Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.03.1994, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 Helgi Már Jóns- son — Minning Ég finn, hve sárt ég sakna, hve sorgin hjartað sker. Af sætura svefni að vakna, en sjá þig ekki hér; þvi svipur þinn á sveimi i svefni birtist mér. í draumi dularheimi ég dvaldi i nótt hjá þér. Að kvöldi sunnudagsins 27. febr- úar hringdi Steini vinur og flutti okkur þær hörmulegu fregnir að hann Helgi Már væri dáinn. Dáinn, en, en, getur það verið? Hann var bara 32 ára gamall og átti allt lífið framundan, leifraði alltaf af lífsgleði og hafði þá útgeislun sem engan lét ósnortinn sem honum kynntist. Kynni okkar hófust fyrst þegar leiðir lágu saman í Fjölbrautaskól- anum Flensborg í Hafnarfirði. Fljótt tókust sterk vinabönd milli okkar, bönd sem áttu eftir að styrkjast og halda um langa framtíð. Vinahópur- inn var stór og allir virkir í félags- lífi Flensborgarskólans. Á þeim árum var nú meira lagt upp úr því að njóta augnabliksins, hafa það sem best og skemmta sér. Námið og al- vara lífsins var nokkuð sem alltaf fannst undir niðri, en minningar um slíkt eftir á eru fáar. Þegar hugurinn reikar til baka koma nánast bara upp kómísk augnablik, gamanyrði og ,jókar“ sem seinna hafa orðið að fleygum tilvitnunum meðal okkar vinanna. Ég kynntist Helga Má sér- staklega vel þegar við fórum ásamt fleirum Flensborgarnemum í skóla- ferðalag til Italíu sumarið 81. Það eru mörg gullkornin, mörg ógleym- anleg augnablik sem koma upp í hugann þegar sú ferð er rifjuð upp. Mér er minnisstætt eitt kvöldið þeg- ar við stóðum tveir saman norður á strönd og glímdum við lífsgátuna, hvað Helgi hafði yfir mikilli lífs- reynslu að búa. Umræðan snerist meðala annars um þá bitru lífs- reynslu sem helgi varð fyrir á ungl- ingsárum er móðir hans féll skyndi- leg frá. Sá atburður hafði sett geysi- lega djúp spor í lífs-fílósófíu Helga, þó það væri sjaldan sem maður næði að komast inn og opna þær innstu hugsanir og tilfinningar sem bærðust í hans bijósti í sambandi við lífið og dauðann. Helgi Már var afskaplega vel gerð persóna. Hlýr, tillitssamur og sér- staklega tryggur sínum vinum og ættingjum. Það sem einkenndi hann þó hvað mest var hans sérstaka skapferli. Á þeim tæpu tuttugu árum sem ég þekkti Helga Má sá ég hann aldrei skipta skapi, hann var bók- staflega alltaf í góðu skapi. Léttur og hress og tókst alltaf að sjá það spaugilega í öllum vandamálum. Hann var afurða duglegur til vinnu, árrisull og yfirleitt vann hann eitt til tvö aukastörf með sinni skóla- göngu. Það er hægt að halda lengi áfram og lýsa mannkostum hans. í raun er það óþarfi, við samferðar- menn hans þekkjum þá flesta. Helgi Már, eða Bergurinn, eins og við vin- ir hans kölluðum hann, var svip- hreinn og myndarlegur maður, hár og grannur. Hann stundaði mikið íþróttir og hélt sér alltaf í góðu formi. Hann var ætíð hrókur alls fagnaður, fyndinn og afskaplega frumlegur. Orðheppinn var hann og svaraði oft með skrítnum orðatil- tækjum sem oftast innihéldu eitt- hvað spaugilegt. Hann var mikill áhugamaður um tónlist og kvik- myndagerð og framleiddi sjálfur og leikstýrði nokkrum styttri kvik- myndum. Hann skrifaði líka handrit að gamanþáttum og árið 1990 gaf hann út ljóðasafn. Eftirfarandi tvö erindi eru hluti af ljóði sem fjallar einmitt um þetta eina örugga í þessu lífi, dauðann. Ekkert er til þó erfitt sé að sanna. Eins og dropinn sem fellur ofan í hyl og hverfur augum manna. Nú dropinn horfinn í hafið er í vatnsins stóra straum. Hvar hann er, hvert hann fer í hringiðunnar glaum. (Helgi Már Jónsson, nóv. 1990.) Það er ótrúlegt að hugsa sér að þessi góði vinur okkar sé nú fallinn frá, langt um aldur fram. Við áttum eftir að gera svo mikið saman. Við vinimir höfðum hlakkað svo til að hittast allir aftur þegar ég og mín fjölskylda flytjum aftur til íslands. En það er skammt milli lífs og dauða. Helgi hafði lengi átt við veikindi að stríða, en með lyfjameðferð tekst að haída sjúkdómi sínum í skefjum. Kom það því eins og reiðarslag að heyra að hann skyldi hafa veikst það hastarlega að morgni 27. febrúar, að ekki var unnt að bjarga líf hans, þrátt fyrir skjót viðbrögð. Ég og fjölskylda mín vottum föður Helga Más, systkinum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minninguna um þennan góða vin sem nú er fallinn frá. Emil L. Sigurðsson, Svíþjóð. Kær vinur minn, Helgi Már Jóns- son, er látinn. Hvemig bregst mað- ur við svona frétt? Ég frétti þetta á versta tíma og á versta stað sem hugsast gat, fyrir leik Hauka í fyrstu deild karla í handboltanum. Það vom þeir leikir sem höfðu við- haldið okkar vinskap í gegnum tíð- ina síðustu árin eftir góð og skemmtileg kynni frá barnsaldri. „Þú veist að Helgi Már er dáinn og strákarnir spila með sorgarrend- ur í leiknum, láttu fólkið votta hon- um virðingu sína með mínútu. þögn...“ Klukkan var tíu mínútur í átta. Hvað gerir maður á miðjum íþróttavelli með hávaðamúsík í eyr- unum og menn að kasta bolta allt í kring? Það voru þessir leikir sem ég og Helgi höfðum mest gaman af að spá og spekúlera í. Með kökk í hálsinum tilkynnti ég tíðindin sem kynnir kvöldsins, sat með kökk í hálsinum allan tímann meðan á leiknum stóð og langaði mest til að komast í burtu og vera einn með sjálfum mér og hugsa til baka, enda margs að minnast í gegnum tíðina. Ég kynntist nafna mínum fyrst þegar ég fór sem ungur drengur með móður minni upp á Holt að kaupa sokka og vettlinga á okkur systkinin. Þeir fengust 5 húsinu uppi á Holti, þar sem rauðhærði strákurinn hann Helgi átti heima. Seinna fórum við að æfa saman handbolta með Haukum og Helgi var alltaf sá sami sá hina ótrúlegu möguleika sem handbolti býður uppá með bakhandarsendingum inn á línu sem höfnuðu oft ofan í körfu og allir skemmtu sér og ekki hvað síst Helgi sjálfur. Seinna lágu leiðir okkar saman í Flensborg beindist áhugi hans veruleg;. að kvikmynda- listinni og gerði ha.in þar bæði framúrstefnukvikmyndir sem og venjulegar ef hægt er að segja að eitthvað sé venjulegt í kvikmynda- listinni enda gekk hann orðið undir nafninu Bergurinn í höfuðið á fræg- um sænskum kvikmyndagerðar- manni. Hann fékk mig til að starfa með sér við gerð einnar myndar sem hét Frosti og fékk mig til að leika þar hlutverk. Hæfileikar hans nutu sín vel í þessum miðli og það skil- aði sér með verðlaunum á kvik- myndahátíð stuttmynda. Ég minnist þess einnig þegar Helgi sem oftar fór með mér heim í hádeginu úr skólanum og hann sat ásamt okkur fimm systkinunum til borðs og einsog oft vildi verða þá var mikill skarkali og læti við það borð. Þá leit hann til mín og sagði: Þetta er frábært, svona á að borða mat, þar sem meirihluti mat- arins fór utan á okkur en ekki inn fyrir varir okkar. Þá gerði ég mér fýrst grein fyrir því tómarúmi sem því fylgir að missa móður sína, því þar missti Helgi mikið í æsku. Helgi var sérstakur strákur, sem fór sínar eigin leiðir og hafði alltaf eitthvað fyrir stafni. Það var alltaf gaman að hitta hann annaðhvort í hópi krakka sem hann var að gæta eða unglinga sem hann fór með á leiki eða í bíó. Mér fannst Helgi einmitt núna síðustu misseri vera búinn að finna sig og sinn tilgang í lífínu þegar ég heyrði þessa frétt. Ég vil votta fjölskyldu Helga alla mína samúð. Minningin um góðan dreng mun lifa. Helgi Ásgeir. Fleiri greinar um Helga Má Jónsson bíða birtingar og verða birtar í blaðinu næstu daga. RADAUGí YSINGAR ISTAK Óskum eftir að kaupa rafstöð 200-300 kva. Upplýsingar gefur Sveinn Fjeldsted, sími 686885. Bessastaðasókn Aðalsafnaðarfundur Bessastaðasóknar verð- ur haldinn sunnudaginn 13. mars kl. 15.30 í hátíðarsal íþróttahúss Bessastaðahrepps að lokinni guðsþjónustu í Bessastaðakirkju, er hefst kl. 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar á fundinum. Sóknarnefnd. Lögmenn Almennur félagsfundur Lögmannafélags ís- lands verður haldinn fimmtudaginn 10. mars kl. 20.00 í stofu 101 í Lögbergi. Á fundinum verður fjallað um eftirtalin efni: 1. Kynntar verða hugmyndir um stofnun Mannréttindaskrifstofu annars vegar og stofnun Mannréttindastofnunar Háskóla íslands hins vegar og hugsanlega þátt- töku L.M.F.Í. í starfi þeirra. 2. Frumvarp til iaga um breytingu á lögum um málflytjendur, nr. 61/1942. Fjallað verður um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/1942, um mál- flytjendur, sem nýlega hefur verið lagt fram á Alþingi. Þá verða kynntar athuga- semdir nefndar, sem stjórn félagsins skip- aði sérstaklega til að fara yf ir frumvarpið. 3. Önnur mál. Stjórn Lögmannafélags íslands. Landsmót 1994 Veitingasala Framkvæmdanefnd Landsmóts hestamanna auglýsir hér með eftir tilboðum í veitingasölu á landsmóti, sem haldið verður á Gaddstaða- flötum við Hellu 28. júní til 3. júlí 1994. Þeir, sem áhuga hafa, geta fengið send til- boðsgögn með því að hringja í síma 98-75028 milli kl. 13 og 16 virka daga. Framkvæmdanefnd LM '94. IÐNSKÓUNN MÚRARAMEISTARAFéLAG MÚRARAFÉLAG I REYKJAVlK REYKJAVlKUR REYKJAVlKUR MÚRARASAMBAND ÍSLANDS Námskeið Múrarar, múrarameistarar, nemar Eftirmenntunarnámskeið í steiningu verður haldið í Reykjavík fimmtudaginn 24. og föstu- daginn 25. mars nk. Námskeiðið er haldið á vegum Múrarafélags Reykjavíkur, Múrarar- meistarafélags Reykjavíkur, Múrarasam- bands íslands og Iðnskólans í Reykjavík. Námskeiðið er ætlað öllum múrurum, múrarameisturum og nemum í múraraiðn hvaðan sem er af landinu. Upplýsingar og skráning fer fram hjá samtök- um múrara í símum 813255 og 36890 og í Iðnskólanum í Reykjavík í síma 26240 fyrir 18. mars nk. Eftirmenntunarnefnd múrara. auglýsingar St. St. 5994031019 VII I.O.O.F. 11 = 17403108A = B.K. I.O.O.F. 5 = 1743107 = Kk Hvítasunnukirkjan Völvufell Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Samvera fyrir eldri safnaðar- meðlimi í dag kl. 15.00. Vinsamlegast ath. breyttan dag. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 [ kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma. Lautinant Sven Fosse talar. Föstudaginn 11. mars kl. 20.00 bænavaka. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Helgarferð 12.-13. mars Kringum Hengil, skíðaganga Brottför kl. 09.00 laugardag. Gengið austan Hengils (milli hrauns og hlíða) sem leið liggur að Nesjavöllum. Gist þar. Sunnudag gengið vestan Heng- ils að Litlu-kaffistofunni. Morg- unverður og kvöldverður innifal- inn í verði. Upplýsingar og far- miðasala á skrifstofu F.f. Ferðafélag (slands. \v—W KFUM V V/s Aðaldeild KFUM Fundurinn í kvöld verður í Frið- rikskapellu á Hlfðarenda kl. 20.30. Nefnd á vegum stjórn- ar KFUM og stjórnar Skógar- manna sér um efni fundarins, en það verður tengt Karlaflokkn- um í Vatnaskógi. Allir karlar velkomnir. 'Hallveigarstig 1 • simi 614330 UTIVIST Myndakvöld fimmtud. 10. mars kl. 20.30. Sýndar verða myndir úr Útivistar- ferðum, Þingvallagöngunni, Hekluferðum, frá Skaftafelli og víðar. Sýningin hefst kl. 20.30 í sal Skagfirðingafélagsins, Stakka- hlíð 17 (Drangey). Hlaðborð kaffinefndar innifalið í aðgangseyri. Helgarferð 11.-13. mars Fimmvörðuháls - skíðaferð. Uppl. og miðasala á skrifst. Aðalfundur Útivistar verður haldinn þriðjudaginn 15. mars nk. kl. 20.00 í salnum á Hallveigarstíg 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Framvísa þarf félagsskírteinum fyrir árið 1993 við innganginn. Árshátíð Útivistar 1994 veröur haldin föstudagskvöldiö 18. mars í Hlégarði í Mos- fellsbæ. Miðaverð aðeins kr. 2.900. Sjáumst! Útivist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.