Morgunblaðið - 17.03.1994, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1994
47
Laugarás-
bíósýnir
myndiiía
Leiftursýn
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Leiftursýn eða
„Blink“ Með aðalhlutverk fara
Madeleine Stowe og Aidan
Quinn.
Emma Brody (Stowe) hefur verið
blind frá bamæsku. Nú hefur tækni
vísiindanna gert það kleift að þessi
hæfileikaríki fiðluleikari á mögu-
leika á að endurheimta sjónina að
hluta. Áhrif og afleiðingar skurð-
aðgerðarinnar á augum hennar hef-
ur haft í för með sér sérkennilegar
hliðarverkanir. Þær lýsa sér í því
að þó augu Emmu sjái getur það
gerst að skilaboðin frá auganu skili
sér ekki til móttökustöðva heilans
fyrr en löngu seinna. Hún getur
því verið að horfa á hluti sem gerst
hafa löngu áður. Lögreglumaðurinn
John Hallstrom (Quinn) trúir því
að Emma hafi í raun orðið vitni að
morði á nágranna hennar og séð
morðingjann. Um leið og Emma
þarf að fóta sig í veröld þeirra sem
sjá lifir hún í óvissu um það hvað
hún raunverulega sá um kvöldið
sem morðið var framið. Um leið og
rannókn málsins fleygir fram verða
Hallstrom og Emma æ sannfærðr-
ari um að hún hafí í raun séð and-
lit morðingjans.
Skoðanakönnun DV um borgarstj ómarkosningar
Minnihlutaflokkar
fengju níu fulltrúa
TÆPLEGA 58% kjósenda í Reykjavík myndu greiða sameiginlegum lista
minnihlutaflokkanna atkvæði sitt i borgarstjórnarkosningum og rúm
42% Iista Sjálfstæðisflokksins, ef marka má niðurstöðu skoðanakðnnun-
ar DV sem gerð var í fyrrakvöld. Rúm 18% aðspurðra eru óákveðnir,
en köununin náði til 600 Reykvíkinga og var jöfn skipting á milli kynja.
Þetta er talsverð breyting frá síðustu könnun sem fram fór i febrúar,
en þá fékk listi minnihlutaflokkanna 63,3% atkvæða þeirra sem afstöðu
tóku og listi Sjálfstæðisflokksins 36,7%.
í könnuninni sögðust 46,2% að- Þessi skipting atkvæða myndi gefa
Aidan Quinn og Madeleine Stowe í myndinni Leiftursýn.
spurðra styðja sameiginlegan lista
minnihlutaflokkanna ef kosið væri
nú, 33,7% sögðust styðja Sjálfstæð-
isflokkinn, 18,2% voru óákveðnir og
2% neituðu að svara. Ef aðeins eru
teknir þeir sem afstöðu taka fengi
sameiginlegur listi 57,8% og listi
Sjálfstæðisflokksins fengi 42,2%.
sameiginlegum lista minnihlutaflokk-
anna 9 borgarfulltrúa og lista Sjálf-
stæðisflokksins 6 borgarfulltrúa, en
samkvæmt könnuninni í febrúar hefði
samsvarandi skipting borgarfulltrúa
verið sú að minnihlutaflokkamir
hefðu fengið tíu og Sjálfstæðisflokk-
urinn fímm.
Vélsleða stol-
ið af kerru
NÝLEGUM Polaris Indy-vélsleða
var stolið þar sem hann stóð á
lokaðri kerru fyrir utan Faxastál
við Skemmuveg aðfararnótt
þriðjudags.
Brotist hafði verið inn í kerruna
og sleðinn fjarlægður. Um er að
ræða Polaris Indy Storm-vélsleða
árgerð 1993. Sleðinn er svartur
með ljósbláar og bleikar renndur á
plasthlíf. Skráningamúmer sleðans
er PO-134.
QuarkXPress námskeið
S£SS2Sffi^ Tölvu-og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjánssonar
94022
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Vegna allra þeirra, sem þurftu frá að hverfa
þann 12. mars sl., verður haldinn annar fræðslufundur
í Háskólabíói laugardaginn 19. mars kl. 13.30.
HALLGRÍMUR Þ. MAGNÚSSON,
læknir, fjallar um:
►Hvað er Candida Albicans
eóa sveppasýking?
►Skaðleg áhrif sveppasýkingar
á líkamann.
►Sjúkdómseinkenni, sem rakin
hafa verið til sveppasýkingar.
►Leið til lækningar - stofnun
sjálfshjálparhópa.
GUDRÚN G. BERGMANN
fjallar um reynslu sína af sveppasýkingu.
Verð 400 kr. - Miðasala hefst kl. 13.00 við innganginn.
pnny
Þér býðst ekki
sambæriiegur bíll
á þessu verði!
t
PONY mætir kröfum fjölskyldunnar
um veglegan bíl sem getur rúmað
meðlimi hennar með góðu móti.
Veiðfrá 946.000 kr.
Það má að talsverðu leyti eigna
HYUNDAI PONY þær áherslu-
breytingar sem orðið hafa
á íslenska bflamarkaðnum
að undanfömu. Gífurlegar
vinsældir bflsins og mikil sala
hafa gert það að verkum að
önnur bflaumboð hafa farið að
flytja inn smábfla á svipuðu
verði til að mæta samkeppninni.
HYUnOFII
...lil framtiðar
Staðreyndin er bara sú að PONY er
enginn smábfll, heldur rúmgóður
fjölskyldubfll, sem er hins vegar á
verði smábfls.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36