Morgunblaðið - 10.03.1994, Page 56

Morgunblaðið - 10.03.1994, Page 56
HEWLETT PACKARD ------UMBOÐIÐ HPÁ ÍSLANDI H F Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika SlMl 691100, Sl 9IB, KRIN 'lMBRÉF 6 691181, 'PÓSTHÓLF 3010/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Kristinn Stúdentsefnin á Fiðluballi FIÐLUBALL var haldið fyrir stúdentsefni og kennara Menntaskólans í Reykjavík í gærkvöldi. Þetta var í þriðja skipti sem Fiðluball er haldið og að þessu sinni var það á lestrarsal bókhlöðunnar íþöku sem reist var árið 1866. Stúdentsefnin voru prúðbúin, stúlkur klæddust síðum kjólum og piltar ýmist kjólfötum eða smóking. Undanfarna viku hafa nemendur lært dans í leikfimi, t.d. vals, ræl og polka, og svifu pörin um gólfið við undirleik kammersveitar frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík. Gömlu gildin voru í heiðri höfð á dansleiknum, dans- stjóri var skipaður og dansfélagar samviskusamlega skráðir á danskort. Dró niig’ um borð aftur sömu leið og þorskinn - segir Kristinn Finnsson, sem féll útbyrðis af báti „VIÐ vorum að leggja net og ég fór út með trossunni.,Það var mikil kvika og það stríkk- aði og slaknaði á trossunni á víxl eftir því hvernig kvikan kom. Ég geri mér ekki nokkra grein fyrir því hvað gerðist í raun og veru nema það að ég leit á dekkið og stóð í netinu. Ég hafði ekki tíma til að lyfta fætinum til að losna, ég flaug bara yfir og öskraði,“ sagði Kristinn Finnsson, sjómaður frá Akranesi, sem tók fyrir borð á bátnum Enok, sem var staddur um 12 sjómílur út af Akranesi laust eftir hádegi í fyrradag. „Þegar ég opnaði augun í sjónum sá ég að ég var laus og netið fyrir ofan mig. Eg synti undan því, náði í teinana og fór að fikra mig í átt að bátnum, sem var á fieygiferð í átt til mín því að skipstjórinn bakk- aði undireins. Ég náði í stiga sem var aftur á én það vantaði eina eða tvær tröppur til að hann kæmi að fullu gagni og við höfðum ekki afl til að tosa mig það hátt að ég næði að stíga fæti í tröppu,“ sagði Krist- inn. „Skipstjórinn setti þá strax band á höndina á mér og dró mig á því frameftir síðunni, þar setti hann út fríholt og ég gat staðið í því, kom höndunum upp í lunninguna og sá upp í bátinn en það dugði ekki til. Ég var við það að gefast upp þama og lét mig síga niður á fríholtið aft- ur og þá kom Símon eftir augnablik með trossu sem hann setti utan um mig og skellti svo á spilið og dró mig inn aftur sömu leið og þorskinn. Það var dregið af mér þannig að ég var máttlaus en ég fann ekkert fyrir kulda,“ sagði Kristinn, sem var í sjóstakk og stígvélum þegar hann féll fyrir borð og kom um borð í Ljósmynd/Carsten Félagarnir Símon Simonarson og Kristinn Kristinsson Finnsson. gallanum en húfulaus. Kristinn gisk- ar á að hann hafi verið 5-10 mínútur í sjónum. „Ég þakkaði Símoni lífgjöf- ina - eða reyndi það því hún verður aldrei þökkuð eins og vert væri. Síð- an skreið ég niður og skipstjórinn hjálpaði mér að fara úr fötunum og vefja mig inn í teppi. Það var erfítt á leiðinni heim, þá fór ég að skjálfa og mér fór að líða illa. Ég fékk verki í fætuma en það var ekkert að þola það. Síðan fór ég upp á sjúkrahús og þar var tekið vel á móti mér,“ sagði Kristinn. Hann gisti á sjúkra- húsinu en var útskrifaður um hádegi í gær. „Menn eru að taka viðtöl við mig en ég er ekki hetjan í þessu heldur skipstjórinn, Símon Símonarson; hans er heiðurinn. Hvað hefði ég getað gert ef hann hefði ekki verið þama til að hjálpa mér? Ég vissi að hann mundi leggja sig fram en það eina sem ég var hræddur um meðan ég var í sjónum var að hann myndi ofreyna sig,“ sagði Kristinn. Kristinn og Símon hafa verið sam- an til sjós í 20 ár og undanfarin ár róið tveir á Enok, sem þeir eiga og gera út saman. Þegar Morgunblaðið ræddi við Kristin í gær sagði hann hins vegar að nú væri sjómannsferli sínum lokið. „Ég ætla ekki aftur á sjó. Ekki vegna þess að ég sé hrædd- ur á sjó og það er gott að vera með Símoni, en það er ekki víst að ég fari næst og ég tel mér trú um að þá hefði ég engin tök á að hjálpa honum,“ sagði Kristinn Finnsson, en þeir Símon em jafnaldrar, 65 ára gamlir. Innlend og erlend fyrirtæki lýsa áhuga á kaupum á Samskipum Landsbankinn færir niður hlutafé að verulegu marki LANDSBANKI íslands fyrirhugar að afskrifa verulegar upphæðir til þess að mæta rekstrartapi Samskipa á liðnu ári, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þannig hyggst Landsbankinn færa niður 420 milljóna króna hluta- fjáreign sína í Samskipum að verulegu marki. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að Landsbankinn undirbúi nú af fullum krafti sölu á Samskipum. Meðal hugsanlegra kaupenda, sem nefndir hafa verið, em Vátrygg- ingafélag íslands, Olíufélagið hf., Olís og Byko. Auk þess munu menn á vegum Landsbankans hafa átt í viðræðum við erlend flutningafyrir- tæki að undanförnu, sem hugsan- lega væm reiðubúin að koma inn í Samskip með umtalsverðar fjár- hæðir. Fækkað var úr níu skipum í fjög- ur á sl. ári og þau sem seld voru, voru rekin allt árið með tapi og seld með tapi. Tap Samskipa á því þegar Jökulfellið brann í Grikklandi í fyrra nam samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins tugum milljóna króna. Þá varð gengistap fyrirtæk- isims á liðnu ári um 140 milljónir króna. Tap Samskipa á flutningúm fyrir gjaldþrota Sambandsfyrirtæki eins og Miklagarð, Jötun/Búland og íslenskan skinnaiðnað, sem allt voru stórir viðskiptavjnir Samskipa, nam samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins um 60 milljónum króna. Þrátt fyrir hina erfíðu afkomu fyrirtækisins á liðnu ári eru eigend- ur Samskipa sannfærðir um að tek- ist hafi að umbreyta rekstri félags- ins til hins betra. Því telja þeir að takast muni að selja fyrirtækið að verulegum hluta, innlendum og er- lendum aðilum. Heimild er til aukn- ingar hlutafjár að fjárhæð 480 millj- ónir króna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur einkum verið rætt við evrópskt flutningsfyrirtæki, sem hefur nú farið fram á frest, áður en það ákveður hvort það kemur inn í fyrirtækið með nýtt hlutafé. Jafnframt mun hollenskt-banda- rískt flutningafyrirtæki hafa stað- fest bréflega við Landsbanka ís- lands að það hafí áhuga á að kaupa hlut í Samskipum. Báðir þessir flutningsaðilar miða við það, að meirihluti Samskipa verði í eigu innlendra aðila. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins kæmi ekki til greina að báðir þessir erlendu flutningsaðilar yrðu meðeigendur að Samskipum, þar sem þeir eru samkeppnisaðilar á alþjóðlegum flutningaleiðum. Fjárfestar í Bandaríkjunum Spurt um umhverf- is- og efna- hagsmál RÍKISSJÓÐUR tók í febrúar lán á bandarískum verð- bréfamarkaði þegar hann seldi þar skuldabréf fyrir 14,7 miHjarða króna. I tengslum við útgáfuna var efnt til funda með bandarískum fjárfestum til að kynna íslensk efnahagsmál undir forystu seðlabankastjóranna Jóns Sig- urðssonar og Birgis Isleifs Gunnarssonar. Birgir ísleifur hélt fyrir skömmu fyrirlestur í Seðlabankanum þar sem hann rakti m.a. um hvað helstu fyrir- spumir fjárfesta snerust. Fyrir utan efnahagsmál var talsvert spurt um stjórnmál, varnarmál og umhverfísmál, þ.á m. hval- veiðar íslendinga. Sjá nánar bls. 10B. Uppboðsmarkaður stofnsettur í Grandahúsinu Bflar slegnir hæstbjóðanda 8' Morgunblaðið/Kristinn Bílamarkaðshúsið HÚS uppboðsmarkaðarins, áður Hraðfrystistöð Granda. NÝSTÁRLEGUR uppboðsmarkaður fyrir notaða bíla hefur starfsemi í lok þessa mánaðar á Mýrargötu 26 þar sem áður var Hraðfrysti- stöð Granda til húsa, en þar verða bílar framvegis boðnir upp viku- lega á laugardögum. Verið er að gera nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu og er gert ráð fyrir að þar komist fyrir 200-250 bílar. Væntanlegir kaupendur á upp- boðsmarkaðnum verða að skrá sig í uppboðið og greiða ákveðið þátt- tökugjald, en við það fá þeir númer sem þeir halda á lofti þegar þeir bjóða í bílana. Öll tilboð miðast við staðgreiðslu sem rennur óskipt til seljanda, en kaupandinn greiðir sölu- launin. Farið verður að safna saman bílum þegar húsnæðið á Mýrargötu verður tilbúið, en söluverð þeirra verður metið í samráði við seljend- ur. Bílarnir verða til sýnis alla daga vikunnar undir eftirliti sölumanna, en á milli uppboðsdaga verða bílarn- ir allir geymdir inni í húsi. Sjá „Uppboðsmarkaður..." á bls. Bl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.