Morgunblaðið - 26.03.1994, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
39
SJONARHORN
Oflug matvælalöggjöf jafn-
gildir fyrirbyggjandi aö-
gerðum í heilbrigðismálum
UM MIÐJAN janúar síðastlið-
inn kynnti Matvæla- og lyfja-
eftirlit Bandaríkjanna nýja
löggjöf fyrir matvælaiðnað-
inn. Talsmenn stofnunarinnar
segja að löggjöfin, sem nefnd
hefur verið Food code, eigi
að stuðla að öryggi matvæla
og líkja þeir slíkum öryggis-
þætti við fyrirbyggjandi að-
gerðir í heilbrigðismálum.
Talsmenn stofnunarinnar
segja ennfremur að fæðutengd-
ar sýkingar hafi ætíð verið
heilsuvandamál, og fari það
vaxandi. Ástæðurnar eru m.a.
þær að matvæli fara nú í gegn-
um fleiri framleiðslustig en þau
gerðu áður, þau eru meira unn-
in og fara um fleiri hendur á
leiðinni frá framleiðenda eða
skipshlið að borði neytandans,
einnig eru þau flutt til og frá
fjarlægari stöðum.
Fæðutengdar sýkingar
kostnaðarsamar
Bandaríkjamenn hafa reiknað
út kostnað við fæðutengdar sýk-
ingar bæði í mannslífum og út-
gjöldum. Dauðsföllin eru 10
þúsund eða fleiri á ári og um
24 milljón veikindatilfelli (sumar
tölur segja 81 milljón). Fjár-
magnskostnaðurinn er metinn
7,7 eða allt að 23 milljarðar
dollara. Trúlega er hlutfallsleg-
ur kostnaður svipaður í öðrum
löndum, einnig hér á landi, þar
sem meðhöndlun matvæla hér
er oft áfátt.
Matvælaframleiðendur
gerðir persónulega ábyrgir
í löggjöfinni, sem er mjög
víðtæk, er lögð áherslu á heil-
brigði og þekkingu. Með henni
á að stuðla að því að draga úr
hinum mikla kostnaði sem fylgir
fæðutengdum sýkingum. Lögin
eru frábrugðin hinum fyrri að
því leyti að nú eru lagðar áhersl-
ur á að koma í veg fyrir vanda-
málin, fremur en að uppgötva
þau í fullunninni vöru. Það þýð-
ir að matvælaiðnaðinum og
stjórnendum hans er ætlað að
taka á sig meiri ábyrgð en áður
og eiga eftirlitsstofnanir að
veita aðhald.
Fæðutengdar sýkingar
áhyggjuefni
Umtalsverð aukning hefur
orðið á fæðutengdum sýkingum,
nýjar bakteríur og eiturefni
þeirra hafa komið fram. Opin-
berir eftirlitsaðilar hafa áhyggj-
ur af auknum sýkingum af völd-
um baktería eins og salmonellu,
listería monocytogenes, e coli
enteritidis, og scombroid-eitrun-
um eða histamín-eitrunum.
E coli (enteritides): Alvarleg-
ar sýkingar og dauðsföll af völd-
um e coli hafa verið tengd neyslu
á hálfsteiktum hamborgurum
sem innihéldu e coli (sem eru
saurgerlar). Einnig hafa sýking-
ar af völdum e coli verið tengd-
ar neyslu á ógerilsneiddri mjólk.
Nú er til umræðu að banna sölu
á slíkri mjólk.
Listería getur leynst víða
Listerían (monocytogenes) er
baktería sem fyrirfinnst í
náttúrunni, hún getur verið
hættuleg þeim sem eru með
bælt ónæmiskerfi, m.a. af völd-
um sjúkdóma, einnig getur hún
valdið fósturláti. Af þessum
ástæðum eru matvæli sem eru
menguð listeríu umsvifalaust
tekin af markaði. í nýlegu blaði
Food Chemical News má sjá að
bann hefur verið lagt á fiskmeti
sem mengað er af listeríu, má
þar nefna reyktan laxi í
lofttæmdum umbúðum frá
ákveðnum bandarískum fram-
leiðenda og einnig ferskt
krabbakjöt frá öðrum. Pylsur
frá framleiðenda í Los Angeles
voru innkallaðir jafnvel þó að
engin veikindi hefðu komið í ljós.
Nýlega voru ýmsar smjörteg-
undir frá einum framleiðanda
innkallaðar í mörgum fylkjum.
Um 1.000-2.000 þúsund list-
eríu-eitranir eru taldar eiga sér
stað í Bandaríkjunum ár hvert.
Flestar þessar eitranir eru ein-
stök tilfelli en þau geta leitt til
alvarlegra veikinda. Faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa bent
til að illa soðnir kjúklingar geti
einnig verið áhættuþáttur, sér-
staklega hjá fólki sem er með
veilt ónæmiskerfi.
Listería er einnig í jarðvegi
hér og þó ekki sé vitað til að
hún hafi valdi fólki skaða er
ekki sömu sögu að segja um
búsmala.
Scombroid-eitrun eða
histamín-eitrun
Histamín fær sérstaka um-
fjöllun í kafla um öryggisþætti
í hinni nýju bandarísku mat-
vælalöggjöf. Histamín getur
verið varasamt vegna þess að
það er lyktarlaust og það eyði-
leggst ekki í suðu né við niðurs-
uðu.
í Food Chemical News, þar
sem þessi lagabálkur er sérstak-
lega tekinn fyrir, segir að
scombroid-eitrun eða histamín-
eitrun orsakist af neyslu á fiski
eða fiskafurðum sem orðið hafi
fyrir skemmdum af völdum
ákveðinna tegunda baktería eins
og clostridium perfringens og
eru fjórar aðrar bakteríurteg-
undir tilnefndar. Bakteríur þess-
ar framleiða ensím eða efna-
hvata sem ummynda ákveðna
aminósýru (aminósýrur eru
byggingarefni próteina) sem er
til staðar í flestum fisktegund-
um og framleiðir hún histamín.
Histamín, sem veldur of-
næmisviðbrögðum, getur mynd-
ast án þess að lykt fylgi byrj-
unarskemmdum á fiskinum.
Fiskafurðir sem hafa verið
tengdar scombroid- eða histam-
ín-eitrun eru feitari fisktegundir
eins og túnfiskur, makríll og
sardínur og fl. Þar mætti bæta
við flatfiski eins og lúðu.
Histamín-eitranir vel
þekktar hér
Ofnæmisviðbrögð í kjölfar
neyslu á feitum fiski eins og
t.d. lúðu voru vel þekkt fyrir-
bæri hér við sjávarsíðuna, sér-
staklega á vorin. Ekki var óal-
gengt að fá í kjölfar fiskineyslu
stóra hringlaga þrútna roða-
bletti á hörund og fylgdi viðþols-
laus kláði. Mæðrum var m.a. af
þeim ástæðum ráðlagt að gefa
ungum börnum sínum aðeins
sporðstykki af fiski til að forða
þeim frá ofnæmisviðbrögðum.
Fitan í fiskinum var talinn or-
sakavaldurinn. Nú hefur komið
í ljós að hitastigið sem fiskurinn
er geymdur við er þar mikilvæg-
asti þátturinn.
Histamín-myndandi bakter-
íur vaxa venjulega hraðar eftir
því sem hitastig er hærra. Hist-
amín vex að hættumörkum á 6
klst. við 32C en 24 klst. sé hita-
stigið 21C. Þetta er þó breyti-
legt eftir fisktegundum. Hættu-
magn histamíns í fiski er 5
milligrömm í 100 grömmum af
fiskholdi, en mörkin eru 20 mg
í 100 g í niðursoðnum fiski.
Bætt eftirlit stuðlar að betra
heilbrigði neytenda
Histamínmyndun veldur ekki
lykt sem gæti verið viðvörun til
kaupenda, því þykir líklegast til
árangurs að kanna hvort staðið
sé rétt að kælingu á fiskinum í
geymslum veiðiskipa. Kaupend-
um á fiski hefur verið bent á
að taka ekki við fiski sem hefur
ekki verið kældur niður fyrir 4C
fljótlega eftir að hann hefur
verið veiddur og hitastiginu
haldið við. Neytendur ættu að
taka mið af því.
Hin nýja matvælalöggjöf mið-
ar að því að herða gæðakröfur
og eftirlit í matvælaiðnaði.
Mættum við gjarnan taka mið
af því. Með því að stuðla að
framboði á betri og heilnæmari
matvælum er stigið stórt skerf
í forvarnastarfi í heilbrigðismál-
um.
M. Þorv.
í 3 daga
l\lú hvílum vid bílana, því ad
í þrjá daga, 28. - 30. mars
verður ókeypis í strætó fyrir
alla sem sýna ökuskírteini.
permisdeconoujbe
auiisKÍRLE'N).
n.Fumnain^
\ Örva£_Ott
3. Nalnínner
1R26-674A
j.Fæðingardagur
4. Heimitt
-RnrgarggýS
■pay'Kravt^-
l-^75tQátudaQur
A1518.
Spörum öensín
nohun shæfó
BACKMAN