Morgunblaðið - 26.03.1994, Side 27

Morgunblaðið - 26.03.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994 27 Brunnið bænahús LÖGREGLA rannsakar ummerki við bænahús gyðinga í Liibeck í Þýskalandi sem kveikt var í í gær. Eidsprengju varpað á bænahús gyðinga Fyrsta árás á bænahús frá „Kristalsnóttinni“ LUbeck, Bremen. Reuter. ELDSPRENGJU var varpað á bænahús gyðinga í gær i Liibeck í Þýskalandi og segja talsmenn gyðinga það vera fyrstu árás af því tagi frá „Kristalsnóttinni" árið 1938 er nasistar réðust á þúsundir bænahúsa og fyrirtækja gyðinga í landinu. Enginn slasaðist í árás- inni í gær en skemmdir urðu töluverðar. Krefjast gyðingar hertra aðgerða gegn þeim sem staðnir hafa verið að slíkum árásum. Lögregla í Liibeck kvaðst telja fullvíst að pólitískar ástæður hefðu legið að baki árásinni, sem gerð var degi fyrir páskahátíð gyðinga er hefst í dag. Mikil aukning varð á árásum nýnasista á innflytjendur og gyð- inga eftir sameiningu Þýskalands árið 1990 og hafa um 30 manns látið lífið í þeim. Nasistar hafa málað hakakrossa á bænahús og legsteina, svo og kastað svínshaus- um inn í bænahúsin. Gyðingar segjast ekki hafa fundið neinar heimildir um að ráðist hafi verið á bænahús þeirra frá „Kristalsnótt- inni“ í nóvember 1938. keppnisfær þá verður heldur engin hagvöxtur og atvinnutækifærum mun ekki f|'ölga,“ sagði Ferrer á blaðamannafundi. Hann sagði leiðtoga Evrópu- sambandsins hafa náð samtöðu um aðgerðir til að bæta samkeppnis- stöðu Evrópu á síðustu fundum sínum en hins vegar hefði tafist að hrinda þeim í framkvæmd. Stjórnmálamenn óttuðust kosning- ar og almenningur væri tregur til að afsala sér áunnum félagslegum réttindum. Ferrer vék einnig að íslandi og Evrópusambandinu og sagði evr- ópska iðn- og atvinnurekendur reiðubúna að styðja íslenska að- ildarumsókn þegar og ef til hennar kæmi. Aðspurður um hvort hann teldi að hagur íslendinga fælist í aðild sagði hann að það væri erfitt að vera einn á báti. Hugsanlega myndi það ganga fyrir Svisslend- inga af ýmsum ástæðum en óvíst væri hvort það sama ætti við um íslendinga. Talsmaður þýsku stjórnarinnar, Dieter Vogel, sagði hana fordæma atburðinn. Sagði hann um að ræða glæp gegn þjóð sem ynni að því bæta fyrir þá eyðileggingu sem átti sér stað undir stjórn nasista. Ráðist á Tyrki Þá var eldsprengju varpað inn í vefnaðarvöruverslun í eigu Tyrkja í Bremen í fyrrinótt. Leitt hefur verið að því getum að ný-nasistar eða Kúrdar hafi staðið að árás- inni. Sjö menn sem bjuggu fyrir ofan verslunina, komust út ómeiddir. Leit að nas- istaforingja Miinchcn. Thc Daily Tclcprapli. MIKIL leit er hafin í Þýskalandi að fyrrverandi hershöfðingja nas- ista sein er á flótta undan réttvís- inni. Hershöfðinginn, Otto Ernst Rem- er, er 81 árs gamall og var yfirmað- ur hersveitar sem varði byrgi Hitlers í Berlín undir lok heimsstyijaldarinn- ar síðari. Hann var dæmdur í 22 mánaða fangelsi í október 1992 fyrir að óvirða minningu fórnarlamba nas- ista með því að halda því fram í fréttabréfi að nasistar hefðu ekki stundað skipuleg dráp á gyðingum. Remer átti að fara í fangelsi í borginni Bayreuth á mánudag til að afplána dóminn en hann kom ekki fram. Handtökuskipun var gefín út og lögreglan fór á heimili hans í bænum Bad Kissingen í Bæjara- landi. Hershöfðinginn fyrrverandi fannst þar ekki og var þá hafin viða- mikil leit að honum. Alþjóðalögregl- unni Interpol var skýrt frá hvarfi 68 ára gömul kona dæmd fyrir aðild að morði á tengdasyni sínum Þótti einkar óviðfelldin og var staðin að lygum París. Reuter. FRANSKUR dómstóll dæmdi á fimmtudag 68 ára gamla konu i fimmt- án ára fangelsi fyrir að ráða leigumorðingja til að drepa tengdason sinn árið 1985. Réttarhöldin yfir konunni hafa vakið mikla athygli, hún hefur jafnan verið kölluð „amman“ og hefur gert lögmanni sín- um og lögreglu erfitt fyrir með ruglingslegum vitnisburði og lygum. Lófatak kvað við í réttarsalnum er dómur hafði verið kveðinn upp. Hin ákærða sýndi engin svipbrigði en lögfræðingur hennar grét. Marie-Elisabeth Cons-Boutbol var ákærð fyrir að eiga þátt í morð- inu á Jacques Perrot, sem var gift- ur dóttur hennar, Daire Boutbol, þekktum knapa. Lögfræðingur móðurinnar sagði að réttarhöldin hefðu hvorki leitt í ljós að Cons- Boutbol hefði ástæðu til að drepa tengdason sinn né að hún tengdist morðinu á nokkurn hátt. Dómstóll- inn féllst hins vegar á rök saksókn- ara, sem fullyrti að Cons-Boutbol hefði látið þagga niður í Perrot þar sem hann hefði komist að því að hún ætti háar fjárupphæðir á bankareikningi í Sviss, en hún hefði haft féð m.a. af trúboðum. Sagði saksóknari að hún hefði óttast að geta ekki lifað í vellystingum prakt- uglega, kæmist upp um hana. Cons-Boutbol var sýknuð af ákæru um að hafa fyrirskipað morðið á leigumorðingjanum sem talið er að hafi drepið tengdason hennar, en hann lét lífið á dularfull- an hátt. Lygar og tilfinningadoði Réttarhöldin hafa vakið óskipta athygli í Frakklandi, ekki síst vegna framferðis hinnar ákærðu, sem var hvað eftir annað staðin að lygum í réttarsalnum. Lýsti lögfræðingur Cons-Boutbol, því yfir að hún hefði reynst sér erfiðasti andstæðingur- inn við réttarhöldin. „Lygar þínar og tilfinningadoði höfðu mikil áhrif... Þú varst mér lítil hjálp," sagði lögfræðingurinn við hina ákærðu þegar hann lauk málflutn- ingi sínum. Þegar hann beindi orð- um sínum að dómurum sagði hann að þrátt fyrir að þeim kynni að finnast sakborningurinn ógeðfelld- ur og hatursfullur, mættu þeir ekki láta það hafa áhrif á sig. 1.29 7. □□□ KR ' 'v, 7 * J i í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.