Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 7

Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 7
7 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 Ráðinn aðstoðar- bankastj. Seðlabanka INGIMUNDUR Friðriksson hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri við Seðlabanka Islands. Bandalag- háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna Ríkisendurskoðun kanni innheimtu LIN BANDALAG háskólamenntaðara ríkisstarfsmanna hefur farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún athugi framkvæmd innheimtu hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, en í erindi BHMR segir að samtökin telji að verulega skorti á að LIN fari að lögum í starfsemi sinni. Ingimundur er fæddur á Akureyri árið 1950 og Iauk MA-prófi í hag- fræði frá Virginíuháskóla í Banda- ríkjunum árið 1975. Hann starfaði sem sumarmaður í hagfræðideild Seðlabankans árin 1973 og 1974 og síða'n sem hagfræðingur frá ársbytj- un 1975 til 1982. Árin 1982 og 1984 var hann aðstoðarmaður fastafull- trúa Norðurlandanna í sjóðsstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washing- ton. Árin 1984 til 1991 starfaði hann í Alþjóðadeild Seðlabankans frá 1986 sem forstöðumaður deildarinnar. Snemma árs 1991 varð Ingimundur varafastafulltrúi Norðurlandanna í sjóðsstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fastafulltrúi Norðurlandanna frá 1. nóvember það ár til 15. október sl. Þegar Eistland, Lettland og Lithá- en fengu aðild að Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum á árinu 1992 varð Ingi- mundur jafnframt fastafulltrúi þeirra í sjóðsstjórninni. Hinn 1. nóvember sneri hann aftur til starfa í Seðla- bankanum og þá sem ráðunautur bankastjórnar. Ingimundur tekur við stöðu að- stoðarbankastjóra hinn 1. júní nk. er Björn Tryggvason lætur af störf- um fyrir aldurs sakir. Ingimundur Friðriksson Páll Halldórsson, formaður BHMR, segir að uppi séu verulegar .efasemdir um að rétt sé staðið að innheimtu hjá lánþegum og þar að auki hafi gengið erfiðlega að fá upp- lýsingar hjá sjóðnum um eftir hvaða reglum er farið. Á tímabili hafa þær reglur gilt að ef hjón voru í námi og tóku bæði lán þurfti aðeins að greiða af öðru láninu, en nú séu dæmi um að ekki hafi verið farið eftir þessum reglum. BHMR hafi borist ábendingar um að innheimtu kunni að vera áfátt í öðrum efnum. Páll sagði að reglur um útlán LÍN hefðu sífelld verið að breytast og það auðveldaði ekki fólki að fylgjast með að innheimt væri samkvæmt ákvæð- um skuldabréfa. Þar að auki kæmi ekki fram á innheimtuseðlum hvern- ig sú upphæð væri fengin sem þar væri krafist greiðslu á, en flestir greiddu umyrðalaust ef þeir hefðu getu tii þess. íþrótta- og tómstundaráð Aukafé til námskeiða atvinnu- lausra ungmenna BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt, að tillögu atvinnu- málanefndar, að leggja þrjár milljónir króna til greiðslu kostnaðar af sér- stökum námskeiðum fyrir atvinnulaus ungmenni, sem haldin verða á næstunni á vegum íþrótta- og tóm- stundaráðs. í erindi ÍTR til atvinnumála- nefndar kemur fram að 900 ung- menni á aldrinum 17-25 hefðu ver- ið skráð atvinnulaus hjá Ráðningar- skrifstofu Reykjavíkurborgar 8. febrúar sl. Þá segir að ÍTR hafi staðið fyrir sérstökum námskeiðum fyrir atvinnulausa unglinga í Hinu húsinu og hafi þátttaka í þeim ver- ið góð. í erindinu segir, að af feng- inni reynslu af fyrri námskeiðum, sem styrkt voru af atvinnumála- nefnd Reykjavíkurborgar, og því atvinnuástandi sem ríki meðal ung- menna, sæki ÍTR um stuðning til nefndarinnar til áframhaldandi námskeiðshalds. Fyrirhugað er að bjóða upp á námskeið í tölvufræðum, skyndi- hjálp, myndlist, vídeóvinnslu, ís- lensku, útivist, íþróttum, framsögn og tjáningu, ljósmyndun, útvarps- þáttagerð, bókfærslu, stærðfræði og starfi með börnum og ungling- um. í erindi ÍTR til atvinnumála- nefndar segir að þátttakendur greiði ekki þátttökugjald en ITR greiði leiðbeinendum og standi und- ir öðrum kostnaði auk þess að hafa yfirumsjón með námskeiðunum. Dönsk þyrla í sjúkraflug til Isafjarðar ÞYRLA frá danska eftirlitsskipinu Triton koni inn til ísafjarðar um klukkan sjö í gærkvöldi með veikan skipverja af grænlenskum togara. Maðurinn hafði veikst þar sem tog- ari hans var við veiðar á Dohrn- banka. Eftirlitsskipið var skammt undan, sigldi á staðinn og sendi síðan þyrlu með manninn í land á sjúkrahús- ið á ísafirði. Hann var með lömuna- reinkenni á annarri hendi en var með meðvitund og talandi að sögn Land- helgisgæslúnrtarji'*-feg voru veikindi hans ekki talin hættulegs eðlis. 20% verðlækkun !► á plus innréttingum Yfirskápar D: 28 H: 70 m/2 nillum Neðri skápur D: 60, H: 87 2.900 - ° rAA br.408m. ÁSKORUN ;.-4' . Qnn 6.400,- 4.900,- br.60am. br.öUsm. nv'lsk. 6.500,- br.80sm rrv/l h. 4.900,- _______ br.40sm. br.40em. IO.uwí- 3ir- m/2 h. xn/5 sk. hár skápUT möbelfakta 'ii """A ■MM1— -------*■ [jlKEJtJ KRINGUINNl 7SlMI 91-686650 ái#s-i■! - innréttingar áefnisverði Berid saman verö á okkar innréttingum og verð á tilskornu efni í samskonar innréttingu hjá V- efnissölum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.