Morgunblaðið - 04.03.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
19
Verslunarráð um breyttar reglur ATVR
Einnig verður að
gæta jafnvægis
við verðlagningu
JÓNAS Fr. Jónsson, lögfræðingur Verslunarráðs íslands, segir að
nýjar reglur ÁTVR um innkaup og sölu áfengis sé spor í rétta átt ef
allir innflytjendur fái jafnt tækifæri til að koma á markað áfengisteg-
undum frá EES-svæðinu. Hins vegar mismuni ÁTVR enn hvað varðar
verðlagningu innlendra og erlendra bjórtegunda og þar sé um brot
á EES-samningnum að ræða, eins og Samkeppnisstofnun hafi reyndar
tekið undir með Verslunarráði. „Það er ekki nóg að auka framboðið,
heldur verður einnig að gæta jafnvægis hvað verðlagningu tegunda
varðar,“ segir Jónas.
Jónas sagði að Verslunarráð hefði
fengið staðfestingu á því að þýskir
bjórframleiðendur hefðu komið á
framfæri athugasemdum í Brussel
varðandi sérstaka gjaldlagningu á
erlendar bjórtegundir hér á landi,
og einnig væru innflytjendur hér á
landi að íhuga að taka málið upp í
Brussel. s,Þetta gjald er brot á
grunnreglu EES-samningsins um að
ekki verði mismunað eftir þjóðerni,
og við vorum að vonast til að fjár-
málaráðherra myndi breyta þessu
án þess að fá skammir að utan, en
ÁTVR segir að þetta gjald sé lagt
á samkvæmt fyrirmælum úr ráðu-
neytinu sem þá gæti lagt það nið-
ur,“ sagði hann.
Ríkiseinokun á heildsölustigi
óheimil
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu hefur Verslunarráð
sent eftirlitsstofnun EFTA ósk um
að hún gefi álit á því hvort viðskipta-
hættir ÁTVR standist EES-samn-
inginn. Hvað heildsölukerfið varðar
sagði Jónas að það hefði fengist
staðfest í aðildarviðræðum Svía og
Finna að Evrópusambandinu að það
væri skilningur beggja aðila að ríkis-
einokun á heildsölustigi fengi ekki
staðist, en hins vegar fengju þessar
þjóðir að halda einkasölu á smásölu-
stigi gegn því að halda í heiðri regl-
ur um jafnræði. Jónas sagðist vona
að þessi sameiginlegi skilningur í
aðildarviðræðunum um að Evrópu-
rétturinn og þá um leið EES-samn-
ingurinn taki fyrir einokun á heild-
sölustigi myndi líka gilda þegar eftir-
litsstofnun EFTA tæki á málinu, en
það hefði í för með sér að heildsalar
sjálfir myndu liggja með lager sinn
og ríkiseinkasalann sæi eingöngu
um smásölu.
Samningur í Englandi?
JAZZKVARTETT Reykjavíkur hefur verið boðinn hljómplötusamn-
ingur þjá Ronnie Scott’s. Frá vinstri eru Tómas R. Einarsson, Einar
Valur Scheving, Sigurður Flosason og Eyþór Gunnarsson.
Jazzkvartett Reykjavíkur á Ronnie Scott’s
Boðið að gefa út
geisladisk ytra
JAZZKVARTETT Reykjavíkur hefur verið boðinn hljómplötusamn-
ingur í Englandi en kvartettinn lék á einum frægasta jazzklúbbi
Evrópu, Ronnie Scott’s í London, vikuna 7.-12. febrúar síðastliðinn.
Þar hitaði kvartettinn upp fyrir saxófónleikarann George Coleman.
Það er útgáfa klúbbsins, Ronnie Scott’s Recording, sem vill gefa
út geisladisk með tónleikum kvartettsins í klúbbnum.
Kvartettinn skipa Sigurður Flosa-
son saxófón, Eyþór Gunnarsson
píanó, Tómas R. Einarsson kontra-
bassi og Einar Valur Scheving
trommur en gestur þeirra á Ronnie
Scott’s var enski trompetleikarinn
Guy Barker, sem lék hér á landi á
síðasta ári.
Sigurður sagði að alls óvíst væri
hvort boðinu yrði tekið. Hljómbönd
af tónleikunum væru að berast til
landsins og yrði það vegið og metið
hvort ástæða væri til að gefa tónlist-
ina út á geisladisk. Hins vegar væri
það mikill heiður að fá þetta boð því
útgáfa Ronnie Scott’s er umfangs-
mikil og virt á sviði jasstónlistar á
Bretlandi.
Góð gagnrýni
Á efnisskrá Jazzkvartettsins voru
frumsamin lög, flest eftir Tómas og
Sigurð og eitt eftir Einar Val. Auk
þess flutti kvartettinn tvo standara.
Jazzgagnrýnandi breska dag-
blaðsins The Guardian, Ronald Atk-
ins, fór lofsamlegum orðum um tón-
leika kvartettsins. Hann sagði að
íslendingarnir hefðu flutt ómengað
„hard bop“ af mikilli kunnáttusemi
og hreifst hann af spilamennsku Sig-
urðar Flosasonar.-----------------
Sverrir Leósson formaður Útvegsmannafélags Norðuriands
Erfiðleikar síst minni
fyrir norðan en vestan
„VIÐ ERUM reiðir og sárir og munum ekki þola þetta,“ sagði
Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands, um
tillögu þess efnis að Vestfirðingar fái 500 milljóna króna styrk til
að mæta erfiðleikum í kjölfar aflasamdráttar. Stjórn félagsins hitt-
ir Þorstein Pálsson sjávarútvegsráðherra á fundi eftir helgi og þá
verða fundir með þingmönnum Norðurlandskjördæmanna tveggja
á þriðjudag. ___
Sverrir Leósson, formaður Út-
vegsmannafélags Norðurlands,
ÚN, sagði að erfiðleikar væru síst
rhinni á Norðurlandi en á Vestfjörð-
um.
„Vandamál okkar eru ekki
minni, við eigum við sömu erfiðleik-
ana að etja, höfum orðið fyrir sömu
jorskskerðingunni og þeir og þá
má líka nefna að það er mun lengra
fyrir okkur en þá að sækja í suma
stofna,“ sagði Sverir.
Óþolandi
Sverrir sagði að rætt hefði verið
við Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Þorstein Pálsson sjávarút-
vegsráðherra um erfiðleika í kjölfar
aflasamdráttar á norðursvæðinu í
apríl á síðasta ári og þá hefðu
menn verið fullvissaðir um að ekki
yrði farið út í sértækar aðgerðir.
„Það er óþolandi að menn geti sagt
eitt og gert annað, maður vill geta
treyst þessum mönnum. Við mun-
um ekki þola þetta,“ sagði Sverrir.
Á mánudagsmorgun mun stjórn
Útvegsmannafélags Norðurlands
hitta Þorstein Pálsson sjávarút-
vegsráðherra og síðan þingmenn
beggja Norðurlandskjördæmanna á
þriðjudag. Sverrir sagði að á þeim
fundum ætluðu stjórnarmenn að
útskýra sín sjónarmið og benda á
að staðan væri síst betri á norður-
svæðinu en á Vestfjörðum en hann
benti m.a. á Grenivík, Húsavík og
Raufarhöfn sem hefðu farið afar
illa út úr kvótaskerðingunni.
Verðkönnun Neytendafélags Akureyrar og nágrennis
KEA-menn óánægðir með
framkvæmd könnmiarinnar
„VIÐ erum ánægð með þessa niðurstöðu," sagði Sigurður Gunnars-
son, verslunarstjóri í Bónus á Akureyri, um verðkönnun Neytendafé-
lags Akureyrar og nágrennis þar sem í ljós kom að vöruverð þar
er hið lægsta af 11 verslunum sem voru með í könnuninni. „Eftir
að við opnuðum hér verslun hefur vöruverð á Akureyri lækkað um
allt að 15% og er hið lægsta á landinu, það er það sem stendur upp
úr.“
Tveir markaðir, Bónus og KEA-
Nettó, hafa síðustu fjóra mánuði
barist af hörku við að bjóða lægsta
vöruverðið, en samkvæmt könnun-
inni er vöruverð í Bónus 3% lægra
en í KEA-Nettó. Munurinn hefur
minnkað því í síðustu könnun var
hann 5%. „Bilið er að minnka,“
sagði Hannes Karlsson, deildar-
stjóri matvörudeildar KEA.
Hannes sagðist vera óánægður
með ýmislegt varðandi framkvæmd
verðkönnunarinnar. Nefndi hann
sem dæmi að reiknað er út meðal-
talsverð, búinn sé til ákveðinn verð-
stuðull, 100, en ef ákveðnar vöru-
tegundir eru ekki til í versluninni
er samt skráð á þær ákveðið meðal-
talsverð. Þetta sé m.a. skýringin á
því hversu vel verslunin Valberg í
Ólafsfirði komi út, en þar hafi
óvenju fáar vörur verið til. Lágvöru-
markaðirnir á Akureyri hefðu dreg-
ið verðið í versluninni niður.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Pólís-tónleikar í
Akureyrarkirkju
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norðurlands efnir til tónleika í Akur-
eyrarkirkju næstkomandi sunnudag, 6. mars kl. 17, og bera þeir
yfirskriftina Pólís þar sem eingöngu verða flutt pólsk og íslensk
hljómsveitarverk.
Guðmundur Óli Gunnarsson, að-
alhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands, stjórnar
hljómsveitinni á þessum tónleikum.
Einleikari er Szymon Kuran, fiðlu-
leikari, sem er fæddur í Póllandi
en hefur síðustu 10 ár verið 2.
konsertmeistari í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Konsertmeistari á
þessum tónleikum er landi hans
Zbigniew Dubik.
Nýtt íslenskt hljómsveitarverk
eftir Hauk Tómasson er íslenski
hluti tónleikanna. Haukur samdi
þetta verk sérstaklega fyrir Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands og er
verkið tileinkað henni. Það nefnist
Árhringur og skiptist í fjóra hluta;
Sumar, Haust, Vetur og Birtingu.
Þetta er hljómrænt verk sem lýsir
árstíðunum og tengslunum milli
þeirra. Haukur er eitt fremsta tón-
skáld landsins af yngri kynslóðinni
og er um þessar mundir heiðurstón-
skáld Ríkisútvarpsins en hann sigr-
aði í Tónvakakeppni þess á síðasta
ári með hljómsveitarverki sínu
Strati.
Pólski hluti tónleikanna er flutn-
ingur tveggja verka, Colas Breugn-
on.eftir Tadeusz Baird og Fiðlukon-
sert eftir Andrzej Panufnik. Fyrra
verkið er tónleikaútgáfa af tónlist
sem samin var sérstaklega fyrir
útvarpsflutning á frægri skáldsögu
Ramain Rolland. Fiðlukonsertinn
skiptist í þrjá þætti, hægar ljóðræn-
ar stemmningar annars vegar og
kraftmikinn dans sem gerir miklar
kröfur til bæði einleikarans og
hljómsveitarinnar.
Miðar verða seldir í Bókabúð
Jónasar á Akureyri og við inngang-
inn.
Fáránleg vinnubrögð
Þá sagði Hannes það fáránleg
vinnubrögð að reikna út kílóverð á
vörum eins og gert væri í könnun-
inni og gæfi kolranga mynd þar sem
stórar pakkningar væru ódýrari en
hinar minni. Loks benti hann á að
teknar væru með í könnunina unnar
kjötvörur eins og hakk án þess að
getið væri á pakkningum hvert inni-
haldið væri. „Ég hef rætt þessa
galla á könnuninni við Jóhannes
Gunnarsson, formann Neytenda-
samtakanna," sagði Hannes.
Sigurður Gunnarsson í Bónus
sagði að fyrirtækið hefði staðið í
verðstríði í fímm ár og þar á bæ
þekkti fólk ekki annað. „Við höfum
nægt úthald, þetta er rétt að byija
hér, við ætlum okkur að halda
áfram," sagði hann, en gat þess
að vissulega væru ákveðnir hópar
manna í bænum versluninni and-
snúnir, fólk sem vildi einungis
versla við KEA. Hann væri sann-
færður um að sú mikla verðlækkun
sem orðið hefur í Nettó væri nær
eingöngu til komin vegna sam-
keppninnar við Bónus.
/CL Fyrirlestur
HÁSKÓLINN
A AKUREVRI
Tími: Laugardaginn 5. mars 1994, kl. 14.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti,
stofa 24.
Flytjandi: Helga Sigurjónsdóttir, kennart.
Efni: Nýskólastefnan.
Öllum er heimill aðgangur.