Morgunblaðið - 10.03.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Frumvarp þingmanna Kvennalistans
Viðskiptalegir og póli-
tískir þættir útlána
verði rannsakaðir
BANKAR, sparísjóðir og fjárfestingarlánasjóðir atvinnuvega hafa
lagt um 40 milljarða kr. á afskriftareikninga til að mæta töpuðum
útlánum á seinustu fimm árum. Þetta kom fram við umræður á
Alþingi á þríðjudag um frumvarp þingmanna Kvennalistans um að
skipuð verði nefnd til að rannsaka útlánatöp banka, sparísjóða og
fjárfestingarlánasjóða atvinnuvega og Byggðastofnunar á undan-
gengnum árum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista, mælti
fyrir frumvarpinu á Alþingi og rakti ýmis dæmi um gagnrýni ráð-
herra og þingmanna á ógætileg útlán banka og sjóða en sagði að
þrátt fyrir það hefði enginn í raun axlað ábyrgðina og ekkert hefði
verið gert til að komast til botns í því hjá hverjum hún lægi.
Ingibjörg Sólrún sagði að nefnd-
in ætti að kanna bæði viðskipta-
lega og pólitíska þætti málsins,
þ. á m. hvort um óeðlilega við-
skiptahætti hafí verið að ræða.
Yrði nefndinni falið að ákveða
hversu langt árabil hún tæki til
skoðunar og skilaði hún skýrslu
sinni til viðskiptaráðherra.
Kanna pólitískan þrýsting og
hagsmunatengsl
Hún sagði einnig að bankaráðin
Fiskvinnsla á Flateyri
Skortur á
vinnuafli
Flateyri.
A MEÐAN Hríseyingar sækja til
Færeyja eftir vinnuafli hefur
Fiskvinnslan Kambur hf. á Flat-
eyri leitað til Akureyrar eftir
starfsmönnum. Mikil vinna hefur
verið á Flateyri frá áramótum
og hefur varla fallið úr dagur í
starfsemi frystihússins á staðn-
um.
Á þessari vertíð hafa tveir stórir
línubátar og nokkrir smærri lagt
upp afla hjá Kambi og hefur línu-
fískirí verið mjög gott. Kambur er
aðalvinnuveitandi á staðnum síðan
Hjálmur hf. hætti starfsemi og eru
u.þ.b. sextíu starfsmenn í vinnu þar
núna. Eru nær allir þeirra heimilis-
fastir á Flateyri og er það mikil
breyting frá því sem áður var, þeg-
ar sækja þurfti stóran hluta vinnu-
afls erlendis frá.
Þrátt fyrir þann fjölda starfs-
manna sem Kambur hefur á sínum
snærum hefur þurft að bæta við
fólki, þar sem steinbítsvertíð er í
uppsiglingu og handtökin við stein-
bítinn eru fleiri en í hefðbundinni
þorskvinnslu. Var leitað til Vinnu-
miðlunarinnar á Akureyri og aug-
lýst eftir fólki til starfa. Viðbrögðin
létu ekki á sér standa og tókst þeg-
ar að ráða það fólk til vinnu sem
á þurfti að halda. Aðbúnaður far-
andverkamanna er með ágætum á
Flateyri og er boðið upp á ódýrt
húsnæði í verbúðum, með aðstöðu
til eldamennsku og setustofu.
Steinþór
hlytu að koma til sérstakrar skoð-
unar og er lagt til í frumvarpinu
að nefndin kanni sérstaklega hvort
stjómvöld eða aðrir aðilar hafí í
einhveijum tilvikum beitt óeðlileg-
um pólitískum þrýstingi eða hags-
munatengslum til að greiða fyrir
lánveitingum.
Ingibjörg Sólrún sagði að kostn-
aður vegna tapaðra útlána hefði
verið greiddur með beinum fjár-
framlögum úr sameiginlegum sjóði
landsmanna og benti í því sam-
bandi á ákvörðun Alþingis sl. vor
um að veita Landsbankanum allt
að 4,25 milljarða kr. stuðning til
að tryggja eiginfjárstöðu bankans.
Sagði hún mikilvægt að nefnda-
skipunin ætti sér stoð í Iögum og
sagði að ákveðið hefði verið að
fara sömu leið og farin hefði verið
í Hafskipsmálinu svokallaða þegar
samþykkt voru lög á Alþingi um
skipun nefndar til að kanna við-
skipti útvegsbanka íslands og Haf-
skips. Sagði Ingibjörg Sólrún að
ýmislegt benti til að forráðamenn
innlánsstofnana og fjárfestingar-
lánasjóða hefðu ekki sýnt þá aðgát
í meðferð sem þeim bæri og sem
almenningur, eigandi fjármun-
anna, ætti kröfu á. Hefur frum-
varpinu verið vísað til efnahags-
og viðskiptanefndar þingsins.
^ Morgunblaðið/Júlíus
Arekstur á árekstur ofan
Frá slysstaðnum á Vesturlandsvegi við Leirvogsá í gær, þar sem fernt slasaðist í árekstrum.
Femt er slasað eftir
árekstra í hríðarkófi
FERNT slasaðist í árekstri sem varð á Vesturlandsvegi við Leir-
vogsá í hríðarkófi skömmu eftir hádegi í gær. Um tvo árekstra
var að ræða; sá seinni varð eftir að bill nam staðar til að huga
að þeim sem slasast höfðu í hinum fyrri.
Aðdragandi fyrri árekstrarins
var sá að kona sem var á ferð
ásamt tveimur bömum hægði á
bíl sínum þar sem hún sá vart
handa sinna skil fyrir snjókófí en
ökumanni jeppa sem var ekið á
eftir bíl konunnar tókst ekki að
stöðva í tæka tíð og ók aftan á
Ford Escort bíl konunnar, með
þeim afleiðingum að hún og böm-
in meiddust. Ökumaður jeppans
nam hins vegar ekki staðar en
hélt för sinni áfram upp á Akra-
nes þar sem hann gaf sig síðan
fram við lögreglu.
Þar sem bíll konunnar stóð
skemmdur í vegarkantinum kom
að maður á Lada sport jeppa og
nam staðar til að liðsinna konunni
og bömunum. Þá kom að flutn-
ingabíll sem ók á jeppann og kast-
aði honum á bíl konunnar og bam-
anna með þeim afleiðingum að
þau hlutu frekari meiðsli og öku-
maður jeppans slasaðist einnig.
Að sögn lögreglu átti það þátt
í því að sendibíllinn hafnaði á jepp-
anum að ökumaður hans hafði
ekki svigrúm til að beygja fram-
hjá jeppanum vegna bíls sem var
ekið fram úr sendibílnum í þann
mund sem hann kom að árekstrar-
staðnum.
Konan, börn hennar og öku-
maður jeppans voru flutt á slysa-
deild. Meiðsli ökumanns jeppans
vom talin mest en hann hlaut
m.a. áverka á höfði. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu voru
meiðsli konunnar og bamanna
hins vegar ekki talin hættuleg.
Talsmenn olíufélaganna þriggja um sölu Hagkaups á olíuvörum
Salan í fullu samræmi við
eðli friálsrar samkeppni
KRISTINN Björnsson forstjóri Skeljungs segist ekkert hafa við sölu
Hagkaups á olíuvörum að athuga þar sem fyrirtækinu sé eins og öll-
um öðrum frjálst að selja það sem það telji sig geta selt. Kristinn
segir sennilegt að ef um þann verðmun á olíuvðrunum sé að ræða sem
Hagkaup hefur haldið fram, eða 30-40%, þá geti það m.a. stafað af
ýmsum föstum kostnaði sem olíufélögin verði að taka inn í verðlagn-
ingu sína. Geir Magnússon forstjóri Esso segist ekki sjá neitt óeðlilegt
við að matvörukaupmenn fari inn á markað olíufélaganna, en hann
dregur í efa að raunverulegur verðmunur á olíuvörunum sé svo mik-
ill sem verðið hjá Hagkaup gefi til kynna. Einar Benediktsson for-
stjóri Olís segir olíusölu Hagkaups vera í fullu samræmi við eðli
fijálsrar samkeppni á markaðnum.
í dag
Átök i Lögmannafélaginu
Stjórn Lögmannafélagsins hótar
að segja af sér nái Eiríkur Tómas-
son formannskjöri 4
Norðurlandaráðsþing
Umræður um THORP-kjarnorku-
endurvinnsluverið settu svip sinn á
þingið í gær og fyrradag 18
Hamforin frumsýnd_____________
Freyvangsleikhúsið frumsýnir nýtt
íslenskt leikrit eftir sr. Hannes Órn
Blandon annað kvöld 20
Leiöari
EFTA-ríki semja um ESB-aðild 28
viiri i« »fhh uj »i
OC Í.AW Avi’lVlt'X «róklfJÁK
MC Hil.l*
—«H-
Viðskipti/Atvinnulíf A dagskrá
^ Kynlíf leikbrúða í Bandaríkj-
unum - Leikarar Á fertugsaldri
- Dýrkun aðdáenda á frægu fólki
- Vinsælasti svarti leikarinn -
Kvikmyndir vikunnar
► Bílauppboðsmarkaður stofn-
aður - Minni hagnaður Visa vegna
debertkorta - íslenskur iðnrek-
andi í Úkraínu - Einar og Guð-
finna í Virku - Ríkissjóður vestra.
„Þeir eru að flytja inn eina tegund
af smurolíu og bjóða hana án nokk-
urrar þjónustu né nokkurrar þekk-
ingar á vörunni. Mér þykir sennilegt
að þessi verðmunur, ef hann er þá
raunverulegur, sé fólginn í því. Olíu-
félögin eru að halda uppi hundruðum
sölustaða um land allt sem yfirleitt
eru opnir frá 7.30 og til 23.30, sum-
ir hveijir með tilheyrandi föstum
kostnaði, sem hlýtur að hafa sitt að
segja í verðlagningunni," sagði
Kristinn Bjömsson.
Selt án álagningar?
Geir Magnússon sagðist ekki hafa
kannað í hveiju það væri fólgið að
Hagkaup byði olíuvörurnar á
30-40% lægra verði en tíðkaðist hjá
olíufélögunum, og sagði þá spurn-
ingu vakna hvort Hagkaup væri að
selja vörumar án álagningar eða
jafnvel borga með þeim í þeim til-
gangi að fá auglýsingu.
„Eg fullyrði að sú olía sem við
eram að flytja til landsins er á besta
fáanlega verði, en hvort þeir finna
svona pakkavörar úti í heimi og selja
án álagningar eða jafnvel við öfuga
framlegð í auglýsingaskyni, þá
þekkist það. Ég get hins vegar ekk-
ert um þetta fullyrt þar sem þetta
era hlutir sem við eigum eftir að
skoða," sagði Geir.
Einar Benediktsson forstjóri Olís
sagði að í sjálfu sér væri ekkert
sérstakt um smurolíusölu Hagkaups
að segja, og þar væri einungis um
eðli fijálsrar samkeppni að ræ
Hvað verðmuninn varðar sagc
hann ekki vita hvort um samba
lega vöru væri að ræða og Olís se
og þess utan þá þekkti hann e
með hvaða hætti verðmyndun H;
kaups væri eða hvaða þjónusta v;
innifalin í verðinu.
„í okkar tilfelli er innifalin dr<
ing á landsvísu og allskyns tækni
ráðgjöf. Þá hefur það verið hl
skipti olíufélaganna að taka á ir
allri úrgangsolíu og kosta til þ
töluverðum peningum, og mér
ekki kunnugt um hvort Hagkí
ætli að vera með innifalið í si
verðlagningu móttöku á úrgangs
íu. Það liggur svo auðvitað í hlut
ins eðli að það að flytja inn takma
að magn og dreifa því í þremur ve:
unum í Reykjavík er auðvitað e
sambærilegt við að flytja inn
dreifa á landsvísu með allri þe
þjónustu og tækniráðgjöf sem
fylgir," sagði hann.
Ekki ódýrast hjá Hagkaup
Umboðsaðili Pennzoil-olíuvars
Islandi hefur sent frá sér yfirlýsii
í kjölfar frétta um að Hagkaup s
olíu frá Pennzoil á 30-40% læ
verði en olíufélögin, og bendir h;
a að su staðhæfing sé ekki r
Umboðsaðili Pennzoil sem boðið I
3Í?~4.?.%. ódýrari smurþjónustu
olíufelogin selji einn lítra af olíu
á 146 kr. en Hagkaup selji h
vegar 0,946 lftra á 147 kr.