Morgunblaðið - 26.03.1994, Síða 7

Morgunblaðið - 26.03.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994 7 Fulltrúar Færeyinga, Grænlendinga og íslendinga funda Samvinna verkalýðshreyf- inganna skiptir miklu máli FULLTRÚAR færeysku og grænlensku verkalýðshreyfinganna héldu fundi með fulltrúum Alþýðusambands Islands á fimmtudag og föstu- dag. Fundirnir voru liður í formlegu samstarfi þessara samtaka sem staðið hefur i mörg ár. Rætt var um stöðu mála í löndunum þremur og afstöðu verkalýðshreyfingarinnar þar að lútandi. Auk þess var unnið að undirbúningi fyrir ráðstefnu sem haldin verður í Færeyjum í haust á vegum samtakanna í löndunum þremur. Á blaðamannafundi, sem efnt var til í gær hjá Alþýðusambandinu, kom fram að sjálfsagt og eðlilegt þykir að þessi lönd eigi samvinnu sín á milli því mörg vandamálanna sem þjóðimar standa frammi fyrir eru af sama toga þótt vandi Færeyinga sé sýnu verstur. Atvinnumálin voru efst á baugi og atvinnuleysið sem er vaxandi vandamál í löndunum þremur. Þá var rætt um hvemig verkalýðshreyfingamar gætu sam- ræmt vinnu sína gagnvart stjórnvöld- um og atvinnurekendum. Þjóðirnar samnýti þekkingu í máli Benedikts Davíðssonar, for- seta ASÍ, kom fram að þjóðirnar byggju við líkar aðstæður og þær ' ættu að samnýta þekkingu sína. Hann sagði að eitt helsta baráttumál verkalýðshreyfinganna í löndunum þremur væri að auka vinnslu sjávar- afurða og afla nýrra markaða. Hann sagði að auka þyrfti úrvinnsluna úr því litla hráefni sem við hefðum úr að spila og efla markaðssetningu á því sem dýrri vöru. „Við höfum gott hráefni og mikla tækni þannig að við ættum að geta gert það,“ sagði Benedikt. Vinnsla skaði ekki lífríkið Benedikt sagði að umræðan um hafsbotnsréttindi myndi öragglega aukast á næstunni, sérstaklega í Færeyjum, þar sem sýnt þykir að mun meiri auðæfi séu fólgin í hafs- botninum á landgrunni Færeyja en áður var talið. Þótt íslendingar og Grænlendingar gætu ekki miðlað mikilli vísindalegri þekkingu í því máli þá skipti miklu að hafa sem Vogabakki Nes dró umsókn sína til baka AÐ sögn Hannesar Valdi- marssonar, hafnarsljóra í Reykjavík, var tveimur skipa- félögum úthlutað hafnarað- stöðu við Vogabakka í Sunda- höfn fyrir tveimur árum en hvorugt þeirra notfærði sér þó aðstöðuna. Annars vegar var um að ræða Skipaútgerð ríkisins og hins vegar skipafé- lagið Nes, sem dró umsókn sína til baka. „Við töldum ekki skynsam- legt að fara út í þann kostnað sem þessu hefði fylgt,“ sagði Pálmi Pálsson, forstjóri skipafé- lagsins Ness. Sagði hann að á þessum tíma hefði Nes verið í flutningi á stykkjavöru frá Sví- þjóð og Noregi en þeir flutning- ar hefðu dregist saman og því hefðu þeir ákveðið að hætta við þessi áform. Áhættan of mikil Pálmi sagði að það hefði ver- ið mjög kostnaðarsamt að koma upp fastri aðstöðu við Voga- bakka. Aðstaðan við Vogabakka stæði þó öllum opin ef menn vildu taka áhættuna og leggja í þá peninga sem þyrfti. „Að betur athuguðu máli fannst okk- ur áhættan vera of mikil,“ sagði hann. mest samstarf um málið. Þá sagði hann að ef til einhverrar olíu- eða gasvinnslu kæmi þá skipti allar þjóð- irnar miklu að þannig yrði að verki staðið að vinnslan skaðaði ekki lífrí- kið og fiskistofnana. Ingeborg Vinther frá Foroyja Ar- beiðarafelag gerði stuttlega grein fyrir ástandinu í atvinnumálum í Færeyjum. Hún sagði að á síðustu árum hefðu um 10% þjóðarinnar flust úr landi, þar af milli 3 og 4% til ís- lands. Atvinnuleysið í Færeyjum mælist nú um 21% en Ingeborg sagði að væru allir taldir með sem hefðu farið af atvinnumarkaðinum, þ.m.t. þeir sem hefðu flust úr landi og hefðu farið í nám, jafnvel þótt þeir hefðu ekki haft löngun til þess, þá væri talan um 35%. Morgunblaðið/Júlíus Samvinna í verkalýðsmálum FRÁ blaðamannafundi með fulltrúum verkalýðshreyfinga á íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Frá vinstri eru Ari Skúlason, hagfræðing- ur ASÍ, Ole Kristian Kleist frá SIK, grænlenska alþýðusambandinu, Ingeborg Vinther frá Faroya Arbeiðarafelaginu og Benedikt Davíðs- son, forseti ASI. THOMSON IMORDMEIMDE HÁGÆÐASJÓNVARP Á _ I lcjölfar mikillar sölu á NORDMENDE-sjónvarpstækjum að undanförnu/ höfum viö meö magnkaupum og hagkvæmum innfiutningi í gómum, getaö samiö vib NORDMENDE um verulega hagstæö kaup á THOMSON-sjónvarpstækjum, sem eru framleidd af NORDMENDE-verksmiójunum. THOMSON-gæöin eru löngu landsþekkt, þar sem flestir sjónvarpssendarnir hér ó landi eru gf THOMSON-gerö. Thomson 63 og 70 DS 50: • Black Matrá-skjár • Moguleðu á 16:9 breiðtjaidsmóttötu • PatSecamNISCvideo •Timaroi t,semeytar • íslenskt textavarp ðse^ aum • Sjálfvirk stöðvaleit áraraðir rerið í notkun við góðan orðstýr. V Spatial sound- híjómmögnun: t=>etta er sérstök hljóö- blöndun, sem eykur hljóm- inn og gefur möguleika á hljóöáhrifum líkt og í kvik- myndahúsum. Mono útsending faer blae af stereo- útsendingu og stereo-útsending gefur aukin áhrif. þannig aö áhorfandinn faerist eins og inn í kvikmyndina. A&eins þarf að stinga bakhátölurum i sam- band wiö sjónvarpid i/erð. Thomson 63 DS 50: 25" 79 Thomson 70 DS 50: 28" 87.900,- kr. nð: Stor.i/erð: .900,-kr. /2.900,- VISA-18 mén: EURO-11 mán: kr. Ca. 5.012,-kr. ámán. 7.974,-kr. á mán. 79.900 kr Ca. 5.503,- kr. á mán. 8.7G2,- kr. á mán. Munalán: 19.975,- Itr. útb. og 3.645,- kr. á mán. í 21 mán. 21.975 kr. útb. og 3.580,- kr. á mán. í 24 mán. Skipholti 7 9 [ Sfmi: 9 7 -29>0OO I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.