Morgunblaðið - 04.03.1994, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
Valdníðsla forustu HSI
í garð Vestmanneyinga
Þá hvessir á Stórhöfða og hvín í Heimakletti
eftir Árna Johnsen
Það var ótrúleg valdníðsla og
dónaskapur af hálfu forustu Hand-
knattleikssambands Islands að láta
mótanefnd sambandsins það eftir
að útiloka áhorfendur að leik KR
og ÍBV í Vestmannaeyjum í fyrra-
kvöld án þess að nokkur lagastoð
sé fyrir slíku né rök, heldur fyrst
og fremst merkikertaháttur manna
sem láta hugaræsing og geðþótta
ráða ferð. Vonandi komast burðar-
meiri menn að borði HSÍ fyrr en
seinna, handknattleiksíþróttin á
það skilið með okkar frábæru hand-
knattleiksmenn. Þessi aðför að
Vestmanneyingum er slík lítilsvirð-
ing að einsdæmi er í sögu íslensks
handknattleiks og þó segir í leikja-
skrá HSÍ í haust að áhorfendur
eigi að taka sér Eyjamenn til fyrir-
myndar sem áhorfendur og þátt-
takendur með leikmönnum. Það
hefur ekkert farið á milli mála að
Eyjamönnum fylgir mikil stemmn-
ing og fjör og til dæmis má nefna
lúðrasveit Eyjamanna sem setur
mikinn svip á leiki á góðum stund-
um og leikur hina bestu tónlist sem
er auðvitað mörgum fetum framar
en trommulið annarra íþróttaliða
þótt ekki sé ástæða til þess að
amast við því.
Safnað ávirðingum á
Eyjamenn
í byrjun þessarar viku lá það
fyrir að nefndarmenn HSÍ voru að
safna ávirðingum á handknatt-
leikslið íþróttabandaiags Vest-
mannaeyja til þess að refsa Eyja-
mönnum á annan hátt en öðrum.
Þetta gekk svo langt vegna leiks
ÍBV og KA, sem vitnað var til, að
lið KA sá sig knúið til þess að
mótmæla skoðunum nefndarmanna
HSÍ sem virðast telja að hégóma-
tott þeirra og annarleg afskipta-
semi eigi að vera aðalmál hand-
Árni Johnsen
„Þessi aðför að Vest-
manneyingnm er slík
lítilsvirðing að eins-
dæmi er í sögu íslensks
handknattleiks og þó
segir í leikjaskrá HSÍ í
haust að áhorfendur
eigi að taka sér Eyja-
menn til fyrirmyndar
sem áhorfendur og
þátttakendur með leik-
mönnum.“
knattleikja. Meira að segja dómari
í ieik KA og ÍBV sá ástæðu tii
þess að lýsa því yfir að ekkert hefði
verið athugavert við umræddan leik
sem gæfi tilefni til séraðgerða.
En mafíósarnir í HSÍ voru ekki
af baki dottnir, þeir sögðu í skýrsl-
youth class
Keppnisskíðafatnaður fyrir börn
Púðabuxur, púðapeysur og stórsvigssamfestingar
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ . SÍMI 812922
um sínum að þeir hefðu orðið að
flýja húsið að leik loknum og þess
vegna hefðu þeir ekki orðið varir
við lætin sem hlytu að hafa verið.
Þetta er slíkt bull og vitleysa að
engu tali tekur og eftir leik Víkings
og ÍBV sem einnig var vitnað til
hélt Serbinn í liði Víkings því fram
að hann hefði verið að veija dómar-
ann þegar hann barði einn áhorf-
anda úr Eyjum. Sannleikurinn er
sá að dómarinn var farinn úr saln-
um þegar atvikið átti sér stað, en
Eyjamaðurinn, sem er hinn vænsti
og kurteisasti, taldi líklegast að
Serbinn hefði slegið sig vegna þess
að hann var í úlpu eins og Króatar
klæðast gjarnan. Það er ljóst að
áhorfendur í Eyjum eru með þeim
íjörugustu á landinu og það er
nokkur galli í íþróttahúsinu að
áhorfendasvæðið er nánast ofan í
vellinum, en þau þrengsli komu til
vegna þess að íþróttasjóður ríkisins
leyfði ekki meira rými á sínum tíma
þótt Eyjamenn ætluðu sjálfir að
borga mismuninn. Annað tilvik sem
vitnað er til af valdbeitingarmönn-
unum er að áhorfandi hafi slegið
eftirlitsdómara í bakið. Hið sanna
er að áhorfandinn gekk til eftirlits-
dómarans og óskaði eftir svari við
spurningu, en eftirlitsdómarinn
sagði manninum að hypja sig burtu.
Áhorfandinn vildi þá gera gott úr
málinu, klappaði létt á öxl dómar-
ans og þakkaði honum fyrir grein-
argóð svör. Þessi maður hefur aldr-
ei gert flugu mein, enda einstakur
dýravinur. í Eyjum hefur það verið
talið til þess að skerpa kærleikann
að láta blíðlega að fólki, en
nefndarmenn HSI kalla það að sitja
undir höggum. Út á þetta var Vest-
manneyingum öllum og öðrum
meinað að horfa á leik ÍBV og KR
í fyrrakvöld og þegar gengið var
eftir rökum fyrir valdníðslunni var
því svarað til að þetta væri nú eigin-
lega til viðvörunar fyrir önnur fé-
lög.
HSI á að biðjast afsökunar á
lokun leiksins
Þá er rétt að víkja að mjög hörð-
um dómi yfir þjálfara IBV sem
hefur verið dæmdur í liðlega 7
mánaða leikbann vegna þess að
hann stjakaði við dómara í hita
leiksins, dómara sem var búinn að
gera mistök eftir mistök og var
farinn á taugum. Það ber enginn
Ljósmynd/Sigurgeir í Eyjum
Eyjamenn fengu ekki að sitja á áhorfendapöllum og urðu að láta
kaffistofu íþróttahússins og sjónvarp nægja. Formönnum íþróttafé-
laganna og bæjarstjóra var vísað út úr íþróttasalnum.
á móti því að þjálfarinn sem jafn-
framt var leikmaður stjakaði
harkalega við dómaranum og þótt
Eyjamenn séu aldir upp í 17 vind-
stigum og foráttubrimi var það
óafsakanlegt. En það var líka jafn
augljóst að dómarinn lét sig detta
í gólfið nema þá að hann sé á slík-
um brauðfótum að undrun sætir.
Eðlilegast hefði verið að setja leik-
manninn í einhverra leikja bann og
víta dómarann fyrir leikaraskap.
Minna má á að þjálfari Vals fékk
ekki alls fyrir löngu tveggja leikja
bann fyrir að berja dómara að leik
loknum.
Það er svo sem ekkert nýtt að
gerðar séu meiri kröfur til Eyja-
manna en annarra á vettvangi
íþróttanna en illt er það til lengdar
að menn sitji ekki við sama borð í
dómgæslunni. Vandamálið í dag
eru of margir lélegir dómarar og
það getur ekki verið tilviljun hvað
það bitnar oft á leikmönnum Vest-
mannaeyja. Það hefur reyndar
lengi verið vitað að ýmsir forustu-
menn í íþróttum vilja Eyjamenn á
braut úr röðum fremstu liða, því
veður geta sett strik í reikninginn
varðandi leiki heima og heiman
fremur en víða annars staðar á
landinu, en stjórn Handknattleiks-
sambands íslands ætti að biðja
Vestmanneyinga afsökunar á þeim
mistökum að loka leik ÍBV og KR.
Hafi þeir hina mestu skömm fyrir
á meðan þeir gera það ekki.
Þegar dómararnir vinna
leikina
Lið Eyjamanna keppa til sigurs
Windows grunnnámskeið
Tölvtf og verkfræöiþiónustan
94025
og verkfræðibjór
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90
eins og önnur lið, en kunna ekkert
síður en önnur lið að taka ósigri
sem sigri. Það er hins vegar óþol-
andi þegar dómararnir spila rassinn
úr buxunum og annað gott dæmi
um það hvernig slíkt hefur bitnað
á Eyjamönnum er dómgæslan í
bikarúrslitaleik kvenna fyrir
skömmu þar sem Víkingur marði
sigur með einu marki. Þó voru það
fyrst og fremst dómararnir sem
unnu leikinn, öll vafaatriði nær all-
an leikinn voru Víkingi í hag og
brot sem voru dæmd á Eyjastúlk-
urnar komust Víkingsstúlkurnar
upp með óáreittar. Miðað við sann-
gjarna dómgæslu var sigurinn
Eyjastúlkna, því þær voru einfald-
lega betri í leiknum. Eitt atvik skal
nefnt. Eyjastúlkur voru í sókn er
boltinn hrökk út af vellinum af
fæti Víkingsstúlku og Víkingi var
dæmdur boltinn. Útidómarinn við-
urkenndi í hálfleik að hann hefði
séð þetta eins og líklega allir áhorf-
endur, en kvaðst ekki hafa kunnað
við að dæma á móti hinum dómar-
anum og ræður þó útidómarinn.
Mergurinn málsins er sá að emb-
ættismenn HSÍ og dómarar séu
þeim vanda vaxnir sem þeir hafa
tekið á sínar herðar. Eyjamenn eru
seinþreyttir til vandræða því þeir
eru lífsglaðir og léttlyndir og vissu-
lega halda þeir sínu striki þótt yfir
þá pusi í hita leiksins, en við gerum
þá lágmarkskröfu að sitja við sama
borð og aðrir þegar um dóma og
leikreglur er að ræða og menn
skulu ekki leika sér að því að lítils-
virða okkur. Þá hvessir á Stórhöfða
og hvín í Heimakletti.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi.
MARKAÐSDAGAR - ÚTSÖLULOK
NÆSTU DAGA - VERÐHRUN
Jakkar kr. 2.900-3.900
Vesti kr. 2.900
Pils, síð kr. 1.900-2.500
Pils, stutt kr. 990-1.500
Rúllukragabolirkr. 990
Stuttir kjólar kr. 990
Leggings kr. 990-1.500
Gallabuxur kr. 2.500
Peysur, margar gerðir, kr. 1.500-3.900
Munið langur laugardagur á morgun
Sk benelíon
Laugavegi 97,
sími629875