Morgunblaðið - 09.04.1994, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
Lagt til að símsvar-
inn verði aflagður
FORMAÐUR Verslunarmannafélags Reykjavíkur og lögmaður
þess áttu í fyrrakvöld fund með forsljóra Hagkaupa, þar sem
þeir fóru fram á að símsvari sem ætlaður er til að starfsfólk fyrir-
tækisins geti komið upplýsingum um stuld samstarfsmanna á fram-
færi, verði aflagður. I hans stað verði tekið upp opið samstarf
við starfsólkið um innri vörurýrnun hjá fyrirtækinu.
„Það er augljóst að óeðlileg vör- úr þessu vandamáli," segir Magn-
urýrnun er vandamál sem snýr
ekki aðeins að starfsfólkinu, heldur
einnig viðskiptavinum fyrirtækis-
ins,“ segir Magnús L. Sveinsson,
formaður VR, en hann átti fund
með trúnaðarmönnum félagsins á
fimmtudagsmorgun vegna sím-
svarans. A fundinum var því heitið
að yfirmenn Hagkaupa myndu
halda fund með starfsfólki þar sem
allar hliðar málsins yrðu ræddar
og reynt að fínna aðrar leiðir til
þess að taka á vandanum.
Magnús segir að á fundi með
trúnaðarmönnum hafí komið fram
að starfmenn Hagkaupa séu afar
óánægðir með símsvarann og telji
miður að yfírmenn fyrirtækisins
slái því föstu að aðalrýmunin á
vörum stafi af þjófnaði starfs-
fólks, en ekki öðrum orsökum.
„Fólkið hefur fullan skilning á því
að taka þurfí þessi mál föstum
tökum, og er fúst til að ræða við
vinnuveitendur sína um hvernig
koma megi í veg fyrir eða draga
us. Hann segir að símsvaranum
hafí verið komið á fót til að „auð-
velda starfsfólki að koma ábend-
ingum á framfæri", sem veki
spurningar um hvort starfsfólkið
eigi ekki beinan aðgang að yfír-
mönnum sínum vilji það skýra frá
vitneskju um þjófnað. Einnig opn-
ist sá möguleiki með símsvaran-
um, að óheiðarlegir starfsmenn
beri heiðarlega samstarfsmenn
sína röngum sökum, sem viðkom-
andi þyrftu þá að bera af sér.
„Mín skoðun er sú að þetta kerfi
geti virkað öfugt á fólk, og sé til
þess fallið að spilla andrúmslofti
á vinnustað,“ segir Magnús og
kveðst telja það óheppilegt af þeim
sökum.
Morgunoiaoio/JAnstinn
Dansað til styrktar Alnæmissamtökunum
DANSMARAÞON fór fram í félagsmiðstöðinni Þróttheimum aðfaranótt laugardagsins 26. mars sl. Um 45
unglingar á aldrinum 13-15 ára söfnuðu áheitum og dönsuðu í hálfan sólarhring. Áheit söfnuðust með því
að ganga í hús og fyrirtæki styrktu maraþonið með því að gefa t.d. mat og drykk. Rokkbandalagið, klúbbur
fyrir þroskahefta unglinga í Þróttheimum, styrkti söfnunina með því að safna áheitum og halda kökubasar á
laugardeginum. Maraþonið gekk vel fyrir sig og söfnuðust á annað hundrað þúsund króna sem renna til Alnæ-
missamtakanna á íslandi.
Félagsmálaráðherra mælir fyrir EES-frumvarpi um hópuppsagnir á Alþingi
Vinnuveitandi hafi samráð við
VR fundar með forstjóra Hagkaupa vegna símsvara
Bókamark-
aði að ijúka
BÓKAMARKAÐI Félags ís-
lenskra bókaútgefenda í
Mjóddinni lýkur nú um helg-
ina. Hann verður opinn laug-
ardag og sunnudag kl. 10-19
báða dagana.
Af því tilefni verður margt
um að vera á markaðnum.
Nýjum bókartitlum verður bætt
við og fleiri sértilboð verða á
bókum. Efnt verður til uppá-
koma fyrir bömin um helgina
m.a. kemur Georg sparibaukur
íslandsbanka í heimsókn á
laugardag kl. 11, 13 og 15 og
gefur börnunum gjafír. Kom-
ið hefur verið fyrir króki fyrir
börnin þar sem þau geta lesið,
föndrað og leikið sér meðan
foreldrarnir kynna sér bóka-
úrvalið en alls eru um tíu þús-
und titlar á markaðnum.
starfsmenn við hópuppsagnir
Þingmenn gagnrýna lögfestingu frumvarpa frá Brussel
SAMKVÆMT lagafrumvarpi um hópuppsagnir sem félagsmálaráðherra
mælti fyrir á Alþingi í fyrradag verður atvinnurekandi, sem áformar
hópuppsagnir, að hafa samráð við trúnaðarmann eða fulltrúa starfs-
manna með það fyrir augum að ná samkomulagi. Að minnsta kosti á
að leita leiða til að forðast þessar hópuppsagnir eða fækka starfsmönn-
um sem fyrir þeim verða og draga úr afleiðingunum með hjálp félags-
legra aðgerða. Samkvæmt lagafrumvarpinu telst það hópuppsögn þeg-
ar fimm starfsmönnum eða fleiri er sagt upp á 30 daga tímabili. Frum-
varpið er flutt í samræmi við ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar um
Evrópska efnahagssvæðið og varð það tilefni harðrar gagnrýni þing-
manna á að lögfesta frumvörp sem samin væru í Brussel en ekki af
íslenskum stjórnmála- eða embættismönnum.
Jóhanna Sigurðardóttir félags- sagði að þessi veruleiki væri að birt-
málaráðherra sagði að frumvarpið
væri flutt til að tryggja betur réttar-
stöðu fólks vegna hópuppsagna og
væri breyting á lögum sem sett voru
í fyrra um hópuppsagnir og hefðu
þá þótt veruleg réttarbót. Svavar
Gestsson þingmaður Alþýðubanda-
lagsins sagði að frumvarpið væri enn
ein staðfestingin á að breytingar á
íslenskri löggjöf ættu ekki uppruna
sinn hjá íslenskum stjórnmálamönn-
um heldur Evrópukerfinu. Svavar
ast þingmönnum sem aldrei fyrr í
þeim 10 kílóum af pappír sem þorin
hefðu verið á borð þingmanna í fyrra-
dag og enginn þingmaður myndi
lesa, ekki einu sinni Hjörleifur Gutt-
ormsson flokksbróðir hans. En í
fyrradag var dreift á borð þingmanna
fimm stórum bókum sem innihalda
viðbætur við EES-samninginn, allt
2.500 blaðsíður og var sjötta bókin
jafnframt boðuð. „Þetta er auðvitað
dapurlegt fyrir Alþingi íslendinga
að láta bjóða sér afgreiðslur af þessu
tagi,“ sagði Svavar.
Aðrir þingmenn sem tóku til máls
viðhöfðu svipaða gagnrýni, þar á
meðal Eyjólfur Konráð Jónsson þing-
maður Sjálfstæðisflokks sem. Hann
sagði það sorglega staðreynd að
mjög fáir þingmenn væru yfirleitt í
þingsalnum þegar málefni Evrópu-
samstarfsins væru rædd og sú skerð-
ing á fullveidi Islands sem menn
yrði að horfa upp á nærri dag hvern
þegar komið væri með pappíra frá
Evrópusambandinu inn á þingið til
að lögfesta. En slíkt væri brot á
stjórnarskránni og þar af leiðandi
afbrot að halda þessum leik áfram.
Réttindi skert
í umræðunni kom fram sú skoðun
þingmanna að í kjölfar versnandi
atvinnuástands væri hætta á að rétt-
indi launafólks yrðu skert. Jón Kristj-
ánsson þingmaður Framsóknar-
flokks sagðist telja að mörg teikn
Stefna stjómvalda í Kína mun
væru á lofti um að hér á landi væri
í undirbúningi áróðursherferð at-
vinnurekenda fyrir minnkandi rétt-
indum launafólks. Guðrún Halldórs-
dóttir varaþingmaður Kvennalistans
sagði að þessi áróðursherferð væri
löngu hafin og hefði verið að magn-
ast út um alla Evrópu. Og um leið
og slíkum málflutningi yrði hleypt
yfir þjóðina hindrunarlaust, þá væri
verið að veikja verkalýðsfélögin, sem
væru ein af sterkustu stoðum þjóðar-
innar. Hún sagði að það frumvarp
sem verið var að ræða væri aðeins
eitt dæmi um öll þau áhrif sem væru
að streyma yfir þjóðina og þeim yrði
að beijast gegn ef ekki ætti að fara
illa.
Jóhanna Sigurðardóttir mótmælti
því að ríkisstjórnin hefði ekkert gert
til að tryggja réttindi launafólks.
Ríkisstjórnin hefði þvert á móti gert
ýmislegt til að bæta atvinnuástandið
og ýmislegt væri í undirbúningi til
að bæta réttindi launafólks. Hún
sagðist vera sannfærð um að nýleg
löggjöf um starfsmenntun hefði gert
mikið gagn og tryggt að a.m.k. 10
þúsund manns hefðu notið góðs af
slíkri menntun. Jóhanna nefndi einn-
ig meðal annars frumvarp um vinnu-
miðlun, sem lagt hefur verið fram á
Alþingi og benti á að nefnd væri að
endurskoða bótakerfið allt.
stuðla að frjálsara samfélagi
kom fram í máli utanríkisráðherra í viðræðum um mannréttindamál við Kínverja
MANNRÉTTINDAMÁL bar á góma í viðræðum Jóns Baldvins
Hannibalsssonar utanríkisráðherra við kínversk stjórnvöld sem um
þessar mundir sæta harðri gagnrýni, einkum frá Bandaríkjamönn-
um, vegna meðferðar á andófsmönnum. Jón Baldvin sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið hafa látið þá skoðun í Ijós að sú stefna kínver-
skra stjórnvalda að opna samfélagið og sækjast eftir erlendri fjár-
festingu mundi stuðla að opnara
„Sú stefna kínverskra stjórn-
valda að opna kínverskt samfélag,
að hverfa frá miðstýrðum áætlunar-
buskap, að hvetja til samstarfs við
erlenda aðila án tillits til hugmynda-
fræði; dreifíng hins efnahagslega
valds, það að breyta stöðnuðum
miðstýrðum ríkisfyrirtækjum í
hlutafélög, að leita eftir þátttöku
erlendra aðila við að byggja þau
upp í hlutafélagsformi, að opna
þjóðfélagið út á við með því að
heimila ekki aðeins erlendum fyrir-
'tækjúm starfsemi heldur með náh-
og frjálsara samfélagi.
ari samskiptum í fjarskiptum og
upplýsingamiðlun; allt væru þetta
spor í rétta átt og myndi stuðla að
því í framtíðinni að Kína þróist frá
miðstýrðu valdstjórnarríki yfir í
opnara og fijálsara samfélag. Þetta
kom meðal annars fram í mínu
máli að væri mitt mat,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.
„í þeirra máli kom fram að
ágreiningur þeirra við Bandaríkin
væri út af fyrir sig ekki um eitt-
hvert vestrænt hugtak sem héti ein-
staklingsbundin mannréttindi héld-
ur teldu þeir að það að setja ríki
eins og Kína skilyrði að því er varð-
ar jafnrétti í alþjóðlegum kjörum í
viðskiptum væri ekki í samræmi við
alþjóðlegar reglur og ekki líklegt
til að skila neinum jákvæðum
árangri.
Mannréttindi yrðu best tryggð í
Kína með framhaldi þeirrar stefnu
sem nú væri haldið fram og það
var athyglisvert að þeir bentu sér-
staklega á reynsluna frá Rússlandi
þar sem menn hefðu byijað með
glasnost og perestrojku, umtali um
fijálsræði og auknu fijálsræði fjöl-
miðla, en algjörri vanrækslu á því
að undirbyggja umbætur á hinu
efnahagslega kerfi, sem hefði leitt
til þess sem þeir kalla neyðarástand
og spurðu: Hefur það stuðlað að
áuknúm mannréttihdúm I Rúss-
landi, sú þróun sem þar hefur átt
sér stað á undanfömum árum í
hruni lífskjara, hruni hins efnahags-
lega kerfis, stóraukinni glæpastarf-
semi, óðaverðbólgu og stjórnleysi,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra, sem nú er stadd-
ur í Kóreu, þar sem hann hélt í gær
fyrirlestur við Utanríkis- og örygis-
málstofnun Kóreu um utanríkis-
stefnu íslands eftri hrun Sovétríkj-
anna og á fundi með forseta lands-
ins og utanríkisráðherra, þar sem
m.a. verður rætt um GATT-sam-
komulagið og viðskiptahindranir og
háa tolla sem Kóreumenn leggja á
vörur íslenskra útflytjenda, auk
þess sem Jón Baldvin kvaðst telja
víst að hættuástand í samskiptum
ríkjanna á Kóreu-skaga bæri á
góhiá. '■... '
-----♦ --------
Stokkseyri
Vinnsla kom-
in í gang
hjá Fiskeyri
Stokkscyri.
VINNSLA er nú komin aftur í
gagn hjá Fiskeyri á Stokkseyri
eftir stutt hlé.
Hjá fyrirtækinu vinna 16 manns
og hráefnið er keypt á fiskmörkuð-
um. Þessa stundina er verið að vinna
ýsu og steinbít en einnig hafa þeir
verið að vinna utankvótafisk, svo sem
háf. Veltur áframhaldandi vinnsla á
framboði hráefnis og hvort takist að
koma fyrirtækinu í afurðalánavið-
skipti en eins og staðan er er lokað
á þau öll. Það væri því hagnaðurinn
af loðnuvinnslunni sem hefði komið
þeim af stað nú.
- Gísli Gísla.