Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
33
Sjálfsræktarnám-
skeið fyrir karla
í ÞEIM breytingum sem ganga yfír nútímasamfélag hefur
athygli manna í síauknum mæli beinst að því að rækta sjálfan
sig til að geta betur tekist á við lífíð. Nýaldarsamtökin hafa
lagt sitt af mörku*n til að auðvelda fólki sjálfsrækt og bjóða
nú upp á sjálfsræktarnámskeið fyrir karlmenn, segir í fréttatil-
kynningu. Námskeiðið verður haldið sunnudaginn 13. mars í
sal SVFR við Háaleitisbraut.
Leiðbeinendur
á námskeiðinu
eru Guðlaugur
Bergmann,
formaður Ný-
aldarsamtak-
anna, og Ág-
úst Pétursson,
kennari. Á
námskeiðinu
kenna þeir
grunnundir-
stöðuatriði í
hugleiðslu, fjalla um hina mismun-
andi líkama mannsins og orku-
stöðvar hans. Einnig verður kynn-
ing á stjörnuspeki sem sjálfskönn-
Ágúst
Pétursson
Guðlaugur
Bergmann
unartæki, á
þroskagildi
Mikael-fræð-
anna og jóga.
Fjallað verður
um stöðu karl-
mannsins í nú-
tíma þjóðfé-
lagi og hvernig
hann getur
brugðist við
þeim breyting-
um sem eru að
verða á henni.
Skráning á námskeiðið er í síma
Nýaldarsamtakanna eða í verslun-
inni Betra Líf.
■ STOFNUÐ hefur verið hreyf-
ing Alþýðubandalagskvenna og
annarra róttækra jafnaðar-
kvenna. Meginmarkmið hreyfíng-
arinnar er að auka völd og áhrif
kvenna og stuðla þannig að samfé-
lagi jafnréttis, lýðræðis og félags-
legs réttlætis. Hreyfingin hefur
hlotið nafnið Sellurnar. í stjóm
hennar voru kosnar Elsa S. Þor-
kelsdóttir, formaður, Hildur
Jónsdóttir, Ragnheiður Jónas-
dóttir, Stefanía Traustadóttir
og Svanfríður Jónasdóttir. Til
vara þær Guðrún Ágústsdóttir
og Þuríður Pétursdóttir. Á
stofnfundi vom samþykkt megin-
verkefni fyrsta starfsárs sem em
kynning og uppbygging hreyfíng-
arinnar, upplýsingaöflun um stöðu
kvenna innan Alþýðubandalags-
ins, framboð til alþingiskosninga
og tengslanet Alþýðubandalags-
kvenna í sveitarstjórnum. Þær
konur sem áhuga hafa á að ger-
ast stofnfélagar geta hringt eða
komið á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins á Laugavegi 3, Reykja-
vík, og skráð sig sem stofnfélaga
fram til 15. apríl nk.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Stúlkumar sem keppa um titilinn fegurðardrottning Reykjavíkur æfa þessa dagana líkamsrækt í World
Class, undir stjórn Katrúnar Hafsteinsdóttir, sem er lengst til vinstri í efstu röð. Stúlkurnar fimmtán
heita, talið frá vinstri úr efstu röð: Harpa Másdóttir, Hildur Helgadóttir, Unnur Guðný Gunnai’sdóttir,
Margrét Skúladóttir, Biraa Bragadóttir, Maríanna Hallgrímsdóttir, Sara Guðmundsdóttir, Ingibjörg
Nanna Smáradóttir, Hafrún Ruth Backmann, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Sigurbjörg Kristín Þorvarðar-
dóttir, Svava Kristjánsdóttir, Arafríður Amadóttir og Bryndís Fanney Guðmundsdóttir.
Fegnrðardrottningar æfa sig
Fimmtán stúlkur sem keppa munu um titilinn feg-
urðardrottning Reykjavíkur á annan dag páska,
þann 4. apríl næstkomandi, eru þesas dagana önn-
um kafnar við æfingar.
Að sögn Estherar Finnbogadóttur framkvæmda-
stjóra Fegurðarsamkeppni íslands stunda stúlkurnar
líkamsrækt og sækja námskeið hjá Unni Amgrímsdótt-
ur í framkomu og snyrtimennsku, auk þess sem æfíng-
ar eru að hefjast undir stjóm Helenu Jónsdóttur, á
sviðssetningu keppninnar, sem haldin verður á Hótel
Islandi á annan í páskum.
Auk titilsins fegurðardrottning Reykjavíkur verða^.
bestu ljósmyndafyrirsætunni veitt verðlaun, auk þess
sem stúlkumar velja vinsælustu stúlkuna í sínum hópi.
Pnnsessa Is-
lands í Norfolk
Á hverju vorí er haldin í Norfolk í Bandaríkjunum mikil hátíð sem
kennd er við azaleur sem þá eru í fegurstu blóma þar í borg. Hátíð-
in er haldin til heiðurs aðildarrílgum NATO, en aðalstöðvar þess
eru þar í borg. Þetta er stærsta hátíð sem haldin er með þátttöku
almennra borgara og hermanna.
Ein NATO-þjóðanna skipar heið-
urssess ár hvert. Island var í því hlut-
verki 1990 en þá tók varðskipið Týr
þátt .í hátíðarhöldunum og sigldi til
hafnar með íslenska drottningu há-
tíðarinnar í stafni. Aðrar þjóðir til-
nefna prinsessur hátíðarinnar.
Prinsessa íslands á XVI Azaleu-
hátíðinni í ár verður Theresa Kristín
Golden, 17 ára nemi, sem lýkur
menntaskólanámi í vor og fer í há-
skóla í haust. Hún er dóttir Kristínar
Golden og Lt. Col. George Golden.
Hún er enginn nýliði á skrautvagnin-
um sem íslendingafélagið á í mikilli
skrúðgöngu sem er hápunktur hátíð-
arinnar, því á vagningum hefur Ther-
esa Kristín verið sjö sinnum í íslensk-
um búningi. Nú verður hún í hásæti
vagnsins sem prinsessa íslands.
Vagn íslendingafélagsins í skrúð-
göngunni hefur hlotið verðlaun öll
árin sem hann hefur tekið þátt. í
fyrra hlaut hann Borgarstjórabikar-
inn sem fallegasti vagninn í skrúð-
göngunni en í henni taka þátt öll
aðildarríki Atlantshafsbandalagsins.
Theresa Krístín Golden, 17 ára,
„prinsessa íslands“ á Azaleuhá-
tíðinni í Norfolk.
Sambíóín sýna mynd-
ína A dauðaslóð
SAMBÍÓIN hafa hafíð sýningar á
myndinni Á dauðaslóð eða „On
Deadly Ground“. í aðalhlutverk-
um eru Steven Seagal, Michael
Caine og Joan Chen. Leikstjóri er
Steven Seagal.
Alaska er land andstæðnanna,
hrikalegt landslag og miklar náttúru-
auðlindir, þar búa eskimóar í sátt við
náttúruna. Ægis-oliufélaginu er
nokkuð saman um náttúruna, það
eina sem skiptir það máli er hversu
mikla peninga má græða og skiptir
þá engu máli hvaða afleiðingar það
hefur.
Forrest Taft (Seagal) er olíustarfs-
maður sem er sérhæfður í að slökkva
elda í olíuborholum fyrir Ægis-olíufé-
lagið. En eftir að hann kemst yfír
upplýsingar sem sanna að Ægis-olíu-
félagið ætlar vísvitandi að stefna
náttúrunni og lífí eskimóanna sem
búa í nágrenni við olíuhreinsistöðina
Steven Seagal og Joan Chen í
hlutverkum sinum í myndinni Á
dauðaslóð.
í hættu lendir hann í deilum við for-
stjóra Ægis sem sendir hann út i
kuldann.
•En Forrest Taft hefur samstarf við
náttúruverndarsinnann Masu (Joan
Chen), fallega eskimóakonu sem er
á móti olíuleit í landi eskimóa.
Ungfrú Vesturland verður krýnd næstkomandi laugardagskvöld
*
Atta stúlkur keppa um titilinn
Akranesi.
ÁTTA stúlkur taka þátt í Fegurðarsamkeppni Vesturlands sem hald-
in verður í Félagsheimilinu Hlöðum á Hvalfjarðarströnd nk. laugar-
dagskvöld. Flestar stúlkurnar koma frá Akranesi, fimm talsins, ein
frá Grundarfirði, ein frá Borgaraesi og ein úr Skilmannahrepp.
Eins og kunnugt er var keppn-
inni frestað fyrir skömmu vegna
þess að þijár af þátttakendum lentu
í bílslysi sama dag og keppnin átti
að fara fram. Ein stúlknanna, Sig-
rún Þorgilsdóttir, slasaðist þar al-
varlega en hún Iætur það ekki á
sig fá og mun verða með eins og
ekkert hafí í skorist. Undirbúningur
keppninnar hefur staðið yfir um
nokkurn tíma og þó slysið hafi sett
skipulagið úr skorðun er nú þegar
tryggt að dagskráin verður sú sama
og upphaflega var áætluð. í keppn-
inni munu stúlkunar koma fram í
kvöldkjólum og sundfötum. Valin
verður besta ljósmyndafyrirsætan
og vinsælasta stúlkan í hópnum.
Hápunkturinn verður svo kjör feg-
urðardrottningar Vesturlands en sú
sem hlotnast sá heiður tekur þátt
í Fegurðarsamkeppni íslands sem
haldin verður í maímánuði.
Dagskráin keppniskvöldið verður
vönduð og fjölbreytt. Húsið verður
opnað kl. 19 og verður boðinn for-
drykkur við komu gesta. Veislu-
kvöldverður verður framreiddur kl.
20 og síðan hefst skemmtidagskrá.
Orri Harðarson og Valgerður Jóns-
dóttir syngja og leika, dansarar frá
Dansskóla Jóhönnu Árnadóttur
sýna dans, Magnús Scheving þol-
fimimeistari sýnir listir sínar og
verslunin Roxy á Akranesi verður
með tískusýningu. Hljómsveitin
Vinir vors og blóma leikur síðan
fyrir dansi til kl. 3.
Að vanda fá stúlkunar gjafír frá
ýmsum fyrirtækjum, snyrtivörur,
sundboli og blóm auk þess sem sig-
urvegarinn fær demantshring frá
Eðalsteinum, Laugavegi 72,
Reykjavík, Raimond Well úr frá
Guðmundi B. Hannah, Akranesi,
peningagjöf frá íslandsbanka og
sérsaumaðan kjól að eigin vali frá
Nýju línunni, Ákranesi.
Stúlkurnar sem taka þátt í Feg-
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Stúlkurnar sem taka þátt í Fegurðarsamkeppni Vesturlands.
urðarsamkeppni yesturlands eru
Berglind Hrönn Árnadóttir, Inga
Dóra Halldórsdóttir, Sigríður Anna
Harðardóttir, Sigrún Þorgilsdóttir
og Særós Tómasdóttir, allar frá
Akranesi, Guðný Jóna Þórsdóttir,
Grundafírði, Unnur Davíðsdóttir,
Borgarnesi, og Þórunn Marinós-
dóttir úr Skilmannahrepp.
- J.G.