Morgunblaðið - 10.03.1994, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
*** MBL.
★★★ Rás 2
★★★ DV
★★★★★ b.t.
★★★★★ E.B.
Nútímaleg feminisk mynd eftir
Zhang Yimou (Rauði lampinn).
Sigraði á hátíðinni í Feneyjum '93.
Sýnd kl. 5. Allra síðasta sýning.
Ys og þys út af engu
MBL
Rás 2
DV
NY POST
★★★★ EMPIRE
íii iiiL imiTiL v/i íííu iuiiiun
öenin v
Æ/
Stórkostleg mynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
V.9MJ
SÝND KL. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára.
| AUKASÝNING. ALLRA SÍÐASTA SINN!
| Gagnrýnendur hafa i könnunum undan-
j farin 30 ár ævinlega valiö þessa mynd
L bestu mynd allra tíma. Einstakt tækifæri
til aö njóta þessa meistaraverks á
S breiðtjaidi. Við bjóðum þér að koma og
njóta spánýs sýningareintaks.
Sýndkl. 11
hreyfimynda-
lagið
CITIZEN KANE
THE MAGNIFICENT
AMBERSONS
Önnur
myndin
sem Welles
gerði og er
oft valin ein
af 10 bestu
allra tima.
Drama af
bestu gerð.
Sýnd kl. 7.
/ nafni föðurins
7 ÓSKARSVERÐLA UNATILNEFNINGAR
ORSON WELLES
■ Á AÐALFUNDI Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar 6. mars sl. var samþykkt
ályktun þar sem fagnað er „ánægjulegum lyktum
SVR-málsins og þeim fyrirheitum um bætt og
aukin samskipti sem felast í nýgerðu samkomu-
lagi og minnir um leið á, að haustið 1992 bauð
félagið upp á samstarf af þessum toga.“
■ Á FUNDI Náttúruverndarráðs 18. febrúar
sl. var ákveðið að ráða Sigþrúði Stellu Jóhanns-
dóttur í stöðu þjóðgarðsvarðar í þjóðgarðinum
í Jökulsárgljúfrum. Sigþrúður Stella Jóhanns-
dóttir er 27 ára gömul, líffræðingur að mennt
og hefur m.a. verið yfirlandsvörður í þjóðgarðin-
um sl. sumur auk þess sem hún hefur að undan-
fömu unnið hjá Líffræðistofnun Háskóla Ís-
lands. Alls sóttu 23 einstaklingar um stöðuna.
HÁTÍÐ 1. TIL 10. MARS
Orson
Welles'
1 “
Mágnificent
iAmbersons
wrfrs *?)STfi.u>. hlxtw wn.r
BESTA MYNIDIN • BESTI LEIKSTJÓRINN Jim Sheridan • BESTI AÐALLEIKARINN Daniel Day-Lewis
• BESTU LEIKARAR í AUKAHLUTVERKUM Emma Thompson og Pete Postlethwaite
★★★★ A.l. MBL
★★★★ Ö.M. TÍMINN
★★★★ J.K. EINTAK
★★★★h.h. préssan
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
r—5--------1
■» y ■«" *»•
HASKOLABIO
SÍMI 22140
SKEMMTANIR
■ VEITINGAHÚSIÐ 22 í kvöld,
fimmtudagskvöldið 10. mars,
heldur hljómsveitin 2001 sína
fyrstu tónleika á veitingahúsinu
22. Hljómsveitina skipa fyrrver-
andi meðlimir úr hljómsveitunum
SSSpan og Púff og einn núver-
andi liðsmaður hljómsveitarinnar
Majdanek. Hljómsveitin Maus
hitar upp fyrir 2001 og tónleik-
arnir hefjast kl. 22.30. Engir
aðgangseyrir og allir velkomnir.
MMÚSÍKTILRA UNAKVÖLD
TÓNABÆJAR Fyrsta Músíktil-
raunakvöldið verður í kvöld,
fimmtudaginn 10. mars, í
Tónabæ og byrjar kl. 20. Hljóm-
sveitirnar sem leika á þessu til-
raunakvöldi eru Kenya, Weg-
hevyll, Wool, Gröm, Thunder
Love, Rasmus, Cyclone, Diesel
Sæmi, Bláir skuggar og Pý-
þagóras. Gestahljómsveit
kvöldsins er Jet Black Joe.
■ KA UPS TA DA KEPPNIN í
KARAOKE Keppni verður haldin
fyrir Ólafsfjörð og Dalvík föstu-
dagskvöld og hýsir veitingahús-
ið Sæluhúsið keppnina. A
laugardagskvöldið verður svo
landsliðið í karaoke mætt á Hótel
Blönduósi, Blönduósi.
Skráning fyrir undankeppni
kaupstaða er hafin á Tveim vin-
um. í maí munu Tveir vinir hýsa
keppnina fyrir Stór-Reykjavíkur-
svæðið. Fjöldi undankeppna fyrir
þetta svæði er háð fjölda kepp-
enda og verða 10 keppendur í
hverri undankeppni.
MÁSLÁKUR í MOSFELLSBÆ
Keltnesk-írsk kráarstemming
verður nú um helgina. Hljóm-
sveitin Keltar ieikur írska kráar-
og þjóðlagatónlist föstudags- og
laugardagskvöld, 11. og 12.
mars.
■ TVEIR VINIR í kvöld,
fimmtudagskvöld verður karaoke
opið. Föstudaginn leikur hljóm-
sveitin Vinir vors og blóma.
Aðgangur er ókeypis. - Laugar-
dagskvöldið skemmtir hljóm-
sveitin Lizt. Hljómsveitina skipa
Matthías Matthíasson, Snorri
Jónsson, Róbert Þórhallsson,
Grétar Elías Finnsson og Arni
Heiðar Karlsson. Hljómsveitin
leikur diskó, fönk og danstónlist
í bland við rokk.
UHRESSÓ Fimmtudaginn 10.
mars verða tónleikar með hljóm-
sveitinni 13 en hún hefur ekki
komið fram á tónleikum um hríð
þar sem liðsmenn hafa verið upp-
teknir við upptökur á geisladisk
sem kemur út 13. maí. A tónleik-
unum verður kynnt það efni sem
er á-disknum og eru þar á meðal
nokkur lög sem ekki hafa verið
flutt á tónleikum áður. Hljóm-
sveitina skipa Hallur Ingólfs-
son, Eiríkur Sigurðsson og Jón
Ingi Þorvaldsson. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.30 og er aðgangs-
eyrir 500 kr.
■ INGHÓLL, SELFOSSI Á
laugardagskvöldið leikur hljóm-
sveitin Alvara með þeim Ruth
Reginalds og Grétari Örvars-
syni í fararbroddi.
■ FÓGETINN í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, er Jazz á háaloftinu
en þar leika þeir Kristján Guð-
mundsson, píanó, Dave Cassidy,
fiðla og Þórður Högnason á
bassa. Á neðri hæðinni leikur
trúbadorinn Bjarni Þór. Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
trúbadorinn Haraldur Reynis-
son.
MGAUKUR Á STÖNG í kvöld,
fimmtudagskvöld leikur hljóm-
sveitin Synir Raspútíns. Föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
rokksveitin Sigtryggur dyra-
vörður og á sunnudagskvöld
leika K-Tune. Mánudags- og
þriðjudagskvöld leika síðan fé-
lagarnir í Pláhnetunni og hljóm-
sveitin Rask með Sigríði Guðna
í fararbroddi leika miðvikudags-
og fimmtudagskvöld.
UHÓTEL ÍSLAND Föstudags-
kvöldið 11. mars er lokað á Hótel
ísland vegna einkasamkvæmis. Á
laugardaginn 12. mars eru það
síðan gleðigjafarnir í Sumar-
gleðinni ’94 þau Raggi Bjarna,
Maggi Ólafs, Hemmi Gunn,
Ómar Ragnars, Þorgeir Ást-
valds, Jón Ragnars, Bessi
Bjarna og Sigga Beinteins sem
skemmta. Að lokinni sýningunni
tekur við hin nýja hljómsveit
Siggu Beinteins og leikur hún
fyrir dansi til kh 3. Verð á
skemmtunina ásamt þríréttuðum
kvöldverði er 3.900 kr., verð á
sýningu 1.500 kr. og 1.000 kr. á
(IQtloloiv
UFOSSINN, GARÐABÆ
Föstudagskvöldið 11. mars leika
Þuríður Sigurðardóttir og
hljómsveitin Vanir menn. Á
laugardagskvöldið leika félag-
arnir í KK-Band.
UÖRKIN HANS NÓA leikur
laugardagskvöldið á veitinga-
staðnum Langasandi, Akranesi.
UHÓTEL BORGARNES Hljóm-
sveitin Þú ert leikur laugardags-
kvöldið 12. mars. Hljómsveitina
skipa Ingibjörg Erlingsdóttir,
söngur, Jónas Sveinn Hauks-
son, söngur, Daníel Arason,
hljómborð, Hafsteinn Þórisson,
gítar, Jón Friðrik Birgisson,
bassi og ólafur Karlsson á
trommur.
Samkoma
um samskipti
unglinga
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA Reykja-
víkur, Samband foreldrafélaga í
grunnskójum Reykjavíkur (SAM-
FOK) og Iþrótta- og tómstundaráð
efna laugardaginn 12. mars kl.
13-16 til samkomu í Háskólabíói.
Á samkomunni verður fjallað um
samskipti unglinga við fjölskyldur
sínar, nám unglinga og viðhorf
þeirra til skólans. Einnig verður
fjallað um tómstundir unglinga
og atvinnuþátttöku þeirra.
Dagskráin hefst með ávarpi Ás-
laugar Brynjólfsdóttur, fræðslu-
stjóra, en síðan mun fulltrúi foreldra,
Aðalbjörg Þorvarðardóttir, fjalla um
unglinga og málefni fjölskyldunnar.
Því næst mun leikhópurinn Afródíta
úr Hagaskóla flytja leikþáttinn Amor
sem þau hafa sjálf samið.
Ragnar Þorsteinsson, kennari,
fjallar um unglinga og skólastarfið
og Elín Einarsdóttir, nemandi í 10.
bekk Breiðholtsskóla, flytur erindið
sem heitir: Hvernig á skólinn að vera.
Hjálmar Theódórsson, forstöðu-
maður Fellahellis, verður með frá-
sögn af unglingastarfi í félagsmið-
stöðvum Reykjavíkurborgar og einn-
ig munu nemendur úr grunnskólum
Reykjavíkurborgar segja frá starf-
semi félagsmiðstöðvanna. Þá mun
Friðþjófur Ó. Johnson, forstjóri Ó.
Johnson & Kaaber, flytja erindi um
hvemig skólinn geti sem best búið
nemendur undir þátttöku í atvinnulíf-
inu og hópur ungmenna úr Hinu
húsinu segir frá reynslu sinni af at-
vinnuleit. Í lok samkomunnar mun
Árni Sigfússon, formaður Skóla-
málaráðs Reykjavíkur, flytja erindið
Foreldrar.
Fundarstjóri verður Guðbjörg
Björnsdóttir, formaður SAMFOKS.