Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 1
80 SIÐURB/C 57. tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 _______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Hermdarverk á Heathrow HRYÐJUVERKAMENN úr röð- um Irska lýðveldishersins (IRA) skutu í gær fimm sprengjukúlum að flugbraut á Heathrow-flug- velli í London. Talið er að þeim hafi verið skotið úr sprengju- vörpu í bifreið sem lagt hafði verið fyrir utan flugvallarhótel. Sprengjurnar sprungu ekki er þær lentu á flugbrautinni nokkr- um mínútum áður en Concorde- þota átti að lenda þar. Miklar tafír urðu á flugi meðan öryggis- verðir leituðu að sprengjukúlum. Þetta er í fyrsta skipti sem IRA- menn láta til skarar skríða á meginlandi Bretlands frá því að ríkisstjórnir Bretlands og írlands hófu viðræður um frið á Norður- írlandi fyrir þremur mánuðum. Reuter Evrópskir stjórnmálamenn gagnrýna afstöðu Spánveija í ESB-aðildarviðræðum Sjávarútvegurinn óánægð- ur með tilboð stjómaiinnar Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKIR sjómenn hafa gagn- rýnt Jan Henry T. Olsen, sjávar- útvegsráðherra Noregs, harð- lega fyrir að hafa gengið á bak þeirra orða sinna, að ekki „ein- um einasta" fiski yrði fórnað vegna aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið. Einar Hepsoe, formaður Norges Fisk- arlag, heildarsamtaka norska sjávarútvegsins, segir Norð- menn vera í þann mund að gera mjög slæman samning við sam- bandið. Norski sjávarútvegsráðherrann, sem hefur í erlendum íjölmiðlum verið kallaður „Fiskalausi 01sen“ (No-físh-Olsen), hefur gefið til kynna að hann muni mæla með aðildarsamningi við ESB, gangi sambandið að síðasta tilboði Norð- manna, áður en viðræðunum var frestað á þriðjudag. Þá buðu Norð- menn Spánveijum 2.000 tonna ár- legan þorskveiðikvóta í norskri landhelgi umfram þann kvóta sem Spánverjar fengu vegna samnings- ins um Evrópska efnahagssvæðið. Að auki hafa Norðmenn boðið Spánveijum þúsund tonna þorsk- veiðikvóta Norðmanna á alþjóðlegu hafsvæði fyrir utan Kanada. Ástæða þess að upp úr viðræðun- um slitnaði var að Spánveijar vildu ekki fallast á þetta tilboð og fóru fram á enn meiri veiðiheimildir og voru þar studdir af Portúgölum. Á það vildu Norðmenn ekki fallast og var viðræðunum því frestað fram á þriðjudag. Spánveijar hafa gagn- rýnt norsku samningamennina fyrir „valdahroka", „þijósku“ og „engan samningsvilja". Norðmenn segjast aftur á móti vera fórnarlömb innri vandamála ESB. Spánveijar og Bretar hafa einnig. lýst yfir and- stöðu við fyrirhugaðar breytingar á atkvæðareglum innan ráðherra- ráðsins vegna fjölgunar aðildar- ríkja. Fjölmargir háttsettir evrópskir stjórnmálamenn höfðu í gær sam- band við norsku samningamennina og hörmuðu að ekki hefði tekist að ljúka samningunum. Samtímis gagnrýndu þeir harðlega afstöðu Spánvetja og Portúgala. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sagði Spánveija og Breta bera fuila ábyrgð á stöðunni í samningavið- ræðunum. „Það er mér persónulega og [þýsku] ríkisstjóminni óskiljan- legt að aðildarríki Evrópusam- bandsins skuli hafa rofið þá sam- stöðu sem var að myndast í gær,“ sagði Kohl. Sjá einnig frétt á bls. 26. Útgerðarmenn togara hafa lagt skipum sínum og 400 togarasjómenn eru því án atvinnu. Þá skortir þegar físk til vinnslu og er metið að stöðv- un togaraflotans auki greiðslur at- vinnuleysisbóta um 2,2 milljónir króna á dag. Emil Nolsö, formaður samtaka togaraútgerða, segir að kvótakerfíð sé dauðadómur yfir út- gerðinni, enda sé þeim aðeins ætlað- ur um helmingur þess afla, sem þeir hafi verið að taka undanfarin ár. Þá hafa samtök sjómanna hótað að leggja niður störf, verði hróflað við tekjutryggingu þeirra. Sjómenn segja að fískigengd við Færeyjar sé nú meiri en um langt árabil og algjör óþarfí sé að draga enn úr leyfilegum afla. Hjalti í Ják- upstovu, forstöðumaður Fiskirann- sóknastofunnar í Færeyjum, vísar þessum fullyrðingum á bug. Segir Hubble skilar árangri Lundúnum. The Daily Telegraph. HUBBLE-sljörnusjónaukinn bandaríski hefur skilað frábærum árangri frá því viðgerð á honum lauk fyrir þremur mánuðum. Nýj- ustu myndirnar frá honum sýna að risavaxin stjarna, Eta Carinae, mun brátt springa. Myndimar sýna sljömu sem er við það að þenjast út. Hún mun að endingu springa og verður þá annar bjart- asti hluti næturhiminsins á eftir tunglinu. Omögulegt er þó að segja til um hvenær sú sprenging verður. Myndirnar úr Hubble eru þær merkustu sem hann hefur tekið eftir viðgerðina í lok síðasta árs. Eta Car- inae er í 10.000 ljósára fjarlægð og hefur hingað til aðeins verið sýnileg sem dauft og ógreinilegt ljós. Nýju myndirnar sýna ljóslega hvemig hlutar stjörnunnar þeytast frá henni á rúmlega þriggja milljón km hraða. Hubble sendir frá sér um 1.000 milljón bæti af upplýsingum á dag og er svo næmur að væri hann í Washington, gæti hann náð skýrri mynd af eldflugu í Tókýó. Á þeim stutta tíma sem liðinn er frá viðgerð- inni hefur ein merk uppgötvun verið gerð í stjörnufræði fyrir tilstilli myndanna úr Hubble, en hún er sú að stjömuþokur renna iðulega saman og mynda stærri stjörnuþokur. Ger- ist þetta í mun ríkara mæli en áður var talið. Þá benda myndir af 47 Tucane-þokunni til þess að hún sé 17 milljarða áragömul eða 4 milljörð- um ára eldri en talið hefur verið að alheimurinn sé. að ekki sé meira um þorsk og ýsu en áður og sjómenn verði að sætta sig við að sjá sporð án þess að veiða hann, verði stofnarnir ekki byggðir upp, verði afar langt í það, að fisk- veiðar við Færeyjar beri sig. Marita Petersen segir, að því mið- ur sé of lítið af físki við Færeyjar miðað við fjölda skipa. Við þá stað- reynd verði Færeyingar að sætta sig og byggja upp stofnana og vona, að þegar það hafi tekizt, verði flotinn ekki of stór. „Við munum hlusta á það, sem útgerðarmenn togara hafa að segja, en við getum hvorki aukið kvótann né breytt lögunum um kvótakerfíð. Þeir eiga í miklum erfíð- leikum og við munum reyna að koma til móts við þá innan þeirra marka, sem okkur eru möguleg." Sjá einnig fréttir á bls. 27. Reuter Myrti sex í dómsal SAKBORNINGUR í minniháttar sakamáli svipti sig og að minnsta kosti sex aðra lífi í gær, er dómur hafði verið kveðinn upp yfir honum í bænum Euskirchen skammt frá Köln. Sex eru alvarlega særðir. Hafði maðurinn verið dæmdur til að greiða 80 marka sekt (3.300 kr.) fyrir að hafa ráðist að konu. Maðurinn hugðist áfrýja dóminum en var neitað um það. Var haft eftir vitnum að hann hefði formælt dómurunum, gengið út úr réttarsalnum að dómnum uppkveðnum og snúið til baka skömmu síðar vopnaður byssu og skaut dómarann. Augnabiiki síðar sprakk öflug sprengja, sem maðurinn hafði komið með í svörtum bakpoka. Var sprengjan svo öflug að lík hans þeyttist út um glugga dómsalarins. Á myndinni má sjá lögreglumenn kanna líkið. Færeyskir útgerðarmenn leggja skipum Ekki kvótaaukning vegna erfiðleika Þórshöfn. Frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. „VIÐ verðum að sætta okkur við þá staðreynd, að það er of lítið af fiski við Færeyjar miðað við fjölda skipa. Hámarksafli hefur verið ákveðinn og lögin um sljórn fiskveiða hafa verið samþykkt í lögþing- inu. Landsljórnin mun ekki breyta þessu. Kvótinn verður ekki aukinn þrátt fyrir mikia erfiðleika í togaraútgerð,“ segir Marita Petersen, lögmaður Færeyja, í samtali við Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.