Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
fclk í
fréttum
HOTANIR
Sprengja í pósti móður
Tonyu Harding
Tonya Harding, ásamt fyrrum bónda sínum Jeff Gilooly, á ekki sjö
dagana sæla.
Bob Geldof
PENINGAR
Geldof á kúpunni?
Irski rokkarinn Bob Geldof, sem
betur er þó þekktur fyrir að
standa að söfnunum til handa
bágstöddum, var úrskurðaður
gjaldþrota í síðustu viku og þykir
skjóta skökku við. Maður sem
hefur safnað milljónum punda eigi
ekki 5.000 pund sjálfur til að
gera upp reikning við bílaleigu,
en um það snýst málið.
Alls konar sögur hafa farið af
Geldof og sviptingamiklu lífí hans,
en að hann eigi ekki fyrir salti í
grautinn er nýtt af nálinni. Tals-
maður Geldofs sagði þó í samtali
við æsifréttablaðið „The Sun“,
sem sló fréttinni upp, að þetta
væri allt á misskilningi byggt,
Geldof hefði einungis gleymt að
borga og hann myndi ganga frá
málinu á næstu dögum. Geldof
hefur 21 dag til að gera hreint
fyrir sínum dyrum og talsmaður-
inn segir það hið minnsta mál og
á meðan bíða menn spenntir eftir
sannleikanum í málinu. Á Geldof
til hnífs og skeiðar, eða er hann
á kúpunni?
John Candy
ANDLAT
Gamanleikarinn John
Candy fallinn í valinn
Móðir skautakonunnar Tonyu
Harding, Lavona Golden,
fékk nýverið dularfullan pakka
sendan í pósti. Áfast var bréf þar
sem ónafngreindur bréfritari hafði í
hótunum við Lavonu á þeim forsend-
um að hún væri móðir Tonyu og
hann sjálfur áhangandi Nancy Kerr-
igan. Lavona opnaði ekki pakkann,
heldur hringdi óttaslegin í neyðarlín-
una 911 og mættu þá laganna verð-
ir á staðinn. Sprengjusérfræðingar
fylgdu svo í kjölfarið þar sem talið
var að bomba væri í pakkanum. Litl-
ir kærleikar hafa löngum verið með
þeim mæðginum. Atvik þetta átti
sér stað daginn eftir að einhver
ókunnur maður stakk sér út úr
skúmaskoti í almenningsgarði í Port-
land og stuggaði þannig við Tonyu
að hún féll við og hruflaðist á hnjám
og lófum.
Á sama tíma var verið að taka
meistaralega á móti Nancy Kerring-
an í heimabæ hennar Stoneham í
Massachusetts. Var það ekta amer-
ísk uppákoma, 50-60.000 manns
röðuðu sér meðfram strætum bæj-
arins og Kerrigan var ekið í limús-
ínu. Fyrir og eftir henni fóru skrúð-
göngufígúrur og lúðrasveitir og sjálf
var hún íklædd jakka í fánalitunum.
Kerrigan sagðist hrærð yfir mót-
tökunum, frægð hennar hefði aukist
svo hratt og gífurlega síðustu vikur
að það væri nánast ógnvænlegt, en
það væri sér mikilsvert að eiga
stuðning bæjarbúa. Kerrigan notaði
tækifærið og gagnrýndi bandaríska
fjölmiðla sem hún sagði að hefðu
byggt sig upp og vildu nú n'fa sig
niður aftur. Átti hún þar við stórar
fyrirsagnir um meintan hroka sinn
er hin físlétta Oksana Bayul hafði
sigrað hana í skautadansinum. Oks-
ana hreif alla með sér og var ekki
síður fómarlamb á svellinu heldur
en Kerrigan sjálf. Hún þurfti kvala-
stillandi sprautur til þess að geta
keppt og var ekki ljóst fyrr en
klukkustund fyrir keppni hvort hún
væri fær um það eða ekki, eftir að
hún hafði orðið fyrir meiðslum á
æfingu daginn áður. Augnablikið
þegar úrslitin voru ljós og Oksana
brast í taumlausan grát, hafði mikil
áhrif á áhorfendur um allan heim,
en Kerrigan var ekki skemmt, hafði
á orði að stúlkan ætti ekkert að hirða
um að lagfæra tárvotan farðan sem
rann allur til. Skömmu síðar skamm-
aðist hún yfír því að verðlaunaaf-
hendingin tafðist. Síðar var hún
gagnrýnd fyrir að fara frá Noregi
áður en lokaathöfn leikanna fór
fram. Talsmaður hennar sagði það
hafa stafað af morðhótunum sem
hún fékk ítrekað og þau hefðu viljað
létta á áhyggjum Norðmanna sem
óttuðust að eitthvað kynni að henda
Kerrigan í þeirra landhelgi.
Ljóst er að enn gustar um þær
Kerrigan og Harding. Kerrigan tek-
ur nú við nýju starfi sem gestakynn-
ir bandaríska sjónvarpsþáttarins
Saturday Night Live og verið er að
vinna æviminningar hennar og kvik-
myndahandrit upp úr þeim. Tonya
Harding situr enn í súpunni eftir að
hennar nánustu börðu á Kerrigan
sem frægt er orðið. Enn hefur hún
ekki getað hreinsað nafn sitt og ligg-
ur undir grun. Frekari yfírheyrslur
eru væntanlegar og hefur enn ekki
verið ákveðið hvort að hún verður
ákærð um að hafa verið í vitorði
með fyrrum bónda sínum, lífverði
og tveimur kónum sem þeir réðu til
að vinna Kerrigan mein.
John Candy, hinn vinsæli kana-
díski gamanleikari, lést úr
hjartabilun í mexíkósku borginni
Durango um síðustu helgi, en þar
hafa staðið yfír tökur á nýjustu
mynd hans, „Wagons East“, og
voru langt komnar er leikarinn ítur-
vaxni andaðist í svefni. Candy var
þekktastur fyrir hlutverk sín í kvik-
myndunum „Uncle Buck“, „Splash"
og „Planes, Trains and Áutomobi-
les“, að ógleymdum myndunum um
einkaspæjarann „Crumb“, en allt
voru þetta gamanmyndir þar sem
sprellið var keyrt fram úr hófí.
Andlát Candys kom samstarfs-
mönnum hans í opna skjöldu, þeir
sögðu hann hafa litið vel út og ver-
ið sprækan, að vísu 50 kílógrömm-
um of þungan. Þó töldu sumir að
hann hefði átt erfítt uppdráttar
vegna hins þunna lofts í Durango,
sem er í 2.300 metra hæð yfír sjáv-
armáli. Læknir kvikmyndatökuliðs-
ins sagði aðeins að ekkert benti til
óeðlilegra orsaka á borð við átök
eða eiturlyfjaneyslu og það væri
engum hollt að vega 150
kílógrömm.
BILASKATTAR
Opinn fundurFÍB með
fjármálaráóherra á Holiday Inn
hótelinu, fimmtudaginn 10. mars
kl. 20.30
Frummælendur:
Friðrik Sóphusson fjármálaráðherra og
Björn Pétursson formaður FÍB
Opnar umræður og fyrirspurnir á eftir
VELDUR BÓKHALDIÐ
ÞER AHYGGJUM?
# Áttu í erfíðleikum með skil á vsk-skýrslum?
# Hefur þú nógu góða yfirsýn yfir reksturinn?
% Viltu fá góða efnahags- og rekstrarreikninga?
KYNNTU ÞÉR ÞÁ VASKHUGANN
700 ánægðir notendur eru okkar bestu meðmæli!!!
Vaskhugi — samtvinnað bókhaldskerfi:
Bifreiðagjaldið hækkaði yfir 30% um síðustu áramót!
Um 70% af verði bensínlítrans
eru skattar í ríkissjóð!
Bifreiðaeiaendur mætum oo komum sjónarmiðum okkar á framfæri
Fjárhags-, sölu-, viðskiptamanna-, birgða-, launa-
og verkefnabókhald.
Vaskhugi hf.
Grensásvcgi 13, sími 91-682 680, fax 91-682 679
Candy var fæddur í Toronto árið
1951 og var í afar virkum hópi
kanadískra gamanleikara sem allir
hafa sett mark sitt á kvikmyndirnar
síðustu árin og má þar nefna Dan
Akroyd, Shelley Long, Gildu Radn-
er, Bill Murray og John Belushi,
sem Iést af völdum eiturlyfjaneyslu
eigi alls fyrir löngu. Candy lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn.