Morgunblaðið - 26.03.1994, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
ESSO hefur skilað hagnaði
hvert ár síðustu 35 árin
Meðalávöxtun hluthafa undanfarin þrjú ár, 5,4% á ári
HLUTHAFAR Olíufélagsins hf. (ESSO) geta vel við unað
og verið sáttir við hóflega, en örugga raunávöxtún hluta-
fjár síns í vörslu ESSO. Avöxtun hlutafjárins hefur undan-
farin þrjú ár, að jafnaði verið jákvæð um 5,4%, sem skipt-
ist þannig að ávöxtunin var neikvæð um 8,5% árið 1991,
jákvæð um 11% árið 1992 og jákvæð um 15% árið 1993.
Félagið hefur undanfarin 35 ár skilað hagnaði og sl. fjög-
ur ár hefur hann verið um og yfir 200 milljónir króna á
ári. Þegar afkoma fyrirtækis er stöðug og jöfn eins og hjá
ESSO, þá minnkar áhættan og þar af leiðandi ávöxtunar-
krafa hluthafanna.
Arleg ávöxtun hluthafa í ESSO
hefur þannig undanfarin tvö
ár verið mun betri en raunávöxtun-
arkrafa 3ja-5 ára spariskírteina
ríkissjóðs og einnig umtalsvert betri
en meðalvextir vísitölubundinna
útlána bankanna, einkum á síðast-
liðnu ári. Öðru máli gegnir hins
vegar með árið 1991, þegar raun-
ávöxtun hluthafanna var neikvæð
um 8,5%. Á árslokaverðlagi 1993
var hagnaður ESSO samkvæmt
ársreikningum fyrir árið 1988 147
milljónir króna, 92 milljónir árið
1989, 229 milljónir króna árið 1990,
218 milljónir árið 1991, 203 milljón-
ir árið 1992 og 198 milljónir króna
árið 1993.
Útlánavextir bankanna hefðu
gefið 550 milljónum meira sl.
sex ár
Tap varð hins vegar öll árin eftir
reiknaða vexti af bókfærðu eigin
fé (meðalútlánavextir bankanna):
1988 nam það 101 milljón króna,
1989, 112 milljónum króna, 1990,
22 milljónum króna, 1991, 97 millj-
ónum króna, 1992, 151 milljón
króna og 1993, 79 milljónum króna.
Hér munar því 552 milljónum króna
á þessum sex árum, til þess að fé-
lagið skili ávöxtun sem samsvari
meðalútlánavöxtum bankanna.
Heildareignir félagsins hafa auk-
ist geysilega á undanfömum sex
árum. Á árslokaverðlagi 1993 voru
eignimar árið 1988 tæpir 5,5 millj-
arðar króna, en í árslok 1993 voru
þær 7,1 milljarður króna. Heildar-
skuldir félagsins voru í árslok 1988,
á árslokaverðlagi 1993 2,3 milljarð-
ar króna, en í árslok 1993 3,8 millj-
arðar króna. Hafa ber í huga í þessu
sambandi, að árið 1992 leysti ESSO
til sín rúmlega 30% hlut Sambands-
ins í félaginu og jók við það lang-
tímaskuldir sínar um 800 milljónir
króna.
Það fer ekkert á milli mála að
Olíufélagið hf. (ESSO) er stórfyrir-
tæki, á íslenskan mælikvarða, svip-
aðrar stærðargráðu og Eimskipafé-
lag íslands, með afar sterka mark-
aðs-, eigna- og fjárhagsstöðu.
ESSO náði að auka markaðshlut-
deild sína um liðlega 2% á liðnu ári
og er áfram stærst íslensku olíufé-
laganna, með 44,1% af markaðnum.
Fyrirtækið hagnaðist um 200 millj-
ónir króna af rekstri síðastliðins
árs, eignir þess námu í árslok 1993,
7,1 milljarði króna, samkvæmt
samstæðureikningi félagsins og
eigið fé í árslok 1993 nam 3,3 millj-
örðum króna, sem er 47% eiginfjár-
hlutfall. Félagið hefur þessa sterku
eiginfjárstöðu, þrátt fyrir þá stað-
reynd að í nóvember 1992 ákvað
hluthafafundur ESSO að færa niður
þriðjung eigin fjár, þegar bréf Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga í
Olíufélaginu skiptu um eigendur.
Leysti til sín bréf á genginu 5
Sambandið átti meirihluta í OIíu-
félaginu til ársins 1988, en seldi
þá 18% í félaginu. Eign Sambands-
ins í ESSO var tæpur þriðjungur
félagsins þegar Landsbankinn tók
við eignum Sambandsins, með
stofnun eignarhaldsfyrirtækisins
Hamla hf. haustið 1992. Olíufélagið
leysti þá til sín hlutabréfin á geng-
inu 5,0 og hlutafé var lækkað um
210 milljónir króna að nafnvirði.
Jafnframt var gefíð út nýtt hlutafé
fyrir 50 milljónir króna að nafnvirði
og það selt á genginu 4,75, en hlut-
hafar höfðu þá forkaupsrétt að
þessu nýja hlutafé og nýttu sér
hann nær undantekningalaust. Við
þessa ráðstöfun hækkuðu Iangtíma-
skuldir Olíufélagins um 800 milljón-
ir króna. Einnig var nýtt hlutafé
að nafnverði 17,8 milljónir króna
gefíð út í fyrra og selt á genginu
4,25. Þegar 10% arðgreiðsla var
ákveðin á aðalfundi Olíufélagsins í
fyrra, var ákveðið að gefa hluthöf-
um kost á því að nýta arðinn til
þess að auka hlut sinn í félaginu,
en þeir sem ekki höfðu áhuga á
því, gátu fengið arðinn greiddan.
Hlutafé félagsins var í árslok 1993,
570 milljónir króna.
Segja má að Olíufélagið hafi við
kaupin á Sambandsbréfunum og
niðurfærslu hlutaijárins sem kaup-
unum nam, farið þá leið sem Eim-
skipafélag íslands hefur verið gagn-
rýnt fyrir að fara ekki, þ.e. að borga
hluthöfum sínum út ákveðna fjár-
muni. ESSO keypti bréf Sambands-
ins og færði síðan niður hlutafjár-
eignina og lækkaði þar með eigin-
fjárhlutfall fyrirtækisins, sem var
fyrir kaupin á bréfum Sambandsins
orðið óþarflega hátt, eða 60,4%.
Fimmtán stærstu hluthafar í
ESSO eiga samtals 72,06% í félag-
inu, en alls eru hluthafar félagsins
1.365 talsins. Þrír hluthafar eiga
yfir 10% hlut í ESSO: Olíusamlag
Keflavíkur á 13,1% hlut, Samvinnu-
sjóður íslands hf. á 10,7% hlut og
Samvinnulífeyrissjóðurinn á 10,15%
hlut í félaginu. Það liggur í hlutar-
ins eðli að þegar hluthafí eins og
Sambandið, sem átti þriðjung í
þessu volduga fyrirtæki, hverfur
úr hópi eigenda, verður um umtals-
verða breytingu á eignarhaldi að
ræða, þótt eignarhlutföll hafi í
sjálfu sér ekki breyst svo mjög, þar
sem hluthafar ákváðu að notfæra
sér forkaupsrétt að bréfum Sam-
bandsins. Undantekningin í þessu
sambandi er stóraukinn eignarhluti
Samvinnusjóðs íslands sem keypti
hlutabréfín af KEA á liðnu ári.
Skiptust á bréfum hvert í öðru
Á síðustu árum hafa nýir aðilar
eignast aukinn eða nýjan hlut í fé-
laginu. Vátryggingafélag íslands
er stærst í þeim hópi. Á árunum
1988 til 1990 keypti Olíufélagið
óvenju mikið af eigin bréfum, sem
skýrist af því að Sambandið, sem
fram til 1988 átti 52% í ESSO,
seldi 18% hlut í félaginu og var
komið niður í 33,6% hlut árið 1992.
ESSO keypti hluta þessara bréfa
og skipti síðan á þeim við VÍS, fyr-
ir bréf í VÍS. Þannig eignaðist Olíu-
félagið hlut í VÍS og VÍS hlut í
ESSO, án þess að nokkrir fjármun-
ir skiptu um hendur. Árið 1990
átti félagið ekkert í ESSO, árið
1991 keypti félagið 4,3% hlut með
bréfum í sjálfu sér, sem í árslok
1993 var orðinn 9,33% hlutur, og
VÍS þar með orðinn 4. stærsti eig-
andinn að ESSO. Samvinnusjóður
íslands jók hlut sinn á á milli ár-
anna 1992 og 1993 úr 3,06% í
10,68, en sjóðurinn keypti megnið
af þeim bréfum sem KEA seldi á
liðnu ári, þegar fyrirtækið minnkaði
hlut sinn í ESSO úr 10,75% í 4,19%.
Vogun hf. (í eigu Hvals hf.) átti í
árslok 1993, 4,83% og Venus hf.
(gamalt útgerðarfélag í Hafnarfirði
í eigu sömu aðila að hluta) eignað-
ist á liðnu ári 1,23%. Á liðnu ári
juku Sjóvá/Almennar hlut sinn úr
1,4% hlut í 4,17% hlut, en Festing
hf. sem er þeim tengd á 2,08%.
Benedikt Sveinsson, stjórnarfor-
maður Sjóvár/AImennra, segir fyr-
irtækið ekki hafa uppi nein sérstök
áform um að auka eignarhlut sinn
í ESSO frá því sem nú er. „Enda
stendur það ekki til boða,“ sagði
Benedikt þegar rætt var við hann
í vikunni og bætti við að ef einhver
hluti ESSO væri til sölu, þá myndu
Sjóvá/Almennar skoða það.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
hefur einnig aukið sinn eignarhlut
frá árinu 1991 úr 1,6% í 3,51%.
Gengi bréfa ESSO í árslok 1993
var 5,3-falt nafnverð, sem jafngild-
ir því að hlutabréf fyrirtækisins
hafi um síðustu áramót verið 3.026
milljóna króna virði. Gengi bréfa
ESSO hefur hækkað örlítið það sem
af er árinu og þann 21. mars sl.
var það skráð á 5,4-földu nafn-
verði, sem jafngildir 3.083 milljón-
um króna fyrir hlutabréfin í heild,
þannig að þau eru á markaðsvirði
57 milljónum króna verðmeiri í dag
en um áramót. Rétt er að geta þess
að viðskipti með hlutabréf ESSO
hafa verið afar lítil það sem af er
árinu. Samkvæmt ársreikningi
1993 var innra virði fyrirtækisins
5,8.
Stærsti hluthafinn
Olíusamlag Keflavíkur er stærsti
einstaki hluthafinn í ESSO, eftir
að Sambandið hvarf af sjónarsvið-
inu. Olíusamlagið á að nafnvirði í
félaginu 75 milljónir króna, eða
13,10% hlut. Olíusamlagið er gam-
alt samvinnufélag bátaeigenda á
Suðurnesjum sem stofnuðu með sér
innkaupasamband á olíu. Karvel
Ögmundsson hefur um áratuga
skeið verið helsti forsvarsmaður
þessa samlags og hefur hann fyrir
hönd þess átt sæti í stjórn ESSO
frá stofnun fyrirtækisins, allt þar
til 8. október sl. þegar hann varð
níræður og hætti þá í stjórninni að
eigin ósk. Hans sæti tók þá Ólafur
Björnsson, en á aðalfundi ESSO í
fyrradag var Guðjón Ólafsson,
framkvæmdastjóri Olíusamlags
Keflavíkur, kjörinn í stjórn ESSO.
Olíusamlagið hefur ávallt haft um-
boð fyrir ESSO á Suðurnesjum
(Keflavíkurflugvöllur undanskil-
inn), jafnframt því sem samlagið
annast gæsluna i Helguvík. Þrátt
fyrir samvinnuuppruna Olíusam-
lagsins hefur tekist samvinna á
milli þess, og þeirra sem fara með
eignarhlut Vogunar hf. (Hvals hf.),
Venusar, Sjóvár/AImennra og Fest-
ingar, á þann veg að Olíusamlagið
styður fulltrúa hinna við stjórnar-
kjör, þ.e. Kristján Loftsson, sem er
formaður stjórnarinnar, og þeir
styðja fulltrúa Olíusamlagsins, sem
er nú, eins og áður segir, Guðjón
Ólafsson.
Vátryggingafélag íslands reyndi
á aðalfundinum í fyrra að koma
sínum manni inn í stjórn fyrirtækis-
ins, Axel Gíslasyni, forstjóra VÍS,
en hann náði ekki tilskildu atkvæða-
magni. Engar slíkar tilraunir voru
gerðar á aðalfundinum í fyrradag,
enda mun hafa legið fyrir, áður en
fundurinn hófst, að fulltrúi VÍS
myndi ekki fá tilskilið atkvæða-
magn til að ná kjöri.
Aukin hlutabréfaeign
varnaraðgerð
Olíufélagið á umtalsverðar fjár-
upphæðir í áhættufé í öðrum félög-
um, sem eru eitthvað á fjórða tug
talsins, eða að nafnverði tæpar 600
milljónir króna, sem bókfærðar eru
upp á tæpar 691 milljón króna.
Athygli vekur að í þeirri hlutafjár-
eign eru einungis 33,4 milljónir
króna að nafnverði í öðrum félögum
sem skráð eru á hlutabréfamark-
aði. Á liðnu ári afskrifaði ESSO
hlutabréfaeign í öðrum félögum upp
Efnahagur Olíufélagsins 1988-93 (á verðlagi í árslok 1993)
Heildareignir
7.000 —
milljónir kr.
6.000
88 '89 '90 '91 '92 ’93 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 '93 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93
Eiginfjárhlutfall 1988-93
70 o/o------------------------
Olíufélagið hf. innleysir
hlutafé SÍS á árinu 1992
1988 1989 1990 1991 1992 1993
Afkoma Olíufélagsins hf. 1988-93 (á verðlagi í árslok 1993)
250 ------
200 ------
150 -
100'
50
-
HiMii
-
0 '88 '89 '90 ’91 ’92 ’93
Hagnaður (tap)
skv. ársreikningi
Hagnaður (tap) eftir vexti
af bókfærða eigin fé
’88 '89 ’90 '91 '92 ’93
irill
0
-50
-100
-150
Árleg ávöxtun hluthafa í Olíufélaginu hf. 1991-93
Samanburður við spariskírteini og bankavexti
Raun-
ávöxtun
hluthafa
’91 '92 '93
Raunávöxtunar-
krafa 3-5 ára
spariskírteina
’91 '92 '93
Meðalvextir vísi-
tölubundinna
útlána bankanna