Morgunblaðið - 04.03.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
37
á4 Aðalfundur
(y Gigtarfélagsins
Aðalfundur Gigtarfélagsins verður haldinn á
morgun (laugardag) kl. 14.00 í Ársal Hótels Sögu.
Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundarstörf.
í tengslum við fundinn flytja Unnur Alfreðsdóttir,
iðjuþjálfi, og Sólveig Hlöðversdóttir, sjúkraþjálfari,
erindi sem fjallar um það, hvernig gigtsjúkir geta
á árangursríkan hátt hjálpað sér sjálfir við að
halda aftur af gigtinni og lifað með henni.
Gigtarfélag íslands.
Robin Williams fer á kostum í myndinni Mrs. Doubtfire.
LEIKARAR
Robin Williams var litgreindur
Leikarinn Robin Williams þykir
hafa tekist vel upp í hlutverki
sínu sem frú Doubtfíre í samnefndri
kvikmynd sem sýnd er um þessar
mundir í Bíóhöllinni. Þeir sem séð
hafa myndina hafa eflaust velt því
fyrir sér meðvitað eða ómeðvitað
hvað geri það að verkum að gervi
hans tókst eins vel og raun ber vitni.
Þessu er mikið til að þakka búninga-
hönnuðinum Marit Allen og förðun-
armeistaranum Ve Neill.
í tímaritinu US kemur fram að
Neill varð að raka handarbök hans
og eitthvað upp eftir framhand-
leggnum, en síðan var hann færður
í þykkar sokkabuxur til að hárvöxt-
urinn á fótunum kæmi ekki í ljós.
í upphafi tók fjórar klukkustundir
Robin var litgreindur sem vor.
að færa Robin í gervið, en með
æfingunni var sá tími kominn niður
í tvær og hálfa klukkustund. Einnig
varð að fara í fataskápinn og finna
stór númer, því leikarinn þurfti að
fá kjóla í stærðunum 44 og 46.
Ekki nóg með það, heldur var hann
litgreindur og kom í ljós að hann
er vor. „Hann lítur mjög vel út í
bleiku og ferskjulitum,“ sagði Mar-
it Allen, enda notaði hún óspart þá
liti í fatnað hans.
Það sem vakti einna mesta að-
dáun Ve Neill var að varaliturinn
sat sem fastast á vörum Robins,
sem hún segir að sé vandamál
kvenna yfirleitt. „Við sleikjum hann
yfirleitt af jafnóðum," sagði hún.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Heilsuskór
Bæjarins bestu kalla þær sig. F.v. Kristín Á. Ólafsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Margrét Sæmundsdótt-
ir, Anna K. Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Hulda Valtýsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Katrin Fjeldsted
sem var kjörin formaður með frekar óformlegri atkvæðagreiðslu, Guðrún Ágústsdóttir, Margrét Theó-
dórsdóttir, Ólína Þorðarvarðardóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Guðrún Zoega, Elín Ólafsdóttir og
Katrín Gunnarsdóttir.
SAMVERA
Bæjarins bestu ræða
ekki pólitík
Fimmtán kvenkyns borgarfulltrú-
ar létu verða af því um síðustu
hélgi að koma saman, en um það
höfðu þær Iengi rætt. Fjörið hófst
heima hjá Katrínu Fjeldsted og skal
ósagt látið hvort það hafi haft ein-
hver áhrif á að hún var kjörin for-
maður klúbbsins, sem snarlega var
stofnaður og fékk nafnið Bæjarins
bestu. Heyrst hefur að markmið fé-
lagsskaparins sé hvorki meira né
minna en að tengja nútíð og fortíð
við framtíð með öllum þeim hætti
sem hægt er. Þá eru óskráð lög fé-
lagsskaparins að ekki megi ræða
pólitík, en eftir því sem Morgunblað-
ið kemst næst mun ekkert á landinu
vera þessum konum óviðkomandi,
hvernig sem má skilja það. Alla vega
lá leið þeirra því næst á Hótel Borg,
þar sem mikið var hlegið og gant-
ast. Ekki var ákveðið hvenær hist
yrði næst en rætt um að hóa þá í
allar fyrrverandi kvenkyns borgar-
fulltrúa og koma þeim í félagsskap-
inn. Þess má geta f framhjáhlaupi
að nokkrar þeirra sem nú sitja í
borgarstjórn munu víkja þaðan
næsta vor.
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Domus Medica, Kringfunni,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 689212
Toppskórinn
Veltusundi,
sími 21212
V
J