Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Ódýrast að baka sjálfur
kransakökuna en verðið er
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Níels Jónsson, efnafræðingur á rannsóknastofu Sjafnar, heJJir fimm
mismunandi matarolium í skyrturnar og Vilhjálmur Ingi Árnason,
formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, fylgist með.
Ariel Ultra
leysir ekki fitu
úr þvotti við 40 gráður
STARFSFÓLK á rannsóknarstofu
Efnaverksmiðjunnar Sjafnar á
Akureyri hefur gert tilraunir,
sem afsanna þá fullyrðingu að
Ariel Ultra þvottaefni Ieysi fitu
úr flíkum við þvott við 40 gráður
á Celcíus eins og fullyrt er í aug-
lýsingum frá Islensk ameriska.
Hið sama kemur í ljós í prófunum
dönsku neytendasamtakanna.
Blaðamenn og formaður Neyt-
endasamtaka Akureyrar og ná-
grennis fylgdust með siíkri til-
raun i gær.
Níels Jónsson, efnafræðingur á
rannsóknastofu Sjafnar, hellti fimm
mismunandi matarolíum í tvær
skyrtur, önnur var úr bómull og hin
að meirihluta úr polyester. Þau fímm
efni, sem notuð voru til að hella á
skyrtumar, eru: sojaolía, sólbiómaol-
ía, olífuolía og einnig möndlukími
og hveitikími. Skyrtunum var síðan
stungið í þvottavél og þær þvegnar
við 40 gráðu hita. Fitublettimir
reyndust enn vera í skyrtunum að
afloknum þvotti.
Sjafnarmenn telja að auglýsingar
tapi öllu upplýsingagildi fyrir neyt-
endur þegar þær upplýsingar, sem
fram koma, séu hreinar lygar, eins
og þeir orða það og þeir telja að
menn verði að geta sannað það sem
fram er sett í auglýsingum eða slá'
vamagla við því sem sagt er ella.
Vilhjálmur Ingi Ámason, formað-
ur Neytendafélags Akureyrar og
nágrennis, hóf fyrir nokkra að skoða
hvort umrædd fullyrðing um þvotta-
efnið stæðist og hefur hann undir
höndum könnun, sem dönsku neyt-
endasamtökin gerðu á 19 tegundum
þvottaefna þar sem margvíslegir
þættir vora til athugunar. Sú könnun
var gerð í apríl á síðasta ári og sagði
Vilhjálmur Ingi að könnunin leiddi
m.a. í ljós að þvottaefnin væru álíka
að gæðum og fita hefði farið úr til
hálfs við 60 gráðu þvott. „Það er
ekki sá gífurlegi munur á þvottaefn-
um sem gefið er í skyn,“ sagði Vil-
hjálmur Ingi. ■
annars mjög mismunandi eftir bakaríum
ÞAÐ er ýmislegt gert til að
laða að viðskiptavini fyrir
fermingarveislur. Sumir bak-
arar eru jafnvel með happ-
drætti í gangi, afslátt og sér-
stök fermingartilboð. Verðið
á kransakökum er mismun-
andi og sjálfsagt fyrir fólk að
fara á mili staða og bera sam-
an verð og gæði.
í sumum bakaríum er hægt
að kaupa kransakökumassa
eða deig og hjá Bemhöftsbak-
aríi kostar eitt og hálft kíló
af bæði massa og deigi 1.545
krónur og á það að duga í
16-19 hringja kransaköku.
Verðið fer þó líklega eftir því
hversu þykkir hringirnir eru. Hrá-
efni í 17 hringja kransaköku sem
bökuð var fyrir fermingarblað
Morgunblaðsins kostaði um 900
krónur. Vel að merkja rafmagns-
kostnaður er meðtalinn en ekki sá
tími sem fór í að koma kökunni
saman né skreytingin, en í því lá
mikil vinna.
IVIótin lelgft eða keypt
Mótin kosta um þijú þúsund
krónur í Húsasmiðjunni en þau er
eflaust hægt að fá á fleiri stöðum
og nú er hægt að fá leigð kransa-
kökuform hjá versluninni Pipar og
Salt og kostar leigan 400 krónur
fyrir þrjá sólarhringa.
Fullskreytt kransakaka af svip-
aðri stærð úr bakaríi kostar frá
5.641 krónu og upp í 9.500 krónur.
Það er mismunandi hvemig bak-
Hvað kostar kransakakan? 20-25 manna 30-35 manna 40-45 manna 50-55 manna
Gullkornið 5.129 12 hringir 5.514 15 hringir 7.28lf 20 hringir 9.170 25 hringir
Bridde 6.800 14 hringir 7.700 16 hringir 9.500 18 hringir 12.000 23 hringir
Ódýri köku- og brauðmarkaðurinn 4.542 16 hringir 5.641 18 hringir 7.252 20 hringir
Bakarí G0 Sandholt 4.900 13 hringir 6.000* 16 hringir 9.800 19 hringir 12.250 21 hringur
Björnsbakarí, Austurströnd 6.954“ 16 hringir 9.050 22 hringir 10.889 24 hringir
Mylian 7.168*“ 16 hringir 8.801 19 hringir
Breiðholtsbakarí 4.250 14 hringir 6.400 17 hringir 8.400 20 hringir 10.950 24 hringir
Sveinn bakari 5.720 16 hringir 8.840 22 hringir 10.490 27 hringir 12.685 32 hringir
•Fermingartilboð * *Allar kransakökur vigtaðar svo hringjafjöldi er mismunandi *** Tilboðsverð, 10% afsláttur + happdrætti i gangi.
arar skreyta kransakökur, sumir
handsprauta súkkulaði á þær, aðr-
ir skreyta með Mackintosh-kon-
fekti þar sem það er skrautlegt
og einhveijir raða síðan kransa-
kökubitum í kring á bakka. Sumir
nota þetta allt við að skreyta og
jafnvel eitthvað fleira eins og knöll.
Hægt að kaupa óskreytta og
ósamsetta kransaköku
Stundum fylgir fermingarstytta
kökunni og einnig gefa sumir bak-
arar viðskiptavinum kost á að
kaupa kransakökuna ósamsetta og
óskreytta og að minnsta kosti hjá
Björnsbakaríi munar þá allt að
helmingi á verði.
Það kann að vera ráð að spyija
bakara um þyngd kökunnar þegar
á að fara að panta fyrir ferming-
una því hringirnir eru mismunandi
stórir og segir því ekki alla söguna
hringjafjöldi kökunnar.
En eins og sést hér á verðkönn-
uninni er verðið mismunandi og
þetta er aðeins sýnishorn, bakaríin
eru miklu fleiri en þau sem hér
er um getið. ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
AUar
íshokkívörur
m&ð 20% afslættí
ŒmúriUFmítt
GLÆSIBÆ 4 SÍMI8129*22
Mikil vinna að
búa til kransaköku
HÚN Jóhanna Jónsdóttir hef-
ur undanfarin tuttugu og
fimm ár búið til kransakökur
fyrir fjölskyldu og vini og
kransakakan hennar löngu
búin að fá það orð á sig að
vera ómótstæðileg. Hún féllst
góðfúslega á að gefa lesend-
um uppskriftina. Það er heil-
mikil fyrirhöfn að búa til
massann í kransaköku en get-
ur verið skemmtilegt að gera
þetta allt sjálfur. Deigið dug-
ar í 18 hringja köku.
750 g möndlur
930 g flórsykur
6 hólfþeyttar eggjahvltur
3 stífþeyttor eggjahvítur
Möndlumar era settar í sjóð-
heitt vatn og síðan afhýddar. Þá
era þær settar í heitan ofn eða
undir grill og þurrkaðar vel og
að lokum malaðar fínt í möndlu-
kvöm.
Möndlumar eru að því búnu
settar í pott og hálfþeyttu hvítun-
um bætt við og handhrært í um
það bil hálftíma.
Flórsykur er sigtaður samanvið
og þetta hitað við vægan hita.
Hrært stöðugt í svo festist ekki
við botninn. Það er viss hætta á
að þegar flórsykurinn bráðnar þá
festist deigið við botninn svo það
þarf að gæta vel að því. Þegar
deigið er orðið vel heitt, búið að
samlagast og orðið eins og graut
ur er það kælt. Hrært í öðru
hveiju og í lokin eru stífþeyttar
eggjahvfturhnoðaðarsamanvi,
Deigið er sett í skál og rakt
stykki sett yfir. Geymið til næsta
dags á köldum stað.
Mótin eru smurð með matarolíu
og hrísmjöli stráð yfir. Deigið er
rúllað í sívalninga og settí
mótin. Gætið þess að
þrýsta ekki á deigið.
Bakað við 180
gráðu hita í um það
bil fimmtán mínútur.
Ekki nota blástur.
Látið kólna í mót-
unum en hvolfið
síðan úr þeim.
Sprautið með
flórsykursbráð.
grg ■
um
Með vaxandi þjónustu ættu mánaðarlegar biðraðir í bönkum að stytt-
ast og hver veit nema þær hverfi alveg í framtíðinni.
Landsbankinn býður
upp á útgjaldadreifingu
LANDSBANKI íslands hefur tekið upp á þeirri nýbreytni
að bjóða Vörðufélögum svokallaða útgjaldadreifingu. Þjón-
ustan felst í því að útgjöldum er jafnað niður á tólf mán-
uði og upphæðin mánaðarlega skuldfærð af launareikn-
ingi. Ef útgjöld einhvers mánaðar eru hærri en nemur
mánaðarlegu úttektinni lánar bankinn mismuninn. Út-
gjaldadreifingin er innifalin í greiðsluþjónustu Vörðunn-
ar. Sú þjónusta kostar 2.900 kr. á ári.
Guðný Benedikts-
, sérfræðingur á
sagði að
Vörðunni hefði verið
komið á fót fyrir þrem-
ur áram og sífellt
bættust við nýjungar.
„Við höfum t.d. verið
að gera greiðsluþjón-
ustuna sjálfvirkari
og bætt útgjalda-
dreifíngunni við.
Hún felst í því
að viðskiptavin-
irnir leggja
fyrir okkur
öll útgjöld
heimilisins.
Við ger-
greiðsluáætlun og jöfnun greiðslun-
um yfír næstu tólf mánuði. Með því
móti sjáum við hver útgjöldin era á
mánuði og sú upphæð er skuldfærð
af reikningi viðkomandi mánaðar-
lega. Bankinn sér um að greiða alla
reikninga og lánar viðskiptavininum
fyrir greiðslunum ef þær era meiri
en það sem er skuldfært. Svo fer
reikningurinn auðvitað stundum í
plús,“ sagði Guðný.
Hún sagði að vart hefði orðið við
mikinn áhuga á þjónustunni þó hún
hefði ekki verið auglýst sérstaklega.
„Fólk virðist hafa mikinn áhuga á
að dreifa útgjöldum sínum með þess-
um hætti og losna þannig við sveifl-
umar. Svo má geta þess að ef fólk
getur getur greitt með sér í upphafí
kemur það í veg fyrir mikinn vaxta-
kostnað þó hann sé alla jafna ekki
svo mikill," sagði Guðný. Af annarri
þjónustu við Vörðufélaga má nefna
persónulega fjármálaráðgjöf og
greiðari aðgang að lánsfé.! ! ■