Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Korta-
viðskiptin námu
56 milljörðum í fyrra
GREIÐSLUKORTAVIÐSKIPTI
námu á síðasta ári alls 56 millj-
örðum króna og jukust því um
þrjá milljarða milli áranna 1992
og 1993 eða um 6%. Þar af námu
kortaviðskiptin innanlands 48,5
milljörðum króna.
Kortaviðskiptin jukust hins veg-
ar mun meira millí áranna 1991
og 1992, um 5,6 milljarða eða um
12%. Þá hefur dregið talsvert úr
kortafalsi með tilkomu rafræns
búnaðar. Kortafals nam um fjórum
milljónum kr. á síðasta ári og
minnkaði um eina milljón frá fyrra
ári, en talið er að tékkafölsun nemi
árlega 30-40 milljónum króna á
ári. ■
Kókó úr fitulítilli mjólk
NÝR mjólkur-
drykkur er nú
kominn á mark-
að frá Mjólk-
ursamsölunni.
Drykkurinn
hlaut einfaldlega
nafnið Kókó og í
tilkynningu frá
MS segir að um
sé að ræða
geymsluþolinn
og bragðléttan
kakódrykk, þar
sem meginuppi-
staðan sé fítulítil
mjólk.
Kippur í notkun á
Þjónustusíma banka og sparisjóða
KIPPUR kom í síaukna notkun þjónustusíma banka og sparisjóða
eftir að gjaldtaka vegna reikningsyfirlita hófst í febrúar. Frá því í
ágúst hafa að jafnaði 2.000 ný reikningsnúmer tengst símanum
mánaðarlega. Hins vegar fjölgaði nýjum númerum um tæp 6.000 í
febrúar. Innan skamms verður hægt að millifæra og greiða af lánum
með aðstoð Þjónustusímans.
Helgi H. Steingrímsson, formað-
ur samstarfsnefndar Reiknisstofu
bankanna, segir að í janúar hafi
74.473 tékkareikningar og 26.219
sparisjóðsreikningar eða samtals
100.692 reikningar verið tengdir
Þjónustusímanum. Mánuði síðar
hafi hins vegar 78.946 tékkareikn-
ingar og 27.473 sparisjóðsreikning-
ar eða 106.419 reikningar verið
tengdir Þjónustusímanum.
Hvað hringingar varðaði sagði
hann að í janúar hefði verið hringt
173.105 sinnum vegna tékkareikn-
inga og 13.855 vegna sparisjóðs-
reikninga eða 186.960 sinnum sam-
tals. Mánuði síðar hefðu hringingar
vegna tékkareikninga hins vegar
verið 197.785 og hringingar vegna
sparisjóðsreikninga 21.011, eða
samtals 218.796 hringingar.
Tengdum tékkareikningum fjölgaði
úr um 59.000 í febrúar árið 1993
i tæplega 79.000 í liðnum mánuði,
eða um tæplega 20.000 á einu ári.
Helgi sagði að ánægju vekti
hversu notkun þjónustusímans
hefði aukist mikið á skömmum tíma
og benti á að um svipaða þróun
væri að ræða og í nágrannalöndun-
um. Viðskiptavinum bankanna væri
beint að sjálfvirkri þjónustu og yrði
hún sífellt fullkomnari. Nefndi hann
í því sambandi að ekki liði á löngu
þar til hægt yrði að millifæra fé frá
einum reikningi reikningshafa á
annan reikning í hans eigu og
greiða lán með aðstoð þjónustusím-
ans.
Notkun
Ef hringt er í Þjónustusíma af
svæðisnúmeri 91 skal velja síma-
númerið 624444 en annars græna
númerið 996444 og telst hvort
tveggja innanbæjarsímtal. Síðan er
beðið eftir sambandi og valdir tíu
stafir, bankanúmerið (fjórir stafir)
og reikningsnúmerið (sex stafir).
Að lokinni síðustu tölunni er valinn
femingur, síðan slegið inn fjögurra
stafa leyninúmar og femingur að
nýju. Fást þá upplýsingar um rétta
stöðu á tékkareikningnum og allt
að 20 síðustu færslur. Hægt er að
fá yfirlitið endurtekið með því að
ýta á einn og ferninginn.
Lesturinn er stöðvaður með því
að ýta á ferninginn og breytt er
um leyninúmer með því að ýta á
tvo og ferninginn. Að því loknu er
leyninúmerið slegið inn og ýtt á
ferninginn að lokum. Upphaflegt
leyninúmer fá viðskiptavinir í við-
skiptabanka eða sparisjóði sínum.
Aðeins er hægt að nýta sér þjón-
ustusímann úr takkasíma. ■
Páskar
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 27. mars nk., fylgir blaðauki sem heitir Páskar.
í þessum blaðauka verður fjallað um páskahátíðina og siði sem henni tengjast.
Þar verður að finna uppskriftir að páskamat og tertum, heimatilbúnum páskaeggjum
og páskaskrauti. Litið verður inn hjá fjölskyldu sem býður til páskamorgunverðar
og forvitnast um páskasiði í útlöndum, svo fátt eitt sé nefnt.
Þeim sem hafa áhuga á aö auglýsa í þessum blaðauka, er bent á aö tekið er við
auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 21. mars.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Helga Guðmundsdóttir
og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar,
í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110.
• kjarni málsins
Kjöt má ekki
geyma of lengi í frysti
EFTIR tilboðstíð á kjöti er ekki
að efa að víða hafi frystikistur
verið stútfylltar af ýmis konar
kjötvörum. Neytendur hafa séð
sér hag í að birgja sig upp og
eflaust hafa einhverjir haldið að
geyma mætti kjötið nánast enda-
laust í frosti.
Því fer hins vegar ljarri og feng-
ust þær upplýsingar hjá Steinunni
Ingimundardóttur hjá Leiðbeingar-
stöð heimilanna að kjöt þyldi minni
geymslu eftir því sem það væri fitu-
meira. Hún sagði að geyma mætti
nautakjöt í frysti uppundir ár án
þess að gæði þess rýmuðu. Hins
vegar væri svína-, kálfa- og lamba-
kjöt best innan 8 mánaða. Fugla-
kjöt mætti geyma í 8 til 10 mánuði
nema ef um feitan fugl væri að
ræða. Hann þyldi ekki meira en 3
mánaða geymslu.
Gæði rými
Ekki er ráðlegt að geyma blóð-
mör og lifrapylsu, lifur og lifrakæfu
lengur en 6 til 8 mánuði og hráa
kjötrétti ekki lengur en 3 mánuði.
Magran fisk ætti ekki að geyma
lengur í frysti en 4 til 6 mánuði
og feitan ekki lengur en 2 til 4
mánuði.
Þess skal getið að leiðbeiningarn-
ar eiga aðeins við sé umrædd mat-
vara í viðeigandi umbúðum og frost
á bilinu 18 til 20 stig. Ef maturinn
er geymdur lengur en ráðlegt er
rýrna gæði, t.d. getur fita þránað.
Hins vegar er ekki hætta á matar-
eitrun svo lengi sem frost. helst.
Metrinn af Lotuspappír
kostar 1,50 kr. en ekki 2 krónur
ÞAU LEIÐU mistök áttu sér stað
við frágang á upplýsingum úr
skyndikönnun Daglegs lífs í síð-
ustu viku, að blaðafjöldi á salern-
nmm
KAFFIHLAÐBORÐ
Alhliðu véUluþjónustu
Frí heimsendingnrþjónmtu
Smurbrauðstofa Stínu
VEISLWÞJÖ N USTA
Sími: 68 44 11
isrúliu eins framleiðanda misrit-
aðist.
Skráð voru 148 blöð á hverri
rúilu af Lotus-pappír, en hið rétta
er að þau voru 198 talsins. Aðrir
útreikningar voru miðaðir við
skráðar upplýsingar um fjölda blaða
og lengd hvers blaðs og því skekkt-
ust heildarniðurstöður í könnuninni.
Hver metri af Lotus-pappír kostar
1,50 krónur en ekki 2 krónur eins
og gefið var upp.
Niðurstöður könnunarinnar eru:
metri
Fiz, endurunninn: 0,90 kr.
Blá Tern: 1 kr.
Hagkaups-pappír: 1 kr.
Dixcel Family value: 1,42 kr.
Lotus-pappír: 1,50 kr.
Lotus-Petite Fleur: 1,57 kr.
Dixcel-bieikur: 1,75 kr.
Excel námskeið
■ Tölvu- og verkfræöiþjónustan
líáifölvijskóli hjalldórs Kristjanssonar
GrensásÆgi 16 • © 68 80 90