Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
flRÉ D€PflfiTW€NT
í 'Si éð Hqz. Mot. - Rescue
I I U.S. MfltfBL m StflTION K€FUWIK
# t’
Hamrahlíðarkórinn í 8 daga söngför um Bretland
Hafnar boði um söng í
BBC vegna fjárskorts
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Mengunarvarnir tímafrekastar
SLÖKKVILIÐIÐ á Keflavíkurflugvelli hefur nýlega tekið í notkun nýjan
eiturefnaneyðarbíl sem notaður er þegar stemma á stigu við spilliefnum.
Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri segir að slökkviiiðið hafi leitast við að
koma í veg fyrir alls kyns mengun síðastliðin_25 ár og nú veiji menn hans
meiri tíma í mengunarvamir en slökkvistarf. A síðasta ári fór 0,04% vinnu-
tímans í að slökkva eld en 0,06% til þess að sinna mengunarvörnum og sé
það til marks um nýja vídd í starfsemi slökkviliðsins. Nýi bíllinn hefur tekið
ýmsum breytingum frá því hann barst slökkviliðinu og segir Haraldur að
búið sé að smíða í hann ýmiss konar hirslur. Hann hefur meðal annars að
geyma reykköfunartæki, hlífðarfatnað, útbúnað til að stöðva leka og mottur
sem sjúga í sig spilliefni. Haraldur segir að mest séu menn að fást við olíu-
efni og stöku sinnum sýru, til dæmis geymasýru. Á myndinni stendur Stef-
án Eiríksson aðstoðarslökkviliðsstjóri við nýja eiturefnaneyðarbílinn.
HAMRAHLÍÐARKÓRINN heldur á laugardag upp í átta daga söng-
ferðalag um England og Skotland og mun syngja á átta stöðum.
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri segir að 60 kórfélagar haldi utan
og standa ráðuneyti utanríkis- og menningarmála straum af tæplega
helmingi kostnaðar við ferðina, en kórinn greiðir stærsta hlutann
sjálfur. Helmingi kórsins var boðið að syngja í morgunþættinum
„Big Breakfast" hjá BBC, en varð að hafna boðinu sökum þess að
því hefði fylgt umframkostnaður að upphæð 300 þúsund krónur
vegna breytinga á fiugfargjaldi og fjölgun hótelnátta. „Þetta hefði
ekki orðið dýr auglýsing fyrir ísland í fjölmiðli sem nær til milljóna
manna, en við gátum ekki með þeim skamma fyrirvara sem við
höfðum, safnað þessari upphæð þó að hún sýnist ekki stórvægileg,"
segir Þorgerður.
Tildrög ferðarinnar eru 50 ára
afmæli íslenska lýðveldisins og hef-
ur Helgi Ágústsson, sendiherra ís-
lands í Bretlandi, haft veg og vanda
af skipulagningu þessarar miklu
listkynningar með glæsibrag, að
sögn Þorgerðar. Leiðarljós við
skipulagningu ferðarinnar var að
hafa viðkomu á þeim stöðum sem
tengjast viðskiptahagsmunum og
samskiptum við ísland, ásamt þeim
stöðum þar sem menningar- og
landkynning félli í fijóa jörð, m.a.
urbjörnsson sem hann lauk við í
janúar síðastliðnum. Einnig mun
kórinn syngja verk eftir helstu tón-
skáld endurreisnartímans, m.a.
Harmljóði Jeremía eftir ítalann
Palestrina sem kórinn hljóðritaði
fyrir evrópskar útvarpsstöðvar í
janúarmánuði í tengslum við 400.
ártíð tónskáldsins.
-------♦ ♦ ♦--------
í Manchester, Liverpool og í
vinnslustöðvum fyrir íslenskan fisk
í Grirnsby og Hull.
Áhersla á íslenska tónlist
Þorgerður segir, að lögð verði
áhersla á íslenska tónlist í söngskrá
kórsins að þessu sinni, og þess
freistað að sýna þverskurð af tón-
listarsögunni hér frá tvísöng, þjóð-
lögum og til tónsmíða nútímatón-
skálda. Meðal annars mun kórinn
frumflytja verk eftir Hróðmar Sig-
Umræður um THQRP-verið á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi
Ráðherrar efast um gildi auka-
fundar Parísarnefndariiuiar
Áhugahópur um
skóladagheimili
Osáttur við
áætlun um
breytingar
ÁHUGAHÓPUR um skóladag-
heimili Reykjavíkur telur að
áætlun Dagvistar barna og
Skólaskrifstofu um breytingar á
þjónustu skóladagheimila sé al-
gerlega ófullnægjandi og í raun
óframkvæmanleg í núverandi
skólaskipulagi. Helstu breyting-
arnar eru þær að loka á fjórum
skóladagheimilum, eða þriðjungi
þeirra sem nú eru starfandi, og
á þeim sem eftir verða á að skera
niður þjónustuna úr heilsdags-
vistun í hálfsdagsvistun.
Stokkhólmi. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hvatti norræna umhverfisráðherra
til að standa saman í aðgerðum gegn THORP-lgarnorkuendurvinnslu-
verinu í Sellafield á Englandi í almennum umræðum á Norðurlanda-
ráðsþingi í fyrradag. Málið setti einnig svip sinn á langar umræður
um umhverfismál í gær, meðal annars af því að Kristín Einarsdótt-
ir spurði norrænu umhverfísráðherrana hvort þeir vildu styðja til-
lögu um aukafund í Parísarnefndinni, en aðild að henni eiga lönd,
sem liggja að Norður-Atlantshafi. Þó norrænu umhverfisráðherran-
ir styðji mótmæli gegn rekstri THORP-versins, er meirihluti þeirra
hlynntur þvi að beðið verði með málið þar til á júnífundi nefndarinn-
ar. Thorbjorn Berntsen umhverfisráðherra Noregs sagði að hann
áliti það ekki þjóna málstaðnum. Sömu ástæður gefa Svend Auken
og Olof Johansson umhverfísráðherrar Danmerkur og Svíþjóðar.
Norrænir umhverfisráðherrar
hafa undanfarin ár í sameiningu
mótmælt endurvinnsluverinu og
Danir hafa reynt að fylgja málinu
eftir, fyrir hönd Grænlands og
Færeyja. Á fundi umhverfisráðherr-
anna bar Össur Skarphéðinsson
umhverfísráðherra fram tillögu um
að ráðherramir hvettu til aukafund-
ar í Parísarnefndinni, en reglulegur
fundur nefndarinnar verður í júní.
Starfsbræður hans styðja ekki hug-
myndina. Þijú lönd þurfa að styðja
tillögu um aukafund, til að hann
fáist.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Svend Auken að Danir hefðu árang-
urslaust reynt að hefja málið á fleiri
en einum vettvangi. Á síðasta ári
hefðu þeir fengið samþykkt í París-
amefndinni bann við að veita
geislavirku efni í hafíð, en Bretar
hefðu ekki greitt því atkvæði. Einn-
ig hefðu þeir reynt að taka upp
málið í ráðherranefnd Evrópusam-
bandsins, auk þess að skrifa bréf
og senda mótmæli til ensku stjóm-
arinnar. Síðast hefðu Danir fengið
málið tekið upp í ESB-nefndinni,
til að láta reyna á hvort starfsleyfí
til versins stríddi ekki gegn um-
hverfísákvörðunum sambandsins.
Auken sagðist styðja að málið yrði
tekið upp í Parísarnefndinni einu
Nýtt tímarit er komið út
VONIN, pósth. 352, 210 Gb.
Flytur kristilegar hugvekjur,
fróðleik og umfjöllun um
spádóma Biblíunar m.a.
með tilliti til nútímans.
Áskriftarsími 91-651203.
sinni enn, en sagðist ekki trúaður
á að aukafundur þjónaði tilgangi.
Hætta væri á að fáir mættu og að
Englendingar mættu alls ekki. Um
leið yrði hugsanlega erfítt að fá
málið tekið upp aftur á júnífundin-
um. Um það hveija hann teldi
möguleikana á að fá verinu lokað,
sagðist'Auken því miður vera svart-
sýnn. Það væri afar gremjulegt hve
enska stjómin stæði fast á rekstrin-
um, en pólitískur þrýstingur væri
eina leiðin.
Thorbjörn Berntsen er sama
sinnis og Auken, að ekki borgi sig
að fara fram á aukafund í Parísar-
nefndinni. í júní koma hins vegar
allir, undantekningalaust og þá
verður réttur vettvangur til að taka
málið upp, sem samnorrænt mál.
Hann telur sjálfsagt að bera upp
tillögu um að nefndin fari fram á
að enska stjórnin beiti sér fyrir að
verinu verði lokað. Þetta falli einnig
undir þá stefnu að hvert land sjái
sjálft fyrir sínum geislavirka úr-.
gangi, í stað þess að hann sé flutt-
ur milli landa og í þessa átt sé sterk
tilhneiging. Einnig hefði verið bent
á að rekstur versins væri óþarfur,
því ekki vantaði brennsluefni í
kjarnorkuver og því óþarfi að end-
urvinna úrgang til þess. Berntsen
sagði að tíminn myndi leiða í ljós
hvort mótmælin dygðu, en pólitísk-
ur þrýstingur væri örugglega eina
færa leiðin.
Hjörleifur Guttormsson lagði
spurningu fyrir ráðherranefndina
um viðbrögð hennar við væntanlega
stóraukinni mengun frá Dounreay
og Shellafíeld, meðal annars um
möguleikana á að bregðast við
rekstrinum innan EES og spurði
hvort hikandi afstaða sænsku
stjórnarinnar í málinu stafaði af því
að Svíar senda úrgang til endur-
vinnsluversins. Olof Johansson
svaraði að hann teldi ekki hægt að
bregðast við innan EES, en þó sér
þætti óskemmtilegt að Svíar hefðu
viðskipti við verið, hefði það ekki
áhrif á afstöðu sína. Hjörleifur
kvaðst hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með svar og afstöðu Jo-
hanssons.
Olof Johansson sagði í samtali
við Morgunblaðið, að vissulega
væri hann ekki ánægður með stöð-
una í málinu. Um tortryggilega
afstöðu Svía í málinu, eins og Hjör-
leifur léti í veðri vaka, sagði Johans-
son að samningur Svía við endur-
vinnsluverið væri fortíðarsyndir frá
Norsku þingmennirnir bentu
meðal annars á að Evrópa og Evr-
ópusambandið væru ekki einn og
sami hluturinn og að andstæðingar
ESB vildu ekki einangra sig. Bildt
svaraði að það væri einmitt það sem
þeir vildu, þó þeir segðu annað.
Vissulega væri hægt að halda því
fram að það að standa einn væri
að vera sjálfstæður og sterkur.
Þannig hefði Róbinson Krúsó vissu-
lega verið einn og sterkur, meðan
sjöunda áratugnum, sem honum
þætti hann sjálfur ekki bera ábyrgð
á. Um aukafund í Parísarnefndinni
sagði hann, að tillögunni hefði ekki
verið hafnað, en það væri út í hött
að fara að kalla saman aukafund,
án þess að tryggt væri að hann
bæri árangur. Tíminn skipti ekki
máli, heldur að aðgerðirnar bæru
árangur.
Össur Skarphéðinsson sagði, að
skoðanir ráðherranna væru mis-
munandi. Sjálfur teldi hann auka-
fund heppilegan til að ayka alþjóð-
legan þrýsting á Breta, en hann
væri ekki bjartsýnn á að hægt
væri að stöðva rekstur versins. Sið-
ferðilega væri afstaða Breta óveij-
andi, því hún gengi þvert á allar
reglur, sem settar hefðu verið und-
anfarin ár.
hann var einn á eyðieyjunni, en
misst svolítið af sjálfstæði sínu,
þegar Fijádagur kom til sögunnar
og enn meir, þegar hann komst í
burtu af eyjunni. En samvinna og
samveran var meira virði. í stjórn-
málum nútímans, sagði Bildt að
ekki væru aðstæður til Róbinson
Krúsó pólitíkur á eyðieyju.
Myndin af Róbinson Krúsó var
tekin upp af finnskum sjónvarps-
fréttamanni, sem spurði Esko Aho
Áhugahópurinn telur að breyt-
ingarnar þýði 66% niðurskurð á
núverandi skóladagheimilaþjón-
ustu, en samkvæmt greinargerð
Dagvistar barna og Skólaskrifstofu
eigi að bæta börnunum það upp
með heilsdagsskóla. Gallarnir á
þessari áætlun séu þeir að fram-
kvæmd breytinganna sé ekki skil-
greind, og liggi vandinn í því hvar
börnin eigi að vera hinn helming
dagsins þegar skólinn er lokaður.
Heilsdagsskólinn starfí einungis þá
daga sem kennsla sé, og engin
áætlun hafí verið gerð um það
hvernig þjóna eigi börnunum í
skólafríum. Því virðist sem verið sé
að leggja til að börnin flytjist í
hádeginu á frídögum milli skóla-
dagheimilis og heilsdagsskóla, án
þess að skilgreint sé hver starfsemi
heilsdagsskólans sé.
hvort ísland væri eins og Róbinson
Krúsó í dæmisögu Bildts. Aho svar-
aði að svo væri ekki, en einnig skipti
máli að hafa í huga að ísland væri
klárlega eitt af fímm Norðurlöndum
og undirstrikaði mikilvægi norr-
ænnar samvinnu, þrátt fyrir hugs-
anlega aðild hinna landanna að
Evrópusambandinu.
Hjörleifur Guttormsson spurði
Esko Aho hvort Finnland ætlaði að
gera eins og Svíar og láta hlutleysi
sitt lönd og leið. Aho svaraði og
sagði að hann áliti ekki að Finnar
ættu nokkra möguleika hvað snerti
öryggismál sín, en hann áliti ekki
að með aðild að ESB tækju Finnar
þátt í hernaðarbandalagi, sem kæmi
í staðinn fyrir innlendar varnir.
Öryggiskerfi Evrópu yrði þróað að
nýju á næstu árum og Finnar sæju
mikla hagsmuni í að vera með í því.
Carl Bildt forsætisráðherra Svíþjóðar á Norðurlandaráðsþingi
Lönd utan ESB í spor-
nm Róbinsons Krúsós
Stokkhólmi. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
FJÖRLEGAR umræður hafa orðið í almennum umræðum á þingi
Norðurlandaráðs um afstöðuna til Evrópusambandsins. Meðal ann-
ars átti Carl Bildt forsætisráðherra Svía orðastað við nokkra norska
þingmenn, sem eru á móti aðild Noregs að sambandinu, um einangr-
un þeirra landa, sem standa utan þess, þar sem Bildt tók dæmi af
Róbinson Krúsó og Frjádegi. í sjónvarpsfréttum finnska sjónvarps-
ins var Esko Aho forsætisráðherra Finnlands meðal annars spurður
hvort ísland væri í sporum Róbinsons Krúsós. Einnig urðu orða-
skipti milli Hjörleifs Guttormssonar og Aho um hvernig hlutleysis-
stefna Finna samræmdist aðild að ES.