Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 17 Hverfaráðsstjórnir R-listans til óþurftar •• eftirMarkús Orn Antonsson Fátt er hvimleiðara og hættu- legra í fámennu þjóðfélagi okkar en öfund og fánýtur metingur á milli landshluta. Stundum kemst hann jafnvel á það stig að sumir telja sig öðrum verðugri að ráð- stafa lunganum af gjaldeyristekj- um þjóðarinnar, af því að meiri útflutningsverðmæti skapist á einu landsvæði fremur en öðru. Þessari þjóð ríður mest á að standa saman. Sem stendur eru ekki mörg sjáanleg teikn um að vakn- ingaralda af þeim toga fari um byggðir landsins, þó að tilefni væri til á lýðveldisafmælinu. Þvert á móti sjást merki þess að nú sé það vilji vissra stjórnmála- afla að sundra og tvístra þeirri heild sem sameinuð hefur staðið til þessa. Reykvíkingar hafa staðið vel saman, haft mikinn metnað fyrir hönd heimkynna sinna og þannig náð mikilsverðum ávinn- ingi í samfélagsumbótum í sívax- andi borg. Allar skipulagsáætlanir vinstri meirihlutans í borgarstjórn á árunum 1978-1982 og áform um þróun nýrrar byggðar og íbúa- fjölgun í Reykjavík voru reistar á þeirri forsendu að Reykvíkingar yrðu aðeins 87.000 talsins um næstu aldamót. Byggðin átti að þróast til suðurs, í Kópavog og Garðabæ. Þetta var vinstri metn- aður eins og hann gat gleggstur orðið. Sem betur fer var gripið hressi- lega í taumana, þegar sjálfstæðis- menn komumst aftur í meirihluta 1982. Þá hófst á ný mikið fram- fara- og uppbyggingarskeið þann- ig að borgarbúar voru orðnir 100.000 í febrúar 1992 og verða líklega um 110.000 við aldamót í stað hins lítilmótlega markmiðs félagshyggjuflokkanna um 87.000 manns. Gömul sovéthugmynd Alþýðubandalagsins Reykjavík er tvímælalaust veg- leg borg á íslenskan mælikvarða en ekki raunveruleg stórborg. Nú hefur R-listinn kynnt það sem eitt helsta baráttumál sitt við borgar- stjórnarkosningarnar í maí að sundra borgarbúum og splundra stjórnkerfi borgarinnar með því að setja upp hverfaráðstjórnir í Reykjavík. Þetta er gömul hugmynd Al- þýðubandalagsins og er mjög í þeim ráðstjórnaranda sem þar hef- ur svifið yfir vötnum allar götur síðan flokkurinn tók við út- breiðslustarfi hérlendis fyrir stjórnunarmódelið í gömlu Sovét- ríkjunum. Slík hverfasovét hafa tíðkast í Moskvu og öðrum gersk- um ævintýraborgum. Eins og nærri má geta hafa því tilraunir verið gerðar með þessa skipan í Svíþjóð og sjást nú á henni fleiri gallar en kostir. Vera má, að í skrifræði sænskrar félagshyggju hafi slík gjá myndast milli íbúa einstakra borgarhluta og hinna pólitísku fulltrúa í borgarstjórn að viss von hafi verið bundin við þetta fyrirkomulag. Ef til vill gat það átt við í borgum með fjórum til átta sinnum fleiri íbúa en Reykja- vík, eða þaðan af stærri. I Gautaborg var komið á rúm- lega 20 hverfaráðstjórnum. Og eins og margir óttuðust hófust fljótlega átök um peningalega for- sjá borgarmála, deilur við borgar- stjórnina um völd og áhrif, sem bitnað hefur á heildarhagsmunum. Stefnt í upplausnarástand Reykjavík má síst við því að slík togstreita eigi sér stað milli hverfa borgarinnar. Borgin er ekki stærri og erfiðari yfirferðar en svo að 15 manna borgarstjórn er full- komlega treystandi til að hafa þá innsýn í hagi borgarbúa, hvar í hverfi sem þeir búa, að nægi til að hér verði áfram stunduð réttlát og skilvirk stjórnsýsla með fullu tilliti til þarfa mismunandi borgar- hverfa eins og jafnan hefur verið gert. Tillögur R-listans um hverf- aráðstjórnir í Reykjavík eru hugs- aðar í þeim eina tilgangi að spilla einingu borgarbúa. Slík sundrung- ariðja er skólabókardæmi um starfsaðferðir gömlu marxistanna, sem ráða ferðinni hjá R-listanum. Hverfaráðstjórnir með fastmót- uðu valdsviði í stjórnkerfi borgar- innar yrðu að sjálfsögðu að vera pólitískar og kjörnar í almennum kosningum. Þó að fjarstæðukennt sé að ímynda sér slíkar Vesturbæj- ar- eða Grafarvogskosningar á pólitískum forsendum þætti þó öllu alvarlegra, ef pólitísk valdahlutföll í hverfaráðstjórnunum yrðu nú allt önnur en í hinni eiginlegu borgarstjórn. Þar með væri stefnt í upplausnarástand í stíl við annan glundroða hjá R-listanum. Pólitísku hverfavaldi fylgdu vafalítið kröfur um launuð stjórn- arstörf og fjárhagslegt forræði til- tekinna málaflokka hverfisbúa. Þá peninga yrði barist um að sækja i hinn sameiginlega borgarsjóð. Stutt yrði síðan í vangaveltur um framlegð viðkomandi hverfa í þann sjóð með sköttum hverf- isbúa, sem menn vildu gjarnan sjá skila sér að fullu og öllu beint heim aftur til verkefna í hverfinu. Þetta er einmitt reynslan, þar sem hverfaráðstjórnirnar hafa starfað í nágrannalöndunum. Borgarbúar sjálfir velji sér vettvang í Reykjavík starfa mörg íbúa- samtök sem hafa látið mikið að Markús Örn Antonsson „í Gautaborg var komið á rúmlega 20 hverfa- ráðstjórnum. Og eins og margir óttuðust hóf- ust fljótlega átök um peningalega forsjá borgarmála, deilur við borgarsljórnina um völd og áhrif, sem bitn- að hefur á heildarhags- munum.“ sér kveða í samstarfi við borgaryf- irvöld um margháttuð framfara- mál á viðkomandi félagasvæðum. Þetta eru samtök af ýmsum gerð- um og stærðum. í yngri borgar- hverfunum, þar sem sameiginleg- ar framkvæmdir standa enn yfir, eins og i Grafarvogshverfi, Árbæj- ar-, Artúns- og Seláshverfum og Breiðholtshverfunum, starfa öflug félög. Þau hafa komið mörgum þörfum tillögum til borgarstjórnar og fylgt úrvinnslu þeirra og fram- kvæmd eftir. Borgin styrkir starf- semi þeirra og ýmissa fleiri. Önnur eru fámennari og félagasvæðin þrengri eins og hjá íbúasamtökum í Suðurhlíðum, Litla-Skeijafirði norðan fiugvallar, og Rauðarár- samtökunum, sem verið hafa ráð- gefandi um aðgerðir borgarinnar á svæðinu milli Skúlagötu og Laugavegar. Þessi fjölbreytni á fullan rétt á sér og ástæðulaust að steypa félögum i stærri heildir og gera hin smærri áhrifalaus. Borgarbúar eiga sjálfir að fá að velja sér þann vettvang sem þeir helst kjósa og hentar þeim best í samskiptum við borgaryfirvöld. R-lista foringinn vildi banna atvinnurekstur í hinum eldri og grónari hverf- um er þetta félagsstarf með öðrum brag eins og að líkum lætur. Þarf- irnar eru ekki jafn knýjandi og á nýju borgarsvæðunum. Stundum virðist verkefnafátæktin meira að segja leiða menn á villigötur. Er mér þá í fersku minni uppistand sem forystan í íbúasamtökum Vesturbæjar stóð að fyrir tveimur árum vegna nýrrar fiskimjölsverk- smiðju í Örfirisey. Ófagrar voru lýsingarnar á þeim ósköpum sem yfir okkur Vesturbæinga ættu að ganga eftir að þessi verksmiðja yrði tekin í notkun. Og blessaðir túristarnir í miðbænum áttu líka að kafna í ólyktinni og ferðaþjón- ustan í borginni að líða undir lok. Nú hefur þessi verksmiðja starf- að í tæp tvö ár og engrar loftmeng- unar orðið vart frá henni enda hafði ekki verið talin hætta á slíku. Á það vildu forystumenn í íbúa- samtökum Vesturbæjar ekki hlusta en heimtuðu þennan nauð- synlega hlekk í vinnslu sjávaraf- urða fluttan úr Reykjavík. Bara eitthvað burt. Lýsir sú afstaða ákaflega vel hugsunarhætti R-lista fólks í at- vinnumálum Reykvíkinga. For- maður íbúasamtakanna, sem hafði sig mest í frammi um að þessi atvinnurekstur í Örfirisey yrði bannaður, er einmitt núverandi framkvæmdastjóri R-lista fram- boðsins. Höfundur er frambjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Reykjavík - opin og lýðræðisleg borg eftir Guðrúnu Zoega Flokkarnir sem standa að R-list- anum hafa nýlega birt stefnuskrá sína fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í vor. Yfirskrift stefnuskrár- innar er „Opin og lýðræðisleg borg“. Ekki verður séð, hvernig þessi yfirskrift getur átt við nýja listann, varla er það vegna þess hvernig valið var á hann? Ef borið er saman, hvernig valið var á lista Sjálfstæðisflokksins og á R-list- ann, er ólíku saman að jafna. Á lista Sjálfstæðisflokksins var valið með lýðræðislegum hætti í próf- kjöri, sem allir flokksbundnir sjálf- stæðismenn höfðu rétt á að taka þátt í. Tæplega níu þúsund manns greiddu atkvæði í prófkjörinu og völdu úr hópi tuttugu og fimm frambjóðenda og hlutu tíu þeirra bindandi kosningu í efstu sætin. Allt er hins vegar á huldu um það, hvernig raðað var á R-list- ann. Lítill hópur fólks ákvað hvernig sætunum yrði skipt á milli flokka (eða ekki-flokka). Að því búnu ákváðu mismunandi stórir hópar innan flokkanna, mest fáein hundruð, hveijir yrðu fulltrúar þeirra á listanum og í hvaða röð. Til fróðleiks má geta þess að sá sem skipar fjórða sæti R-listans var kosinn í það sæti með 146 atkvæðum og segir það kannske nokkuð um lýðræðið á þeim bæ. „Hvernig getur það verið andstætt lýðræð- inu að flokkur sem fær meirihluta í lýðræðis- legum kosningum fari með völdin?“ Er lýðræðið ólýðræðislegt? í viðtali við borgarstjóraefni R-listans í Morgunblaðinu nýlega segir það það vera „andstætt lýð- ræðinu að einn og sami flokkurinn fari með svo viðamikið valdakerfi, eins og borgin er, í nánast sextíu ár“. Hvernig getur það verið and- stætt lýðræðinu að flokkur sem fær meirihluta í lýðræðislegum kosningum fari með völdin? Síðar í sama viðtali líkir borgarstjóra- efnið stjórnvöldum í Reykjavík við valdhafa í Kína og Sovétríkjunum, svo smekklegt sem það nú er. Stjórnkerfi borgarinnar — opið kerfi Innan hins pólitíska stjórnkerfis starfar fjöldi nefnda sem fer með stjórn hinna ýmsu málaflokka í umboði borgarráðs og borgar- stjórnar. Má þar til dæmis nefna skólamálaráð, skipulagsnefnd, íþrótta- og tómstundaráð, félags- málaráð og fleiri. í hverri nefnd eru fimm fulltrúar sem eru kosnir af borgarstjórn og eiga flokkarnir þar fulltrúa í hlutfalli við fjölda kjörinna borgarfulltrúa. Borgar- ráð er yfir ölum þessum nefndum, en það fer með framkvæmdastjórn borgarinnar og þar eru allar helstu ákvarðanir teknar, m.a. um fjár- mál. Borgarráð er því í raun valda- mesta stofnun borgarkerfisins. Fundargerðir allra nefnda eru op- inberar og aðgengilegar öllum sem þess óska. Þess má geta að hægt er að gerást áskrifandi að fundar- gerðum, ef menn vilja fylgjast sérstaklega með í einhveijum málaflokki. Auk þess eru öll plögg sem lögð eru fram í nefndum og í borgarráði opinber og getur hver sem er fengið þau sér til fróðleiks og upplýsingar og notfæra frétta- menn sér það meðal annars. Ekki þarf að taka fram' að fundir borg- arstjórnar eru opnir. Samkvæmt sveitarstjórnarlög- um hafa sveitarstjórnarmenn „að- gang að bókum og skjölum sveit- arfélagsins og óhindraðan aðgang að stofnunum þess og starfsemi". Borgarfulltrúar geta auk þess leit- að til embættismanna borgarinnar eftir upplýsingum og fá yfirleitt skjót og góð svör. Þess má enn fremur geta að borgarstjóri hefur viðtalstíma fyrir almenning i hverri viku, og koma tugir manna Guðrún Zoéga í hvern viðtalstíma. Borgarfulltrú- ar almennt eru að sjálfsögðu til viðtals fyrir borgarbúa. Meirihluti minnihluta í borgarráði Að einu leyti hafa fulltrúar Kristinn Ingvarsson ljósmynd- ari á Morgunblaðinu tók blaðaljós- mynd ársins 1993 að mati dóm- nefndar Blaðamannafélags ís- minnihlutans rétt fyrir sér, þegar þeir tala um ólýðræðislegt kerfi. Það varðar skipan borgarráðs. I borgarráði sitja fimm kjörnir full- trúar með atkvæðisrétt og eru þeir kosnir af borgarstórn með lýðræðislegum hætti. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga fulltrúar þeirra flokka sem ekki hafa kjör- fylgi til að fá fulltrúa í borgar- ráði, áheyrnarfulltrúa, sem sitja alla fundi borgarráðs, með mál- frelsi, tillögurétt og á fullum laun- um. Nú eiga fjórir af fimm borgar- fulltrúum minnihlutans sæti í borgarráði — með eða án atkvæð- isréttar — á móti þremur af tíu fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Minnihlutinn hefur því áhrif í borgarráði langt umfram kjör- fylgi. Að þessu frátöldu eiga fullyrð- ingar um að stjórnkerfí borgarinn- ar sé lokað og ólýðræðislegt ekki við nein rök að styðjast. Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar i vor. lands. Mynd Kristins er af Jóoi Guðmundssyni menntaskólakenn- ara og birtist með viðtali við Jón í Morgunblaðinu. Blaðaljósmyndir sýndar í Listhúsi í Laugardal ÚRVAL blaðaljósmynda síðasta árs er nú til sýnis í Listhúsinu í Laugardal og er þetta síðasta sýningarhelgin. Sýningunni lýkur miðvikudaginn 13. apríl og er opið daglega frá klukkan 12-19. Alls eiga 16 ljósmyndarar tæplega 100 myndir á sýningunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.