Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
9
Ljósir, franskir hrásilkiblazerjakkar
frá stærð 34-46.
neðst við 1 U00 V, DUNHAGA, I S. 622230. Opið virkadaga kl.9-18, laugardag kl. 10-14.
Okeypis Iflgfræðiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012
ORATOR, félag laganema
Vegna breytinga
20-50% afsláttur
Dðmu- og herrasnyrtivorUr,
gjafavörur, fermingarvörur,
skart og fleira.
Opiðtil kl. 16.00 laugardag.
Sápuhúsið,
Laugavegi 17,
sími 13155.
VANDAÐUR
VORFATNAÐUR
B O G N E R
sérverslun v/Óðinstorg, sími 25177
A GJAFVERÐl
STÓRFELLD VERÐLÆKKUN
Á næstunni kynnum við nýjar gerðir kæliskápa. í sam-
vinnu við<S#«A/*#í Danmörku bjóðum við því síðustu skápana
af 1993 árgerðinni, og nokkrar fleiri gerðir, með verulegum
afslætti, eins og sjá má hér að neðan:
gerð: Ytri mál mm: HxBxD Rými Itr. Kæl.+ Fr. Verð áður Verð rtú aðeins: m/afb. stgr.
K-180 865x595x601 172+ 0 53.750 45.690 42.490
K-285 1265x595x601 274+ 0 56.980 49.980 46.480
K-395 1750x595x601 379+ 0 83.850 73.970 68.790
KF-185 1065x550x601 146+ 39 51.580 48.990 45.560
KF-232 1265x550x601 193+ 39 55.900 53.740 49.980
KF-263 1465x550x601 199+ 55 59.130 57.950 53.890
KF-250 1265x595x601 172+ 62 63.430 56.950 52.960
KF-355 1750x595x601 274+ 62 77.400 67.730 62.990
KF-344 1750x595x601 194+ 146 84.900 74.160 68.970
Dönsku<S#MA# kæliskáparnir eru rómaðir fyrir
glæsileika, styrk, sparneytni og hagkvæmni.
Verðið hefur aldrei verið hagstæðara. Láttu því
þetta kostaboð þér ekki úr greipum ganga!
Veldu - GÆÐANNA og VERÐSINS vegna.
/=nnix
fyrsta flokks frá ITSL MM MVI II
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI (91)24420
Lægra matar-
verð
I frétt Vinnunnar,
tímarits ASÍ, segir m.a.:
„Lækkun matarskatts-
ins um áramót hefur skil-
að sér í lækkuðu vöru-
verði eins og til var ætl-
ast. Til þessa benda
hvorttveggja verðkaim-
anir sem gerðar voru í
janúar og útreikningar
Hagstofuimar á fram-
færsluvísitölunni, sem er
3,8% lægri nú (febrúar
’94) en í nóvember. Miðað
var við að lækkun á mat-
arskattinum skilaði 4,5%
lækkun á matarverði.
Verðkannanir verka-
lýðsfélaganna, BSRB,
Neytendafélaganna og
Samkeppnisstofnunar
hófust um miðjan janúar
og er ætlað að vera til
samanburðar verðkömi-
unum sem gerðar voru
um allt land í nóvember.
Aðeins var kannað verð
á þeim vörum sem virðis-
atikaskátturinn var
Írekkaðut á uíti áraniótih
en á mótí þeirri lækkun
komu í einhverjum tilfell-
um hækkuð vörugjöld,
auk þess sem verðhækk-
anir urðu erlendis á ein-
staka vörutegundum ...
Kvörtunarþjónusta
var starfrækt á vegum
verkalýðshreyfingarinn-
ar eftir áramót en ekki
var ýkja mikið um að
fólk hringdi inn. Það kont
dálítil skorpa fyrstu dag-
ana og síðan aftur eftir
að verkalýðshreyfingin
birti auglýsingu í blöðum
þar sent fólk var hvatt
til að fylgjast með breyt-
ingum á vöruverði, segir
Sigurþór Sigurðsson bjá
Alþýðusantbandinu í
samtali við Vinnuna.”
Lfllðarl |
Lýst eftir stefnu
|í fjölskyldumálum
Lækkun matarskattsins
hefur skilað sér
„Lækkun matarskattsins um ármót hefur
skilað sér í lækkuðu vöruverði eins og
til var ætlast", segir Vinnan, tímarit Al-
þýðusambands íslands. ( leiðara Vinn-
unnar er og lýst eftir stefnu í fjölskyldu-
ttiálumi setn Verðugt væfi að setja fram
nú á ári fjölskyldunnar. Staksteinar
staldra við þetta ASÍ-rit í dag.
Stefnu vant í
fjölskyldumál-
um
f leiðara Vinnunnar,
sem Lára V. Júlíusdóttir,
framkvæntdasljóri ASÍ,
skrifar, er lýst eftir
stefnu í fjölskylduntáhim.
Þar segir m.a.:
„Nauðsyn er á að móta
hér heildstæða stefnu
sent taki til allra þátta
sem áhrif hafa á fjöl-
skylduna og taki mið af
þeini breytingum sem
eru að verða í þjóðfélag-
inu. Meðal annars til
skattamála, skólamála,
dagvistar, framfærslu,
húsnæðismála, skipulags
vinnunnar og þannig
mætti áfram telja, og síð-
an verður að taka mið
af þeirri heildarstefnu
þegar verið er að hrófla
við einstökum atriðum.
Það á ekki að líðast að
verið sé að breyta reglum
um barnabætur, reglum
iint vaxtabætur og regl-
um um eliilífeyri á síð-
ustu vikum ársins til þess
eins að ná endum saman
í ijárlagagerð. Slikar
breytingar þurfa miklu
meiri skoðunar við og
verða að vera hluti af
heild. Iiia grundaðar
hentistefnuákvarðanir
leiða einungis til öryggis-
leysis einstaklinganna,;
sem aftur leiðir til upp-
lausnar."
Vmnutíminn
hefur lengst
„Þessa stefnumörkun
þarf að vinna með já-
kvæðu hugarfari og
menn verða að vera
reiðubúnir að hugsa hlut-
ina upp á nýtt. Sérstak-
lega þarf að huga að því
sem kalla má minni eftir-
spum eftir vinnuafii. Það
er athyglisvert að þrátt
fyrir aukið atvinnuleysi
hefur vinnutími verka-
fólks fremur iengst en
dregizt saman. Hvemig
má stuðla að þvi að draga
úr vinnuþrælkun og er
það Þitdilega héþpileg-
asta aðferðin við ákvörð-
un launa að yfirvinna
skuli greidd með 80%
álagi? Hvers vegna em
íslenzk börn einungis i
skóla 8-9 mánuði á ári
liveiju? Hvaða þjóðfé-
iagslegu áhrif fylgja því
að einungis börn ein-
stæðra foreldra eiga kost
á heilsdagsvistun?
Ar fjölskyldunnar
bytjaði með mikilli
veiziu. Það er vonandi
að á árinu megi takst að
marka fjölskyldustefnu
til lengri tínta svo fram-
tíðin verði laus við þær
tilvi(janaketmdu ákvarð-
anir sent stöðugt bitna á
fjölskyldum þessa lands.”
Stórsveit Reykjavíkur leikur í Ráðhúsinu
STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur
laugardaginn 12. mars kl. 17.
Þetta eru aðrir tónleikar hljóm-
sveitarinnar í Ráðhúsinu í vetur.
Á efnisskránni er hefðbundin
stórsveitartónlist, bæði ný og göm-
ul, eftir hina ýmsu höfunda, og má
þar nefna Duke Ellington, Sammy
Nestico, Emil Thoroddsen og Hoagy
Carmichael.
Söngvarar með Stórsveitinni að
þessu sinni verða þau Þuríður Sig-
urðardóttir, Ragnar Bjarnason og
Egill Ólafsson og munu þau syngja
meðal annars lögin All of me, It
don’t mean a thing og New York,
New York. Kynnir verður Friðrik
Theodórsson og hljómsveitarstjóri
Sæbjörn Jónsson trompetleikari.
Tilboðsferð
til KanarLmor
Síðustu 5 íbúöirnar um páskana
23. tt*ars
3 viku*'
Nú seljum við síðustu sætin um páskana til Kanaríeyja
og bjóöum sértilboö á Las Isas, einn af okkar vinsælli gisti-
stööum I vetur. Las Isas er frábærlega staösettur, rétt viö
ströndina og í hjarta ensku strandarinnar. íbúöir eru ekki stórar
en snyrtilegar og meö öllum búnaöi og lítil sundlaug er viö
hóteliö. Njóttu Kanarí þar sem frábært veöur er um páskana
og þú nýtur öruggrar þjónustu fararstjóra Heimsferöa í fríinu.
Bókabu strax meöan enn er laust.
Flugvallarskattar og forfallagjöld:
Fullorönir kr. 3.660,-,
börn kr. 2.405,-.
air europa
W TURAUIA
Austurstræti 17, 2. h
Sími 62 4600