Morgunblaðið - 17.03.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.03.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1994 41 Minning Gíslína Sigríður Gísladóttir Fædd 27. október 1904 Dáin 20. febrúar 1994 Móðursystir mín, Gíslína Sigríður Gísladóttir, lést 20. febrúar sl. í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þrátt fyrir vaxandi heilsuleysi eins og við er að búast þegar árin færast yfir bar andlát hennar brátt að. Gíslína var trúuð kona og virkur meðlimur í Aðventistasöfnuðinum. Hún tók hverju því sem að höndum bar með æðruleysi og þrautseigju. Gíslínu skipti öllu máli að vera sjálf- bjarga og láta aðra hafa sem minnst fyrir sér. Þetta tókst Gíslínu, enda gat hún verið mjög föst fyrir og ákveðin ef hún vildi það við hafa. Hún var alla tíð sjálfri sér nóg og henni varð að ósk sinni að geta búið í íbúð sinni í Einholti 11 þar til á síðastliðnu vori, er þrekið fór þverrandi. Þá var hún tilbúin að þiggja aðstoð fóstursonar, tengda- dætra og barnabarna. í fyrrasumar flutti hún austur að Dvalarheimilinu Blesastöðum á Skeiðum. Rétt fyrir jólin veiktist hún og dvaldi á Borg- arspítalanum mánaðartíma en hresstist aftur. Hún var komin á DAS í Hafnarfirði er hún veiktist og var flutt á St. Jósefsspítala þar sem hún lést eftir sólarhrings legu. Gíslína var fædd að Stekkum í Flóa 27. október 1904 og hefði því orðið níræð í haust ef henni hefði enst aldur. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Filippusdóttir og GIsli Ólafsson sem þar bjuggu um áratuga skeið. Systkinin voru fimm talsins sem upp komust: Sveinbjörn, Filippus, Gísli, Gíslína og Guð- munda móðir mín sem nú er ein eftirlifandi. Tvíburasystir Gíslínu, Sigríður að nafni, lést í frum- bernsku. Gíslína ólst upp að Stekk- um við öll venjuleg sveitastörf. Skólgangan var stutt, aðeins hefð- bundin skólaskylda. Gíslína var um tvítugt er faðir hennar lést og var jörðin seld stuttu síðar. Mæðgurnar fluttu til Reykjavíkur og bjuggu fyrst í stað á Grettisgötunni. Syst- urnar stunduðu ýmis tilfallandi störf, s.s. fiskvinnu og saumaskap. Þegar móðir mín gifti sig fluttu Sigríður amma mín og Sigurlaug ömmusystir til móður minnar á Sólvallagötunni í Reykjavík og bjuggu þær hjá henni til dauða- dags. Á tímabili bjó Gíslína þar einnig. Hinn 16. ágúst 1940 gengu þau í hjónaband Gíslína og Björn Guð- mundsson. Björn var fæddur í Stykkishólmi 28. júní 1896 og lést í Reykjavík 15. mars 1976. Hann stundaði sjó á bátum og skútum og síðar á togurum. Eftir 1940 gerðist hann starfsmaður hjá Eim- skip og var þar í 30 ár. Hjá Pípu- gerð Reykjavíkurborgar starfaði hann í nokkur ár, á sama tíma og faðir minn, Guðbjörn Pálsson, og mágur þeirra, Sveinbjörn Gíslason. Gíslína og Björn eignuðust tvö börn: Sigurð, fæddan 14. apríl 1941, og Lilju, fædda 1. janúar 1946. Sigurður lést langt um aldur fram 18. desember 1992. Hann og eiginkona hans áttu tvö börn og eitt barnabarn, Sigurð, sem var sólargeisli langömmu sinnar. Lilja lifir móður sína og býr á Kópavogs- Jón SævarArnórs- son — Minning Kveðja frá Samskipum Skyndilega er kallaður á braut einn af okkar hæfustu skipstjórnar- mönnum. Jón Sævar Ámórsson skipstjóri á Mælifellinu, lést langt um aldur fram 28. febrúar síðastlið- inn. Aðeins þremur dögum áður áttum við Jón langt spjall um borð I skipi hans skömmu áður en hann sigldi úr höfrl, I venjubundna áætl- unarferð til Austfjarða. Ferð hans lauk á Neskaupstað tveimur dögum síðar, en þar fór hann I land vegna lasleika, og lést á Sjúkrahúsi Nes- kaupstðar örfáum klukkustundum síðar. Jón tók ungur við skipstjóm og átti að baki einstaklega farsælan skipstjórnarferil, lengst af hjá Skipaútgerð -ríkisins en síðustu tvö árin hjá Samskipum. Ég átti því láni að fagna að starfa með Jóni I 14 ár, fyrst hjá Ríkisskipum og síð- an hjá Samskipum en þar hófum við samtímis störf fyrir rúmum tveimur árum, þegar Ríkisskip var lagt niður. Jón bjó yfir einstökum hæfileik- um til þess að laða fram það besta hjá starfsmönnum sínum án þess að þurfa að brýna raustina. í stað þess gekk hann fram með góðu fordæmi, vann við hlið sinna manna sem jafningi, þó engum blandaðist hugur um hver væri leiðtoginn. Minning Ama ÝrÁrnadóttir Fædd 21. júní 1983 Dáin 13. febrúar 1994 Elsku Arna mín. Nú hefur þú kvatt þennan heim, svo ung og full af orku og lífi. Þú sem alltaf varst svo góð og innileg við mig og litla frænda okkar, hann Tómas Hrafn. Minning þín er mikilsverð og mér svo undurgóð, hún vefst um mína veiku sál ef verður grýtt mín slóð. Ég þaðan alltaf orku fæ í erfiðleikans þraut, og hjá þér dvelur hugur minn þótt horfin sértu’ á braut. Ég blessa allt það blómaskeið og bjarta minning þá, sem eins og stjama skærast skín er skuggar leita á. Ég þakka alla ást og tryggð, já, allt sem gafst þú mér. Þvi kveð ég þetta litla ljóð, það ljóð er helgað þér. (Ásgrimur Kristinsson) Elsku pabbi, afi, amma, Þórdís og Haukur, megi góður Guð styrkja ykkur og blessa I þessari miklu sorg. Ég og mamma munum ávallt varðveita minningu þína og bjarta brosið þitt I hjörtum okkar. Þinn ástkæri frændi, Agúst Orn. Það var um haustið 1983 að ég « kynntist Örnu Yr þegar ég og syst- hælinu. Fóstursonur Gíslínu og kjörsonur Björns frá fyrra hjóna- bandi er Guðmundur Björnsson. Hans kona er Sigurrós Gísladóttir. Eiga þau fjögur börn, ellefu barna- börn og tvö langömmubörn. Gíslína og Björn bjuggu allan sinn búskap I Einholti 11 I Reykjavík. Á kveðjustund hvarflar hugurinn til liðinna daga. í bernskuminning- um mínum er Gíslína móðursystir mín alls staðar með. Móðir mín og Gíslína voru góðar systur og sam- band þeirra náið. Þau Björn og Gísl- ína voru sérstaklega gestrisin og barngóð. Ég minnist heimsóknanna til þeirra og þá ekki hvað síst um jól og á sama hátt komu þau til okkar. Þessar fjölskyldur voru sam- stilltar og alltaf ríkti góð samvinna á milli þeirra. Á árunum upp úr 1940 reistu faðir minn og Björn sér saman sumarbústað við Hlíðarveg I Kópavogi. Bústaðurinn var byggð- ur I áföngum. Hann var tvískiptur en með sameiginlegum inngangi. Á þessum árum var Kópavogur sveit. Þarna bjuggum við I sumarbústaðn- um allt sumarið. Það var flutt að Hann ávann sér traust og virðingu allra þeirra sem með honum störf- uðu með hógværri framkomu og öruggri skipstjórn. Hann var af- burða sjómaður, sem best sést á því að allan þann tíma sem hann sigldi sem skipstjóri á ströndinni I stífum áætlunarsiglingum varð skip hans aldrei fyrir tjóni, en erfiðara hafsvæði er vart hægt að hugsa sér. Er ég rifja upp spjallið sem við áttum fyrir síðustu brottför hans með skipi sínu kemur upp I hugann sú mynd af Jóni sem við eigum eftir að minnast. Minningin um góðan dreng og sem bar umhyggju fyrir áhöfn sinni, starfsfélögum og fyrirtæki. Við samstarfsfólk hans hjá Sam- skipum söknum sárt góðs og trausts félaga og sendum Beggu, börnun- um og ástvinunum öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður guð veita ykkur huggun og styrk. Hjörtur Emilsson. ir hennar Þórdís urðum góðar vin- konur. Arna var þá aðeins nokkurra mánaða gömul, en strax mátti þó sjá hversu mikil orka og gleði fylgdi henni. Þetta var á því tímabiii I lífi okkar Þórdísar, þegar barnapössun átti hug okkar allan og ósjaldan báðum við um að fá að passa Örnu, sem við fengum stundum. Hún var einstaklega skýrt og skemmtilegt barn og var mjög fljót að læra flókna söngtexta sem hún síðan söng fyrir okkur af mikilli innlifun. Þó að ég hafi verið hálfgerður heimagangur hjá fjölskyldunni á tímabili, hef ég því miður ekki umgengist Örnu síðustu árin. En I minningunni lifir mynd af góðri og lífsglaðri stúlku sem hrifin var burt allt of fljótt og eftir sitjum við hin og veltum fyrir okkur tilgangi lífs- ins. Ég vil votta fjölskyldu hennar alla mína samúð. Elsku Kristín, Árni, Þórdís og Gunnar, ásamt öðr- um ættingjum, ég bið Guð að veita ykkur styrk á þessum erfiðu tíma- mótum. Hildur Garðarsdóttir vorinu og aftur til Reykjavíkur þeg- ar haustaði. Faðir minn og Björn sóttu sína vinnu til Reykjavíkur en komu heim að kvöldi. Sumarbústaðirnir I Kópavogi voru fyrsti vísir að byggð þar. Ekki var rennandi vatn I bústaðnum, því ég man vel þegar þær systur, sem báðar voru með ungabörn á þessum árum, voru að þvo bleiurnar uppi I bústað og ganga síðan með balann á milli sín niður að Lindinni til að skola þvottinn. Það var mikið á sig lagt. Lindin I Kópavogi var falleg upp- sprettu lind I slakkanum fyrir neðan Hlíðarveginn og hafði hún mikið aðdráttarafl fyrir okkur krakkana. Lindin hvarf þegar farið var að byggja á þessu svæði. Þessi sveitabúskapur átti vel við systurnar sem fæddar voru og upp- aldar I sveit og þótti gott að kom- ast burt úr borginni yfir hásumarið. Við sumarbústaðinn var farið að ryðja burt grjóti sem nóg var af I holtunum I kring og tekið til við stórfellda kartöfluræktun sem hald- ið var áfram lengi eftir að við hætt- um að búa I bústaðnum. Þar ríkti sama góða samvinnan og annars staðar. Einnig eru minnisstæðar berja- ferðirnar sem farnar voru I „boddý- bílnum". Hvert sæti I „boddýinu" var skipað. Þá var oft glatt á hjalla, þó ekki væri þægindunum fyrir að fara. Seinna meir komu betri vegir og betri bíll til sögunnar og fóru þær systur ásamt eiginmönnum I margar skemmtilegar dagsferðir saman, en á æskustöðvarnar austur I Flóa var alltaf gaman að koma. Fyrir stuttu minnti Gíslína mig á það að eitt sinn heimsótti hún mig ásamt móður minni til Vestmanna- eyja meðan ég bjó þar og var það I eina skiptið sem hún steig I flugvél. Á seinni árum tóku systurnar þátt I félagsstarfi aldraðra I Reykja- vík meðan kraftar entust og var það þeim báðum til mikillar ánægju. Að leiðarlokum vil ég þakka Gísl- ínu móðursystur minni fyrir sam- fylgdina og tryggðina við mig og mína alla tíð. Blessuð sé minning hennar. Gyða Guðbjörnsdóttir. Mig langar að minnast hennar ömmu minnar Gíslínar S. Gísladótt- ur, en hún lést I St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, sunnudaginn 20. febr- úar síðastliðinn á 90. aldursári. Amma var lifandi fordæmi alls hins góða. Hún var mjög trúuð kona, friður og ró fylgdi henni ávallt. Aldrei heyrði maður hana skipta skapi eða hallmæla nokkrum og öllu tók hún með jafnaðargeði en það hefur eflaust hjálpað henni mikið I lífinu. Varanlegum áhrifum varð ég fyrir frá ömmu sem munu endast mér allt lífið. Ég man þegar amma hlýddi mér yfir námsefnið. Hún hafði mikla þekkingu á innihaldi þess, bæði gæddi hún það lífi, einn- ig lét hún mig sjá það með allt öðrum og mun skemmtilegri aug- um. Sjálf hefði hún eflaust gengið menntaveginn ung kona ef konur hefðu haft jöfn tækifæri til mennt- unar. Þegar ég varð eldri urðum við miklar vinkonur þó að 58 ár væru á milli okkar. Við gátum rætt um ýmis mál og oftar en ekki gat hún miðlað mér af þekkingu sinni því hún var mjög fróð og fylgdist vel með. Á bókunum hennar gat maður séð hve breitt áhugasvið hennar var. Alltaf var tekið á móti okkur fjöl- skyldunni með opnum örmum I Ein- holtinu þegar farnir voru sunnu- dagsbíltúrarnir. Amma var ævin- lega með uppdekkað kaffiborð og meðan afi lifði sátum við oft og spiluðum eða gerðum eitthvað ann- að skemmtilegt. Þau voru bæði mikið fyrir að vera með og hlúa að fjölskyldunni. Ljóðin voru henni ömmu mikils virði og oft fór hún með ógrynni af ljóðum og vísum sem hún kunni, en eitt ljóðskáldið hélt hún mest upp á, það var Jónas Hallgrímsson. Ég hef ekki verið nema nokkra ára þegar amma kenndi ihér bæn sem við áttum eftir að fara með saman. Með þessari bæn vil ég kveðja elsku ömmu mína og þakka henni fyrir allar samverustundirnar sem við áttum saman. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Dóra. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför LÁRU GUNNARSDÓTTUR, Fossvöllum 12, Húsavík. Fyrir hönd vandamanna, Þorsteinn Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför bróður okkar og mágs, EINARS J. EGILSSONAR frá Langárfossi, Skeggjagötu 11. Hrefna Egilsdóttir, Katrín S. Egilsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Þórdis Egilsdóttir, Finnbogi Reynir Gunnarsson. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vottuðu minningu KATRÍNAR ÓLAFSDÓTTUR, Laufásvegí 45, virðingu við andlát hennar. Guðni Guðmundsson, Guðmundur H. Guðnason, Lilja I. Jónatansdóttir, Guörún Guðnadóttir, Jóhann S. Hauksson, Ólafur B. Guðnason, Anna G. Sigurðardóttir, Hildur N. Guðnadóttir, Friðrik Jóhannsson, Anna S. Guðnadóttir, Gylfi Dýrmundsson, Sveinn G. Guðnason, Erna Jensen, Sigurður S. Guðnason, Margrét Gestsdóttir og barnabörn. T-f .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.