Morgunblaðið - 09.04.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRIL 1994
15
Breiðholtslögreglan fyr-
irmynd í afbrotavörnum
eftir Þór Sigfússon
Nýlega ákvað Lögreglustjórinn í
Reykjavík að koma starfsemi lög-
reglustöðvarinnar í Breiðholti í
sama horf og hefðbundnar lög-
gæslustöðvar í borginni. Hinn 7.
apríl skrifar hann grein í Morgun-
blaðið þar sem hann segir ekki rétt
sem fram kom í grein Gunnars Jó-
hanns Birgissonar lögmanns fyrir
páska að starfsemi lögreglustöðvar-
innar í Breiðholti hafi verið breytt
og fon/arnastarfi ýtt til hliðar. Lög-
reglustjóri segir í grein sinni að
íbúar í Breiðholti „eigi kost á meiri
þjónustu en áður frá sinni hverfis-
lögreglu sem starfar eftir sömu
áherslum og áður eða í anda for-
varna og grenndarlöggæslu".
Þessi fullyrðing lögreglustjóra er
rétt í orði en ekki á borði. Þeir sem
unnu að forvamastarfinu í lögregl-
unni í Breiðholti heyra nú undir
yfirmann þessarar útkallsstöðvar.
Frumkvæði og áhugi þeirra lög-
reglumanna sem unnið hafa merki-
legt frumhetjastarf í grenndarlög-
gæslu er því í hættu með þeim
breytingum sem gerðar hafa verið.
Það hefur því orðið varasöm breyt-
ing á starfi lögreglunnar í Breið-
holti sem nauðsynlegt er að kippa
í liðinn.
Verulegur árangur í Breiðholti
Ef litið er á tölur yfir skráð af-
brot í algengustu brotaflokkum á
Reykjavíkursvæðinu á árunum
1991-1993 kemur fram að þeim
hefur fjölgað um 18,5% á þessu
tímabili. (Einungis er miðað við
afbrot sem skráð eru á hverfi en
það er tæpur helmingur þeirra af-
brota sem framin eru.) Ef skoðaðar
eru samskonar tölur fyrir Breið-
holtssvæðið kemur fram að afbrot-
um hefur fækkað um rúmlega 16%
á þessu tímabili. Innbrotum á
Reykjavíkursvæðinu fjölgaði um
50% en þau stóðu í stað í Breið-
holti á þessu tímabili. Þjófnuðum á
Reykjavíkursvæðinu fjölgaði um
18% á þessu tímabili en þeim fækk-
aði um rúmlega 11% í Breiðholti.
Þetta er augljósustu merki þess að
forvarnastarf Breiðholtslögregl-
unnar hefur skilað árangri. Þá eru
ótalin ýmis mál sem Lögreglan í
Breiðholti hefur upplýst með aðstoð
íbúa á svæðinu eins og með ólög-
lega framleiðslu og sölu á bruggi.
Samskonar árangur þarf að nást í
allri Reykjavík þannig að um alda-
mót hafi afbrotum fækkað um
fjórðung. Það er hægt með því að
efla afbrotavarnir í starfi lögregl-
unnar eins og tíðkast hefur hjá
Breiðholtslögreglunni.
Tölumar hér að ofan benda til
þess að árangur forvarnastarfs
Breiðholtslögreglunnar sé góður og
að hann muni skila sér margfalt á
næstu árum. Þetta má skýra á eftir-
farandi hátt. Ef hægt er að breyta
gerðum afbrotaunglings, sem án
aðstoðar biði langur afbrotaferill,
má spara verulegar fjárhæðir þar
sem áætla má að ferill afbrota-
manns kosti samfélagið tugi millj-
Þór Sigfússon
„Það hefur því orðið
varasöm breyting á
starfi lögreglunnar í
Breiðholti sem nauð-
synlegt er að kippa í
liðinn“
óna króna vegna glataðs þýfis, vist-
unarkostnaðar o.fl. Færri afbrot í
Breiðholti benda til þess að ein-
hvetjum afbrotaunglingum hafi
verið snúið til gæfuríkari framtíðar
þar sem Breiðholtslögreglan hefur
m.a. hlúð sérstaklega að afbrota-
unglingum.
Forvarnir auknar í
nágrannalöndum
Flestar niðurstöður athugana á
forvarnastarfi lögreglu benda til
þess að það stuðli að fækkun af-
brota. Einmitt þess vegna hafa
áherslur á löggæslu víða um heim
færst frá almennu löggæslustarfi
yfir til grenndarlöggæsiu og al-
menns forvarnastarfs. í Svíþjóð er
t.d. stefnt að því að innan tíðar sinni
einn af hveijum tíu lögreglumönn-
um grenndarlöggæslu. I Noregi
hafa lögregluyfirvöld staðið fyrir
margvíslegum umbótum sem m.a.
miða að því að auka tengsl lögreglu-
manna og íbúa, gera lögregluþjóna
ábyrga fyrir tilteknum svæðum. í
Danmörku hefur verið lögð mikil
áhersla á nálægð lögreglumanna
við íbúa og hagsmunasamtök tiltek-
inna svæða með góðum árangri.
Lögregluyfirvöld í Reykjavík
standa nú að verkefni í Grafarvogi,
svokallaðri nágrannavörslu, sem
byggir á þátttöku íbúa og sam-
starfi þeirra og lögreglu. Þetta
framtak er þakkarvert og sýnir að
lögregluyfirvöld eru að reyna að
feta sig áfram í forvarnastarfi. Sú
starfsemi sem staðið hefur í Breið-
holti hefur skilað góðum árangri
og sama hefur verið með starfsemi
lögreglunnar í Grafarvogi. Þetta
mikilvæga forvarnastarf þarf að
halda áfram.
Forvarnastarf er ábatasamt
Hefði innbrotum í Breiðholti
fjölgað jafn mikið á tímabilinu
1991-1993 og meðaltal á Reykja-
víkursvæðinu ættu þau að vera
tæplega 730 á árinu 1993 en þau
reyndust 516. Ef miðað er við að
meðalafbrot kosti um 50-80 þús-
und krónur þá er samfélagslegur
sparnaður af fækkun afbrota í
Breiðholti um 15 milljónir króna á
ári. Þá er einungis tekið tillit til lík-
legs kostnaðar vegna brota, ekki
lengri vistun eða vinnutapi. Þá er
ekki inn í þessum tölum sá lang-
tímasparnaður sem hlýst af þvi að
snúa afbrotaungiingum til betri
vegar. Miðað við kostnað við rekst-
ur forvarnastarfsins í Breiðholti
hefur arðsemi þessara forvarna ver-
ið mjög góð.
Við Islendingar höfum verið svo
lánsamir að umfang afbrota hérlend-
is hefur enn sent komið er verið
mun minna en í flestum löndum í
kringum okkur. Við höfum ekki
þurft að óttast í jafn ríkum mæli
að afbrot séu framin gagnvart heim-
ilum okkar eða fjölskyldum en það
er þó ljóst að við stefnum í sömu
átt og nágrannaþjóðir okkar ef ekk-
ert er að gert. Við þurfum að vernda
þau lífsgæði sem felast í lágri tíðni
afbrota hérlendis. Það verður helst
gert með öflugu forvarnastarfi og
samstarfi íbúa og lögreglu.
Það er hætta á því að merkar
afbrotavamir í Breiðholti séu lagðar
fyrir róða með þeim breytingum sem
gerðar hafa verið á Breiðholtsstöð-
inni. Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur sýnt áhuga á forvarnastarfi í
löggæslu og ber að fagna því. Nú
þarf hann að sýna viljann fyrir verk-
ið og tryggja farsæla framtíð for-
varnastarfsins í Breiðholti.
Höfundur er hugfræðingur og
vann að skýrslu um kostnað vegna
afbrota fyrir dómsmála-
ráðuneytíð.
Láttu þig varða bam, því
okkur kemur það við
eftir Ullu Magnússon
Sem aðilar að ECOSOC, Efna-
hags- og félagsmálaráði Sameinuðu
þjóðanna, mun SOS Kinderdorf Int-
ernational taka þátt í ári fjölskyld-
unnar m.a. með því að taka 1.000
munaðarlaus eða yfirgefin börn inn
í SOS-fjölskylduna og leita styrkt-
arforeldra fyrir þau.
Hvernig væri nú á ári fjölskyld-
unnar að bæta við okkur einum fjöl-
skyldumeðlim, einum lítinn ein-
staklingi sem þú og fjölskylda þín
tæki upp á arma sína?
Þessi börn fá heimili, móður og
systkini i einu af barnaþorpum
SOS, en þú getur síðan tekið eitt
þessara barna að þér. Þú greiðir
kr. 1.000 á mánuði. Þú færð mynd
af barninu og upplýsingar um
ástæðu þess að þetta tiltekna barn
er komið inn á heimili hjá SOS, þú
fylgist með uppvexti þessa barns
og getur skrifast á við það.
SOS-barnaþorpin er alþjóðleg
OPIÐ hús verður í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti sunnudag-
inn 10. apríl frá kl. 10.30-15.
Gestum gefst kostur á að sjá
skólann í starfi en þá verður verk-
leg kennsla, sýnikennsla, verkefna-
vinna og umræðuhópar. Kennslu-
bækur og kennsluefni nemenda
verður til sýnis í deildum skólans.
Kennarar og nemendur munu veita
upplýsingar um nám við skólann.
hreyfing, hreyfing vegna þess að
nú þegar geta milljónir manna geta
kallað sig barnavini, með því ýmist
að taka að sér ákveðið barn eða
þorp eða greiða ftjáls framlög
reglulega. Því er þetta ekki aðeins
félagsskapur heldur hreyfing,
hreyfing til hjálpar munaðarlausum
og yfirgefnum börnum um heim
allan.
Það er einstakt að fá innsýn í
starf SOS og kynnast því hvernig
stofnandinn Hermann Gmeiner
byggði fyrsta þorpið í Imst í Austur-
ríki árið 1949 og hvernig sama
grundvallarhugmyndin um móður,
systkini og heimili hefur breiðst út.
í dag hafa verið byggð 316 barna-
þorp í rúmlega 100 löndum heims.
Óll þessi börn bjargast frá vonleysi
til vonar, frá ósjálfstæði til sjálf-
stæðis, frá útilokun til þess að vera
þátttakandi í samfélaginu. Hvað er
hægj; að gera meira fyrir barn sem
á engan að?
SOS gefur þessum börnum tæki-
Auk ofangreinds verður rímna-
kveðskapur, stutt atriði úr leikritinu
Hobbit verður sýnt í hátíðarsal skól-
ans og kór skólans undir stjórn
Ernu Guðmundsdóttur mun flytja
nokkur lög. Útskriftarnemendur
munu annast kaffisölu í mötuneyti
nemenda.
FB er stærsti framhaldsskóli
landsins. Nemendur eru 2.400 og
kennarar 120 talsins.
Ulla Magnússon.
færi til lífs, líf í sínu eigin landi,
uppvöxt í sinni eigin menningu og
SOS sér um að börnin fái menntun,
oftast iðnmenntun þannig að þau
verði sjálfbjarga þegar þau flytja
„að heiman“.
Þetta væri ekki hægt án fólks
sem lætur sig málið varða, fólk sem
gerir eitthvað, Hennann Gmeiner
sagði: Gerðu eitthvað, ekki bara
tala.
í dag gera margir Islendingar
eitthvað, 1.200 Islendingar hafa
tekið að sér barn, tekið lítið barn
inn í sinn heim. Þessi börn vaxa
upp og vita að það er til fóik í öðr-
um hlutuin heims sem lætur sig þau
varða og sendir þeim ást og um-
hyggju.
„Sem aðilar að EC-
OSOC, Efnahags- og fé-
lagsmálaráði Samein-
uðu þjóðanna, mun SOS
Kinderdorf Internation-
al taka þátt í ári fjöl-
skyldunnar m.a. með því
að taka 1.000 munaðar-
laus eða yfirgefin börn
inn í SOS-fjölskylduna
og leita styrktarforeldra
fyrir þau.“
Nokkrir íslendingar hafa þegar
heimsótt börn sín, mæðgur fóru til
Brasilíu, hjón heimsóttu Ghana, ung
stúlka til Hondúras, ungur maður
í viðskiptaferð notaði tækifærið og
kom við og heilsaði upp á „stelp-
una“ sína á Indlandi.
Vitnisburður þessa fólks færir
okkur heim sanninn um gildi þessa
starfs. Undantekningarlaust koma
þau heim með upplifun í hjarta sínu,
frásagnir um hina sérstöku stund
þegar þau stóðu andspænis þessu
barni „sínu“ og með þakklæti í
hjarta fyrir að fá að taka þátt í lífi
þess.
En fyrir utan bíða mörg fleiri
börn, við vitum að við getum seint
hjálpað öllum, en þau börn sem
okkur tekst þannig að koma til
bjargar munu bera sína reynslu um
ást og umhyggju áfram til sinna
barna, þau læra hvernig heimilislíf
gengur fyrir sig, þau læra að taka
tílit til anoarra og þau læra að í
Opið hús í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti
BARNAÞORP
UM
VÍÐA VERÖLD
hinum efnaða hluta heims eru ein-
staklingar sem láta aðra sig varða.
Við búum við velmegun og þótt
samdráttur sé um sinn eru þjóðar-
tekjur okkar með þeim hæstu í
heimi, við erum lánsöm þjóð og aldr-
ei hefur staðið á okkur þegar beiðni
berst, það höfum við margoft sýnt
og hvers vegna ekki að gera þetta
að föstum útgjaldalið í heimiiisbók-
haldi okkar alveg eins og við gerum
þegar við kaupum áskrift að blaði
eða sjónvarpi? Stöðug og viðvarandi
aðstoð sem treystir grunninn fyrir
þessa einstaklinga og er hjálp til
sj álfshjálpar, það skiptir þá máli.
Höfundur er formaður SOS
barnaþorpanna á Islandi.