Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Macintosh námskeið
Mjög vandað og gott námskeið fyrir byrjendur.
Stýrikerfi tölvunnar, ritvinnsla og kynning á helstu forritum.
Með fylgir disklingur með deiliforritum, dagbókarforriti, teikniforriti,
leikjum, veiruvamarforrití o. fl. • Hagstætt verð!
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • sími 68 80 90
ILMANDI
Á M MÍH.
EKKI AÐEINS HEITT,
HELDUR LÍKA NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er
fullbakað. Settu HATTING brauðið í
bökunarpokanum í ofninn og
stundarfjórðungi síðar er ostabrauðið
tilbúið, nýtt og rjúkandi á borðið.
Guðrún Einarsdóttir
_______Myndlist____________
Eiríkur Þorláksson
í Gallerí einn einn neðst við
Skólavöt-ðustíginn stendur nú yftr
sýning á verkurn ungrar listakonu,
Guðrúnar Einarsdóttur, sem hefur
vakið vaxandi athygli á undanförn-
um árum, og má m.a. benda á boðs-
sýningu hennar að Kjarvalsstöðum
á vegum menningamálanefndar
Reykjavíkurborgar á síðasta ári og
nýfenginn styrk úr Listasjóði Penn-
ans í því sambandi. Sú athygli bygg-
ir á sérstöðu þeirra efnistaka, sem
hún hefur tamið sér, og vekja ávallt
nokkra undrun hjá áhorfendum.
Guðrún hefur í málverkinu haldið
sig við að nota eingöngu hvítt eða
svart, og hefur byggt sýningar sínar
á öðrum hvorum kostinum; á sýn-
ingu hennar í Gallerí einn einn 1990
voru t.d. eingöngu verk í svörtum
lit, en að Kjarvalsstöðum voru ein-
ungis hvít verk. Að þessu sinni er
listakonan aftur að vinna með svart,
og fremra rými gallerísins er fyllt
svörtum flötum af ýmsum stærðum.
Svart hefur vissulega ýmis tákn-
ræn gildi í myndlist, t.d. hvað varð-
ar trúarlegar tiivísanir sem og sál-
fræðilegar; Þó er óvíst að slíkar
vangaveltur séu ofarlega á baugi
hjá listakonunni; hún er sem fyrr
fyrst og fremst að fást við þá form-
rænu möguleika, sem flöturinn býður
upp á hveiju sinni, og enn á ný má
sjá ijölbreytta mynsturgerð birtast í
hverri myndinni á fætur annarri.
Þau mynstur sem hér birtast eru
misjafnlega umfangsmikil og unnin
með ýmsum verkfærum. Hins vegar
eiga þau öll sameiginlegt, að með
þeirn tekst listakonunni í hveiju til-
viki að byggja upp afar næmt jafn-
vægi; hver flötur er eins og hann
þarf að vera, og gæti tæpast verið
öðruvísi. Þetta kemur einkum upp
Guðrún Einarsdóttir:
Málverk. 1994.
í hugann þegar litið er til þess á
hvern hátt Guðrún raðar myndunum
í ákveðna flokka, sem mynda þann-
ig sjálfstæðar heildir.
Til viðbótar mynsturgerðinni
sjálfri bætist nú við markvisst val
á stærðum og síðan uppsetning
verkanna. Litlar myndir eru settar
upp á afar skemmtilegan hátt á einn
vegg salarins, og mynda þar óreglu-
lega heild, samtímis því sem einstök
verk njóta sín fyllilega. Önnur verk
eru sett upp í myndröðum, sem ráð-
ast afi sameiginlegri stærð, og hent-
ar J>að vel á þessum stað.
I innri sal hefur Guðrún hins veg-
ar komið fyrir vatnslitamyndum, þar
sem að nokkru er leitast við að end-
urskapa þann myndheim sem birtist
í oliumyndunum. Það gengur ekki
upp; miðillinn hentar illa fyrir þann
skipulega leik mynsturs og áferðar,
sem er ríkjandi þáttur í verkum lis-
takonunnar, og þunnt rennsli og til-
viljun vatnslitarins vantar alla þá
fyllingu, sem er aðal hinna verkanna.
í umsögn um sýningu Guðrúnar
að Kjarvalsstöðum á síðasta ári velti
undirritaður upp þeim möguleika
að sá myndheimur sem listakonan
birtir áhorfendum væri of þröngur
og yrði fljótt tæmdur, en hafnaði
þeirri hugsun um leið með tilvísun
til þess að hér væri á ferðinni ung
listakona, sem ætti eftir að halda
áfram að þroskast. í ljósi þessarar
sýningar reyndist það rétt ályktun;
Guðrún hefur enn margt fram að
færa í fjölbreyttum mynstrum,
áferð, stærðum og uppsetningu
verka sinna, jafnvel þó þar sé allt
svart sem fyrr.
Sýning Guðrúnar Einarsdóttur í
Gallerí einn einn við Skólavörðustíg
stendur til sunnudagsins 13. mars,
og ættu listunnéndur endilega að
líta við.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Textíllist í Gall-
erí Umbru
Sigríður Knstinsdóttir opnar sýn-
ingu á textíl-myndverkum í Gallerí
Úmbru, Amtmannsstíg 1, í dag,
fimmtudaginn 10. mars, kl. 17.
Myndimanera unnar með blandaðri
tækni á tau. Sigríður lauk prófí frá
MHÍ 1985 og stundaði nám við
Goldsmith’s College í London sl. vetur.
Þetta er fyrsta einkasýning hennar,
en áður hefur hún tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima, í Danmörku og í
Eistlandi.
Sýningin mun standa til 30. mars
og er opin þriðjudaga til laugardaga
kl. 13-18 og sunnudaga kl. 14-18.
„Fljótandi uppstilling-
ar“ í Galleríi Sævars
Karls
Tumi Magnússon sýnir „Fljótandi
uppstillingar” í Galleríi Sævars Karls,
Bankastræti 9, 11.-30. mars. Hann
er fæddur 1957 og stundaði nám á
íslandi og í Hollandi á árunum 1976-
1980.
Tumi hefur haldið fjölda einkasýn-
inga m.a. í Norrænu listamiðstöðinni
í Sveaborg í Finnlandi. Hann hefur
einnig tekið þátt í samsýningum bæði
hérlendis og erlendis og má þar nefna
samsýningu í Kunstverein í Köln 1991.
Að þessu sinni sýnir listamaðurinn
smámyndir unnar með olíu á striga.
Sýningin er opin á verslunartíma, á
virkum dögum frá kl. 10-18.
Alúðarþakkir fceri ég öllum þeim, sem glöddu
mig með skeytum, gjöfum, kveðjum og heim-
sóknum á 90 ára afmœlinu.
Lifið heil.
Kœr kveðja,
Sólveig Ólafsdóttir
frá Strandseljum.
FÉLAC ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA
Ráðstefna um flutningamál
Ráðstefnan verður haldin þann 16. mars nk. kl. 13.30 í Háskólabíó, sal 2, ítengslum
við aðalfund Félags íslenskra stórkaupmanna.
Meðal efnis sem fjallað verður um:
- Hefur samkeppnisstaða í milliríkjaverslun batnað eða versnað
með tilliti til þróunar flutningsgjalda?
- Hver eru flutningsgjöld í íslandssiglingum?
- Hver eru flutningsgjöld í samkeppnislöndum íslands?
- Eru íslensk flutningasölufyrirtæki vel rekin?
Dagskrá:
1. Ávarp
Sighvatur Björgvinsson, viðskiptaráðherra.
2. Kynning á skýrslu Drewry Shipping Consultants, sem unnin
hefur verið fyrir FÍS og íslenska flutningakauparáðið um ís-
lenskan og alþjóðlegan flutningamarkað.
Mark Page, Senior Consultant.
3. íslenski gámaflutningamarkaðurinn í alþjóðlegu samhengi.
Birgir R. Jónsson, formaður FÍS.
4. Umræður.
Ráðstefnustjóri verður Stefán S. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri FÍS.
Skýrsla Drewrys er umfangsmesta úttekt, sem unnin hefur verið
á íslenska sjóflutningamarkaðinum fram til þessa.
Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er kr. 2.800 fyrir almenna
ráðstefnugesti. Afsláttur er veittur til félagsmanna. Birgir r jánSSOn
Skráning ráðstefnugesta fer fram á skrifstofu félagsins á 6. hæð í Húsi verslunarinnar.
Upplýsingar í síma 678910.
Félag íslenskra stórkaupmanna.
Flutningakauparáð.