Morgunblaðið - 04.03.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
f
VIDSKIFn AIVINNULÍF
Fyrirtœki
FÁmskip með 1,4 niillj-
íirðíi vclí uaiikningi 1
VERULEG umskipti urðu í afkomu Eimskips á síðasta ári. Nam
hagnaður félagsins um 368 milljónum króna samanborið við 41
milljónar tap árið 1992, samkvæmt ársreikningi sem lagður var
fram á stjórnarfundi þann 24. febrúar sl. Þennan viðsnúning í af-
komu má einkum rekja til þess að tekjur félagsins jukust um 17%
að raungildi milli ára eða um rösklega 1,4 milljarða. Þá hafa að-
gerðir til að lækka kostnað skilað sér en kostnaður á hveija flutta
einingu lækkaði um 10% á árunum 1992 og 1993. Gengi hlutabréfa
í félaginu hækkaði í gær í viðskiptum dagsins á Verðbréfaþingi
úr 4,11 í 4,25.
Rekstrartekjur Eimskips og
dótturfélaga þess námu 8.601
milljón á árinu 1993 en 7.172 millj-
BLiZZATZn
rjf* r r jt
iði a goðu verði
JL
Fermingartilboð
á skíðapökkum
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI 812922
ónum árið 1992, að því er segir í
frétt frá Eimskip. Stærstur hluti
tekjuaukans er tilkominn vegna
aukins útflutnings með skipum
félagsins en hann var um 13%
meiri á síðasta ári en árið 1992.
Velta hefur einnig aukist vegna
gengisbreytinga og nýrra verkefna
erlendis en tekjur af erlendri starf-
semi jukust um 15% á milli ára.
Rekstrargjöld námu alls 7.941
milljón samanborið við 7.076 millj-
ónir árið áður og hækkuðu um
12%. Á síðasta ári var gripið til
sérstakra aðgerða og náðist að
lækka kostnað umtalsvert án þess
að skerða þjónustuna.
Heildarflutningar Eimskips á
árinu 1993 voru um 990 þúsund
tonn en voru 913 þúsund tonn árið
1992 sem svarar til 8,4% aukning-
ar milli ára. Útflutningur jókst
einkum á frystum fiski og fiski og
vega landanir erlendra fiskiskipa
þungt í þessari aukningu. Þá hefur
verið áframhaldandi aukning í
flutningi milli erlendra hafna og
var hún 7% frá árinu á undan.
Innflutningur með áætlunarskip-
um félagsins dróst hins vegar sam-
an um 3% frá fyrra ári.
Eimskip rekur nú 10 skip í föst-
um verkefnum og eru öll skip fé-
lagsins og dótturfélaga þess með
íslenskum áhöfnum. Heildarfjöldi
starfsmanna var 746 en þar af
störfuðu 137 erlendis.
Eigið fé félagsins var 4.645
milljónir í árslok 1993 og eiginijár-
hlutfall 47%. Arðsemi eiginfjár var
jákvæð um tæplega 9% á síðasta
ári.
LESTARFERÐIR FRAMTIÐARINNAR
Þýsk stjórnvöld hafa samþykkt aö ráöast í smíöi
segulknúinnar hraðlestar milli Berlínar og Hamborgar.
TRANSRAPID
Segulknúin lest
Ralknúin lest
Segulknúin lest
Hámarkshraöi: Meðalhraöi: Farþegafjöldi: Leiö: Tilbúin: 500 km/klst. í 400 km/klst. 820 Berlln til Hamborgar Smíöi á að hefjast 1996 og fyrstu tilraunalestirnar tilbúnar 2003.
TGV NORD 515km/klst. 300 km/klst. 377 París til Lille Undirbúningur hófst 1967 og fyrsta lestin hóf áætlunarferðir í sept. 1981
Hámarkshraöi: Meöalhraöi: Farþegafjöldi: Leiö: Tilbúin:
MAGLBV ^
Hámarkshraöi: Meöaihraöi: Farþegafjöldi: Leiö: Tilbúin: 550km/klst. ™ 500km/klst. Stefnt að 1.300 Tókýó til Ósaka Smíöi hófst 1990 og lestin á að hefja ferðir í byrjun næstu aldar.
STAR 21 ^
Hámarkshraöi:
Meöalhraöi:
Farþegafjöldi:
Leiö:
Tilbúin:
Rafknúin lest
425km/klst.
350km/klst. REUTER
500
Tókýó til Niigata
Tilraunir hófust 1992 og
lestin á að hefja áætlunar-
feröir eftir 1995.
Bankamál
Hagnaður NIBjókst
um fjórðung í fyrra
GÓÐ afkoma varð hjá Norræna fjárfestingarbankanum á síðasta ári
og jókst hagnaður um 26% milli ára. Hagnaður nam 64 milljónum ECU
eða 5.244 milljónum kr. samanborið við 51 milljón ECU árið á undan.
Vaxtamunur jókst um 36% á árinu og nam 101 milljón ECU sem svar-
ar til 8.276 milljóna. Þessi aukning skýrist m.a. af breyttri reikningsein-
ingu bankans úr SDR yfir í ECU á árinu 1993.
Á árinu 1993 varð bankinn fyrir
einu útlánatapi að upphæð 254 millj-
ónir kr. en auk þess voru lagðar
1.229 milljónir kr. í afskriftasjóð
vegna sérgreindra útlána til að mæta
4.-13. mars
Nautasteikur á tilbobsverbi:
Murdoch
ímótbyr
Hong Kong. Reuter.
STAR TV, sjónvarpsfyrirtæki
ástralska fjölmiðlakóngsins Rup-
erts Murdochs, hefur ákveðið að
framfylgja ekki umdeildum sam-
komulagsdrögum, þar sem gert
var ráð fyrir því að það útvegaði
eina kaplasjónvarpi Hong Kong,
Wharf Cable, dagskrárefni.
Wharf hefur reynt að fá dómstóla
til að úrskurða hvort því beri lagaleg
skylda til þess að endurvarpa efni
frá rásum STAR í samræmi við sam-
komulagsdrögin.
Nú kveðst STAR hafa komizt að
þeirri niðurstöðu, að samstarf við
Wharf sé vonlaust samkvæmt núver-
andi fyrirkomulagi. Sérfræðingar
velta fyrir sér hvort deilan snúist
raunverulega um kosti eða galla dag-
skrárefnisins.
hugsanlegum útlánatöpum, að því
er segir í fréttatilkynningu frá NIB.
Heildarútlán bankans námu 369,5
milljörðum um sl. áramót og þar af
voru aðeins tvö lán sem ekki voru í
skilum.
Útborganir nýrra lána drógust
saman á árinu 1993 og námu sam-
tals 48,1 milljarði. Umtalsverð aukn-
ing varð hins vegar á nýjum, sam-
þykktum lánum eftir því sem leið á
árið, sem þykir geta gefið til kynna
vaxandi fjárfestingar og eftirspurn
eftir lánsfé.
Verulegur hluti útborgaðra lána á
árinu 1993 til Norðurlanda tengdist
umhverfismálum með einum eða öðr-
um hætti, eða lán að upphæð 18
milljarðar kr. Hvað varðar alþjóðleg-
ar lánveitingar bankans á árinu
1993, jukust einkum lánveitingar til
verkefna í Asíu.
Lausafjárstaða bankans er góð og
nam 161,4 milljörðum kr. i árslok
1993 samanborið við 104 milljarða
kr. í árslok 1992.
Nýjar lántökur á árinu 1993 námu
153 milljörðum sem er u.þ.b. tvöfalt
hærri upphæð en árið á undan. Bank-
inn nýtur nú sem fyrr hæsta mögu-
lega lánstrausts til öfiunar fjármagns
á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum
- AAÁ/Aaa - samkvæmt mati hinna
alþjóðlegu fyrirtækja Standard &
Poor’s og Moody’s og er NIB nú eini
aðilinn á Norðurlöndum með það
mat.
Niðurstöðutala efnahagsreiknings
bankans í árslok 1993 nam 612,3
milljörðum. Á árinu hækkuðu eigend-
ur bankans, Norðurlöndin, grunnfé
hans um 50% og er það nú 230,2
milljarðar.
Þú hefur aldrei verið nær því
að hljóta 54 milljóna króna vinning.
4