Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
13
Menningarvika BISN 1994
MENNINGARVIKA Bandalags íslenskra sérskólanema verður haldin
12.-21. mars nk. og er þetta í fjórða sinn sem BÍSN stendur fyrir
framtaki sem þessu. Undirbúningnum fyrir menningarvikuna er nú
senn lokið og allt stefnir í það að þátttaka í skólunum verði góð og
nemendur skólanna eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til þess
að menningarvikan verði vel heppnuð. Dagskrá menningarvikunnar
verður með nokkuð hefðbundnu sniði og alls ekki ólík þeirri sem
verið hefur. Menningarvikan hefst 12. mars, Þá verður formleg opnun
í Tækniskóla íslands. Síðan rekur hver dagskrárliðurinn annan:
Laugardaginn 12. mars. Formleg
opnun á menningarviku BÍSN að
viðstöddum forseta íslands, frú Vig-
dísi Finnbogadóttur. Opnunin fer
fram í hátíðarsal Tækniskóla ís-
lands. Flutt verla ávörp og nemend-
ur úr Söngskólanum í Reykjavík og
Tónlistarskólanum í Reykjavík sjá
um tónlist. Boðið verður upp á veit-
ingar.
Sunnudagur 13. mars kl. 13-18.
Kynningardagur sérskólanna. Skól-
arnir kynna starfsemi sína ýmist
einir eða fleiri á hveijum stað. Kl.
13-17.Opið hús í Fiskvinnsluskól-
anum, Hvaleyrarbraut 13 í Hafnar-
firði. Sýnd verður frysting, söltun,
flökun og fleira í tengslum við verk-
lega kennslu. Kynnt verða matvæli
frá íslenskum fyrirtækjum. Leiðsögn
verður um skólann undir handleiðslu
nemenda. Kl. 18-23. íþróttamót
BÍSN. Keppnin verður haldin í
íþróttahúsi Hagaskóla. Keppt verður
Jóhanna Boga.
Jóhanna
Boga sýnir
í New York
SÝNING á myndum Jóhönnu
Bogadóttur verður opnuð í dag,
fimmtudag, í New York. Jóhanna
sýnir ný verk unnin með ýmiskon-
ar tækni í Unibank Gallery á
Manhattan fram til aprílloka.
Þetta er fyrsta sýning Jóhönnu í
New York.
Amerísk-skandinavíska lista-
nefndin gengst fyrir sýningunni í
samvinnu við Íslensk-ameríska fé-
lagið. Aðalræðismaður íslands í
borginni, Kornelíus Sigmundsson,
verður gestgjafi við opnun sýning-
arinnar síðdegis í dag. Sjálft gallerí-
ið er við 20 West 55th Street á
Manhattan.
Verk Jóhönnu eru meðal annars
í eigu Nútímalistasafnsins í New
York (MOMA), Alvar Aalto-safnsins
og Atheneum-safnsins í Finnlandi,
Minneapolis listamiðstöðvarinnar í
Minnesota og Listasafns íslands.
Hún lagði stund á myndlistarnám í
Nice, París, Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi. Síðustu 20 árin hefur
hún sýnt myndir í sínar á Norður-
löndum og víðar í Evrópu og vestan-
hafs í San Fransisco og Tacoma.
Jopadans - Kripalujópa
Kynning fim. 10. mars kl. 20.30.
Anamika frá Kripalumiðstöðinni
kynnir dansupplifunarnámskeið
sín, sem verða helgarnar
11 .-13. mars og fyrir fagfólk
18.-20. mars.
Jogastöðin Heimsljós,
í fótbolta, handbolta, körfubolta og
blaki.
Mánudagurinn 14. mars. Kl.
10-16. Myndlistarsýning í Höfða —
nemendagarði, Skipholti 27. Nem-
endur úr Myndlista- og handíðaskóla
íslands sýna verk sín. Fólki gefst
kostur á því að skoða Höfða. Sýning-
in verður opin alla virka daga vik-
unnar. Kl. 16-18. Nemendur í hand-
mennta-, myndmennta- og smíðavali
Kennaraháskóla íslands verða með
sýningu á verkum sínum í List-
greinahúsi Kennaraháskóla íslands,
Skipholti 37, 2. og 3. hæð. Sýningin
verður opin alla virka daga vikunn-
ar. Kl. 20. Tónleikar í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík, Skipholti 31.
Þriðjudagur 15. mars kl. 20. Hvað
vitum við um kynferðislegt ofbeldi?
Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum
og Hjörtur Aðalsteinsson hæstarétt-
ardómari flytja fyrirlestra og svara
fyrirspurnum. Dagskráin fer fram í
Kennaraháskóla Islands.
Miðvikudagur 16. mars kl. 20.
Óperukvöld í Söngskólanum í
Reykjavík. Dagskráin fer fram í sal
Söngskólans, Hverfisgötu 46 (bak-
hús).
Fimmtudagur 17. mars kl. 20.
Opið hús í Tækniskóla íslands,
Höfðabakka 9. Á dagskrá verður
meðal annars lifandi tónlist, kara-
oke-tæki og vínsmökkun. Kl. 21.
Salí-kvöld á Cafe Bohem, Vitastíg
3. Leiklist, myndlist og tónlist á
vegum listaskólanna innar. BISN.
Föstudagur 18. mars kl. 23. Ball
í Tækniskóla íslands. Hljómsveitin
Karma, sem er að stórum hluta skip-
uð af nemendum úr Tónlistarskólan-
um, sér um fjörið.
Laugardagurinn 19. mars kl
13-18. Opið hús í Fósturskóla Ís-
lands við Leirulæk. Kl. 13-17. Ráð-
•.stefna á vegum Æskulýðssambands
íslands í tilefni af ári fjölskyldunn-
ar. Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Unga fjölskyldan, jafnrétti, staða“
pg er haldin í sal Kennaraháskóla
íslands. Aðgangur er ókeypis og
verða kaffiveitingar á vægu verði.
Kl. 13.30-17.30. Árlegur kynning-
ardagur Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Nemendur kynna tæki
og búnað skólans. Ýmis fyrirtæki
og stofnanir verða með kynningu á
tækjum og starfsemi sem tengjast
sjávarútvegi og siglingum. Þyrla
L'andhelgisgæslunnar mætir á stað-
inn (ef aðstæður leyfa).
Sunnudagur 20. mars kl. 14-18.
Fjölskyldudagur á Hressó. Kórar,
ljóðaupplestur, brúðuleikhús, mini-
golf og fleira. Boðið verður upp á
andlitsmálningú fyrir yngri kynslóð-
ina. Kl. 14-18. Sæbjörg, skip Slysa-
varnaskóla sjómanna, kynnt í
Reykjavíkurhöfn. Tækifæri gefst til
að reyna flotgallasund og fleira sem
kennt er í Slysavarnaskólanum.
Menningarvakan er öllum opin og
aðgangseyrir að dagskrárliðum eng-
inn.
Eins og áður hefur komið fram
verður BISN 15 ára á þessu ári og
af því tilefni verður gefín út ljóða-
og smásagnakver og verður útgáfan
í tengslum við menningarvikuna.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
í tilefh’
afm^ 11
'U
í stora sal K.R. við Frostaskjol
laugardaginn 12. mars 1994
kl. 19.30 (húsið opnar 18.45)
Morthe’í
áubbleflies
/<fSí\ TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
SEGULL HF.
Miðaverð
aðeins kr. 600.
Leið 3 gengur
að K.R.-heimili.
Aldurstakmark 13 ára.