Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 49

Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 49 HX SÍMi 32075 Á leið út á lífið tóku þeir ranga beygju inn í martröð. Þá hófst æsilegur flótti upp á líf og dauða þar sem enginn getiu- verið öruggur um líf sitt. Aðalhlutverkið er í höndum Emilio Estevcs (Loaded Weapon 1) og leik- stjóri er Stephen Hopkins sem leikstýrði m.a. Predator 2. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15. Bönnuð innan 16ára. BAMVÆW MÓÐIR Einn mesti sálfræðiþriller seinni tíma. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð i. 14 ára. * * ★ a.i. Mbi. Rómantísk gamanmynd ASalhlutv. Matt Dillon, Annabella Sciorra, Marie-Loulse Parker og William Hurt. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. SÍMI: 19000 Loksins er hún komin Arizona Dream Einhver athyglisverðasta mynd sem gerð hefur verið. Aöalhl.: Johnny Depp, Jerry Lewis, Fay Dunaway og Lili Taylor. Leikstjóri: Emir Kusturica. Sýnd kl. 5 og 9. CONCUBINE ____ fiín áu Qáro - Far vel frilla min Kosin besta myndin í Cannes ’93 ásamt Píanó. Tilnefnd til Óskarsverðlauna ’94 sem besta erlenda myndin. „Ein sterkasta og vandaðasta mynd síðari ára.“ ★ ★★★ Rás 2. „Mynd sem enginn má missa af.“ ★ ★★★ S.V. Mbl. „Einhver mikilfenglegasta mynd sem sést hefur á hvíta tjaidinu.“ ★ ★ ★ ★ H. H., Pressan. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. KRYDDLEGIN HJÖRTU AAsóknarmesta erlenda myndin i USA frá upphafi. ★ ★★★ H. H., Pressan. ★★★!. K., Eintak. ★★★H. K., D.V. ★ ★★1/2 S. V., Mbl. ★★★hallar í fjórar, Ó. T., Rás 2. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Flótti sakleysingjans Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Stranglega b. i. 16 ára. Síðasta sýning. píaimó Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna m.a. besta myndin. „Píanó, fimm stjörnuraf fjórum mögul. ★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan Sýnd kl. 4.50,6.55,9 og 11.05. Kasparov sax- aði á forskotið Skák Margeir Pétursson GARY Kasparov, heimsmeistari atvinnumannasambandsins, vann Gata Kamsky, öflugasta skákmann Bandaríkjanna, í níundu umferð stórmótsins í Lin- ares á Spáni. Þar með minnkaði forskot Anatólís Karpovs, FIDE- heimsmeistara, í einn vinning. Hann gerði jafntefli við Lettann Aleksei Shirov og herma fregnir að Karpov hafi misst af vinn- ingi. Þegar fjórar umferðir eru eftir af mótinu hefur Karpov átta vinninga, sem er glæsilegur árangur, en Kasparov hefur sjö. Það var geysilega hart barist í níundu umferðinni, Karpov og Shirov gerðu eina jafnteflið. Úrslit annarra skáka urðu þau að Kramn- ik vann Júdit Polgar, ívantsjúk vann Anand og var það fyrsti sigur hans á mótinu. Spánveijinn Illescas vann Lautier og var það annar sig- ur hans í röð. Gelfand vann Barejev og ungi Búlgarinn Topalov styrkti stöðu sína með sigri yfir Beljavskí sem er heillum horfinn. Stefnir í glæsilegan árangur Topalovs í þessari frumraun hans í Linares. Staðan eftir 9 umferðir: 1. Kaipov 8 v. 2. Kasparov 7 v. 3. -4. Kramnik og Shirov 5'A v. 5.-6. Kamsky og Topalov 5 v. 7.-8. Gelfand og Anand 4‘A v. 9.-10. Lautier og Barejev 4 v. 11.-12. ívantsjúk og Illescas 3 v. 13. Júdit Polgar 2'A v. 14. Beljavskí l'A v. Taflmennska ungversku stúlk- unnar 17 ára gömlu, Júditar Polg- ar, hefur ekki verið sannfærandi. Það gengur ekki á slíku móti að tefla upp á gildrur og óvæntar sóknir. Það er vert að hafa áhyggj- ur af því hvort hún hafi skemmt stílinn með þátttöku í of mörgum uppákomum og mótum með styttri umhugsunartíma. Á toppnum eru það fyrst og fremst djúphugsaðar hemaðaráætlanir sem skila árangri til lengdar. Gata Kamsky teflir ávallt til vinnings og fmmleg taflmennska hans í byijuninni gerði Kasparov erfitt fyrir fram af. Eftir ellefta leik Kamskys þurftu báðir að taka mjög erfiðar ákvarðanir og Kamsky missti fótanna fyrr: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Gata Kamsky Caro-Kann vörn 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rd2 - dxe4 4. Rxe4 — Rd7 5. Rg5 Kasparov lék 5. Bc4 gegn Karpov, en sér sig nú knúinn til að breyta til. 5. - Rgf6 6. Bd3 - e6 7. RlfS - Bd6 8. De2 - h6 9. Re4 - Rxe4 10. Dxe4 — Dc7!? 11. Dg4 - g5! 12. Dh3 - Hg8 13. Rd2! Alls ekki 13. Dxh6?? - Bf8! 14. Dh5 — Rf6 15. Dh3 — g4 og hvít- ur tapar manni. 13. - Bf8 14. Re4 - Bg7 15. 0-0!? Fórnar peði fyrir yfirburði í liðs- skipan, en 15. Be3 og 15. c3 mætti svara með 15. — e5. 15. - Bxd4 16. Be3 - Be5 16. - Bxb2!? 17. Hadl - Be5 kom vel til greina. 17. Hadl Bætur hvíts fyrir peðið felast í því að svartur hefur ekki komið kóngi sínum í öraggt skjól. Kamsky er ekki öfundsverður af því að vera með slíka stöðu gegn sjálfum Kasp- arov og nú verða honum á alvarleg mistök. Rétt var 17. — Rb6 18. Bc5 (Hótar 19. Bd6!) 18. - Hh8 og stefna síðan að langri hrókun. 17. - Rf6? 18. Rxf6+ - Bxf6 19. Bh7! Kamsky hefur líklega ekki áttað sig á því að Kasparov má hirða peðið til baka. 19. - Hh8 20. Dxh6 - Be7 21. Dg7 - Hf8 22. Hd3 - Bd7 23. Bxg5 — Bxg5 24. Dxg5 Skyndilega situr svartur uppi með peði minna og ótefiandi stöðu. Úrslitin eru ráðin. 24. - Dd8 25. De5 - De7 26. Dc7 - Bc8 27. Da5 - b6 28. De5 - Ba6 29. Be4 - Hc8 30. c4! Kasparov leikur sér að Kamsky eins og köttur að mús. í 28. leik gaf hann honum veika von um að hann væri að sleppa en nú sést að 30. - Bxc4? 31. Bxc6+! - Hxc6 32. Db8+ verður mát. 30. - Hg8 31. b3 - Bb7 32. Hfdl - Ba8 33. c5 - bxc5 34. Hd6 — c4 85. bxc4 — c5 36. Bxa8 - Hxa8 37. Dxc5 - Hb8 38. g3 - Db7 39. Dd4 — Kf8 40. Df6 og nú loksins gafst Kamsky upp. Skákþing Kópavogs 1994 Tómas Björnsson varð skák- meistari Kópavogs í ár, en hann var langstigahæstur þátttakenda. Mótið fór fram í félagsheimili TK í Hamraborg 5. Röð efstu manna: 1. Tómas Bjömsson 6 v. af 7 mögulegum. 2. -4. Páll Agnar Þórarinsson, Hlíðar Þór Hreinsson og Jónas Jón- asson 5 v. 5.-9. Einar K. Einarsson, Frið- geir Hólm, Bjöm Þorfinnsson, Atli Antonsson og Torfí Leósson 4 v. 10.-14. Einar Hjalti Jensson, Jón Einar Karlsson, Kjartan Guð- mundsson, Björn Halldórsson og Ingi Ágústsson 3‘/2 v. Taflfélag Kópavogs fyrirhugar að halda alþjóðlegt skákmót í apríl með þátttöku nokkurra stórmeist- ara, bæði innlendra og erlendra. Umræðu- fundur FÍBum bOaskatta FÉLAG íslenskra bifreiðaeig- enda efnir til opins umræðu- fundar um bílaskatta með fjár- málaráðherra á Holidey Inn- hótelinu í kvöld, fimmtudaginn 10". mars, kl. 20.30. Frummæl- endur verða Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Bjöm Pét- ursson, formaður FIB. Eftir að frummælendur hafa lokið máli sínu verða opnar umræður og fyrirspurnir. í fréttatilkynningu frá félaginu segir: „Miðað við forsendur fjár- laga hækka skatttekjur rikissjóðs af hverri bifreið í landinu um meira en 10% á árinu 1994 í sam- anburði við 1993. Gera má ráð fyrir að bifreiðaeigendur borgi hátt í 18 milljarða í skatta á þessu ári bara vegna eignar og reksturs bifreiðar sinna. Um 70% af útsölu- verði bensíns eru skattar í ríkis- sjóð. Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað stórlega á þessum vetri en ríkisstjórnin hefur komið í veg fyrir að íslenskir neytendur njóti þessarar hagstæðu þróunar á heimsmarkaði. Ríkissjóður tekur að meðaltali í bifreiðagjöld (kílóa- gjald) um 14 þúsund krónur á hvern bíl í landinu. Bifreiðagjaldið hækkaði á þessu ári 1994 um rúm- lega 30% frá árinu áður. Innan við 40% bílaskatta renna til vega- gerðar.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.