Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Umboðsmaður bama
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Frumvarp um stofnun umboðs-
manns barna liggur nú fyrir Al-
þingi. Verði það að lögum er stigið
mjög mikilvægt skref til að tryggja
betur hag og réttindi barna í þjóðfé-
laginu.
Hér er um mikið mannréttinda-
og réttaröryggismál að ræða. Þetta
vegur ekki síst þungt fyrir þær
sakir að böm og ungmenni á aldrin-
um 0-18 ára, sem frumvarpinu er
ætlað að ná til, eru mun stærri hluti
af heildarmannfjölda hér á landi en
í vestrænum löndum, eða tæp 30%
á meðan þessi aldurshópur er í flest-
um vestrænum löndum 20-25% af
mannfjölda.
Réttindi barna
Umræður um málefni barna,
réttarstöðu þeirra og réttaröryggi
hafa vissuleg verið ofarlega á baugi
undanfarin ár, jafnt á alþjóðavett-
vangi sem og meðal einstakra
þjóða. í kjölfar þeirrar umræðu
samþykktu Sameinuðu þjóðirnar
samning um réttindi barna, Bama-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Starfsemi og stofnun umboðsmanns
fyrir börn er í rökréttu samhengi
við þá þróun sem orðið hefur á al-
þjóðavettvangi. Það felur í sér að
litið er á böm sem sjálfstæðan rétt-
indahóp og að enn frekari ráðstaf-
anir en þegar hefur verið gripið til
verði að gera til að vemda réttindi
þeirra. Þessar ráðstafanir lúta öðm
fremur að atriðum eins og þróun
löggjafarinnar og framkvæmd
hennar og í raun og veru hvaðeina
sem börn snertir.
Hafa verður í huga að skipulag
idec
MIGRO-1PLC
IÐNAOARTÖLVUR
á hagstæðu verði
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
samfélagsins og ákvarðanir hvers
konar er hvort tveggja ríkulega
miðað við þarfír fullorðinna. Sjónar-
mið barna og þarfír víkja gjarnan
eða gleymast. Embætti umboðs-
manns bama er ætlað að varna því
að þetta gerist.
Lífsskilyrði barna
Án efa búa börn á Norðurlöndum
við einhver hagstæðustu uppeldis-
skilyrði sem þekkjast. Lífskjör þess-
ara landa eru með þeim bestu í
heiminum, með tilliti til heilsu-
gæslu, menntunar og almennrar
félagslegrar velferðar. En á þessari
mynd er þó önnu hlið. Æ fleiri fjöl-
skyldur flosna upp og börn verða
fómarlömb togstreitu í ágreiningi
foreldranna um forsjá þeirra. Ár-
lega þurfa 500 börn að ganga í
gegnum skilnað foreldra sinna.
Notkun á vímuefnum og sjálfsvíg
á meðal barna og ungmenna fara
vaxandi og ýmis félagsleg vanda-
mál hafa aukist og orðið flóknari
og erfiðari viðfangs. Sú staðreynd
er einnig óþolandi að fleiri böm
látast og slasast í umferð hér á
landi en víðast annars staðar. Bent
hefur verið á að það forskot sem
við höfum hvað varðar lifandi fædd
börn hafi allt tapast þegar sömu
börn hafa náð 14 ára aldri.
Afskipti af 800 börnum
Benda má einnig á að barna-
vemdaryfírvöld hér á landi fá form-
lega ábendingar um mál nær 1.300
barna á ári hveiju og hafa formlega
afskipti af nær 800 börnum á ári.
Þessi fjöldi segir þó tæpast nema
hálfa söguna um hvernig velferðar-
málum barna hér á landi er komið.
Oft hefur verið bent á hve börn
eigi erfitt uppdráttar þegar skipu-
lagsnjál, umferðarmál og fleiri mál
eru annars vegar. Og afleiðingar
þessa má víða sjá, svo sem að fram-
an hefur verið minnst. Þegar betur
er að gáð snerta málefni barna mun
fleiri svið en í fyrstu virðist. Flestar
ef ekki allar ákvarðanir sem teknar
eru, bæði af stjórnvöldum og hjá
einkaaðilum, snerta börn á einhvern
hátt. Hins vegar er því oft lítill
gaumur gefínn með hvaða hætti
það sé. Þá er auðvitað vert að hafa
í huga að öll löggjöf breyting á
henni og þróun hennar skiptir börn
afar miklu máli.
Vettvangur fyrir börn
Með stofnun umboðsmanns
bama er kominn vettvangur fyrir
börn þar sem þau eiga þess kost
að geta beint og milliliðalaust notið
ásjár og liðsinnis sérstaks embætt-
ismanns sem talar þeirra máli og
vinnur að hvers konar „almennum"
velferðarmálum þeirra, málum sem
snerta flest ef ekki öll börn. Öllum
verður heimilt að leita til umboðs-
mannsins með erindi sín. Væntan-
lega verða settar nánari reglur um
þessi atriði en mjög mikilvægt er
að börnum sé gert eins auðvelt fyr-
ir í þessu efni og kostur er. í Nor-
egi er sérstakt símanúmer auglýst
þangað sem börn geta hringt hve-
nær sem er, ýmist rætt við umboðs-
manninn eða starfsmenn hans eða
lagt skilaboð utan hefðbundins
vinnutíma og fengið upphringingu.
Nýjar leiðir
Tilgangurinn með þessari laga-
setningu er að tryggja enn betur
en nú er gert, og með nýjum hætti,
að réttindi barna og velferð verði
tryggð hvort heldur er í löggjöf, við
stjórnvaldsákvarðanir eða hvað
varðar athafnir einkaaðila. Mikil-
vægt er að gera sér grein fyrir þvl
að með stofnun embættis umboðs-
manns bama er ekki ætlunin að
starfsemin fari inn á svið stjórn-
valda sem fýrir eru, svo sem barna-
vemdaryfírvalda og umboðsmanns
Alþingis.
Þannig er ekki ætlunin að hrófla
við fjölmörgum lagafyrirmælum
sem leggja ýmsar skyldur á herðar
einstaklingum, stjórnvöldum eða
stofnunum sem nálægt málefnum
barna koma. Umboðsmanni barna
er þannig svo dæmi sé tekið ekki
ætlað að hafa afskipti af málum
þar sem deila ríkir milli foreldra
um forsjá bama sinna eða annars
Jóhanna Sigurðardóttir
„Æ fleiri fjölskyldur
flosna upp og börn
verða fórnarlömb tog-
streitu í ágreiningi for-
eldranna um forsjá
þeirra. Arlega þurfa
500 börn að ganga í
gegnum skilnað for-
eldra sinna.“
konar ágreiningi einstaklinga í
milli. Löggjafinn hefur nú falið
þetta verkefni ýmsum stjórnvöldum
og stofnunum og við þeirri tilhögun
verður ekki hróflað. Á hinn bóginn
myndi umboðsmaðurinn í slíkum
tilvikum leiðbeina aðilum sem til
hans leituðu I þessu efni um þær
leiðir sem færar era innan stjórn-
sýslu, hjá dómstólum eða öðrum
sem aðilar vildu leita til við að leysa
ágreining sinn. Teldi umboðsmað-
urinn hins vegar að á skorti að
málum einstakra barna væri sinnt
að þessu leyti kemur hann ábend-
Yestfirðingar vilja
bjarga sér sjálfir
eftir Ásgeir Þór
Jónsson
Nýlega ákvað ríkisstjómin að
veija 300 milijónum króna til aðstoð-
ar við byggðavanda Vestfjarða.
Vissulega ber að meta skilning ráða-
manna á vanda Vestfjarða, en því
TÖLVUNÁM 60 KLST.
HNITMIÐAÐ - ÓDÝRT - VANDAÐ
60 klst. tölvunám er markvisst námskeið
íyrir alla, þar sem sérstök áhersla er lögð
á notkun tölva í atvinnulífinu.
Þú lærir:
Almenna tölvufræði
MS-DOS og Windows gluggakerfið
Ritvinnsluna Word íyrir Windows
Exeel töflureikni og áætlanagerð
Tölvusamskipti
Nýjar veglegar bækur fylgja - Engin undirbúnlngsmenntun
Fálð sendan bækling! - Innritun hafin
Tölouskóli Revkjavíkur
BORGARTÚNI 28. 105 REyKJflUÍK. SÍmi 616699. fax 616696
miður er vandinn stórtækari og ræt-
ur hans dýpri en svo að þessi upp-
hæð fái miklu breytt.
Eina leiðin er meiri kvóti
Það sem okkur Vestfírðinga vant-
ar eru ekki fleiri byggðastyrkir held-
ur aukinn kvóti. Við viljum hjálpa
okkur sjálf, en ekki vera á framfæri
annarra. Byggðimar á Vestfjörðum
og atvinnulíf allt byggist á sjávar-
fangi og hér er ekki um aðra at-
vinnustarfsemi að ræða sem menn
geta snúið til. Ef þorskkvóti Vest-
fírðinga klárast þegar enn eru 4-5
mánuðir eftir af fískveiðiárinu, þá
stoppar allt athafnalíf, ekkert mun
haldast gangandi nema skóli og
sýslumannsembætti.
Hversu lengi á að hunsa ráð
sjómanna
Vestfírskir sjómenn hafa mikla
reynslu og þekkingu á miðunum og
lífríki þeirra. Það er nánast sam-
dóma álit þeirra að ástandið hafí
batnað til muna. Nóg sé af físki I
sjónum og afiabrögð hafa verið góð.
Það er því blóðugt fyrir þá að þurfa
að horfa upp á fískinn synda fram-
hjá án þess að geta dregið björg I
bú. Svipaðar raddir heyrast nú frá
embætti veiðimálastjóra og ýmsir
fískifræðingar hafa verið á þessari
skoðun. Samt sem áður er kennivald
Hafrannsóknarstofnunar það sem
blífur.
Auðvitað á að taka tillit til vísinda-
legra sjónarmiða og tefla ekki á
tæpasta vað með þorskstofninn.
Hafrannsóknir eru hins vegar ekki
algild vísindi og nú hníga mörg
umhverfis- og reynslurök I aðra átt.
Það er ekki hægt að hunsa I sífellu
skoðanir þeirra sem lifa af sjávarút-
vegi og hafa þekkingu og reynslu
af sjósókn og aflabrögðum.
Skuldbreyting sjálfsögð
Þegar útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtæki á Vestfjörðum tókust á
herðar þær skuldbindingar sem nú
eru að falla I vanskil, var efnahags-
umhverfið allt annað. Þorskafli var
mun meiri og sú gífurlega skerðing
sem orðið hefur I aflaheimildum var
ekki fyrirsjáanleg. Lánin voru því
tekin miðað við forsendur sem nú
hafa brugðist. Af þessum sökum
verður að telja sjálfsagt að lána-
stofnanir, einkum á vegum hins op-
inbera, skuldbreyti lánum sjávar-
útvegsfyrirtækja og tengi endur-
greiðslur á einhvern hátt við afla-
heimildir. Menn mega ekki gleyma
því að aflaheimildirnar hafa verið
skertar með stjórnvaldsaðgerðum og
kvótakerfinu var þröngvað upp á
okkur Vestfírðinga með valdboði.
Kvótakerfið springur
Hér að framan hef ég fjallað um
vanda Vestfírðinga og vilja þeirra
til að hjálpa sér sjálfir I stað þess
að þiggja styrk. Fyrir utan bæjar-
dyrnar á Vestfjörðum eru gjöfulustu
fískimið landsins og auðvitað svíður
mönnum sárt að geta ekki nýtt nátt-
ingum sínum þar að lútandi á fram-
færi.
Sakir æsku sinnar hafa börn
ekki tök á því að koma réttinda-
og hagsmunamálum sínum á fram-
færi. Þannig má líta á að embætti
umboðsmanns barna sé I rauninni
ekki síður mikilvægt en embætti
umboðsmanns almennings, sem
umboðsmaður Alþingis er.
Hlutverk umboðsmanns barna
Með frumvarpinu um umboðs-
mann barna hér á landi er gert ráð
fyrir að hann geti tekið mál til
meðferðar að eigin frumkvæði eða
eftir ábendingum. Umboðsmanni
barna er ætlað að hafa framkvæði
að stefnumarkandi umræðu I sam-
félaginu um málefni barna. Þetta
er eitt af mikilvægustu hlutverkum
hans. Hann skal koma á framfæri
tillögum sínum um úrbætur á rétt-
arreglum og fyrirmælum stjórn-
sýsluhafa er varða börn sérstak-
lega. Þriðja atriðið lýtur að hlut-
verki hans varðandi þjóðréttar-
samninga, en það er að stuðla að
því eftir mætti að virtir séu samn-
ingar er varða réttindi og velferð
bama og fullgildir hafa verið af
íslands hálfu. Síðast en ekki síst
skal umboðsmaður barna bregðast
við telji hann að stjórnvöld, einstakl-
ingar, félög og samtök einstaklinga
hafí með athöfnum sínum eða at-
hafnaleysi brotið gegn réttindum,
þörfum og hagsmunum barna I
samfélaginu.
Þannig mun starfsemi umboðs-
manns barna beinast hvort heldur
er að einkaaðilum, löggjafa eða
stjórnvöldum. Honum er þannig
ætlað að hafa jákvæð áhrif á við-
horf almennings til barna og mál-
efna þeirra, ásamt því að hafa frum-
kvæði að gagnrýninni umræðu um
stöðu þeirra og vera málsvari þeirra
I hvívetna.
Góðar undirtektir
Ég er þess fullviss að stofnun
umboðsmanns barna geti brotið
blað I réttinda- og hagsmunamálum
barna hér á landi. Málið hefur feng-
ið góðar undirtektir allra stjórn-
málaflokka á Alþingi. Þannig
standa vonir til þess að frumvarpið
verði að lögum nú á vorþinginu og
komi til framkvæmda um næstu
áramót.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Ásgeir Þór Jónsson
„Ef þorskkvóti Vest-
firðinga klárast þegar
enn eru 4-5 mánuðir
eftir af fiskveiðiárinu,
þá stoppar allt athafna-
líf, ekkert mun haldast
gangandi nema skóli og
sýslumannsembætti. “
úraauðlind Vestfjarða. Það er ekki
hægt að svipta menn lífsafkomunni
með stjórnvaldsaðgerðum sem ekki
byggj'a á sterkari rökum en mæling-
um einnar stofnunar I Reykjavík.
Ef ráðamenn bregðast ekki við
vanda Vestfjarða á þann eina hátt
sem dugir og auka þorskafla, þá
mun kvótakerfið springa.
Höfundur er formaður Mímis,
Fclags ungra sjálfstæðismanna í
N-ísafjarðarsýslu.