra.
Leyfilegur þorskafli
fiskveiðiárinl 991 -94
Eftir voru á sama tíma
265.0001. 68%
212.000 j- 64%
52%
. I
Óveiddur
afli nú
Þegar
veidd
1991-92 1992-93 1993-94
Leyfilegur afli er uppgefið aflamark auk áætl-
aðs afla krókabáta. Aflinn í ár getur orðið meiri
vegna flutnings aflaheimilda milli ára.
Zvjaginsev og
Hannes efstir
RÚSSNESKI skákmaðurinn
Zyjaginsev vann skák sína við van
de Sterren á Reykjavíkurskák-
mótinu í gær.
Zvjaginsev hefur þar með náð
forystunni á mótinu eftir sjöundu
umferð. Hannes Hlífar Stefánsson
og Jóhann Hjartarson gerðu jafn-
tefli.